Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.1987, Blaðsíða 30
42
MÁNUDAGUR 9. FEBRÚAR 1987.
Sviðsljós
Liberace þegar hann var upp á sitt besta.
Liberace
Ölyginn
sagði...
Diana Ross
sér um að dæturnar þrjár fái
bestu menntun sem föl er
fyrir seðla. Stjarnan greiðir
rúmar fimm hundruð þús-
und krónur á mánuði fyrir
litlu rossurnar á einkaskóía í
Svisslandi. Staðurinn er
rómaður fyrir dugnað við að
stappa fróðleik inn í ferkönt-
uð höfuð og standa vonir til
þess að einhver hluti aur-
anna skili sér í ómetanlegum
gullkornum af vörum nem-
endanna síðar á lífsleiðinni.
Roger Moore
er ekkert sestur í helgan stein
þótt hann sé kominn á eftir-
laun sem núllnúllsjö.
Spæjarinn fyrrverandi
stundar nú karateæfingar af
kappi í henni Hollí og þar
er pískrað um hver tilgang-
urinn með bramboltinu geti
hugsanlega verið. Einna
helst er veðjað á dúndrandi
kommbakk sem höggþung
karatehetja þar sem allir
venjulegir rambóar yrðu
slegnir flatir á einu bretti.
Stjarnan hefur ekki sagt orð
um málið ennþá en verður
sér úti um útrás í æfingatím-
unum - nærstöddum til
blandinnar ánægju.
Brigitte Bardot
ætlar að flytja frá St. Tropez
því hún er löngu orðin
hundleið á ágangi forvitinna
ferðamanna í kringum heim-
ilið. Nú skal farið í burtu frá
öllu veraldaramstrinu og lifa
í ró og friði frá umheiminum.
Mikið rétt hjá stjörnunni en
vonsviknum pílagrímum í
bombuleit skal á það bent
að BB verður að finna í
næsta bæjarfélagi - Aix-
en-Provence.
Sem kunnugt er lést hinn frægi
píanóleikari Liberace þann 4. feb. í
lifanda lífi var hann goðsögn í
skemmtanaiðnaðinum, ekki hvað
síst vegna glæstra búninga, lokkandi
loðfelda og skínandi hringa. Einnig
vöktu hundarnir hans jafnan mikla
athygli, en af þeim hafði hann fjöld-
ann allan í kringum sig. Sjálfur
milljónamæringurinn lét þá ekki
skorta neitt í þeirri glæsiveröld sem
hann lifði í og skreytti hundana með
demöntum, gaf þeim rándýrar af-
mælisgjafir, lét fagfólk sjá um feldinn
á þeim og ánafnaði þeim drjúgan
skerf í erfðaskránni.
Liberace sagði sig haldinn blóð-
sjúkdómi og neitaði ávallt ásökunum
um að hann væri sýktur af eyðni.
En kunnugir í Hollywood staðhæfa
að hann hafi verið með eyðni og
benda á í því sambandi að áður en
hann veiktist hafi náðst af honum
mynd í næturklúbbi í New York með
tveimur þekktum hommum og annar
þeirra sé þegar látinn úr eyðni.
Hvað sem því líður átti Liberace
þá ósk heitasta að fá að deyja heima
hjá sér með sína bestu vini og ætt-
ingja hjá sér og þá ósk fékk hann
uppfyllta. Hann lætur eftir sig mikil
aufæfi fólgin í skartgripum, nokkur
hús og íbúðir, safn, málverk, 2o bíla
og 18 píanó.
Feldi klæddur Liberace ásamt vinum.
Mánudagsmeiköpp
Ohhh... þessir mánudagar! Þeir reynast mörgum þungir í skauti og
ekki alltaf jafngaman að líta í spegilinn eldsnemma morguns. Sem betur
fer verða ekki allir eins og kappinn á meðfylgjandi mynd svona í viku-
byijun - enda óalgengt að menn breytist í skordýr svona upp úr þurru.
Það kom hins vegar fyrir Jeff Goldblum í kvikmyndinni The Fly og vilja
menn nú ólmir veita honum óskarinn fyrir vikið.
DV
Risabarbí
Ginger Rogers átti kvöldið þegar Fred Astaire verðlaunin voru veitt í
New York City. Hún heldur ennþá sínu platinuljósa hári, vöxturinn bungu-
laga með afbrigðum og kvöldkjóllinn ekki af verri endanum. Skerandi
gulur og hvitur blómakjóll varð fyrir valinu og mátti öllum Ijóst vera að
barbímamma allra alda var mætt á staðinn.
Næturklúbbaeigandinn Mario Jutare er nýjasti elskhugi Mónakóprinsess-
unnar og er kappinn vægast sagt með skuggalegt mannorð.
Stefanía prinsessa:
Elskhugi með
vafasama fortíð
Maðurinn í lífi Stefaníu af Món-
akó heitir Mario Jutare og þykir
enginn gæðapappír í Hollívúdd.
Hann er tvííráskilinn, fyrra hjóna-
bandið stóð í þrjár vikur og meðan
á því síðara stóð var hann meðal
annars ákærður fyrir að nauðga
ásamt félaga sínum nítján ára gam-
alli stúlku. Þeir voru dæmdir í níutíu
daga skilorðsbundið fangelsi og voru
jafnframt undir sérstöku eftirliti í
þrjú ár eftir atburðinn. Þetta gerðist
árið nítján hundruð áttatíu og tvö
og það var ekki fyrr en um síðustu
mánaðamót að endanlega gekk í
gegn skilnaður Marios og síðari eig-
inkonunnar.
Móðir stúlkunnar, sem fyrir
nauðguninni varð, segir dótturina
aldrei hafa náð sér eftir atburðinn
og biður furstann í Mónakó þess
lengstra orða að bjarga Stefaníu frá
þessum stórhættulega manni. En það
fer enginn neitt með Stefaníu sem
hún ekki vill sjálf og nýjustu yfirlýs-
ingar prinsessunnar hljóða á þá leið
að Mario verði maðurinn í lífi henn-
ar til frambúðar.
„Við höfum það gott saman og
hann er eini maðurinn sem ég hef
elskað síðan sambandi okkar Paul
Belmondo lauk. Það gerðist þegar
ég var sextán ára en hann átján og
við vorum hreinlega of ung til að
geta höndlað hamingjuna. Ástin
hreinlega brenndi okkur upp til
agna.“
Núna er Stefanía sannfærð um að
framtíðin blasi við þeim Mario -
björt og fögur. Hann hefur útskýrt
nauðgunarmálið fyrir prinsessunni
og sagt frá þessari fávísu stúlku sem
kom honum og vininum í vandræði
þegar þeir höfðu ósköp venjulega
þriggja manna skemmtun í huga.
Prinsessan skilningsríka er alveg
með á nótunum þar líka svo langur
armur laganna eða furstans föður
Stefaníu mun ekki ná því að stía
elskendunum sundur. Talsmaður
furstahallarinnar hafði aðeins eitt
um málið að segja: „Jú, það er rétt.
Maðurinn er greinilega í miklum
metum hjá prinsessunni núna. En
hver vill fullyrða að svo verði einnig
eftir einn mánuð?“