Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.1987, Qupperneq 31

Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.1987, Qupperneq 31
MÁNUDAGUR 9. FEBRÚAR 1987. 43 Sviðsljós Bragga- leikhús á Bráðræðis- holti Leikskemman heitir nýtt leikhús sem sýnir núna Þar sem Djöflaeyjan rís eftir Einar Kárason. Húsnæðið er með sérstæðara móti. Upphaflega var þarna frystihús og braggi sem núna nýtist í þágu listar- innar. Ef til vill væri réttnefni á staðinn „ekk’of- seint-leikhúsið“ því inn- koma í salinn liggur yfir sviðið. Það getur síðan orðið til vandræða fyrir þá sem ekki hafa stundvísina sín megin. Fats Domino hérlendis i annað skipti. Hann vekur alltaf jafnmikla hrifningu. Fats og týndi tíminn Að undanförnu hefur gamla kempan Fats Domino verið í heimsókn á íslandi - öðru sinni. Ekki hefur hrifning gesta á Breiðvangi verið minni en hið fyrra sinni og að staðnum streyma fulltrúar sextíu og átta kynslóð- arinnar - sumir kannski í ómeðvitaðri leit að eigin æsku. Meðfylgjandi DV-myndir tók Ragnar S. af hinni þeldökku stjörnu og áheyrendum - en margir hinna síðarnefndu tóku fullan þátt í öllu sem fram fór á sviðinu. Sextiu og átta kynslóðin í leit að horfnum dýrðardögum? Húnvaldi hundana Norski landkönnuðurinn Monica Kristensen hætti í síðustu viku við að reyna að ná suðurpólnum. Hún átti aðeins eftir fjögur hundruð og fjörutíu metra þegar leið- angrinum var hætt - og ástæðan var að Monica vildi ekki fórna lífi hundanna í leiðangrinum. Þetta var þriggja manna leiðangur sem var á ferð í fótsporum Roalds Amundsens. Fjörutíu og fjórir dagar liðnir og ljóst að takmarkið var í nánd. Þá kom í ljós að tíminn var naumur, þau myndu ekki ná til strandar í tæka tíð og þvi skipið sem beið þeirra eiga á hættu að lokast inni í ísnum. Til greina kom að koma þeim þangað - frá pólnum - með bandarískri herflugvél en þá þurfti að lóga öllum hundunum sem voru tuttugu og tveir talsins. Þeir áttu enga möguleika á því að kom- ast með vélinni líka. Monica þurfti ekki langa umhugsun - þótt hún segði eftir á að það hefði verið þyngsta ákvörðun í lífinu til þessa. „Við snúum við,“ sagði hún aðeins við félaga sína, Jan Almquists og Jacob Larsen. Og svo var hafist handa við að framkvæma þá ákvörðun. Sex ára undir- búningsvinna, lífsdraumur var brostinn og hundrað milljónir famar í súginn svona skammt frá takmarkinu. En tuttugu og tveimur hundalífum var ekki fómandi fyrir frægðina að dómi norska landkönnuðarins. ■WKWr ijj ii ■recagg. ■ o'-' • ■ -vw- .•••■• Monica Kristensen með einn hund- anna sem kostuðu hana suðurpóls- förina. Þrjár kynslóðir Nuna um helgina verður frumsýnt nýtt barnaleikrit í Þjóðleikhusinu. Það heitir Rympa ó ruslahaugnum og er eftir Herdfsi Egilsdóttur. í verkinu koma fram þrjór kynslóðir lelkara þvi feðginin Sigriður Þorvaldsdóttir og Þorvaldur Steingrimsson eru þama á fjölunum ásamt dóttur Sigríðar - Hjördísi Elfnu Lórusdóttur. Hjördis túlkar Rympu litla en Sigriður er ann- ars Rympa verksins. DV-mynd Jóhanna Olafsdóttir. •K *-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.