Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1987, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1987, Side 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 17. FEBRÚAR 1987. Fréttir Ullariðnaðurinn: Beðið um 40 milljónir í viðbótamiðurgreiðslur Ullariðnaðurinn hefur farið fram á að ríkisstjórnin veiti 40 milljónum króna í viðbótamiðurgreiðslur á ís- lenskri ull. Telja forsvarsmenn ulla- riðnaðaiins íslensku ullina ekki nýtast eins vel og áður. hún sé ekki lengur í tísku og markaðurinn minnki. - við þær 100 milljónir sem þegar eru greiddar Með því að auka niðurgreiðslumar fái ullarverksmiðjurnar hi'áefnið á sama verði og þær gætu keypt erlenda ull fyrir. Að sögn Guðmundar Sigþórssonar í landbúnaðarráðunevtinu var ull nið- urgreidd á siðasta ári sem nam 75 krónum á kíló eða samtals um 100 milljónir króna sent fóm í niður- greiðslur. Guðmundur á sæti í 3ja manna nefnd sem fjallar nú um þetta mál og sagði hann að engu væri hægt að spá um hvað yrði gert en málið yrði skoðað í þessari viku og niðurstöður gætu legið fyrir í vikulokin. Jón Helgason landbúnaðarráðherra sagði að í gær hefðu þrir ráðherrar, landbúnaðarráðherra, viðskiptaráð- herra og fjármálaráðherra, rætt þetta mál á fundi. Ekkert liefði þar verið ákveðið annað en að 3ja manna nefnd- in skoðaði málið betur og síðan yrði það metið hvort rétt þætti að verða við þessari beiðni. -S.dór Búið að undirrita i Ráðherrabústaðnum. Ráðherrarnir takast i hendur, þeir Biwott og Albert Guðmundsson. A milli þeirra er ræðismaður íslands i Kenya, Ingi Þorsteinsson, áður fyrr einn fremsti frjálsiþróttamaður okkar. DV-mynd GVA Iðnaðarráðherrar Islands og Kenýa: Innrömmuðu tvo og hátfan milljarð Líklegt er að íslenskir jarðvísinda- menn og verktakar fái vemleg verk- efni á sviði gufúborana og virkjana. Albert Guðmundsson iðnaðarráðherra og K.N.K. Biwott, iðnaðarráðherra Kenýa, undirrituðu viljayfirlýsingu í þessa vem í gær. Hún tekur til verk- efna upp á 65 milljónir dollara eða 2,5 milljarða króna. Gert er ráð fyrir að menn frá Orku- stofnun, verkfræði- og verktakafyrir- tækjum fari með Albert til Kenýa innan skamms. Þá ræðst endanlega hvaða verkefni semst um. Auk borana eftir gufu er ætlunin að reisa 60 megavatta gufuaflsrafstöð. Slík stöð er nýbyggð í Kenýa en þess- ar stöðvar em á stærð við Kröflustöð- ina hér eins og hún var hönnuð. Þá getur einnig orðið um að ræða verk- efhi við dreifingu raforku um landið og ýmislegt því tengt. -HERB Samstaða um megininntak staðgreiðslu- kerfisins sagði Þorsteinn Pálsson við lok fyrstu umræðu Við lok fyrstu umræðu um stað- greiðslukerfi skatta í efri deild Al- þingis í gærkvöldi fagnaði Þorsteinn Pálsson fjármálaráðheiTa eindregnum vilja og stuðningi sem fram hefði kom- ið við að greiða fyrir framgangi málsins. Sagði Þorsteinn að allvíðtæk samstaða væri um megininntak þess. Samþykkt var að vísa þeim fjórum frumvörpum, sem flutt eru um skatt- kerfisbreytinguna, til fjárhags- og viðskiptanefhdar deildarinnar. Hyggst nefndin nýta sér það næði, sem gefst meðan Norðurlandaráðsþing stendur yfir í Finnlandi í næstu viku, til að fara ofan í saumana á frumvörpunum. Fulltrúar allra flokka lýstu yfir stuðningi við staðgreiðslukerfið. Efa- semdir og andstaða komu þó fram við ýmsa þætti. Fulltrúar stjómarandstöðuflokk- anna, Ragnar Amalds, Alþýðubanda- lagi, Eiður Guðnason, Alþýðuflokki, og Sigríður Dúna Kristmundsdóttir, gagnrýndu einkum að breytingin skyldi aðeins ná yfir skatta launa- fólks. Fyrirtækjum og rekstraraðilum væri sleppt við þessa breytingu. Öll nefndu þau að námsmenn, sem væm að hefja störf að námi loknu, yrðu verr settir. Þá sagði Ragnar að hópur manna dytti á milli tveggja kerfa, til dæmis þeir sem veiktust í upphafi þessa árs en hefðu haft miklar tekjur á síðastliðnu ári og byrjuðu aftur að vinna á næsta ári. Ragnar og Sigríður Dúna töldu of lágt að miða skattfrelsismörk við 33 þúsund króna mánaðartekjur. Ragnar vildi miða skattfrelsi í tekjuskatti við 50 þúsund krónur. Sigríður Dúna sagði að allur fjár- magnsarður yrði áfram frádráttarbær en væri ekki felldur niður eins og flest- ir aðrir frádrættir. Jón Kristjánsscn, Framsóknar- flokki, sagði að einstakir þingmenn Framsóknarflokksins hefðu áskilið sér rétt til að hafa fyrirvara um ýmsa þætti. Nokkur atriði þyrfti að skoða sérstaklega vel. í því sambandi nefhdi Jón meðal annars tekjur fámennra sveitarfélaga, húsnæðisafsláttinn og skattlagningu bílastyrkja og dagpeninga. -KMU Flugferð bóndans á Þverá „Sá ekki neitt“ „Skyggni var gott en pabbi sá ekki neitt,“ sagði sonur bóndans á Þverá um flugferð foður síns yfir Melrakkasléttu á sunnudag í leit að týndu hestunum sjö. Var þetta önnur flugferð Kristjáns Benediktssonar bónda í leit að hestum sínum sem nú hafa verið týndir á annan mán- uð. Er heimilisfólk á Þverá farið að hallast að því að hestamir hafi en- dað líf sitt í sláturhúsi og sjáist ekki meir. „Ég veit eiginlega ekki hvar á að leita næst. Við erum búnir að kemba mestalla Norður-Þingeyjarsýslu," sagði sonur bóndans á Þverá. -EIR Vestmannaeyjar: Verð á loðnu til fiystingar ákveðið verðið er nú 10,50 upp í 13,50 krónur fyrir kílóið - verðið í Japan 46 til 60 krónur fyrir kílóið í gær var verð á loðnu til frysting- ar ákveðið í Vestmannaeyjum og er það fyrsta verðlagningin á frysting- arloðnu á landinu nú en loðnuverðið er frjálst. Verðið í Eyjum var ákveð- ið 13,50 krónur fyrir kíló af loðnu þar sem 50 stykki eða færri em í kílóinu. Fyrir loðnu þar sem 50 stykki eða fleíri em í kílóinu eða hrognafylling undir 15% er verðið 10,50 krónur fyrir kílóið. Þetta er svipað verð og í fyrra að sögn Kristj- áns Ragnarssonar, formanns Lands- sambands útvegsmanna, en þá var það 8,75 krónur fyrir kílóið en sjóða- kerfi var við lýði en nú er það aflagt. „Miðað við þá verðhækkun sem orðið hefur í Japan, samkvæmt samningum íslensku söluaðilanna, þykir okkur þetta verð of lágt, en við getum ekkert gert fyrr en 4. mars að núverandi verðlagstímabil rennur út,“ sagði Kristján Ragnars- son. Hann sagði greinilegt að sölu- samtökin óttuðust að samningamir sem þau gerðu í Japan á dögunum héldu ekki, vegna undirboðs Kanadamanna. Þeir Japanir sem nú em í samningum í Vestmannaeyjum um gæði og flokkun loðnunnar ku vera mjög strangir og erfiðir við- fangs. Verðið sem samið var um við Jap- ani var 1166 dollar fyrir tonnið af lægri flokknum en 1500 dollarar tonnið fyrir hærri flokkinn. Þetta er 29% hækkun frá því í fyrra. Kristján Ragnarsson sagði útvegs- menn bíða eftir verði frá öðrum frystihúsum í landinu. Ef það yrði alls staðar það sama væri verðið ekki lengur f'rjálst, heldur væri þá um samtök um verð að ræða. -S.dór

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.