Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1987, Qupperneq 25
ÞRIÐJUDAGUR 17. FEBRÚAR 1987.
25
dv Sandkorn
Hrafn Gunnlaugsson.
Útflutnings-
bætur
Nýafstaðtn úthlutun Kvik-
myndasjóðs hefur verið mikið
til umræðu mannaá meðal.
Ástæðan er einkum rausn
sjóðsins við Hrafn Gunn-
laugsson. Hann fékk sem
kunnugt er úthlutað 15 millj-
ónum króna til gerðar
myndarinnar Um Tristan og
ísold. Myndin er þó fjármögn-
uð að langmestu leyti af
sænsku kvikmyndastofnun-
inni og getur því varla flokk-
ast undir íslenskan
kvikmyndaiðnað.
En hvað um það, þegar orð-
hagur maður frétti um fimmt-
án milljónirnar hans Hrafns
þá datt út úr honum:
Kvikmyndastyrkurinn stór
stendur varla undir
nafni,
því aðalupphæðin fór
í útflutningsbætur með
Hrafni.
IMæsti
formaður
Oft heyrist rætt um að hin
eða þessi karlavígin séu að
hrynj a. Með því er átt við að
jafnréttissinnaðar konur séu
að ryðjast inn á starfs- eða
félagslegan vettvang karl-
anna.
En þetta á ekki bara við um
karlavígin. Vestfirska frétta-
blaðið hefur það fyrir satt að
einir sex eða sjö karlmenn séu
gildir meðlimir í kvenféiaginu
Iðju í Súðavík. Þetta mega
heita tíðindi út af fyrir sig.
Einn þeirra mætu manna,
sem eru virkir í kvenfélaginu
í Súðavík, er Halldór Jónsson,
skrifstofustjóri fiskvinnslu-
stöðvarinnar Frosta. Hefur
Halldór látið hafa það eftir sér
að hann stefni hærra í kven-
legu kompaníi, því hann eigi
sér þann draum æðstan að
verða formaður Kvenfélaga-
sambands Islands. Ekki
dónalegtþað.
Kusiá
ferðalagi
Ymsar sögur hafa verið
sagðar af Eggert Haukdal ai-
þingismanni í gegnum tíðina.
Eftirfarandi er ein, sem bæði
er græskulaus og gamansöm:
Það var einhverju sinni að
bóndinn á Bergþórshváli átti
leið austur undir Eyjafjöll.
Þar kom hann á bæ þar sem
honum var tekið með kostum
og kynjum. Að skilnaði leysti
bóndinn á bænum hann út
með gjöf sem var nýfæddur
kálfur.
Þegar hér var komið sögu
var Eggert orðinn knappur
með tíma því þing stóð yfír og
þurfti hann að mæta í þing-
sali síðdegis. Hann kvaddi því
í skyndi og brunaði til Reykja-
víkur.
Dregur nú ekki frekar til
tíðinda fyrr en vörður á bíla-
stæði Alþingis fer að heyra
einhver einkennileg hljóð á
stæðinu. Hann hóf þegar eftir-
grennslan og fljótlega bárust
böndin að bíl Eggerts Hauk-
dal sem hafði verið lagt
Eggert Haukdal.
snyrtilega á planið. Vörðurinn
beið nú ekki boðanna en þaut
inn til að ná í þingmanninn.
Hann hafði varla lokið frá-
sögn sinni þegar Eggert
snaraðist út og opnaði skottið
á bíl sínum. Og viti menn, þar
lá kusi og baulaði.
Sagan fékk skjótan endi því
Eggert stökk upp í bílinn og
brenndi austur með farþeg-
ann.
Þung byrði
1 nýútkomnu Austurlandi.
blaði allaballa í þeim-lands-
fjórðungi, gaf að líta þessa
gagnmerku fyrirsögn:
„Hver Austfirðingur með 23
Reykvíkinga á herðunum".
Það er ekki að spyrja að
þeim með breiðu bökin...
Sonur minn,
Sinfjötli...
Á dögunum lögðu nokkrir
þingmenn fram tillögu til
þingsálvktunar um undirbún-
Friðjón Þóröarson.
ing þess að Þjóðhagsstofnun
yrði lögð niður. Alls voru það
átta þingmenn sem lögðu fram
þessa gagnmerku tillögu. Þeir
eiga það allir sameiginlegt að
vera í Sjálfstæðisflokknum.
Þessi hugmynd um slátrun
Þjóðhagsstofnunarvakti að
vonum mikla athygli. Og það
var líka annað sem menn tóku
eftir. Fyrsti þingmaður íhalds-
ins í Vesturlandskjördæmi.
Friðjón Þórðarson. kom ekki
nálægt þessum tillöguflutn-
ingi. Aftur á móti lögðu
kollegar hans úr sama kjör-
dæmi. þeir Sturla Böðvarsson
og Valdimar Indriðason. þar
gjörva hönd á plóginn.
Og hver ætli sé svo ástæða
þess að Friðjón gekk ekki til
atlögu að þessu sinni ásamt
félögum sínum? Það skyldi þó
aldrei vera vegna þess að nú-
verandi forstöðumaður Þjóð-
hagsstofnunar heitir Þórður
Friðjónsson? Spvr sá sem ekki
veit.
Umsjón:
Jóhanna S. Sigþórsdóttir
Tilkynning
Þeir sem telja sig eiga bíla á geymslusvæði „Vöku" á
Ártúnshöfða þurfa aö gera grein fyrir eignarheimild
sinni og vitja þeirra fyrir 1. mars nk.
Hlutaðeigendur hafi samband við afgreiðslumann
„Vöku" að Eldshöfða 6 og greiði áfallinn kostnað.
Að áðurnefndum fresti liðnum veróursvæðið hreinsað
og bílgarmar fluttir á sorphauga á kostnað og ábyrgð
eigenda, án frekari viðvörunar.
Reykjavík, 16. febrúar 1987
Gatnamálatjórinn í Reykjavik
Hreinsunardeild
SÖLUBÖRN
Vantar í vesturbæ
og miðbæ.
Blöðin keyrð heim til sölubarna.
Upplýsingar á afgreiðslu
í síma 27022.
• Dorgveiði á Norðurá i Borgarfirði á sér gamla hefð og hefur verið stunduð lengi. Þessum veiðiskap halda margir
við ennþá og fá oft góða veiði. DV-mynd G.Bender
Dorgveiði:
„Sá uppí opið ginið á honum
Dorgveiðin byrjaði loksins um helg-
ina eftir margra vikna stopp hér
sunnanlands. Veiðimenn voru komnir
á kreik um rniðjan nóvember er vötn
lagði og meðan ísinn hélst, en svo
hlýnaði og ísinn hvarf víða alveg af
vötnum. Veiðimenn fóru upp í Svínad-
al á laugardaginn og ísinn var orðinn
öruggur á vatninu. Veiðin var heldur
rýr á Geitabergsvatni og fengust ekk-
ert nema smátittir. Þó sást einn og
einn þokkalegur silungur í gegnum
glæran ísinn en þeir voru tregir og
flúðu.
Dorgveiðin á Mývatni hófst 1. febr-
úar og við leituðum frétta frá þeim
slóðum. „Jú, það er rétt að dorgveiðin
og netaveiðin hófst 1. febrúar og það
veiddust fiskar," sagði tíðindamaður
okkar í Mývatnssveit. „Ég sá veiði-
Veidivon
Gunnar Bender
menn sem höfðu fengið fallegar
bleikjur, um tvö pund þær stærstu, og
ég sleit af mér urriða, sá upp í opið
ginið á honum og svo ekkert meir.
Það hefúr verið reytingsveiði bæði á
dorginu og í netin. Það hefur veiðst
vel í Dauðahafinu (Ytri-Flóanum),
feitur fiskur. En það eru miklar stillur
hérna núna og frostið er 18 gráður,
ekki gott þegar eru svona miklar still-
ur og frost.“
Bleikja virðist ganga að vetrinum
neðst í Norðurá og Grímsá. Menn
hafa gaman af að veiða hana og hefur
þessi veiðiskapur verið stundaður
mjög lengi á Norðurá, en skemmur á
Grimsá. Eru þetta vissir menn sem
stunda þennan veiðiskap núorðið.
Heíúr veiðin verið upp og ofan í vet-
ur, en einn og einn fiskur kætir
dorgveiðimennina.
-G.Bender
Laus staða sérfræðings
á eðlisfræðistofu Raunvísinda-
stofnunar Háskólans
Staða fastráðins sérfræðings í þéttefnisfræðum við
eðlisfræðistofu Raunvísindastofnunar Háskólans er
laus til umsóknar. Sérfræðingnum er einkum ætlað
að starfa á sviöi eðlisfræði málma og hafa umsjón
með þeirri rannsóknaraðstöðu sem þegar er fyrir hendi
á stofunni á þessu sviði. Umsóknarfrestur er til 17.
mars nk.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsækjendur skulu láta fylgja umsókn sinni rækilega
skýrslu um vísindastörf þau er þeir hafa unnið, ritsmíð-
ar og rannsóknir, svo og námsferil sinn og störf. Með
umsókninni skulu send eintök af vísindalegum ritum
og ritgerðum umsækjanda, prentuðum og óprentuð-
um. Umsóknir skulu sendar menntamálaráðuneytinu,
Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík.
16. febrúar 1987
Menntamálaráðuneytið
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 149., 154. og 157. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1985 á
eigninni Breiðvangi 20, 4. hæð B, Hafnarfirði, þingl. eign Gunnlaugs Sigfús-
sonar og Jóhönnu Möller, fer fram eftir kröfu Búnaðarbanka íslands,
Veðdeildar Landsbanka Islands, Útvegsbanka Islands, Bjarna Ásgeirssonar
hdl„ Óiafs Axelssonar hrl„ Steingríms Þormóðssonar hdl. og bæjarfógetans
i Kópavogi á eigninni sjálfri föstudaginn 20. febrúar 1987 kl. 15.00.
______________________Bæjarfógetinn í Hafnarfirði
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á eigninni Fjóluhvammi 3, Hafnarfirði, þingl. eign Þorsteins
Sveinssonar, fer frarn á eigninni sjálfri föstudaginn 20. febrúar 1987 kl. 14.30.
____________________Bæjarfógetinn í Hafnarfirði
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 149., 154. og 157. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1985 á
eigninni Hraunkambi 5, efri hæð, Hafnarfirði, tal. eign Omars Óskarssonar
o.fl„ fer fram eftir kröfu Guðjóns Steingrímssonar hrl. og Baldurs Guðlaugs-
sonar hrl. á eigninni sjálfri föstudaginn 20. febrúar 1987 kl. 15.30.
______________________Bæjarfógetinn i Hafnarfirði