Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1987, Side 26

Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1987, Side 26
26 ÞRIÐJUDAGUR 17. FEBRÚAR 1987. Andlát Halldóra Hallgrímsdóttir húsmóð- ir, Þinghólsbraut 25, Kópavogi. andaðist á Vífilsstaðaspítala 9. fe- brúar sl. Hún fæddist á Húsavík 29. júlí 1914. Eftirlifandi eiginmaður hennar er Stefán Þorleifsson. Þeim hjónum varð fjögurra dætra auðið. Útför Halldóru verður gerð frá Foss- vogskapellu á morgun kl. 13.30. Jónína Gunnarsdóttir lést 10. fe- brúar sl. Hún fæddist 13. janúar 1942. dóttir Friðdóru Jóhannesdóttur og Ingimundar Þorkelssonar. Hún ólst upp hjá móður sinni og manni henn- ar. Gunnari Halldórssyni. sem gekk henni í föðurstað. Jónína giftist Kol- beini Sigurðssyni flugstjóra og þau bjuggu í Lúxemborg. Þeim varð íjög- urra barna auðið. Guðmann Grímsson, Suðurgötu 14, Keflavík. er látinn. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþev að ósk hins látna. Leó Kristleifsson, Bogahlíð 20. andaðist í Landakotsspitala 14. fe- brúar. Tryggvi Frímann Tryggvason kennari er látinn. Svavar Eyjólfur Arnason, Vestur- bergi 102. andaðist í Landakotsspít- ala 15. febrúar. Elín Kristjánsdóttir, Hringbraut 19. Hafnarfirði. verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði mið- vikudaginn 18. febrúar kl. 15. Jóhanna Thorlacius, Miklubraut 46, Reykjavík, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 18. fe- brúar kl. 13.30. Guðrún Lilja Þórólfsdóttir, Hjarð- arhaga 50, Reykjavík, verður jarð- sungin frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 18. febrúar kl. 15. Ýmislegt Auglýst eftir vitni Keyrt var á splunkunýjan hvitan polf fvr- ir utan Tollstofuna í Trygevagötu á bilinu kl. 9 9.30 í gærmorgun. Var kevrt utan í bretti op hurð hægra megin. Ef einhverjir hafa orðið varir við ákeyrsluna þá vinsant- legast hringið í síma 673020 (Ragnar eða Páll). Félag áhugamanna um rétt- arsögu efnir til fundar þriðiudaginn 17. febriiar 1987 í stofu 103 í Lögbergi. húsi Lagadeild- ar Háskóla íslands. kl. 20.30. A fundinum mun Sigríður Th. Erlendsdóttir sagnfræö- ingur flytja erindi: Breytingar á réttar- stöðu íslenskra kvenna á 20. öld. Eundurinn er öllum opinn. Fréttatilkynning frá utanríkis- ráðuneytinu Akveðið Kefur verið að Sverrir Haukur Gunnlaugsson sendiherra verði fastafull- trúi Islands í Genf frá 1. maí nk. og jafnframt að frá sama tínta verði Þorsteir.n Ingólfsson sendiherra skrifstofustjóri varnarmálaskrifstofu utanríkisráðunevt- Bann við togveiðum út af Austfjörðum Undanfarið hafa skyndilokanir verið alltíðar á svæðinu frá Sevðisfjarðardjúpi suður á Fót unt 40-55 sjóm. frá landi (sbr. kort). Hlutur smáþorsks (undir 55 cm) í afla togara á þessu svæði hefur verið mjög mikill eða á bilinu 33 -69°0. .4 þessum slóA um og víðar eru nú að vaxa upp árgangar þorsks frá árunum 1983 og 1984. Stærðar- dreifing þessa fisks er á þann veg. að allur árgangur 1984 er enn undir viðmiðunar- mörkuni (55 cm) og hluti árgangs 1983. Hafrannsóknastofnunin hefur því lagt til að veiðar á þessum slóðum verði bann- aðar og hefur ráðunevtið gefið út reglu- gerðir þar sem allar togveiðar eru bannaðar á svæði sem afmarkast af línum sem dregnar eru á milli eftirgreindra punkta: 1. 65 06'8N' 11 59'0 V 2. 64 391 N 12 30'4 V 3. 64 30'9 N 12 05'8 V 4. 64 50'3 N 11 41'9 V 5. 65 09'7 N - 11 31'7 V Bann þetta tekur gildi frá og með 13. febrúar 1987. Arið 1981 var mikið um skyndilokanir á svipuðum slóðum og grynnra mánuðina mars, apríl og fram í miðjan maí og er gildistími bannsins því ákveðinn að svo stöddu til 15. maí. Jafnframt verður stefnt að því að fylgjast með ástandinu á svæð- inu og banninu aflétt leyfi aðstæður það. í gærkvöldi DV Asdís Magnúsdóttir dansari: „Einn og hátfurtími ífréttir“ Ég horfi alltaf á fréttir á báðurn sjón- varpsstöðvunnni og hlusta raunar einnig á fréttir í útvarpinu. þannig að það fer orðið einn og hálfur tínii i að fylgjast með fréttum á hverjum degi samfleytt. I gær var ekkert óvenjulegt í þeim. þær eru svo til alltaf eins á hverju kvöldi nema þá hvað er verið að tala unt mismun- andi hluti. Nýtt handbragð kom fram hjá sjónvarpsmönnum í gær- kvöldi á þætti þeirra um Kristján Fjallaskáld. Hann var vel gerðvir og vel framsettur og ekki eins og marg- ir þessara íslensku þátta sem eru stundum ferlega hallærislegir. Sjón- varpsleikritið breska var einnig mjög gott. atburðarásin hæg og leik- urinn góður. Af Stöð 2 í gærkvöldi horfði ég á Twilight Zone. þeir þætt- Asdis Magnúsdóttir. ir eru svona mátulega geðveikir. Fleira var það ekki í sjónvarpi sem ég fylgdist með það kvöldið. Af útvarpi hlusta ég alltaf á rás 1. þá gömlu góðu. Hún er eitthvað sem breytist ekki og er nánast eins frá því maður man eftir henni. Einn- ig finnst mér Ragnheiður Ásta mjög þægileg áheymar, sjarmerandi og kurteis. Hins vegar hlusta ég aldrei á rás 2 eða Bylgjuna nema þá fréttir á hinni síðamefndu einstaka sinn- um. Yfirleitt nenni ég ekki að horfa á ameríska framhaldsþætti, ég reyndi það einu sinni með Dallas á sínum tíma og fékk nóg. Sama segi ég með uppstillta kjaftaþætti á borð við Sviðsljós á Stöð 2. Þeir ættu heldur að nota peningana til þess að setja upp íslensk leikrit því það er sterkur miðill sem verður að hlúa að. Málfundafélag Barðstrend- ingafélagsins 207. fundur málfundafélagsins Barð- strendings verður haldinn í Domus Medica fimmtudaginn 19. febrúar. Erummælandi verður Jóhannes Gunnarsson. form. Neyt- endasamtakanna. og mun fjalla um neytendamál. Hann mun síðan svara fvrir- spurnum og umræður verða um málefnið. Að síðustu verður skemmtiefni. Allir vel- komnir. Stjórnin. Hússtjórnarkennarafélag ís- lands heldur fræðslufund 20. febrúar nk. kl. 18.30 í fundarsal BSRB. Grettisgötu 89. Reykja- vík. Elísabet Magnúsdóttir næringarfræð- ingur flytur erindi um nám sitt í Bretlandi sl. vetur. Ath. breyttan fundartíma. ÓÁ samtökin Eigir þú við oflituvandamál að stríða þá erum við með fundi miðvikudaga kl. 20.30 og laugardaga kl. 14 að Ingólfsstræti 1 (beint á móti Gamla bíói). Ríkissaksóknari víkur ekki úr sæti í Hafskipsmálinu: „Við látum reyna á þetta fyrir dómstólum“ Dómsmálaráðuneytið hefur ritað Hallvarði Einvarðssyni ríkissak- sóknara bréf þess efnis að ráðuneytið telji ekki ástæðu til að Hallvarður víki úr sæti sínu meðan Hafskips- málið er til meðferðar hjá ríkissak- sóknara. Hallvarður Einvarðsson hefur því ákveðið að verða ekki við óskum Jóns Magnússonar, lögmanns Ragn- ars Kjartanssonar, um að víkja úr embætti sem ríkissaksóknari í mál- inu. „Verði gefin út kæra á umbjóð- enda minn í þessu máli látum við reyna á þetta atriði fyrir dómstólum en það eru þeir sem eiga síðasta orð- ið í þessu en ekki embættismaður- inn,“ sagði Jón Magnússon i samtali við DV í morgun. Jón sagði einnig að Hallvarður ætti nú næsta leik, hann hefði til- kynnt það í miðjum síðasta mánuði að Hafskipsmálið yrði afgreitt frá embættinu innan skamms. Nú væri liðinn mánuður síðan og greinilega misjafnt hvaða skilning menn legðu í hugtakið „innan skamms". -FRI Slökkviliðið vinnur við að ráða nið- urlögum eldsins. DV-mynd S Eldur í íbúð á Háaleitisbraut Slökkviliðið í Reykjavík var kallað út að Háaleitisbraut 113 síðdegis í gær en þar logaði eldur í einni íbúðinni í húsinu sem er fjögurra hæða blokk. Eldurinn var laus í eldhúsi íbúðar- innar og lagði mikinn reyk af honum. Reykkafarar voru sendir inn í íbúðina og gekk þeim greiðlega að slökkva eldinn. I þessu útkalli kom hinn nýi ranabíll slökkviliðsins í góðar þarfir við að senda menn inn i íbúðina. Ibúðin var mannlaus er eldurinn kom upp. Skemmdir urðu miklar á henni, einkum á tréverki í eldhúsi. -FRI Hræringar í meðferðarstofnunum fýrir áfengissjúka: Viðræður til að koma í veg fyrir gjaldþrot „Það hafa verið í gangi viðræður um að steypa þessum tveimur með- ferðarstofnunum saman í eina. Meira get ég ekki sagt á þessu stigi,“ sagði Skúli Thoroddsen, forsvars- maður íslensku meðferðarstöðvar- innar, um væntanlegan samruna fyrirtækis síns og líknarfélagsins Vonar en báðir aðilar hafa sérhæft sig í áfengismeðferð fyrir útlendinga hér á landi og erlendis. Það voru ábyrgðarmenn að rekstri Vonar, þeir Þórarinn Tyrfingsson, Othar Örn Petersen og Björgólfur Guðmundsson, sem óskuðu eftir við- ræðum um samruna og hafa þær farið fram með milligöngu Eiríks Tómassonar lögmanns. Samkvæmt heimildum DV er ástæðan slæm íjár- hagsstaða Vonar í kjölfar mikilla fjárfestinga í meðferðarheimili fyrir áfengissjúklinga í Danmörku undir nafninu Von Veritas. Er nú svo kom- ið að reksturinn ytra er að mestu kominn í hendur erlendum aðilum en eftir standa rekstrarerfiðleikar hér heima. Sömu heimildir herma að fari sameiningarviðræðurnar út um þúfur blasi milljón króna gjald- þrot við líknarfélaginu Von. -EIR Ásta Ragnheiður ekki á framsóknariistanum: „Mótmæli vinnubrögð- um í prófkjöriiw „Ég bauð mig fram í 2. sæti og náði því ekki. Svo mótmæli ég vinnubrögð- um í prófkjörinu, sem mér fannst siðferðilega fráleit, og tek ekki sæti á listanum,11 segir Ásta Ragnheiður Jó- hannesdóttir. Hún er ekki á framboðs- lista Framsóknarflokksins í Reykjavík þótt hún hlyti bindandi kosningu í 4. sætið í prófkjöri. Þá er það sérkenni- legt að hún tekur í fyrsta sinn sæti á Alþingi í dag, í fjarveru Haralds Ólafs- sonar, sem ekki er heldur á framboðs- listanum. Fulltrúaráð framsóknarfélaganna í Reykjavík gekk frá lista flokksins í gærkvöldi. í efstu sætum eru: 1. Guð- mundur G. Þórarinsson verkfræðing- ur. 2. Finnur Ingólfsson, aðstoðarmað- ur sjávarútvegsráðherra. 3. Sigríður Hjartar lyfjafræðingur. 4. Halla Ei- ríksdóttir hjúkrunarfræðingur. 5. Sigfús Ægir Ámason framkvæmda- stjóri. 6. Anna Margrét Valgeirsdóttir, starfsmaður félagsmiðstöðvar. 7. Þór Jakobsson veðurfræðingur. 8. Guðrún Ama Harðardóttir fóstra. 9. Helgi S. Guðmundsson markaðsfulltrúi. 10. Valdimar K. Jónsson prófessor. -HERB Nauðungaruppboð annað og siðasta á fasteigninni Sörlaskjóli 32,1. hæð, þingl. eigendur Hjört- ur Halldórss. og Aldís Sigurjónsd., fer fram á eigninni sjálfri fimmtudaginn 19. febrúar 1987 kl. 11.30. Uppboösbeiðendur eru Landsbanki Islands, Baldur Guðlaugsson hrl., Árni Einarsson hdl„ Veðdeild Landsbanka íslands, Valgeir Pálsson hdl., Klemens Eggertsson hdl„ Gjaldheimtan í Reykjavík og Ásgeir Thoroddsen hdl. Borgarfógetaembættið í Reykjavík. Nauðungaruppboð annað og síðasta á fasteigninni Grettisgötu 16, hl„ þingl. eigandi Ólafur Magnússon, fer fram á eigninni sjálfri fimmtudaginn 19. febrúar 1987 kl. 13.45. Uppboðsbeiðandi er Gjaldheimtan í Reykjavík. ___________________Borgarfógetaembættið i Reykjavik. Danska sveitin með yfirburði á bridgehátíð Steen Schou og hinir dönsku félagar hans sigmðu með yfirburðum í sveita- keppninni á Bridgehátíð Flugleiða og Bridgesambands Islands um helgina á Hótel Loftleiðum. Eftir langt og strangt mót um helg- ina með þátttöku fjölda erlendra bridgemeistara sigraði sveit Steen Schou með 148 stigum en öðru sætinu náði bandaríska sveitin með heims- meistarana Sontag og Eisenberg innanborðs og hafði 137 stig. I þriðja sæti hafnaði sveit Bretanna og Pakistanans Zia Mahmood með 134 stig eftir stóran sigur yfir Svíunum í síðustu umferðinni (25-5) en Svíamir, sem höfðu í sinni sveit sigurvegarana úr tvímenningskeppninni á Loftleiða- hótelinu, höfðu verið meðal forystu- sveita. I fjórða sæti urðu Norðmenn- imir frá Bergen með 126 stig en þeir höfðu tapað fyrir Dönunum í síðustu umferðinni (11-19). Það var ekki fyrr en í 5. sæti sem íslendingar komust að en þar hafnaði sveit Aðalsteins Jörgensen með 125 stig. í 6. sæti varð sveit Sigfúsar Amar Ámasonar með 122 stig og síðan var mjög þétt skipað röðun sveita, ís- lenskra, niður í 12. sæti. íslendingar máttu þó una við sinn hlut á meðan erlendir stórmeistarar, eins og ítalski heimsmeistarinn Gi- orgio Belladonna, urðu að lúta að jafnvel enn lægra.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.