Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1987, Síða 3
FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1987.
3
Borgar-
læknir
í eyðni-
ferð
Skúli Johnsen borgarlæknir er
staddur í Bandaríkjunum þar sem
hann kynnir sér vamir gegn eyðni.
Er hann væntanlegur til landsins
á miðvikudag.
Skúli hefur sem kunnugt er beitt
sér mjög fyrir þeirri skoðun sinní
að rétt sé að mótefnamæla alla
landsmenn og reyna með því að
stemma stigu við útbreiðslu eyðni.
Hafa hugmyndir hans fengið
dræmar undirtektir hjá heUbrigð-
isyfirvöldum þó nú virðist ætla að
vorða breyting á. í gær boðaðí
Ragnhildur Helgadóttir auknar
sýnatökur úr blóði landsmanna
umfram það sem þegar er gert.
Næstir á dagskrá eru allir sem vi-
staðir eru á sjúkrahúsum landsins.
-EIR
Útbreiðsla eyðni:
Fjonra
íslandi, einn
> ■% > ■ ■■
i Russlandi
I samantekt Alþjóða heilbrigðis-
stofnunarinnar frá 11. febrúar um
útbreiðslu eyðni kemur fram að
sjúklingar eru flestir í Bandaríkj-
unura en fæstir austan jámtjalds.
Hér fylgir sýnishom. Tölumar
miðast við sjúklinga með eyðni á
lokastigi:
Bandaríkin 29.536
Frakkland 1.253
Brasilía 1.012
Kanada 809
Haiti 785
V-Þýskaland 785
A-Þýskaland 1
Kína 1
Kúba 1
Ungverjaland 1
Pólland 1
Rússland 1
ísland 4
-EIR
Fréttir
Eyðni og áhættuhópar framta'ðarinnar:
Landlæknir óttast vændi
„I Reykjavík eru á ferð 15-20
unglingsstúlkur sem eru háðar
fíkniefnum og stunda meðal annars
vændi,“ sagði Ólafur Ólafsson
landlæknir á fundi um eyðnivarnir
sem heilbrigðisráðherra boðaði til
í gær og sagði vitneskju sína byggj-
ast á upplýsingum frá lögreglu og
SÁÁ. Lét Ólafur framangreind orð
falla í framhaldi af umfjöllun sinni
um áhættuhópa framtíðarinnar
sem hann telur vera fólk sem vegna
lítillar menntunar, skilningsleysis
eða skorts á vilja getur ekki náð
að tileinka sér þá fræðslu um eyðni
sem í boði er. „Ef smitleiðir eyðni
breytast ekki frá því sem nú er vit-
að er líklegt að unnt verði að
hindra útbreiðslu veikinnar meðal
þess fólks í áhættuhópunum sem
móttækilegt er fyrir fræðslu."
DV bar orð landlæknis undir
Guðmund Hermannsson yfirlög-
regluþjón og hann kannaðist við
vændið:
„Fyrir rúmum tveimur árum bár-
ust lögreglunni ítrekaðar ábend-
ingar um vændisstarfsemi á
Hlemmi og áttu þar í hlut 10-15
unglingsstúlkur á aldrinum 15-16
ára. Lögreglan hóf aðgerðir, yfír-
heyrði stúlkurnar og reyndust
ábendingar um vændi á rökum
reistar. Þetta gekk þannig fyrir sig
að stúlkumar „húkkuðu" bíla sem
leið áttu fram hjá Hlemmi og buðu
bílstjórunum blíðu sína.“
Að sögn Guðmundar Hermanns-
sonar létu stúlkurnar af hátterni
sínu eftir lögregluaðgerðirnar og í
lok rannsóknar þótti ekki ástæða
til frekari aðgerða.
„Nú eru þesar stúlkur á aldrinum
17-18 ára og hafa ef til vill breytt
viðhorfum sínum. En ég skal ekki
fortaka fyrir að sumar þeirra haldi
uppteknum hætti í breyttri mynd,
til dæmis á skemmtistöðunum,“
sagði Guðmundur Hermannsson.
-EIR/-FRI
Frá blaðamannafundi heilbrigðisráðherra og helstu ráðgjafa hans um baráttuna gegn eyðni.
DV-mynd:S
Ráðherra boðar hertar aðgerðir gegn eyðni:
Einangrun og almenn
sýnataka úr blóði
Ragnhildur Helgadóttir heilbrigðis-
ráðherra boðaði hertar aðgerðir í
baráttunni gegn eyðni á fréttamanna-
fundi er haldinn var í gær.
Ber þar hæst áætlanir um að koma
á laggimar aðstöðu til að einangra
■eyðnisjúklinga sem hætta er talin á
að geti smitað aðra. Ekki hefur verið
tekin ákvörðun um hvar slíkri aðstöðu
verður komið upp enda málið enn á
umræðustigi. Þá er stefnt að almennri
sýnatöku úr blóði einstaklinga um-
fram það sem nú er gert og má búast
við að sýni verði tekin úr öllum þeim
er leggjast inn á sjúkrahús áður en
langt um líður.
„Það er ekkert leyndarmál að í fjöl-
mörg ár hafa blóðsýni verið tekin úr
öllum þeim er lagst hafa inn á sjúkra-
hús og kannað hvort þeir væru
smitaðir af kynsjúkdómum. Mér þykir
sjálfsat að beita sömu aðferðum varð-
andi alnæmi,“ sagði heilbrigðisráð-
herra í gær. „Markmiðið með
almennri sýnatöku er ekki síst það að
draga úr þeim fordómum sem ríkt
hafa gagnvart hinum svonefndu
áhættuhópum."
Heilbrigðisráðherra taldi líklegt að
þessi málefhi yrðu öll til umræðu á
ráðherrafundi heilbrigðisráðherra
Norðurlandanna sem haldinn verður
í næstu viku: „Mér sýnist sem Svíar
séu mjög að herða á aðgerðum gegn
alnæmi, sú virðist vera tilhneigingin
í nágrannalöndum okkar.“
Á íjárlögum er gert ráð fyrir að verja
5,3 milljónum króna til fræðslustarfa
vegna eyðni en heilbrigðisráðherra
sagði að ljóst væri að meira fé þyrfti:
„Ég hef átt viðræður við ijármálaráð-
herra vegna þess að mér sýnist sem
mikill skilningur sé innan ríkisstjóm-
arinnar á þessu máli.“
Sérstakur ffæðslufúlltnii verður
ráðinn að heilbrigðisráðuneytinu inn-
an skamms til að miðla upplýsingum
um eyðni og varnir gegn sjúkdómnum.
Einnig er fvrirhugað að dreifa upplýs-
ingabæklingum til allra ferðamanna
sem hyggja á sumarleyfi erlendis á
sumri komanda. -EIR
Áróður ber árangur:
Smokkamir
renna út
„Menn em hættir við að biðja um
„þetta“ í þriðju skúffunni frá vinstri;
nú biðja þeir einfaldlega um smokka.
Það er áberandi að fólk er ekki lengur
feimið við smokkinn og það hefur
færst vemlega í vöxt að þeir séu keypt-
ir á næturvöktum hér hjó okkur í
apótekinu,“ sagði lvfjafræðingur að-
spurður um smokkasölu í kjölfar
áróðurs landlæknis.
Svo virðist sem smokkasala hafi að
meðaltali aukist um 20 prósent hér á
landi á umliðnum mánuðum. Um það
em innflytjendur í stórum dráttum
sammála. Alls munu um 10 aðilar vera
í smokkainnflutningi, mest lyfjafyrir-
tæki en einnig aðrir, til dæmis flytur
olíufélagið Skeljungur inn sína eigin
smokka sem síðan em seldir á bensín-
stöðvum.
Gæði smokkanna, sem seldir em hér
á landi, em að vonum mismunandi. í
samtölum er DV átti við nokkra inn-
flytjendur kom í ljós að samkeppnin
er hörð og hart barist um markaðinn.
Vömðu sumir við „ódým drasli frá
Austurlöndum" og aðrir gerðu lítið
úr svokölluðum „figúmsmokkum sem
enginn notar nema fullur á gamlárs-
kvöldi," eins og einn orðaði það.
-EIR
Smokkaáróðurinn hefur borið árang-
ur. Hér sést Jón Baldvin Hannibalsson
með einn uppblásinn i auglýsingu frá
landlækni.
LUKKUGETRAUN:
Allar gerðir bíla vantar á söluskrá - mikil sala.
Opið laugardaga kl. 10-18.
BÍLATORG
___ NÓATÚN 2 - SÍMI 621033
Toyota Landcruiser turbo disil árg.
1986, hvítur, mjög fallegur, ekinn
17.000 km. Verð 880.000,-
VW Golf C árg. 1985, svartur, ekinn
49.000 km. Verð kr. 390.000,-
Honda Shuttle árg. 1984, blásans,
ekinn 40.000 km. Verð 410.000,-
Einu sinni í mánuði drögum við úr nöfnum kaupenda og seljenda um 5 daga ferð til
Hamborgar með ferðaskrifstofunni Sögu.
VERÐUR ÞÚ SÁ HEPPNI í FEBRÚAR?
BILATORG
BILATÖRG
Toyota Landcruiser turbo dísil árg.
1987, brúnsans, einn með öllu, ekinn
6.000 km. Verð 1.540.000,-
Citroen CX Pallas árg. 1985, græn-
sans, ekinn 59.000 km. Verð
595.000,-
Toyota Corolla árg 1986, dökkgrá-
sans, mjög fallegur bill, ekinn 19.000
km. Verð kr. 420.000,-
I BILATORG
... _ -fc-J':- •C'-