Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1987, Blaðsíða 40
F R
. «M^HB
Hafir þú ábendingu um frétt hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er
notað í DV, greiðast 1.500 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 4.500 krónur.
Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Aucjlýsincjar - Áskrift - Dreiffing: Sími 27022
FIMMTUDAGUR 19. FEBRUAR 1987.
Víxlamálið:
Upphæðin á
þriðju milljón
■m Mennirnir þrír, sem úrskurðaðir
voru í gæsluvarðhald vegna rann-
sóknar RLR á umfangsmiklu víxla-
misferli. hafa verið samvinnufúsir eftir
að þeir losnuðu úr haldi og hafa sjálf-
ir unnið að því með RLR að ná inn
þeim víxlum sem enn eru úti.
Arnar Guðmundsson, deildarstjóri
hjá RLR. sagði í samtali við DV að
upphæðin, sem hér um ræðir, væri á
þriðju milljón króna. Allir víxlarnir
hefðu verið upp á sömu upphæð eða
50.000 krónur hver. Sagði Arnar að
fleiri gögn hefðu verið að berast þeim
undanfama daga og af heildarupp-
hæðinni væru nú aðeins örfá hundmð
þúsund enn í umferð.
Mönnunum gekk í upphafi vel að
^^^selja víxlana grunlausum kaupendum
þar sem þeir höfðu látið útbúa stimpil
með nafni stöndugs fvrirtækis hér í
borg og notuðu þeir stimpilinn á alla
víxlana.
-FRI
Kaffíbaunamaliö og SÍS:
Óvissa um
. framtíð fjór-
menninganna
Óvíst er hver framtíð fjórmenning-
anna, er hlutu dóma í kaffibaunamál-
inu, verður innan Sambandsins.
„Það hefúr engin ákvörðun verið
tel^in í málinu og engrar vfirlýsingar
að vænta frá mér á þessu stigi,“ sagði
Guðjón B. Ólafsson, forstjóri SÍS, í
samtali við DV.
Valur Arnþórson, stjómarformaður
Sambandsins, tók mjög í sama streng:
„Eg hef ekkert um þetta að segja en
það verður stjórnarfundur hjá SÍS
áður en langt um liður."
- Verður framtíð fjórmenninganna
^’áðin þar?
„Það á eftir að semja dagskrá fyrir
stjórnarfundinn. Annars hef ég aðeins
lesið um dómana í dagblöðum. Eg á
eftir að kynna mér þá betur.“
-EIR
Blóm
við öll tækifæri
Opið frá kl. 10-19
alla daga vikunnar.
GARÐSHORNÍÍ
Suðurhlíð 35
sími 40500
'f við Fossvogskirkjugarðinn.
WHÍIilÍiÚÍÍÚiZMLmmmm* JikVMIáÍllÍn’iý
LOKI
Svo Denni fær að fara
til Moskvu
en ekki til Akureyrar!
Mikil leH að átta áia dreng í Árbæjarhverfi í nótt og morgun:
Fannst latinn
í □liðaánum
Allt tiltækt lögreglulið borgarinn-
ar leitaði að 8 ára dreng í alla nótt
í Árbæjarhverfinu en síðast spurðist
til drengsins kl. 18 í gærdag og sagð-
ist hann þá vera á leið heim til sín
i Hraunbæ 86. Um hálfellefu í morg-
un fannst drengurinn látinn í lóni
fyrir ofan neðri stífluna í Elliðaánum
Að sögn Amþórs Ingólfssonar að-
stoðaryfirlögregluþjóns, sem stjórn-
aði leitinni, var leitarsvæðið bundið
við Árbæjarhverfið enda talið að
drengurinn hefði ekki farið úr því.
Var leitað meðfram Elliðaánum, við
Árbæjarsafnið og í nýbyggingum
með aðstoð sporhunds.
Þegar birti í morgun vom frosk-
menn fengnir til að fara upp með
Elliðaánum og fundu þeir drenginn
á fyrrgreindum stað. -FRI
Meðal þeirra svæða, sem leitað var á í morgun, var Árbæjarstiflan í Elliöaánum. Voru froskmenn úr lögregl-
unni látnir kanna svæðið og siðan færðu þeir sig niður eftir ánum. DV-mynd S
Veðrið á morgun:
Súld
sunnan- og
vestanlands
Á föstudaginn verður fremur hæg
sunnan- eða suðaustanátt á landinu.
Víða súld sunnan- og vestanlands
en þurrt að mestu í öðrum lands-
hlutum. Hiti verður á bilinu 1-5 stig.
Málaferli vegna skreiðarsölu:
Fallnir víxlar
nema um 120
milljónum
Samlag skreiðarfi-amleiðenda er
farið í mál við breskt umboðsfyrir-
tæki sem seldi fyrir það skreið til
Nígeríu. Umboðsfýriitækið lagði
fram víxla til tryggingar greiðslu
en nú eru þrír víxlar, upp á 120
milljónir króna, fallnir og mála-
ferli hafin, að sögn Ólafs Björns-
sonar, fonnanns Samlags
skreiðarframleiðenda.
Ólafur sagði að þetta breska
umboðsfyrirtæki hefði boðist til að
greiða víxlana með gjalclmiðli Ní-
geríu, niara, en hann er gersam-
lega verðlaus utan Nígeríu og því
ekki til neins að taka við greiðslum
i þeim gjaldeyri. Samningurinn var
gerður í dollurum.
Ekki er talið vonlaust að fá megi
eitthvað af skuldinni greitt, með
málaferlum, en fyrirtækið ku
standa illa eftir einhver önnur við-
skipti við Nígeríu en skreiðarsölu.
Ólafúr Bjömsson vildi ekki taka
undir að þetta fé væri glatað, alla-
vega ekki fyrr en á það hefði revnt
fyrir dómi.
-S.dór
Fæðingar-
oriof lengt
fyrir
kosningar?
Ragnhildur Helgadóttir, heil-
brigðis- og try'ggingaráðheira,
hyggst á næstu dögum flytja
stjórnarfrumvarp um fæðingaror-
lof. Er það nú til umfjöflunar í
þingflokkum ríkisstjórnarinnar.
„Áðalbreytingarnar em þær að
gert er ráð fyrir lengingu fæðing-
arorlofs um einn mánuð og réttur
heimavinnandi mæðra er aukinn,“
sagði Ragnhildur í morgun.
„Þetta er eitt af því sem ríkis-
stjómin ákvað, þegar hún var sett
á laggirnar 1983, að yrði endur-
skoðað. Niðurstaða þess starfs
liggui- fyrir núna.“
- Er stefnt að því að afgreiða þetta
fyrir kosningar?
„Auðvitað vonar maður það. Al-
þingi ræður.“
-KMU