Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1987, Síða 5
FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1987.
5
Stjómmál
Sveinn Snorrason:
Afskipti
Alþingis
eru afar
óeðlileg
„Það er afar óeðlilegt, þegar lögin
um réttindi og skyldur opinberra
starfsmanna kveða á um málarekstur
út af brottvikningu úr opinberu starfi,
að Alþingi skipi fíæstarétti með öðr-
um lögum að rannsaka sérstaklega
slík mál,“ segir Sveinn Snorrason
hæstaréttarlögmaður, formaður Lög-
mannafélags Islands.
„Mál af þessu tagi fara fyrir dóm-
stóla telji menn ástæðu til. Þar fá
báðir aðilar sömu tækifæri til þess að
gera grein fyrir málavöxtum og þetta
er án efa besti vettvangurinn til þess
að leiða hið rétta og sanna í ljós. Þeg-
ar slík mál fara að lokum fyrir
Hæstarétt, sem oftast gerist, hlýtur
það að koma einkennilega fyrir að
sérskipuð nefnd af hálfu réttarins hafi
jafiiframt fjallað um sömu mál og lagt
fram álit sitt þar um,“ segir Sveinn.
„Ég lít svo á að forseti Hæstaréttar
hafi eingöngu bent á þessa réttarstöðu
í viðkomandi máli og sé síður en svo
nokkuð athugavert við það. Viðkom-
andi opinber starísmaður hefur þegar
lagalegan rétt til rannsóknar fyrir
dómstólum og þess vegna er óviðeig-
andi að fyrirskipa sérstaka rannsókn
með öðrum lögum, hvað þá eftir að
hann hefur þegar skotið máli sínu til
dómstólanna."
-HERB
Ég er mjög
óánægður
- segir Ingvar Gíslason
„Ég er mjög óánægður með þessa
niðurstöðu, sérstaklega það að flokks-
menn mínir, að minnsta kosti óbreyttir
þingmenn, skyldu ekki standa allir
með tillögunni. Þeir voru að vísu sex
sem það gerðu en einn greiddi at-
kvæði með frávísuninni, Ólafur
Þórðarson," sagði Ingvar Gíslason,
fyrsti flutningsmaður frumvarpsins
sem vísað var frá.
„Ég átti aldrei von á öðru en að
ráðherramir fylgdu forsætisráðherra.
Hann var búinn að gefa svo mjög
ákveðnar yfirlýsingar í sambandi við
þetta mál.“
- Hvað finnst þér um afskipti forseta
Hæstaréttar?
„Ég verð að segja það að ég held að
þau hafi verið mjög óheppileg. Ég trúi
því naumast að hann, Magnús Thor-
oddsen, sem ég þekki vel, hafi verið
búinn að lesa þetta frumvarp eða áttað
sig að öllu leyti á efni frumvarpsins
vegna þess að efnið er miklu víð-
tækara heldur en sem snertir mál
Sturlu Kristjánssonar," sagði Ingvar.
-KMU
Forseti
Hæstaiéttar fór
ekki rangt að
- segir Gunnar G. Schram
„Ég tel að forseti Hæstaréttar hafi
fúllt leyfi til þess að tjá forsætisráð-
herra sínar persónulegu skoðanir á
þessu máli,“ sagði Gunnar G. Schram,
lagaprófessor og alþingismaður.
„Ég tel ekki að hann hafi ætlast á
nokkum hátt til þess að ummæli hans
væm túlkuð sem fyrirskipun til Al-
þingis um afgreiðslu þess máls sem þar
var til umræðu heldur eingöngu verið
til leiðbeiningar fyrir forsætisráð-
herra. Þannig að ég tel ekki að hann
hafi farið á nokkum hátt rangt að,“
sagði Gunnar.
-KMU
Fréttir
Alþýðusamband Vesturiands:
Skagamenn vilja
leggja það niður
- allsherjar atkvæðagreiðsla um málið fer fram innan tíðar
Á þingi Alþýðusambands Vestur-
lands á dögunum kom fram tillaga
frá verkalýðsfélögunum á Akranesi
um að sambandið yrði lagt niður. Á
þinginu var svo kjörin bráðabirgða-
stjóm sem á að sjá um að kynna
málið í aðildarfélögunum og leggja
það siðan í allsheijaratkvæða-
greiðslu.
Guðmundur Maggi, formaður
Verkalýðs- og sjómannafélags Akra-
ness, sagði í samtali við DV að
Skagamenn hefðu lengi verið þeirrar
skoðunar að leggja ætti sambandið
niður. Skagamenn hefðu í byrjun
viljað standa utan sambandsins en
samkvæmt lögum Alþýðusambands
Islands em félög skyldug til að
greiða skatt til svæðasambanda ef
þau em til, hvort sem félögin vilja
vera í þeim eða ekki. Því væri ekki
um annað að ræða en leggja til að
sambandið yrði lagt niður til að
losna úr sambandinu. Hann taldi að
sambandið sem slíkt hefði ekkert
gert annað en þakka sér það sem
félögin sjálf hefðu haft forgöngu um.
Jón A. Eggertsson, formaður
Verkalýðsfélags Borgamess, var á
öndverðum meiði við Guðmund
Magga. Sagði hann sambandið
nauðsynlegan vettvang fyrir félögin
til að koma sameiginlegum málum
ífam, svo sem ffæðslu og öryggis-
málum og raunar fleim. Jón var
kjörinn formaður sambandsins á
þessu aukaþingi en ákveðið hefur
verið að halda framhaldsaðalfund í
Alþýðusambandi Vesturlands þegar
ljóst er hvernig kosningin um líf
þess eða dauða hefur farið fram.
Ekki sagðist Jón geta sagt til um
hvenær kosið yrði.
-S.dór
Haildór Sigurðsson og Sveinn Hjörleifsson í hesthúsi sínu.
Hestar með
afborgunum
„Næsta skrefið verður líklega að fá
sér Visa-vél,“ sagði Sveinn Hjörleifs-
son, góðkunnur hestamaður, um
Islensku hestasöluna sem hann hefur
sett á laggimar ásamt Halldóri Sig-
urðssyni gullsmiði. Fyrirtækið er það
fyrsta sinnar tegundar hér á landi og
hefur yfir að ráða 40 hesta húsi í Víðid-
al við skeiðvöll Fáks.
„Ég hef orðið var við að fólk veit
ekki hvert það á að snúa sér í hesta-
kaupum. Hugmvndin er að það geti
komið hingað, valið sér hest og jafn-
vel fengið leiðsögn. Þá reynum við að
uppfylla sérstakar óskir viðskiptavina
okkar ef um þær er að ræða. Við veit-
um að sjálfsögðu góð greiðslukjör og
afborgunarskilmála," sagði Sveinn.
íslenska hestasalan er opin alla
daga, í hádegi jafnt sem um helgar.
Að sögn Sveins Hjörleifssonar er verð
á hestum nú á bilinu 70-100 þúsund,
bamahestar eilítið ódýrari og sérstak-
ir gæðingar geta kostað um 200
þúsund krónur. -EIR
. pmnnnnnnnn.
Viljir þú vönduð hljómtœki þá velur þú AIWA
Utvarp: LB - MB og FM stereo með sjálfleitara og 12 stöðva minni. AIWA V-2Ö0
Magnari 2x50 vött. RMS, 5 banda tónjafnari jafnt á upptöku sem afspilun og hljóðnemablöndun.
Segulband: Fram og til baka (auto reverse), bæði á upptöku og afspilun, lagaleitun, sjálfvirkur rofi fyrir norm-
al, CR O eða metalspólur og Dolby B.
Plötuspilari: Sjálfvirkur eða manual, linear tracking og samhæfð tenging við segulband.
Hátalarar: 30 W sem koma á óvart.
Verð kr. 44.760,- stgr.
Hátalarar kr. 9.980,- stgr.
Þetta e-r aðeins ein af átta mismunandi
AIWA samstæðum sem við w
bjóðum upp á núna.
0PIÐ ALLA LAUGARDAGA KL. 10-12.
Kaa io
Ármúla 38, símar 31133 og 83177,