Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1987, Side 6

Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1987, Side 6
6 FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1987. Atviimumál Pétur Jónsson kom meö metfarminn að landi á Höfn, 840 tonn. Þau siga vel i eins og sjá má á skipinu. DV-myndir Ragnar Imsland Pétur Jónsson setti met: Stærsti loðnufarmurinn á Höfh Júlía Imsland, DV, Hofri; Fiskimjölsverksmiðja Homaijarðar hefur nú tekið á móti rúmlega 12000 tonnum af loðnu til bræðslu. Pétur Jónsson landaði fyrir helgina stærsta loðnufarmi sem landað hefur verið á Höfn, 840 tonnum. Húnaröst hefur landað hér 6000 tonnum. Loðnufr>>sting hófst um helgina og er búið að frysta rúmlega 50 tonn. Veiðisvæðin em við Papey og vestan við Ingólfshöfða. Nú er allt þróarrými, um 6000 tonn, fullt og því aðeins hægt að taka á móti loðnu annan hvorn dag. Afköst bræðslunnar em 400 tonn á dag. Um 30 manns vinna við loðnubræðsluna og er unnið allan sólarhringinn á tví- skiptum vöktum. Um 30 manns vinna við loðnubræðsluna á Höfn og er unnið á tvískiptum vöktum. Peningamarkaður Neskaupstaður: Greiða 4 krónum hærra verð fyrir hrognaloðnuna Síldarvinnslan í Neskaupstað greiðir sínum sjómönnum 4 krónum hærra verð fyrir loðnu til frystingar en gert er í Vestmannaeyjum og á Suðurnesjum. í Neskaupstað em greiddar 17,50 krónur fyrir kílóið af stærstu loðnunni, sagði Finnbogi Jónsson, forstjóri Síldarvinnslunnar. 1 raun em greiddar 18,60 krónur fyrir kílóið en þar sem sjómenn í Neskaupstað fá ekki greitt fyriryfir- vigt f loðnuöskjurnar verður verðið 17,50 krónur ef borið er saman við verðið annars staðar og þá miðað við 13,50 krónur. Skylda er að setja 8,5 kíló í 8 kílóa öskju til að mæta rýmun. I Neskaupstað fá sjómenn sumsé aðeins greitt fyrir 8 kíló í öskju en annars staðar er sjómönn- um greitt fyrir 8,5 kíló. Sjómenn í Neskaupstað fá 40% af skilaverði frystihússins til skipta hjá sér. Síld- arvinnslan tekur við afla tveggja báta, sem hún á sjálf, Barkar NK og Beitis NK. Frystigeta Síldarvinnslunnar er 40 lestir á sólarhring og því geta skipin ekki komið að með meira en eins og 100 tonn í einu. Bátar, sem fara til Vestmannaeyja, geta komið með allt að 300 lestum þar eð öll frysti- húsin þar skipta á milli sín aflanum. Þetta munar líka miklu í verði til áhafnar. -S.dór Kjúklingar Jcm G. Haukssan, DV, Akureyii Til stendur að selja 200 tonn af kjúkl- ingum til Noregs á næstunni. Þetta er gert þar sem eftirspurn eftir kjúkl- ingakjöti í Noregi er mun meiri en gert hafði verið ráð fyrir. til Noregs Um áramótin voru til 300 tonn af kjúklingakjöti í landinu. Fyrsta send- ingin til Noregs, 15 tonn, er lögð af stað og er það prufusending. Þau kjúklingabú sem senda þessi 200 tonn til Noregs eru fjögur talsins og leggja öll inn hjá Isfugli. Innlán með sérkjörum Alþýðubankinn: Stjörnureikningar eru fyrir 15 ára og yngri og 65 ára og eldri. Inn- stæður þeirra yngri eru bundnar þar til þeir verða fullra 16 ára. 65-69 ára geta losað inn- stæður sínar með 9 mánaða fyrirvara, 70-74 ára með 6 mánaða fyrirvara og 75 ára og eldri með 3ja mánaða fyrirvara. Reikningarnir eru verðtryggðir og með 8% vöxtum. Þriggja stjörnu reikningar eru með hvert innlegg bundið í tvö ár, verðtryggt og með 9% nafnvöxtum. Lífeyrisbók er fyrir þá sem fá lífeyri frá lífeyrissjóðum eða almannatryggingum. Inn- stæður eru óbundnar og óverðtryggðar. Nafnvextir eru 15,5% og ársávöxtun 15,5%. Sérbók. Við innlegg eru nafnvextir 10% en 2% bætast við eftir hverja þrjá mánuði án úttektar upp í 16%. Ársávöxtun á óhreyfðu innleggi er 13,64% á fyrsta ári. Hvert innlegg er meðhöndlað sérstaklega. Áunnið vaxtastig helst óbreytt óháð úttektum en vaxtahækkun seinkar um þrjá mánuði ef innleggið er snert. Á þriggja mánaða fresti er gerður saman- burður við ávöxtun þriggja mánaða verð- tryggðs reiknings, nú með 1% vöxtum, og sú tala sem hærri reynist færð á höfuðstól. Út- tekt vaxta fyrir undangengin tvö vaxtatímabil hefur ekki áhrif á vaxtahækkanir. Búnaðarbankinn: Gullbók er óbundin með 19,25% nafnvöxtum og 20,2% ársávöxtun á óhreyfðri innstæðu eða ávöxtun verð- tryggðs reiknings með 3,5% vöxtum reynist hún betri. Af hverri úttekt dragast 0,7% í svonefnda vaxtaleiðréttingu. Vextir færast misserislega. Metbók er með hvert innlegg bundið í 18 mánuði á 19,75% nafnvöxtum og 20,7% árs- ávöxtun, eða ávöxtun verðtryggðs reiknings með 3,5% vöxtum reynist hún betri. Að 18 mánuðum liðnum er hvert innlegg laust í mánuð en binst síðan að nýju í 12 mánuði í senn. Vextir eru færðir misserislega og eru lausir til úttektar næstu sex mánuði eftir hverja vaxtafærslu en bindast síðan eins og höfuðstóllinn Iðnaðarbankinn: Bónusreikningur er óverðtryggður reikningur og ber 16% vexti með 16,6% ársávöxtun á óhreyfðri innstæðu. Verðtryggð bónuskjör eru 2,5%. Á sex mán- aða fresti er borin saman verðtryggð og óverðtryggð ávöxtun og gildir sú sem hærri er. Heimilt er að taka út tvisvar á hverju sex mánaða tímabili. Hreyfðar innstæður innan mánaðarins bera sérstaka vexti, nú 0,75% á mánuði, og verðbætur reiknast síðasta dag sama mánaðar af lægstu innstæðu. Vextir færast misserislega á höfuðstól. 18 mánaða bundinn reikningurer með 18% ársvöxtum. Landsbankinn: Kjörbók er óbundin með 19,25% nafnvöxtum og 20,2% ársávöxtun. Af óhreyfðum hluta innstæðu frá síðustu ára- mótum eða stofndegi reiknings síðar greiðast 20,9% nafnvextir eftir 16 mánuði og 21,5% eftir 24 mánuði. Á þriggja mánaða fresti er gerður samanburður á ávöxtun 6 mánaða verðtryggðra reikninga og gildir hærri ávöxt- unin. Af hverri úttekt dragast 0,7% í svo- nefnda vaxtaleiðréttingu. Vextir færast misserislega á höfuðstól. Vextina má taka út án vaxtaleiðréttingargjalds næstu tvö vaxta- tímabil á eftir. Samvinnubankinn: Hóvaxtareikningur hefur stighækkandi vexti á hvert innlegg, íyrstu 3 mánuðina 11%, eftir 3 mánuði 15,5%, eftir 6 mánuði 19%, eftir 24 mánuði 20%. Sé ávöxtun betri á 3ja eða 6 mánaða verðtryggð- um reikningum gildir hún um hávaxtareikn- inginn. Vextir færast á höfuðstól síðasta dag hvers árs. Hávaxtabók er óbundin bók sem ber 19,5% nafnvexti og 20,4% ársávöxtun á óhreyfðri innstæðu. Ef ávöxtun 6 mánaða verðtryggðs reiknings reynist betri gildir hún. Vextir fær- ast misserislega. Af útttekinni upphæð reiknast 0,75% úttektargjald, nema af upp- færðúm vöxtum síðustu 12 mánaða. 18 og 24 mánaða reikningar eru bundnir og verðtryggðir og gefa 7,5 og 8% vexti. Útvegsbankinn: Ábót ber annaðhvort hæstu ávöxtun óverðtryggðra reikninga í bankanum, nú 16,64% (ársávöxtun 17,24%), eða ávöxtun 3ja mánaða verðtryggðs reikn- ings, sem reiknuð er eftir sérstökum reglum, sé hún betri. Samanburður er gerður mánað- arlega en vextir færðir í árslok. Sé tekið út af reikningnum gilda almennir sparisjóðs- vextir, 9%, þann mánuð. Heimilt er að taka út vexti og vaxtaábót næsta árs á undan án þess að ábót úttektarmánaðar glatist. Ef ekki er tekið út af reikningnum í 18-36 mánuði tekur hann á sig kjör sérstaks lotusparnaðar • með hærri ábót. óverðtryggð ársávöxtun kemst þá í 17,79-19,49%, samkvæmt gildandi vöxtum. Verslunarbankinn: Kaskóreikningur. Meginreglan er að innistæða, sem er óhreyfð í heilan ársfjórðung, nýtur kjara 6 mánaða bundins óverðtryggs reiknings, nú með 17.5% nafnvöxtum og 18,7% ársávöxtun, eða 6 mán- aða verðtryggðs reiknings, nú með 2% vöxtum, eftir því hvor gefur hærri ávöxtun fyrir þann ársQórðung. Vextir og verðbætur færast á höfuðstól í lok hvers ársfjórðungs, hafí reikningur notið þessara „kaskókjara“. Reikningur ber kaskó- kjör, þótt teknir séu út vextir og verðbætur, sem færðar hafa verið á undangengnu og yfir- standandi ári. Úttektir umfram það breyta kjörunum sem hér segir: Við eina úttekt í Qórðungi reiknast almenn- ir sparisjóðsvextir af úttekinni fjárhæð, en kaskókjör af eftirstöðvum. Við fleiri úttektir fær öll innistæða reikningsins sparisjóðs- bókarvexti. Sé reikningur stofnaður fyrsta eða annan virkan dag ársfjórðungs, fær innistæðan hlut- fallslegar verðbætur m.v. dagaQölda í inn- leggsmánuði, en ber' síðan kaskókjör út fjórðunginn. Reikningur, sem stofnaður er síðar fær til bráðabirgða almenna sparisjóðs- bókavexti en getur áunnið sér kaskókjör frá stofndegi að uppfylltum skilyrðum. Sparisjóðir: Trompreikningur er verð- tryggður og með ávöxtun 6 mánaða reikninga með 3,5% nafnvöxtum. Sé reikningur orðinn 3ja mánaða er gerður samanburður á ávöxtun með svokölluðum trompvöxtum, 17,5% með 18,23% ársávöxtun. Miðað er við lægstu inn- stæðu í hverjum ásfjórðungi. Reynist tromp- vextir gefa betri ávöxtun er þeim mun bætt á vaxtareikninginn. Hreyfðar innstæður inn- an mánaðar bera trompvexti sé innstæðan eldri en 3ja mánaða, annars almenna spari- sjóðsvexti, 9%. Vextir færast misserislega. 12 mánaða reikningur hjá Sparisjóði vél- stjóra er með innstæðu bundna í 12 mánuði, óverðtryggða en á 18,25% nafnvöxtum. Miss- erislega er ávöxtun 6 mánaða verðtryggðs reiknings, nú með 3,5% vöxtum, borin saman við óverðtryggða ávöxtun, og ræður sú sem meira gefur. Vextir eru færðir síðasta dag hvers árs. Topp-bók nokkurra sparisjóða er með inn- stæðu bundna í 18 mánuði óverðtryggða á 18% nafnvöxtum eða á kjörum 6 mánaða verðtryggðs reiknings, nú með 3,5% vöxtum. Vextir færast á höfuðstól misserislega og eru lausir til útborgunar á næsta vaxtatímabili á eftir. Sparisjóðimir í Keflavík, Hafnarfirði, Kópavogi, Borgarnesi, á Siglufirði, ólafsfirði, Dalvík, Akureyri, Neskaupstað, og Sparisjóð- ur Reykjavíkur, bjóða þessa reikninga. Almenn verðbréf Fasteignatryggð verðbréf eru til sölu hjá verðbréfasölum. Þau eru almennt tryggð með veði undir 60% af brunabótamati fasteign- anna. Bréfin eru ýmist verðtryggð eða óverðtryggð og með mismunandi nafnvöxtum. Algengustu vextir á óverðtryggðum skulda- bréfum vegna fasteignaviðskipta eru 20%. Þau eru seld með afföllum og ársávöxtun er almennt 12-16% umffarn verðtryggingu. Húsnæðislán Nýbyggingarlán frá Byggingarsjóði ríkis- ins getur numið 2.461.000 krónum á 1. árs- fjórðungi 1987, hafi viðkomandi ekki átt íbúð á síðustu þrem árum, annars 1.723.000 krón- um. Út á eldra húsnæði getur lán numið 1.723.000 krónum, hafi viðkomandi ekki átt íbúð á sl. þrem árum, annars 1.206.000 krón- um. Undantekningar frá þriggja ára reglunni eru hugsanlegar vegna sérstakra aðstæðna. Lánin enftil allt að 40 ára og verðtryggð. Vextir eru 3,5%. Fyrstu tvö árin greiðast aðeins verðbætur og vextir, síðan hefjast af- borganir af lánunum jafnframt. Gjalddagar eru fjórir á ári. Útlán lífeyrissjóða Um 90 lífeyrissjóðir eru í landinu. Hver sjóður ákveður sjóðfélögum lánsrétt, lánsupp- hæðir, vexti og lánstíma. Stysti tími að lánsrétti er mánuðir. Sumir sjóðir bjóða aukinn lánsrétt eftir lengra starf og áunnin stig. Lán eru mjög mishá eftir sjóðum, starfs- tíma og stigum. Lánin eru verðtryggð og með 5-6,5% vöxtum. Lánstími er 15-42 ár. Biðtími eftir lánum er mjög breytilegur. Hægt er að færa lánsrétt við flutning milli sjóða eða safna lánsrétti frá fyrri sjóðum. Nafnvextir, ársávöxtun Nafnvextir eru vextir í heilt ár og reiknað- ir í einu lagi yfir þann tíma. Séu vextir reiknaðir og lagðir við höfuðstól oftar á ári verða til vaxtavextir og ársávöxtunin verður þá hærri en nafnvextirnir. Ef 1000 krónur liggja inni í 12 mánuði á 10% nafnvöxtum verður innstæðan í lok tíma- bilsins 1100 krónur. Ársávöxtunin verður því 10%. Sé innstæðan óverðtryggð í verðbólgu dregur úr raunávöxtun sem því nemur og hún getur jafnvel orðið neikvæð. Liggi 1000 krónumar inni í 6 + 6 mánuði á 10% nafnvöxtum reiknast fyrst 5% vextir eft- ir 6 mánuði. Þá verður upphæðin 1050 krónur og ofan á þá upphæð leggjast 5% vextir seinni 6 mánuðina. Á endanum verður innstæðan því 1.102,50 og ársávöxtunin 10,25%. Dráttarvextir Dráttarvextir eru frá 01.04.1986 2,25% á mánuði eða 27% á ári. Vísitölur Lánskjaravísitala í febrúar 1987 er 1594 stig en var 1565 stig í janúar. Miðað er við grunninn 100 í júní 1979. Byggingarvísitala á 1. ársfjórðungi 1987 er 293 stig á grunninum 100 frá 1983. Húsaleiguvisitala hækkaði um 7,5% 1. janúar. Þessi vísitala mælir aðeins hækkun húsaleigu þar sem við hana er miðað sérstak- lega í samningum leigusala og leigjenda. Hækkun vísitölunnar miðast við meðaltals- hækkun launa næstu þrjá mánuði á undan. Peningamarkadur INMLÁNSVEXTIR (%) hæst Innlán óverðtryggð Sparisjóðsbækur óbund. 8,5-10 Allir nema Ib Sparireikningar 3ja mán. uppsögn 10-15 Sb 6 mán. uppsögn 11-19 Vb 12 mán. uppsögn 12-20 Sp.vél. 18 mán. uppsögn 18-19,75 Bb.Sp Ávisanareikningar 3-10 Ab Hlaupareikningar 3-7 Sp Innlán verðtryggð Sparireikningar 3ja mán. uppsögn 1.5-2 Ab.Bb, Lb.Úb.Vb 6 mán. uppsögn 2.5-4 Ab.Úb Innlán með sérkjörum 10-20 innlán gengistryggð Bandarikjadalur 5-6 Ab Sterlingspund 10-10.5 Ab Vestur-þýsk mörk 3,5-4 Ab.lb Danskar krónur 8.5-9.S Ab.Lb ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst lltlán áverðtryggð Almennir víxlar(lorv.) 16.5-20 Lb Viðskiptavixlar(forv.)(1) kge/21-22 Almenn skuldabréf(2) 17,5-21 Lb Viðskiptaskuldabréf(1) kge Allir Hlaupareikningar(yfirdr.) 17.5-21 Lb Utlán verðtryggð Skuldabréf Að2.5árum 5,75-6,75 Lb Til lengritima 6.25-6.75 Bb.Lb Utlán til framleíöslu ísl. krónur 15-20 Sp SDR 7,75-8,25 Lb.Úb Bandarikjadalir 7,5-7,75 Sb.Sp Sterlingspund 12,5-13 Lb.Úb.Vb Vestur-þýsk mörk 6-6,5 Lb.Úb Húsnæöislán 3,5 Ufeyrissjóöslán 5-6,5 Dráttarvextir 27 VÍSITÖLUR Lánskjaravísitala feb. 1594 stig Byggingavísitala 293 stig Húsaleiguvísitala Hækkaöi 7,5% l.jan. HLUTABRÉF Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.: Almennar tryggingar 113 kr. Eimskip 300 kr. Flugleiðir 310 kr. Hampiðjan 140 kr. Iðnaðarbankinn 135 kr. Verslunarbankinn 125 kr. (1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við- skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi, kge. Búnaðarbanki og sparisjóðir kaupa þó viðskiptavíxla gegn 21% ársvöxtum. (2) Vaxtaálag á skuldabréf til uppgjörs vanskilalána er 2% bæði á verðtryggð og óverðtryggð lán, nema í Alþýðubanka og Verslunarbanka. Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn, Bb = Búnaðarbankinn, Ib = Iðnaðar- bankinn, Lb = Landsbankinn, Sb = Samvinnubankinn, Úb = Ú tvegsbank- inn, Vb = Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóðirnir. Diskurinn á þaki Timahússins við Síð- umúla. Tíminn fær gewitungl „Eg er að styrkja fréttimar héma hjá okkur á Tímanum. Með þessu móti getum við séð erlendar fréttir i sjónvarpi um leið og þær gerast," sagði Kristinn Finnbogason, framkvæmda- stjóri Tímans, en hann hefur fest kaup á móttökudiski fyrir gervihnattasend- ingar. „Þetta er bara tilraun en við náum 12 stöðvum með þessu móti. Nú geta blaðamennimir horft á erlendu frétt- irnar á kvöldin og unnið upp úr þeim,“ sagði Kristinn Finnbogason. -EIR Þarna geta blaðamenn Tímans fylgst með erlendu fréttunum. DV-myndir S. Endurskoðun tafði undirritun „Þessir samningar eru þeir flókn- ustu sem ég hef tekið þátt í og þegar menn ganga frá kjarasamningi upp á 20 véritaðar síður í 40 tíma törn er ekki nema eðlilegt að menn vilji yfir- fara allt verkið eftir að hafa sofið og hvílst í nokkra tíma. Það var einmitt þetta sem við gerðum í gær og þess vegna varð þessi töf á undirritun- inni,“ sagði Helgi Laxdal, formaður Vélstjórafélags íslands, í samtali við DV f morgun um þá töf sem varð á undirritun samninganna í gær. Samningamir voru loks undirritaðir um miðnættið í fyrrinótt. -S.dór

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.