Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1987, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1987, Blaðsíða 8
8 FÍMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1987. Útlönd______________________ Alnæmi dregið inn í viðræður um nýja stjómar- sáttmálann í viðræðum ríkisstjórnarflokka V-I>ýskalands um nýjan stjómar- sáttmála eftir kosningamar á dögunum hafa komið upp deilur um hvemig best skuli hagað vöm- um gegn alnæmi. I (jórar klukkustundir í fyrra- kvöld snerist samningafundur flokksforkólfanna og ráðherra Bonnstjómarinnar um eyðnisjúk- dóminn. Kvisast hefiu' að Franz-Josef Strauss hafi viljað innleiða lög- skyldu til að skrá alla sem bera alnæmissmit. - Rita Siissmuth heilbrigðisráðherra taldi að slíkt ráðslag mundi einvörðungu fæla fólk frá því að gangast undir eyðni- prófanir. Það varð að samkomulagi á fimdinimi að setja á laggimar nefnd sem gera skal tillögur imi varnir gegn alnæmi. Leikstjórinn játar lögbrot í dauðaslysi John fjandis kvikmyndaleik- stjóri játaði fyrir rétti í IjOS Angeles í gær að hann hefði vísvit- andi brotið vinnumálalöggjöfina þegar hann lét tvö börn leika í þyrluatriði að næturlagi en sú sena endaði í dauðaslysi þar sem Hollywood-stjaman Vic Morrow og ha?ði tömin fómst. Var hann að vinna að gerð Víet- namstríðsmyndarinnar „Twilight Zone“. Notað var sprengiefni við ta'knibrollur en sérfræðingar mis- reiknuðu sprengidæmið við töku þessa atriðis 1982 skammt frá Los Angeles. Þvrlan fórst með Mörrow (53 ára) innaborðs og Ixirnunum Renee Chen (6 ára) og Myca Dinh Lee (7 ára). Réttitrhöld í eftirmálum slyssins hafa staðið yfir undanfarnar tíu vikur. Knattspymu- aðdáendur stungnir Spænsk ungmenni særðu þrjá breska knattspymuaðdáendur með hnífstungum fyrir utan Sant- iago Berabeu-Ieikvanginn í Madrid í gærkvöldi þar sem Eng- land sigraði Spán, 4-2. Gert var að sárum Englending- anna í tæka tíð til þess að þeir gætu síðan fylgst með leiknum. Klukkustundu fyrir leikinn höfðu 200 áhangendur Rcal Madrid safnast við suðurhlið leik- vangsins og grýtt hópferðabíl sem flutti Englendingana en hjálm- kiæddir lögreglumenn vörðu um 200 manna hóp Breta sem safnast hafði saman skammt frá. Tólf bresk ungmenni vom hand- tekin í fyrrakvöld í Tolosa fýrir skrilslæti en þau vom á leið á landsleikinn í Madiid. Sex til við- bótar vom einnig hnepptir í varðhald eftir slagsmál í diskóteki í Burgos. Finnar hætta aðnota sovésk olíuskip Finnska olíufélagið Neste segist ætla að hætta að nota sovésk olíu- skip til innflutnings á hráolíu frá Sovétríkjunum eftir mengunarslysið i Finnlandsflóa í vetur. Neste-félagið segir hafa verið í ráði að nota einungis finnsk olíu- skip af öryggisástæðum, og slysið á dögunum, þegar sovéska skipið strandaði og 700 smálestir af hráolíu láku í sjóinn, hafi endanlega gert út um málið. Finnsk olíuskip em með tvöföld- um botni, en sovésk olíuskip flest með einungis einföldiun. Trúnaðarmenn framboðsflokkanna i kosningunum í írska lýðveldinu bíða fullir eftirvæntingar eftir því að geta byrjað talninguna í gærkvöldi kl. 21. Starfs- maður kjörstjórnar tæmir úr kjörkassa á borðið. Trúnaðarmennirnir eru vanir því, eftir að hafa fylgst með talningunni fram á nótt, að geta spáð mjög nærri lagi um niðurstöðurnar. _ símamynd Reuter - Haughey vann sigur Öruggur næsti forsætisráðherra írlands en með nauman meirihluta Andrés Eiríksson, DV, Dúblin; Þegar talning var langt komin núna í nótt eftir þingkosningamar í fyrra- dag var ömgg vissa fengin um kosn- ingu 129 þingmanna af 166. Enn var þó ótalið í nokkrum kjördæmum og í þremur eða fjórum voru úrslit svo naum að krafist var endurtalningar. Síðustu tölur bentu til þess að Fianna Fail (flokkur Haugheys) mundi fá 81-3 þingsæti en var með 75 á síðasta þingi. Fine Gael mundi sam- kvæmt sömu spám fá 53 þingmenn og Progressive democrats mundu fá 13 en Verkamannaflokkurinn fengi 10-12 (var með 16), Verkalýðsflokkurinn mundi ná 3-4 (en hafði 2) og lýðræðis- sinnaðir sósíalistar og óháðir mundu fá 4. Þetta jafngildir því, ef fram kemur, að Fianna Fail muni ekki ná hreinum meirihluta. Þá vantar að minnsta kosti einn þingmann upp á það. Fianna Fail þarf 84 þingmenn til þess að ná hreinum þingmeirihluta en bjartsýn- ustu spár gera ekki ráð fyrir fleirum en 83 þeim til handa og þykir mjög ólíklegt að fram úr því fari. Mörgum þykir líklegt að af þessu muni leiða að Fianna Fail muni mynda stjóm með stuðningi þriggja Charles Haughey, næsta forsætisráðherra Irska lýöveldisins, er fagnað af flokksbræðrum sinum í Fianna Fail eftir að Ijóst varð að hann hafði sjálfur náð kjöri í kjördæmi sínu í Dublin. - Símamynd Reuter þingmanna óháðra, þó án eiginlegrar samsteypustjómar. Slíkt mundi hafa þann kost í för með sér fýrir Fianna Fail að hann mundi einráður um stjórnarstefnuna að mestu, án utan- flokksráðherra. Hins vegar væri ókosturinn sá að þingmeirihlutinn væri naumur. Hinn valkosturinn fyrir Fianna Fail er að mynda stjóm með öðrum flokki og hefur enginn hinna flokkanna úti- lokað að ganga með honum til stjóm- arsamstarfs. Líklegastir þykja í því tilliti Framfara-kratar eða Verka- mannaflokkurinn, og þó mun Verka- mannaflokkurinn, sem felldi stjóm FitzGeralds með því að slíta stjómar- samtarfinu vegna ágreinings um niðurskurð útgjalda ríkissjóðs til fé- lagsmála, ekki ginnkeyptur fýrir því að setjast aftur í ríkisstjórn strax á meðan efnahagsástandið hefur ekki lagast. Hvað sem úr verður þá kemur engin önnur stjórn til greina en undir for- sæti Charles Haughey. Enda óskuðu leiðtogar hinna flokkanna honum allir til hamingju með það í sjónvarpinu í nótt að hann yrði næsti forsætisráð- herra. Forsætisráðherra S-írlands, dr. Garret FitzGerald, fylgist hugsi með talning- unni i gærkvöldi og viðurkenndi fljótt, eftir að sást að hverju stefndi, ósigur sinn fyrir Haughey. í írska sjónvarpinu í nótt, þar sem leiðtogar flokkanna komu fram, óskaði FitzGerald keppinaut sínum, Haughey, til hamingju með sigurinn og kvaðst mundu styðja stjórn hans til allra góðra verka. - Símamynd Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.