Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1987, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1987, Blaðsíða 16
16 FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1987. Spumingin Ætlarðu að fylgjast með IBM skákmótinu sem hefst í dag? Edda Marinósdóttir nemi: Nei, enda er ég mjög lítið fyrir skák, rétt svo kann mannganginn svo það er erfitt fyrir mig að setja mig inn í þessa leiki. Jóhann Ingason nemi: Já, svona allavega með öðru auganu. Það verður gaman að fylgjast með því hverjir ná fyrsta sæti en ég tel að íslendingar eigi eftir að standa vel að vígi. Anna Eyjólfsdóttir hjúkrunarkona: Nei, ég hef akkúrat engan áhuga á skák því það er svo margt annað til skemmtilegra. Fríða Bjarnadóttir húsmóðir: Nei, ég kann ekki einu sinni að tefla svo ég mun ekki mikið fylgjast með mótinu. Sæmundur Kristjánsson nemi: Ég veit nú bara ekki hvort ég hef tíma til þess. En það verður allavega gam- an að fylgjast með íslensku skák- mönnunum þvi þeir eiga eftir að standa sig í stykkinu. Borgþór Pétursson iðnrekandi: Ég geri nú ekki- ráð fyrir því, það er þó aldrei að vita. Ég vona bara að ís- lensku strákarnir eigi eftir að standa sig vel. Lesendur Smokkurinn misskilinn bjargvættur Konráð Friðfmnsson skrifar: Skaðvaldurinn eyðni hefur hlotið allmikla umfiöllun upp á síðkastið. Fræðsluherferð sjúkdóminum lút- andi er hafin hjá landlæknisembætt- inu. Eitthvað hafa læknamir hugleitt að fá alla íslendinga til mótefnamælingar. Yrði af slíkri framkvæmd þyrfti að endurtaka slíka mælingu með jöfiiu millibili svo unnt sé að fá nákvæma vitneskju um útbreiðslu veirunnar. Tel ég að eitt skipti sé ekki nægjanlegt. Fram- kvæmd af slíkum toga hlýtur að- vera óhemjudýrt fyrirtæki og spum- ing er hvort peningamir nýttust ekki betur gegn plágunni sjálfii sem virðist ætla að velgja jarðarbúum eftirminnilega undir uggum. Við þá staðreynd þarf að staldra og þykist ég vita að vísindamenn vorir geri það. Smokkurinn er í þessu máli hinn mikli bjargvættur. Sér í lagi fyrir það t'AMÍLY n ANKJNO A mew excitmg- rt .iclion öxtrathin Gúmmigallinn hefur margt til síns ágætis en öruggur er hann því miður ekki frekar en annað til varnar þessum vágesti. fólk sem neitar að taka orð sérfræð- inga alvarlega og heldur uppteknum hætti eins og ekkert hafi ískorist. Því fólki er voðinn vís sem skiptir um rekkjunauta jafnoft og aðrir um skyrtu eða skoðun og er þá mikið sagt. En það virðist vera nokkuð mikið um lauslæti hér á landi. Gúmmígallinn hefur margt til síns ágætis en ömggur er hann því miður ekki frekar en annað til vamar hin- um illvæga vágesti. En mér hefur þótt dálítil tilhneiging hjá fólki að líta á smokkinn sem bjargvætt en halda síðan uppteknum hætti, þ.e. fjöllyndinu. Samanber þáttinn í sjónvarpinu fyrir skömmu, yfir kvöldkaffi, en sá þáttur var að öllu leyti hreinskilinn og vel fram settur. Það eina sem gildir er fræðsla, en forðast skal allt sem flokka má und- ir hræðslupólítík en á henni hefur bonð talsvert. Það væri nær að reyna að breyta hugsunarhætti fólks en að afhenda því verjur. Ebba skrifar: Ég var að lesa greinina um eyðni og siðferðilega ábyrgð í Morgun- blaðinu eftir prófessor Björn Björnsson. Þessa grein ætti endi- lega að lesa í útvarpið á góðum hlustunartíma, hún á svo sannar- lega erindi við alla; er reyndar alveg bráðnauðsynlegt innlegg til móts við allt verjutalið. Nú ættu konur að taka málin í sínar hendur og brýna sérstaklega fyrir ungum stúlkum að segja nei við öllum skyndisamböndum. Það væri nær að reyna að breyta hugsunarhætti fólks heldur en að afhenda því verj- ur. Hér áður fyrr var ekkert mál fyrir stúlkur að segja nei við stráka, þeir skildu það, og var þó enginn lífshættulegur sjúkdómur á ferðinni. Þá reyndu stúlkur að halda í meydóminn fyrir þann eina rétta. Það hlæja nú eflaust margir og segja: Sú er klikkuð og gamal- dags þessi. En menn hlæja ekki þegar þeirra fólk er smitað af eyðni því allir vita að ógæfusamir eyðni- sjúklingar eru dauðadæmdir og allir fælast þá og eru hræddir við þá. Ef fólk er líka jafndrukkið og sagt er eftir böllin og er þá til í allt ætli það verði þá ekki alveg eins kærulaust með verjurnar. Þetta mál verða konur að taka föstum tökum því ábyrgðin virðist alltaf vera þeirra í svona málum. Það verður að breyta hugsunar- hætti fólks, það á að vera dyggð að geta sagt nei þangað til alvara er komin í sambandið. Þetta eru kvenréttindi og er nauðsynlegt fyr- ir konur að halda fundi um þetta lífsnauðsynlega mál. Röng innheimtuaðferð skatta Hlédís Guðmundsdóttir skrifar: Kæru skattnefndarmenn, þið sem setið hafið frá því í nóvember við að útbúa nýju skattlögin. Þetta er fínt hjá ykkur, ég meina það og er mjög þakklát, - en það er eitt sem þið eruð að bögglast með í algjöra vitleysu, þ.e. innheimtuaðferðin er alveg út í hött. Nú hef ég að sinni ekki tíma til að telja upp rökin fyrir þessari fullyrð- ingu en þau koma að nokkru fram í bréfi sem ég sendi ykkur i janúar sl. Eina skynsamlega innheimtuaðferð- in er og verður sú að stofnaðir verði sérstakir launa-(skatta)reikningar í bönkum og hver einstaklingur fái öll sin laun greidd inn á sama stað. Reiknistofnun bankanna eða gjald- heimtunnar hefur þá nákvæmt yfirlit yfir tekjur og þar af leiðandi gjald- töku. Þetta er ékki flóknara en meðal greiðslukortakerfi og losar okkur við allar kjánalegar vangaveltur um „aðal -launagreiðendur" og guð veit hvað. Hvers vegna eiga launagreiðendur að sjá um skattinn okkar? Fengu þeir borgað fyrir það? - Eða yrði þetta þegnskylduvinna eins og söluskatts- innheimtan? Er mjög góð reynsla af því að at- vinnurekendur haldi eftir hluta af launum manna? Hvað með lausa- vinnufólk, fólk í mörgum láglaunuð- um störfum o.s.frv.? Heimskunöldur Þjóðviljans Þröstur Júlíus Karlsson hringdi: Þeir hjá Þjóðviljanum eru iðnir við kolann að agnúast út í þá listamenn sem ekki eru á þeirra flokkspólitísku línu. Það fékk Hrafn Gunnlaugsson að reyna þar sem talað er um í áður- nefhdu blaði að hann sé á „spenan- um“, varðandi úthlutun úr kvikmyndasjóði. Þetta er fremur neik- vætt orðalag og skora ég á Þjóðvilja- hyskið að benda á þá rithöfunda sem eru á „spenanum" þ.e. fá oftast úthlut- að starfslaunum rithöfunda. Gerið það, Þjóðviljamenn, það er óþarfi að kippast við eins og nöðrur undan þess- ari áskorun. HRINGIÐ í SÍMA 27022 MILLI KL. 13 og 15 EÐA SKRIFIÐ Hækkandi fasteignaverð Húsnæðiskaupandi hringdi: Nú er alltaf verið að tala um að fas- teignasalar hafi engin áhrif á verðlag íbúða en mér sýnist að verðlagið velti einmitt mikið á því hvað þeir predika. Núna eru allir að fá svör frá Hús- næðismálastofnun og þá virðist fas- teignaverðið rjúka allt í einu upp. Ég held að fólk fylgist nefnilega almennt ekki vel með á hvaða verði íbúðir ganga og fasteignasalamir telji fólki trú um að núna sé einmitt upplagt að selja og fá meira fyrir vikið því fólk sé að fá húsnæðismálalánin. Ég skoðaði t.d. alveg nákvæmlega eins íbúðir með mánaðar millibili og í fyrra skiptið átti hún að kosta 2.750.000 en í seinna 3 milljónir og túlki nú hver sem vill. Stopul þjónusta hjá Stöð 2 Ingimundur Sæmundsson hringdi: Ég er búinn að eyða stórfé í af- ruglara en það er ekkert gagn að honum því það þarf víst að skipta um númer á afruglaranum mánaðarlega eigi kerfið að virka. Stöð 2 eða við- gerðarmenn á hennar vegum eiga að sjá um að skipta um þetta númer mánaðarlega á meðan verið er að kenna fólki hvemig eigi að skipta um þessi númer. Ég er alltaf að hringja til þeirra til að fá þetta númer á afr- uglarann, en í fyrsta lagi er nánast ókleift að ná sambandi og er ég loks- ins næ í gegn þá er viðkvæðið alltaf: „Við erum á leiðinni" og svo líður og biður og enginn kemur. Mér finnst þetta harla stopul þjónusta sem ekki virðist vanþörf á að bæta.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.