Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1987, Side 17

Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1987, Side 17
FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1987. 17 Lesendur Hlemmur er engin bækistöð fyrir utangarðsfólk sem hefur ekkert annað að gera en að vera sjálfum sér og öðrum til ama. Óþjóðalýður á Hlemmi Karl Gunnarsson hringdi: Það verður að fara að hreinsa þama út á Hlemmi. Þetta er engin bækistöð íyrir utangarðsfólk sem hefur ekkert annað að gera en að vera öðrum og sjálfúm sér til ama. Öryggi borgaranna krefst þess að eitthvað róttækt sé að hafst. Neysluvörur of dýrar Einn á „Nesinu“ skrifar: Ég er einn þeirra sem hafa vanið sig á að drekka Nescafé hvers konar í stað venjulegs kaffis. Eftir að nýju tegundimar komu í verslanir hefur maður getað valið úr. Einn galli er þó á gjöf Njarðar. Hann er sá að verðið á þessu kafíi er óheyri- lega hátt. Hér kostar dós með 100 g 201 kr (ódýrast) upp í allt að 392 kr. I Bandaríkjunum kostar sama magn um 70 kr. Er flutningur á Nescafé hingað svona dýr? Á Hawaiieyjum keypti ég sl. sumar þetta kaffi og ekki bar á öðm en sama verð væri þar á því og í Bandaríkjum meginlandsins og er þó talsverður spölur að flytja kaffið frá meginl- andinu til Hawaii. En þetta er ekki eina dæmið um hátt verðlag á íslandi, einkum á mat- vöm. Annaðhvort er álagningin svona há hér eða flutningskostnaður. Auð- vitað veit maður af vömgjaldinu og tollunum sem ríkið tekur en samt er eins og eitthvað annað óeðlilegt spili þama inn i. Dæmi má taka af t.d. videotækjum sem hér em seld á kr. 39.900 (eitt verðið) en út úr búð Bandaríkjunum á kr. 7 þús. eða un 170$. Allt er þetta á eina bókina lært Enginn gerir gangskör í að svipta hulunni af þessum ósköpum og allii landsmenn em sammála um að verð- lag sé óeðlilega hátt á neysluvörum hérlendis. Þingmenn þjóðarinnar em önnum kafnir við að hælbíta hver annan. Til hvers er verið að kjósa þessa kóna? Og svo fjölga þeir sér sjálfir úr 60 í 63 án þess að spyrja kóng eða prest. Aukið fræðslu um áfengi Karl Gunnarsson skrifar: Eftir að hafa lesið um þessar tillög- ur, er opinber nefnd í áfengismálum hefur komið á framfæri verð ég að viðurkenna að fyrst núna blöskrar mér. Það er alveg út í hött að fara að hækka áfengi, því nógu dýrt er það fyrir, og það dregur engan veginn úr áfengisneyslu. Með því er bara verið að mismuna fólki því áhrif hækkunar- innar kemur verst út fyrir láglauna- fólkið en hinir fjáðari geta haldið áfram að kaupa þessa lúxusvöru. Það þýðir ekki alltaf að vera með þessi höft. Hvemig væri svona til til- breytingar að þessir áfengissiðapostul- ar fæm að vera aðeins jákvæðari í þessari umræðu? Það verður að byrja á gmnninum með því að stórauka fræðslu um áfengið og skaðann sem þvi getur verið samfara. Það er alveg út í hött að fara hækka áfengi, þvi nógu dýrt er það fyrir, og það dregur engan veginn úr áfengisneyslu. tjöruþvottur QQH j/V og þurrkun Vv W j\l l Eirmig bjóðuin við að sjálfsögöu: • Gufuþvott á vélum • Djúphreinsun á sætiun og teppi • Sprautun á felgum • Við bónum aðeins með hinu V níðsterka Mjallarvaxbóni BÓN- & ÞVOTTASTÖÐIN Klöpp - Sími 20370 BÓN- & ÞVOTTASTÖÐIN v/Umferðarmiðstöðina - Sími 13380 HÖFÐABÓN Höfðatúni 4 - Sími 27772 Við eigum fyrirliggjandi mjög vel búinn Ford E150 Club Wagon árgerð 1986, 8 manna, lengri gerð, vél 302, sjálfskipting, hábaksstólar, litað gler, kælikerfi, rafmagnsrúður og læsingar o.m.fl. Verð aðeins kr. 1.250.000,- sími 28705 Aftur er komið að okkar vinsæla tilboði sem allir þekkja, 24 timar á aðeins 1600 krónur. VERIÐ VELKOMIN ÁVALLT HEITT KÖNNUNNI

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.