Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1987, Page 29
FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1987.
-29
■ Til sölu
Full búð af hjálpartækjum ástarlífsins
og æðislega sexí nær- og náttfatnaður
í miklu úrvali fyrir dömur og herra.
Komdu á staðinn, hringdu, eða skrif-
aðu. Ómerkt póstkröfu- og kredit-
kortaþjónusta. Opið alla daga nema
sunnud. frá kl. 10-18. Rómeó og Júl-
ía, Brautarholti 4, 2. hæð, sími 14448,
29559. Box 1779, 101 Rvík.
Hjólkoppar, ný sending. 12", 13", 14"
og 15", 9 gerðir, einnig krómhringir
13" og 14", stál og plast, frábært verð,
t.d. 12" kr. 2.200, 13" kr. 2.400, 4 stk.
sett. Sendum í póstkröfu. G.T. búðin
hf., Síðumúla 17. Sími 37140.
Smáauglýsingar - Sími 27022 Þverholti 11
Leikfangahusið augl. F/grímuböllin og
öskudaginn: 20 stærðir og gerðir af
búningum, s.s. kúreka, indíána, Sup-
erman o.fl. Allt í Barbie og Sindy,
Masterhallir, -karlar o.íl. Hjólaskaut-
ar, skautabretti. Pósts. Leikfangahús-
ið, Skólavörðustíg 10, s. 14806.
Bátaeigendur! Getum afgreitt með
stuttum fyrirvara hinar gangvissu
Nanni dísilbátavélar í stærðum 10 til
650 hö. Steinsson hf., Hólmaslóð 8,
símar 622690 og 20790.
■ Ymislegt
NEW NATURAL COLOUR
q TOOIHMAKEUP
PmvÍií
mmi
roorw
ÍMUMCL
IL-. J
Pearlie tannfarðinn gefur aflituðum
tönnum, fyllingum og gervitönnum
náttúrulega hvíta áferð. Notað afsýn-
ingarfólki og fyrirsætum. Pearlie-
umboðið, póstkröfusími 611659,
sjálfvirkur símsvari tekur við pöntun-
um allan sólarhringinn. Box 290, 171
Seltjarnarnes.
■ Bátar
Þessi bátur er til sölu, 5,2 tonn, opinn,
vél: Volvo Penta '83-72 Hp. Höfum
ýmsar stærðir og gerðir af opnum og
dekkuðum bátum. Sölum. heima 91-
34529. Skipasalan Bátar og búnaður,
Tryggvagötu 4, sími 622554.
■ BOar til sölu
Ford 910 D 74 kassabíll til sölu, nýleg-
ur skiptimótor, verð 280 þús. Uppl. hjá
Aðal-Bílasölunni í símum 15014 og
17171.
Chevrolet Caprice Classic '82 til sölu,
einstakur bíll með öllu, ath. skipti/
skuldabréf. Uppl. Bílasalan Braut,
sími 681510, 681502.
Toyota Hilux '82 til sölu, ekinn 110
þús., ný dekk, gírkassi og kúpling
nýupptekin. Tilboð óskast. Uppl. í
síma 37005 milli kl. 18 og 20.
Datsun 280 ZX til sölu, fallegur sport-
bíll, verð 570 þús. Úppl. hjá Aðal-
Bílasölunni í símum 15014 og 17171.
Móttaka
smáauglýsinga
Þverholti 11
Opið:
virka dagakl. 9-22,
laugardaga kl. 9-14,
sunnudagakl. 18-22.
dv Fréttir
Ráðherrar í hár
saman um fersk-
fiskútflutning
„Það er í algerri andstöðu við mig
ef það er hugsun viðskiptaráðherra
að gefa útflutning á ferskum fiski
frjálsan. Það er nú venjan að kynna
mikilvægar breytingar í ríkisstjóm en
ekki Morgunblaðinu," sagði Halldór
Ásgrímsson sjávarútvegsráðherra við
DV í morgun.
„Það er búið að ákveða að breyta
reglugerðum og gera útflutning frjáls-
ari en hann er. En það er ekki búið
að ganga alveg frá því,“ sagði Mattfíé-
as Bjarnason viðskiptaráðherra í
samtali við DV í morgun.
„Stærsta breytingin verður að fersk-
ur fiskur verður yfirleitt gefinn alveg
frjáls. Ég þori ekki að gefa allan út-
flutning fijálsan í einu vetfangi. Allar
landbúnaðarafurðir verða háðar levf-
um.“
- Er samstaða um þessa breytingu í
ríkisstjóminni?
„Þetta er alveg sérmál viðskipta-
ráðuneytisins. Ég geri ekki ráð fyrir
að það sé neinn ágreiningur imr það
í ríkisstjórninni," sagði Matthías.
„Það hefur verið ósk okkar hér í
sjávarútvegsráðuneytinu og ýmissa
hagsmunasamtaka aðþað yrðu teknar
upp nýjar reglur varðandi stýringu-ág
útflutningi á ferskum fiski," sagði
Halldór.
„Það hefur því miður komið allt of
oft fyrir að of mikið magn hefur leitað
inn á markaðinn í einu og það hefur
orðið verðfall.
Hér er um mjög viðkvæmt mál að
ræða. Viðskiptaráðherra hefúr tekið
því vel að fara í það mál. Þess vegna
kemur það mér mjög á óvart ef það
er rétt að menn hyggist hætta stýr-
ingu, því að hún er nauðsvnleg," sagði
Halldór.
-KMU'*
Merming
Kvenfrelsi í raun
RÚV útvarp flytur leikritið
19. júni
Höfundar: Iðunn og Kristin Steinsdætur.
Leikstjóri: Hallmar Sigurðsson.
Leikendur: Hanna Maria Karlsdóttir, Harald
G. Haralds, Herdis Þorvaldsdóttir, Róbert
Arnflnnsson, Þóra Friðriksdóttir, Steinunn
Ólina Þorsteinsdóttir, Vilborg Halldórsdóttir,
Kristján Franklin Magnús og Rósa G. Þórs-
dóttir.
Leikritið 19. júni, eftir systumar
Iðunni og Kristínu Steinsdætur,
hlaut fyrstu verðlaun í leikritasam-
keppni Ríkisútvarpsins nú fyrir
skemmstu og var frumflutt þar á rás
1 síðastliðinn fimmtudag.
Eins og nafnið bendir til gerist
þetta leikrit 19. júní, en sá dagur er,
eins og allir vita, helgaður baráttu
kvenna fyrir jafhrétti. í leikritinu er
sagt frá ofúrvenjulegri útivinnandi
húsmóður, Önnu, sem ætlar að gera
sér dagamun af þessu tilefni. En
margt fer öðruvísi en ætlað er og í
stað þess að taka þátt í hátíðar-
höldunum neglist hún niður innan
veggja heimilisins, við þessi venju-
bundnu störf húsmóðurinnarsem oft
eru harla lítils metin. Allt fer á hvolf
á heimilinu, gesti drífúr að og allir
fjölskyldumeðlimimir, aðrir en
Anna, þurfa nauðsynlega að sinna
sínum áhugamálum. Hún ein situr
eftir, er enda ómissandi við að stjana
við allt liðið, unga sem gamla.
Þetta er svo sem ekkert nýstárleg
saga, síður en svo. Anna er þessi
dæmigerða nútímakona, sem stend-
ur mitt á milli tveggja heima, jafn-
réttið lætur á sér standa, þrátt fyrir
frelsi konunnar til að taka á sig tvö-
falda vinnu.
Ekki er mikill munur á viðhorfum
gömlu kynslóðarinnar og unga
fólksins til starfa húsmóðurinnar.
Gamla fólkið rifjar upp hvemig þetta
var í sveitinni hér áður fyrr, og finnst
lítið til þeirra verka koma, sem falla
til á nútímaheimili. Þeir ungu eru
sífellt með jafiiréttisklisjurnar á vör-
unum en engu að síður er litið á
mömmu sem eina allsherjarvinnu-
konu. Basta.
I leikritinu er sem sagt rakið á
gamansaman hátt hvemig þessi dag-
ur líður frá morgni til kvölds. Mér
þótti nokkuð langt að bíða þess að
það óumflýjanlega gerðist, að Anna
skellti lokinu á pönnuna, slökkti á
eldavélinni og drifi sig niður í bæ.
Hvers vegna í ósköpunum gerði
manneskjan það ekki strax í hádeg-
inu? Persónan var að mínu mati sem
sé ekki alveg nógu sannfærandi.
Leiklist
Auður Eydal
En styrkur verksins fannst mér
hins vegar fólginn í lipurlega sömd-
um texta og ágætri uppbyggingu.
Efnið er dálítið mglingslegt framan
af en það hentar atburðarásinni
ágætlega. Á heimilinu því ama gafst
sannarlega aldrei stundarfriður.
Margar persónur koma við sögu,
og er ekki fritt við að eldri kynslóð-
in fái ítarlegri umfjöllun en sú yngri.
í flutningi þeirra Herdísar Þorvalds-
dóttur, Róberts Amfinnssonar og
Þóm Friðriksdóttur urðu þessar per-
sónur prýðilega lifandi og skemmti-
legar. Sérstaklega fannst mér Þóm
takast vel upp. Þau Steinunn Ólína
Þorsteinsdóttir, Kristján Franklín
Magnús, Vilborg Halldórsdóttir og
Rósa G. Þórsdóttir leika börn heim-
ilisins og vinkonu. Þau náðu ekki á
sama hátt að gæða þetta sérgóða lið
lífí enda góð túlkun í útvarpi sérstök
kúnst. Systraerjumar vom þó kostu-
legt atriði og vel samið og skilaði
sér ágætlega í gegn um útvarpið.
Hanna María Karlsdóttir var hin
fórnfúsa húsmóðir og Iék hlutverkið
af smekkvísi. Hinn önnum kafni eig-
inmaður kom lítið við sögu, en
Harald G. Haralds fór með hlutverk
hans.
í heild var þetta leikrit, undir
stjórn Hallmars Sigurðssonar leik-
stjóra áheyrileg og skondin úttekt á
stöðu konunnar fyrr og nú.
AE
Fjór á sfld
Leiktélag Húsavikur sýnir:
Síldin kemur og sildin fer
Höfundar: Iðunn og Krlstin Steinsdætur.
Leikstjóri: Rúnar Guðbrandsson.
Leikmynd og búningar: Rúnar Guðbrands-
son.
Leiktjaldamálun: Sigurður Hallmarsson.
Leikfélag Húsavíkur lagði upp í
langferð í síðustu viku, kom suður
með allt sitt hafurtask og sýndi gam-
anleikinn „Síldin kemur og síldin
fer“, þrisvar sinnum í Bæjarbíói í
Hafnarfirði. Þessi sýning er búin að
vera á fjölunurn á Húsavík frá því í
nóvember, hefur hlotið miklar vin-
sældir og sýningar em orðnar yfir 30.
Höfundar em þeir sömu og sömdu
útvarpsleikinn 19. júní, það er að
segja systurnar Iðunn og Kristín
Steinsdætur. Þetta er létt og fjörug
úttekt á síldarámnum upp úr 1960,
krydduð söngvum og slögurum þess-
ara ára við söngtexta þeirra systra.
Stemmning síldaráranna og það
marglita mannlíf, sem einkenndi
plássin, er aðalviðfangsefni verksins.
Lýst er aðkomufólki og hinum sem
fyrir em og því hvemig þessir hópar
sameinast í þann stutta tima sem
síldin stendur við. Margar kúnstug-
ar persónur koma við sögu, en meira
er lagt upp úr hraða í verkinu held-
ur en því að draga upp skýrar
myndir af einstaklingum. I heild gef-
ur leikurinn ágæta mynd af því
sérkennilega ástandi sem skapaðist
í litlum bæjarfélögum á þessum tíma
þegar rótgróin samfélög urðu líkt
og fyrir sprengingu. En áður en varði
var svo ævintýrið á enda og eftir
stóðu ónothæf mannvirki ofurseld
veðri og vindum og síldarfólkið á
bak og burt.
Þetta er að mörgu leyti kjörið
verkeíhi fyrir áhugahóp, sérstaklega
þar sem mörgum em þessir tímar
enn í fersku minni. Söngur, glens
og gaman ræðm- ferð og leikendur
geta sýnt hæfilegt alvömleysi á svið-
inu. Sýningin er kannski óþarflega
löng, en hún er byggð upp af stuttum
atriðum þannig að sjaldan em dauð-
ir punktar.
Leikstjórinn Rúnar Guðbrandsson
hefur einnig gert leikmynd og bún-
inga og gengu skiptingar milli atriða
allvel. Leikmvndin er einfóld og
klæðnaður leikenda samkvæmt
tísku þessara ára, hvort tveggja
ágætlega heppnað.
Leikendur komast margir hverjir
ágætlega frá sínu og nokkrar per-
sónur verða furðu lifandi í meðföi-um
þeirra.
Eftirminnilegasta persónan fannst
mér hún Jökla, sem Margrét Hall-
dórsdóttir lék afskömngsskap. Þessi
fjallmyndarlega stúlka er komin
beint úr afskekktri sveit inn í þá
Sódómu og Gómorru sem síldar-
plássið er. En það var nú öðm nær
en að hún væri þar eins og fiskur á
þurru landi, hún hefur þau hvggindi
sem í hag koma og veit „að hjörtum
mannanna svipar saman" hvar sem
er. Hún notar því sömu aðferð til
að krækja sér í aflaskipstjóra eins
og hún hefði beitt heima í fjalladaln-
um.
Margir aðrir léku af sannri gleði.
má þar nefna Þorkel Bjömsson í
hlutverki Lilla, Herdísi Birgisdóttur
sem lék Málfríði á símanum, Hrefnu
Jónsdóttur sem var örugg í hlutverki
Sigþóru, Ingimund Jónsson, sem
Ófeig hrossabónda, Jóhannes Ein-
arsson sem Spreng verkstjóra og
Sigurð Hallmarsson sem gerði sér
mat úr litlu hlutverki yfirvaldsins.
Þetta er ágætt verkefni fyrir
áhugahóp, og vinsældir þess vel
skiljanlegar, sérstaklega þar sem
menn muna vel þessa tíma. Leikfélag
Húsavíkur hefur lengi verið með
öflugustu áhugahópum og ljóst er
að ekki skortir fólk til að standa að
leiksýningu sem þessari, en alls taka
um35 manns þátt í uppsetningunni.
Þeim er þökkuð heimsóknin. AE