Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1987, Side 31
FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1987.
31
Árni Johnsen.
Meiri hraða
Það,þótti tíðindum sæta
þegar Árni Johnsen mælti fyr-
ir því á þingi að lögleyfður
yrði llOkíiómetrahraði.
Benti hann á að landinn lifði
ekki á traktorsöld þegar hann
fluttitillögusína.
Þetta er sannarlega rétt,
ekki síst með tilliti til þess að
Ámi fékk sér á dögunum
kraftmikið mótorhjól sem
hann spýttist á um allar triss-
ur. Ætla menn að það sé
orsökin fyrir þessum hraða-
hugmyndum þingmannsins.
Hitt er annað að Árni slapp
fyrir horn um daginn. Það var
um kvöld að það barst til-
kynning um það á lögreglu-
bylgjunni að ökumaður
grunaður um ölvun væri á
leiðinni ofan úr Breiðholti.
Hófu laganna verðir þegar að
ieggja gildrur fyrir „fylllibytt-
una“ á þeim leiðum sem hún
gat hugsanlega ekið. Á meðan
þeir biðu eftir bráðinni gáðu
þeir að því hver væri eigandi
þessarar tilteknu bifreiðar
sem ætlunin var að stöðva.
Þegar i ljós kom að það var
Árni Johnsen voru lögreglu-
mennirnir fljótir að taka upp
netin. Árni er nefnilega meðal
annars þjóðfrægur fyrir það
að hann smakkar aldrei
áfengi.
Það er vandi að versla i Rik-
inu.
Vandlifað
í Áfenginu
Misnotkun á ávísunum er
sögð hafa stóraukist með til-
komu bankakortanna. Sem
betur fer hengja sig fáir nú
orðið á notkun kortanna góðu
sem öllu áttu að bjarga. Það
er einna helst Áfengis- og tó-
baksverslun ríkisins sem lítur
ekki við ávísunum, nema að
bankakorti sé framvísað. Og
þar eru undarlegar reglur í
gangi.
Maður nokkur þurfti að
kaupa slatta af áfengi fyrir
ákveðinn tyllidag. Hann fór
því í ríkið og gerði innkaup
eins og hann þurfti. Reyndust
veigamar kosta samtals 3400.
En þegar hann ætlaði að
greiða fyrir þær með ávísun
kámaði gamanið. Afgreiðslu-
maðurinn tjáði honum að
bankakortið ábyrgðist aðeins
ávísun að upphæð 3000 krónur
og afganginn yrði hann að
greiða í peningum.
Viðskiptavininum fannst
þetta hálfskrýtið og spurði
hvort hann mætti þá ekki
skrifa tvær ávísanir, aðra upp
á 3000 krónur og hina upp á
400. Þá svaraði afgreiðslu-
maðurinn heiðskír í framan:
„Jú, ef þú ferð út um þessar
dyr og kemur inn um hinar.“
Fjörfyrir
vestan
Þeir geta verið skrautlegir
bæjarstjómarfundirnir á
Isafirði, ef marka má frásögn
Vestfirska fréttablaðsins af
einum slíkum.
Eitthvað hafa menn verið
að karpa á þeim fundi, því allt
í einu féll stóra sprengjan. Þá
lýsti varabæjarfulltrúi Fram-
sóknar, Magnús Reynir
Guðmundsson, því nefnilega
yfir að vissi hann ekki betur
myndi hann halda að Ólafur
Helgi Kjartansson, bæjarfull-
trúi Sjálfstæðisflokksins, væri
ekki með öllum mjalla.
Ólafur, sem mun vera frændi
Magnúsar, var að vonum
óánægður með þessar dylgjur
um geðheilsu ættarinnar. Því
vildi hann láta bóka mikinn
langhund um þetta mál og
ýmislegt fieira sem hafði dott-
iðútúrMagnúsi.
Við þessa hótun sá Magnús
að sér og dró ummæli sín til
baka. Þá dró Ólafur bókunina
einnig til baka.
Svona gerast kaupin á Eyr-
inni fyrir vestan.
Eignar-
skerðing
Þeirsem eiga eins, tveggja,
og þriggja tölustafa bílnúmer
geta nú líklega farið að naga
sig í handarbökin fyrir að vera
ekki búnir að selja þau. Þessi
númer hafa verið seld fyrir
drjúgar upphæðir fram til
þessa. Sumir hafa notað tæki-
færið og losað sig við örgustu
druslur með því að láta lágt
númer fylgja og þá að sjálf-
sögðu fyrir dágóðan skilding.
En nú er til meðferðar hjá
Sandkom
Bráðum hverfa þessi af sjón-
arsviðinu.
Alþingi frumvarp til umferð-
arlaga sem að líkindum
verður samþykkt á öllum víg-
stöðvum. Þar er m.a. gert ráð
fyrir breyttum bílnúmerum.
Verða þau með tveim bókstöf-
um og þrem tölustöfum. Þar
með verða þær fasteignir á
hjólum, sem lágu númerin
hafa verið, úr sögunni.
Uppboð
til einskis
í Lögbirtingablaðinu var
um daginn auglýst nauðung-
aruppboð á húseigninni
Duusgötu 7 í Keflavík. Að
sögn Víkurfrétta var það hér-
aðsdómslögmaðurinn Guðríð-
ur Guðmundsdóttir sem setti
fram kröfuna um nauðungar-
uppboðið. Á það að fara fram
í marsmánuði.
En það er næsta víst að sein-
tekið verði upp í kröfurnar.
Húsið hvarf nefnilega af yfir-
borði jarðar fyrir um það bil
20 árum.
Umsjón:
Jóhanna S. Sigþórsdóttir
Tálknafjörður:
Táp í nýtt húsnæði
Ásla Óskarsdóttir, DV, Tálknafirði:
Líkamsræktarstöðin Táp á Tálkna-
firði var nýlega opnuð í nýju húsnæði
með glæsibrag. Eigendur stöðvarinnar
eru hjónin Ingibjörg Inga Guðmunds-
dóttir íþróttakennari og Sigurður Árni
Magnússon húsasmiður.
Ingibjörg Inga hóf þennan rekstur
íyrir tveim árum í 37 fermetra bílskúr
sem þau hjónin breyttu í stórfína æf-
ingastöð. Það þurfti ekki að velta
vöngum yfir aðsókninni því fljótlega
reyndist plássið fulllítið og Patreks-
íirðingar sumir hverjir lögðu á sig
fjallvegaakstur til að komast í Táp.
En færri komust að en vildu og undan-
farna mánuði hafa þau hjón keppst
við að koma nýju stöðinni í gagnið.
Nýja æfingastöðin er í 100 fermetra
viðbyggingu við trésmiðjuna Eik og
er stórglæsileg í alla staði. Auk þess
sem æfingarrými er mun meira hefúr
tækjunum fjölgað, gufuklefinn er
stærri, sturturnar fleiri og þar er einn-
ig hægt að fara í ljós.
Það er fullvíst að þessir fermetrar
eiga örugglega eftir að nýtast til fulls
þvi með þeirri alúð og umhyggju, sem
Ingibjörg Inga stýrir hverjum og ein-
um í gegnum sitt prógramm, fjölgar
brosleitum og hraustlegum Tálknfirð-
ingum og nágrannabúum.
Haukur Sigurðarson unir sér vel i
rimlunum í nýju heilsuræktarstöðinni.
DV-myndir Ásta
é ,K.
T m
Eigendur Táps þau Ingibjörg Inga Guðmundsdóttir og Sigurður Árni Magnússon ásamt bömum sínum.
Toyota Cressida STW árg. ’82, ekinn Toyota Landcruiser II dísil árg. '85,
77.000 km, blár. Verð 350.000,- ekinn 55.000, brúnn. Verö 750.000,-
BMW 518 árg. '81, ekinn 90.000 km,
grásans. Verð 330.000,- Góð kjör.
Toyota Corolla 1600 liftback árg. '84,
ekinn 38.000 km, gullsans. Verð
380.000,-
Toyota Cressida DX árg. '81, ekinn
64.000, beige. Verð 340.000,-
Honda Civic Sport árg. '82, ekinn
43.000, rauður, sóllúga. Verð
285.000.-
Daihatsu Charade árg. '81, ekinn Citroen GSA Pallas árg. '82, ekinn
72.000, grár. Verð 175.000,- 65.000, grænn. Verð 200.000,-
Toyota Camry 1800 GL árg. '83, ek- Toyota Camry 1800 DX árg. '85, ek-
inn 80.000 km, grár. Verð 395.000,- inn 48.000, vinrauður. Verð 450.000,-
AMC Eagle 4x4 STW árg. '80, ekinn
92.000 km, rauður, 6 cyl., sjálfskipt-
ur. Verð 350.000,-
Toyota Corolla Twin Cam árg. '85,
ekinn 32.000 km, hvitur, álfelgur.
Verð 530.000,-
Toyota Crown Super saloon árg. '85,
ekinn 21.000 km, hvítur. Verð
1.070.000,-
Toyota Tercel 4x4 Special Series
árg. '87, ekinn 4.000, rauður, ýmsir
aukahlutir, s.s. sóllúga, tvöfaldur
dekkjagangur, álfelgur, bretta-
breikkanir, framstuðari meö 4
kösturum i, sílsalistar, skíðabogar
og fl. Verð 695.000,-
Opel Ascona árg. '84, ekinn 74.000,
rauður. Verð 370.000,-
Opið virka daga 9-19. Laugardaga 13-18.
Höfum ýmsar tegundir bifreiða á söiuskrá
|
$
STElFArJ
J
H460MP
/WKtA/íHACiT
^7
BILASALAN
P. SAMUELSSON & CO. HF.
SKEIFUNNI 15 108 REVKJAVlK SfMI(91)687120