Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.1987, Side 5

Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.1987, Side 5
FIMMTUDAGUR 12. MARS 1987. 5 Fréttir SaKfiskframleiðslan: Hráefnisskortur aðalvandamálið - umtalsverð verðhækkun hefur átt sér stað á S-Evrópumarkaði Saltfiskverð í Portúgal, Spáni og Ítalíu heíúr hækkað umtalsvert frá því í fyrra eða á bilinu 15% til 20% eftir tegundum. Samið hefur verið við Portúgali um kaup á 25 þúsund lestum í ár. Aftur á móti hefúr eng- inn. samningur verið gerður við Spánverja og ítali en eigi að síður kaupa þessar þjóðir mikið af saltfiski af okkur. Það sem aftur á móti veldur nokkr- um erfiðleikum í saltfiskverkuninni nú er skortur á hráefni hér heima. Að sögn Magnúsar Gunnarssonar, forstjóra Sölusamtaka íslenskra fiskframleiðenda, eru Spánveijar ekki orðnir jafnformfastir í þessum viðskiptum og áður var en kaupa samt sem áður ekki minna magn. Samt sagðist hann gera ráð fyrir að fastir samningar yrðu gerðir á árinu enda vilja Spánveijar tryggja sér saltfiskinn sem er eftirsóttur um þessar mundir vegna skorts á honum á heimsmarkaði. Magnús Gunnarsson sagði að svo- nefndur tandurfiskur yrði æ eftir- sóttari. Spánverjar hafa keypt mikið magn af honum undanfarin ár og nú eru Portúgalir líka orðnir hrifnir af þessum fiski og um það bil 40% af þeim saltfiski sem þeir kaupa héð- an eru tandurfiskur. Tandurfiskur er saltfiskur sem er minna verkaður og stendur mun styttra en hinn hefð- bundni saltfiskur. Það sem veldur hráefnisskorti í saltfiskverkuninni nú er einkum tvennt. í fyrsta lagi hefur afli verið heldur rýr, nema síðustu daga við Breiðafjörð, og svo í öðru lagi vax- andi ferskfiskútflutningur í gámum. Því hafa saltfiskverkendur gripið til þess ráðs að yfirborga fiskinn stór- lega, rétt eins og sum frvstihúsin verða líka að gera. -S.dór Laganemar svara fyrirspurnum á skrifstofu Orators. Ókeypis lögfræðiaðstoð Orators: Mest spurt um fasteignakaup Eins og aðra vetur frá 1981 hefur almenningur átt þess kost í ár að fá ókeypis lögfræðiaðstoð hjá Orator, fé- lagi laganema við Háskólann, og hefur símatími verið opinn hjá félaginu á fimmtudagskvöldum frá kl. 19.30-22. Samkvæmt upplýsingum frá laga- nemum hafa um 12-14 aðilar að jafnaði hringt á hverju fimmtudags- kvöldi og mest er spurt um fasteigna- kaup, fjármálaskipti eftir skilnað milli hjóna eða para í sambúð og erfðarétt- armál en segja má að öll lífsins vandamál hafi komið inn á borð hjá laganemunum. Þessi þjónusta, sem laganemarnir veita, er eingöngu ráðgjöf, þeir reka ekki mál fyrir fólk enda hafa þeir eng- in réttindi til þess. Fjórir nemar eru á vakt hverju sinni er þjónustan er veitt og skipta nemar á 4. og 5. ári lagadeild- arinnar henni á milli sín. Nú fer að styttast í prófin í lagadeild- inni og verður þessi þjónusta því lögð niður um næstu mánaðamót eins og áður þannig að ef einhver vill fá lög- fræðiaðstoð er ekki seinna vænna að hringja í 21325 í kvöld eða næstu fimmtudagskvöld fram að mánaða- mótum. -FRI Eskifjorður: Útsvar fellt niður hjá sjómönnum 60 ára og eldri Emil Thoiarenæn, DV, Eskifirdi; Bæjarstjóm Eskifjarðar hefur sam- þykkt samhljóða tillögu Hrafhkels A. Jónssonar um að fella niður útsvar af sjómönnum sem náð hafa sextíu ára aldri og stundað sjómennsku í 25 ár eða lengur. í greinargerð með tillögunni er vitn- að í könnun, sem prófessor Tómas Helgason framkvæmdi árið 1976, en þar segir meðal annars: „...að sjómenn slitni svo fljótt að líkja megi því við að brenna kerti í báða enda“. Að sögn Hrafnkels vonast hann til að samþykkt tillögunnar auðveldi eldri sjómönnum að komast í land enda hafi þeir verið Qarvistum við fjöl- skyldur sínar stóran hluta sinnar starfsævi. Hrafnkell vildi láta þess getið að þótt hann væri flutningsmað- ur þessarar tillögu hefði hugmyndin komið fram f kosningabaráttunni sl. vor frá Sigurði Ingvarssyni, varaform- anni verkalýðsfélagsins Árvakurs. Þess má geta að ellilífeyrisþegar hafa verið undanþegnir útsvarsgreiðslum og fasteignagjöldum frá því snemma á sjötta áratugnum en þá samþykkti hreppsnefhd Eskifjarðar tillögu frá Bóasi Emilssyni þess efnis. LUKKUGETRAUN: Einu sinni í mánuði drögum við úr nöfnum kaupenda og seljenda um 5 daga ferð til Hamborgar með ferðaskrifstofunni Sögu. VERÐUR ÞÚ SÁ HEPPNI í MARS? BÍLATORG Saab 900 GLE árg. 1984, silfurgrár, beinskiptur, ekinn 50.000 km. Verð kr. 495.000.- Honda Accord EXS árg. 1985, silfur- blár, gullfallegur bíll, sjálfskiptur, sóllúga, ekinn 21.000 km. Skipti á ódýrari. BILATQHG Citroen BX 16 TRS árg. 1984, rauð- ur, vökvastýri, ekinn 40.000 km. Verð kr. 450.000,- Skipti. BILATORtí Honda Prelude EXS árg. 1983, blá- sans, einn gullmoli með öllu, ekinn 38.000. Verð kr. 530.000,- BMW 525i árg. 1984, blásans, riku- lega útbúinn, sjálfskiptur. Skipti koma til greina. Verð kr. 850.000.- Honda Accord EX árg. 1987, hvitur, nýr bill, ekinn 1.900 km. Verð kr. 695.000.-. Skipti á ódýrari bil koma til greina. Ailar gerðir bila vantar á söluskrá - mikil sala. Opið iaugardaga kl. 10-18. BILATORO NOATUN 2 - SIMI 621033 SPðRKOMATfC —hW«Vimíwi]^Wiiií h— ' - r— . j rr~'~ I i ‘ * Of»K» C4S CAR STEREO SYSTEM AM PM StSf«o Síítrec- VILTU ÓDÝRT EN VANDAÐ BILTÆKI? ÞÁ ER VALIÐ AUÐVELT Þetta frábæra tæki með MB FM stereo og kassettu ásamt tveimur 20 vatta hátölurum er á sérstöku tilboðsverði. Verð aðeins kr. 5.985,- Það gerist ekki ódýrara. Sendum í póstkröfu. B D i • i _______________i r ÍXdOlO Ármúla 38, símar 31133 og 83177,

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.