Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.1987, Blaðsíða 31
FIMMTUDAGUR 12. MARS 1987.
31
Sandkom
Skoruðu á
sjálfa sig
Fólk hefur haft nokkrar
áhyggjur af slæmum vegum
nú í góðærinu eins og við
minntumst raunar lítillega á
hér í Sandkorni í gær. Sumir
láta sér raunar nægja að hafa
áhyggjur meðan aðrir taka
málin í sínar hendur.
Til hinna síðamefndu telj-
ast nokkrir athafnasamir
menn á Hvalfjarðarströnd.
Þeir vildu gjaman að vegur-
inn um Hvalfjörð yrði bættur
enda hefur hann verið þyrnir
í augum margra undanfarin
ár. Þvi var það að þeir undir-
bjuggu undirskriftalista sem
vegfarendur voru beðnir um
að^ita nöfn sín á. Var á hon-
um áskorun til þingmánna
Vesturlandsumdæmis um að
bæta veginn.
Mörg hundruð vegfarendur
skrifuðu nöfn sín á listann.
Vakti það nokkra athygli að
þar á meðal vom þrír þing-
menn, þeir Friðjón Þórðarson,
Davíð Aðalsteinsson og Alex-
ander Stefánsson, allir úr
Vesturlandskjördæmi. Þeir
Davíð Aöalsteinsson.
höfðu þar með skorað á sjálfa
sig að endurbæta Hvalfjarðar-
veg þannig að framkvæmdir
þar hljóta að verða stórbrotn-
ar þegar að þeim kemur.
Fleiri grasa kenndi á listan-
um því á hann höfðu skrifað
menn eins og Snorri Sturluson
í Reykholti og sr. Hallgrímur
Pétursson í Saurbæ. Vafalaust
hefur þeim sem endurvöktu
þessar gömlu kempur á papp-
ímum þótt áhrifaríkara að
skrifa nöfn þeirra heldur en
einhvers Péturs og Páls sem
enginn kannaðist við.
Hvað um það, listinn var
lagður fram og nú er bara að
bíða árangurs verkanna.
Salome Þorkelsdóttlr.
Viðgerð
á staðnum
Frumvarp það til umferðar-
laga sem nú er í meðferð á
þingi hefur tekið á sig ýmsar
myndir.
Það var til dæmis í umræð-
um um frumvarpið á dögunum
að hæstvirtur þingmaður,
Salome Þorkelsdóttir, varpaði
fram nýstárlegri hugmynd.
Var hún sú að aflir ökumenn
skyldu sky ldaðir til að hafa
varaljósaperu í bílnum hjá
sér. Færi svo að ökumenn
ækju á eineygðum bíl gæti
lögreglan stoppað þá og skyld-
að þá til að skipta um peru á
staðnum.
Synd efþessi hugmynd verð-
ur ekki að raunveruleika, því
gaman gæti orðið þá...
Hvað var
hann þungur?
I Flóanum eru margar góðar
laxveiðijarðir. En þar búa líka
bændur sem ekki njóta neinna
laxveiðihlunninda.
Sagan segir að einhverju
sinni hafi hlunnindalaus
bóndi komið til laxveiðibónda
og viljað kaupa af honum lax.
Gekk það fljótt og vel.
„Þú vigtar svo bara laxinn
núna og ég fæ að borga hann
seinna,“ sagði kaupandinn.
Hinn kvað já við, vigtaði
laxinn og skildu þeir kollegar
svo sáttir að kalla.
Það var svo nokkru seinna
að þeir hittust á förnum vegi.
Spurði kaupandinn seljand-
ann þá hvað laxinn hefði verið
þungur. Hinn kvaðst ekki
muna það en vera með þyngd-
ina skráða á miða heima hjá
sér. Hann skyldi bara kíkja á
þetta og láta kaupandann svo
vita hvað hann ætti að borga.
Svona gekk þetta nokkrum
sinnum. Annar var alltaf að
spyrja um þyngdina en hinn
mundi hana ekki.
Loks hittust þeir einu sinni
sem oftar.
„Heyrðu, hvað var laxinn
nú annars þungur?“ spurði
kaupandinn.
„Hann var átta pund,“ svar-
aði hinn.
„Nei, góði,“ greip kaupand-
inn fram í „hann var ekki
nemasex."
Kosninga-
sjónvarp
Nú er kominn kosningahug-
ur í menn. Einn þeirra fostu
liða sem setja svip sinn á „há-
tíðina" er kosningasjónvarp-
ið. Hafa æði margir lagt það
á sig að vaka af nóttina og
fylgjast með nýjustu tölum og
spám í beinni útsendingu.
En nú eru þeir hinir sömu
nokkuð uggandi um sinn hag.
Því hefur nefnilega verið
hvíslað að Stöð 2 hafi sogað
svo mikið af starfsfólki til sín
frá ríkissjónvarpinu að erfitt
verði fyrir sfðarnefndu stöð-
ina að halda úti svo viðamik-
illi dagskrá sem kosninga-
sjónvarp er.
Auðvitað vilja hinir íhalds-
sömu horfa á gömlu stöðina
sína á þvíh'kri ögurstundu sem
kosninganóttin er og vonandi
fá þeir sinn skammt vel útilát-
inn.
Gættu þín
Þessa dagana er verið að
sýna á litla sviði Þjóðleik-
hússins verk Kristínar
Bjamadóttur, Gættu þín. Með
aðalhlutverkið fer Sigurjóna
Sverrisdóttir. Hún leikur
konu sem ekki getur átt barn
og hefur af því nokkrar
áhyggjur.
En búast má við að það fari
að styttast í veru Sigurjónu í
þessu tiltekna hlutverki því
hún og eiginmaður hennar,
Kristján Jóhannsson stór-
söngvari, eiga von á barni.
Við segjum bara: til ham-
ingju....
Umsjón:
Jóhanna S. Sigþórsdóttir
Kvikmyndir
Háskólabíó/Trúboðsstöðin: ★★★
Kristur í frumskóginum
Trúboðsstöðin/The Mission
Bresk, 1986
Leikstjóri: Roland Jotfé
Handrit Robert Bolt
Framleiöendur: Fernando Ghia og David
Puttnam
Tónlist Ennio Morricone
Kvikmyndataka: Chris Menges
Aðalhlutverk: Robert De Niro, Jeremy Ir-
ons og Ray Mc Annly
Kvikmyndagerðarfólk hefur á
undanfornum árum sótt mikið í það
að finna verkum sínum stað inni í
myrkum frumskógum þar sem mað-
urinn þarf enn að leita til æðri
máttarvalda um styrk til að skilja
sjálfan sig og hlutverk sitt í tilver-
unni. Maðurinn er herra jarðarinnar
en er hægt að sjá það af hegðun
hans? Það er ótrúlegt með hve mik-
illi lítilsvirðingu hann getur
umgengist náttúru jarðarinnar og
meðbræður sína. Þetta gerist enn í
dag og gerðist 1750 en þá áttu þeir
atburðir sem Trúboðsstöðin segir frá
sér stað.
Með tilkomu landafundanna
miklu varð snöggur en þó skamm-
vinnur uppgangur í þeim löndum
gamla heimsins sem harðast gengu
fram í landnámi og arðráni. Spánn
og Portúgal skiptu með sér þessum
löndum eins og þar hefði ekki verið
til nokkur maður. Á þrem öldum
hrundu indíánamir niður í milljóna-
vís og öllum var hjartanlega sama.
Það var helst að kirkjunnar menn
reyndu að spyrna við fótunum, sér-
stakleg þeir sem höfðu dug í sér til
að rísa gegn hinni valdagráðugu og
hálfheiðnu pólitísku stofnun sem
kirkjan var orðin.
Jesúítar fóm þar fremstir í flokki
enda um nokkurs konar betli-
munkaregfu að ræða. Jésúítaprest-
urinn faðir Gabríel er lykifpersóna
í Trúboðsstöðinni, hann nær trausti
og trú índíánanna enda hinn mæt-
asti maður. Jesúítamir koma á fót
trúboðsstöðvum sem em að upp-
byggingu í ætt við kommúnisma og
án nokkurrar virðingar fyrir eigna-
réttinum. Það var i raun einfalt að
koma þessu á vegna þess að þannig
höfðu indíánamir lifað fram að því!
En þetta var meira en hin nýríka
yfirstétt gat þolað. Hún gerir kröfur
til að fá að ráðskast með indíánana
að eigin vild enda var litið á þá sem
skepnur. Portúgalir leyfa þræla í sín-
um nýlendum en Spánverjar em hins
vegar búnir að banna það - þó meira
í orði en á borði. Kirkjan heima í
Evrópu verður að taka afstöðu í
þessari deilu - og líf hennar og til-
vera getur oltið á því að „rétt“
ákvörðun sé tekin.
Því er stoppað við hinn sögulega
bakgrunn þessarar myndar svona
lengi að hann er mjög mikilvægur
til að skilja myndina. Sagan í henni
er yfirþyrmandi og sterk sem er að
nokkm mótsögn þvi hún er hálfó-
skiljanleg. Pólitík í Evrópu stuðlar
að því að líf indíánanna verður til
fárra fiska metið. Þessi pólitík verð-
ur áhorfandanum jafnillskiljanleg
og indiánunum á sínum tíma. Það
er kannski hápunkturinn í vel skrif-
uðu handriti Roberts Bolt þar sem
boðið er upp á fáar lausnir en því
fleiri svör.
Leikaraparið, De Niro og Jeremy
Irons, vekur óneitanlega forvitni.
Þeir standa fyrir sínu en ekkert
umfram það. Það getur verið að hin
þunglamalega atburðarás haldi þeim
félögum föstum, njörvi þá niður og
haldi þeim í fullkomnu jafnvægi en
gefi lítið færi á sprengitilþrifum. Mc
Annly vinnur hins vegar sigur í hlut-
verki Altamiro kardinála -- hins
veraldlega klerks sem hefur gefist
upp fyrir ytri vemleika tilvemnnar
og byggir ákvarðanir sínar fremur á
pólitískri skynsemi en samvisku
sinni.
Leikstjóm Rolands Joffé er ótrú-
lega öguð miðað við að hér er aðeins
um annað verk hans að ræða. Víg-
vellimir vom magnað byrjendaverk
þótt myndin væri of grunn og full
keimlík heimildarmynd til að geta
talist meiriháttar leiklistarverk.
Annars hefur því verið fleygt að
framleiðandinn, David Puttnam, eigi
ansi mikið í þessari mynd - hann
hafi ríka tilhneygingu til að grípa
inn í myndir þær er hann framleiðir
þar sem honum sýnist og velji því
fremur viljalausa leikstjóra til starfa.
Ósagt skal látið hvað hæft er i þessu
en hitt er víst að án Puttnams væri
kvikmyndalistin snöggtum fátækari.
Óspillt náttúra frumskógarins
skipar meginsess í fallegri rnvnda-
töku Menges. Myndin líður þó
aðeins fyrir hve ófrumleg og þung-
lamaleg hún er. Sérstakri fegurð
frumskógarins hefúr verið gerð skil
áður í myndrnn eins og Greystoke,
the Legend og Emerald Forest. Trú-
boðsstöðin bætir þar litlu við.
Sigurður Már Jónsson
★★★★ Frábær ★★★ Góð ★★ Miðlungs ★ Léleg 0 Afleit
Ætlarðu að
^ Láttu okkur
Tjoxuþvottui. þvöttúr og þurrkun a aöcins kr. -
. - oíálfQÖnÖU. ___.vM-im
^^SvS^.^e^ásaxmntogtepputn
I S meö Wnu niöeterka Mjattarva^onr
1@@B[
o|iÍLlfeltífel[sll|slö[g|fe
Klöpp - Sími 20370
V/Umferðarmiðstöðina - Sími 13380
Höfðabón
Höfðatúni 4 - Sími 27772
Notaíir bílar til aölu
SYNISHORN ÚR SÖLUSKRÁ
MAZDA 323, 1,5 I, 3 dyra m/sport
felgum, árg. '86, ekinn 19 þús.
Verð 425 þús.
MAZDA 626 GLX Saloon árg. '85.
ekinn 19 þús. Verð 470 þús.
MAZDA 323 GT, 4 dyra m/sóllúgu
árg. '85. ekinn 5 þús. Verð 450 þús.
MAZDA 626 LX, 5 dyra, árg. '83, ekinn 77 þús. Verð 350 þús.
MAZDA 929 station, árg. '84, ekinn 49 þús. Verð 450 þús.
MAZDA 929, 4 dyra, árg. ‘82, ekinn 54 þús. Verð 340 þús.
Fjöldi ai
staönum
OPIÐ LAUGARDAGA 1-5
BILABORG HF
Smiðshöfða 23 sími 812 99