Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.1987, Blaðsíða 8
8
FIMMTUDAGUR 12. MARS 1987.
tJtLönd
Hveifisstjóri
í New York
í tólf ára fangelsi
Ólafor Amaison, DV, New York:
Stanley Freedman, fyrrum hverf-
isstjóri í Bronx í New York-borg
og leiðtogi demókrata þar, var í
gær dæmdur í tólf ára fangelsi fyr-
ir svindl og spillingu. Eftirmaður
StanleysFreedmans, Stanley Sim-
on, tilkynnti einnig í gær að hann
myndi segja af sér. Simon á yfir
höfði sér ákærur vegna svindls og
spillingar en þó ekki í sama máli.
Frá því að Edvard Koch, borgar-
stjóri í New York, var kjörinn
hefur hann átt í sífelldum vand-
ræðum með samflokksmenn sína
sem hafa verið einstaklega ötulir
við að koma sér í alls kyns kland-
ur.
Freedman, sem til skamms tíma
var einn valdamesti maður New
York-borgar, var einnig dæmdur
ævilangt frá þátttöku í stjórn-
rnálum.
Rússar bjarga
norskum skipum
PáB Vilhjálmssan, DV, Osló:
Rússneskur ísbrjótur er á leið-
inni til Svalbarða til að bjarga
tveimur norskum skipum sem þar
eru fost í is.
Norskur rækjutogari festist í ísn-
um undan strönd Svalbarða fyrir
þremur sólarhringum. Norska
strandgæsluskipið Senja kom tog-
aranum til hjálpar en festist þá
einnig í ísnum.
Norsk yfirvöld hafa leitað að-
stoðar Sovétmanna til að fá skipin
tvö laus. Sovéski ísbrjóturinn Sí-
bería, sem er talinn einn sá öflug-
asti í heiminum, hefur nú lagt úr
höfn í Murmansk. Norsku skipin
eru ekki talin í bráðri hættu.
Umsjón
Guðmundur Pétursson
og Ingibjörg Bára
DV
Efnt var til sérstakrar minningarþjónustu úti á sjó i gær á slysstaðnum við Zeebrugge, skammt frá þar sem ferjunni Herald of Free Enterprise hvolfdi á
sandrifi en með henni fórust 135 manns. Á myndinni sést einn aðstandenda hinna drukknuðu tína blóm úr vendi og varpa í sjóinn við slysstaðinn.
Símamynd Reuter
Norskar ferjur skoðaðar
PáU VnhjáJmssan, DV, Osló:
í kjölfar ferjuslyssins undan ströndum
Belgíu um síðastliðna helgi ætla norsk
yfirvöld að kanna lokuútbúnað á
norskum ferjum.
Slysið á Ermarsundi hefur hleypt af
stað mikilli umræðu um öryggi bílferja
sem eru með óhólíúð bíldekk milli
stafns og skuts. Skipahönnuðir láta
hafa eftir sér að slíkar ferjur séu mjög
hættulegar vegna þess hve lítið þarf
til að þær velti.
Norskar feijur eru taldar öruggari
en margar þeirra sem sigla yfir Ermar-
sund vegna þess að strangari kröfúr
eru gerðar til þeirra. Norska trygg-
ingafélagið Veritas hefði til dæmis
ekki fallist á að tryggja þá feiju sem
fórst um helgina. Ferjan uppfyllti ekki
þær kröfur sem Veritas gerir um stöð-
ugleika.
©
1F 1
Vörumarkaðurinnhf.
I Eiöislorgi 11 - simi 622200
Electrolux
Ryksugu-
tilboð
D-720
1100 WÖTT.
D-740
ELECTRONIK.
2-165
750 WÖTT.
Aðeins
1.500 kr. út
og eftirstöðvar til allt
að 6 mánaða.
Prófessor Ruediger von Baehr við Humboldt-háskóla, sem telur visindahóp sinn vera búinn að búa til mótefni, sem
geti verkað gegn eyðni-veirunni. Símamynd Reuter
Vinna
að nýju
lyfi
gegn
alnæmi
Forstöðumaður austur-þýsks vís-
indahóps segir að tilraunir til þess að
búa til lyf gegn alnæmi hafi þokast
nokkuð áleiðis. Heldur hann því fram
að rannsóknarhópi hans hafi tekist
að búa til mótefni sem verki gegn pró-
teinum eyðni-veirunnar.
Prófessor Ruediger von Baehr við
Humboldt-háskólann í Austur-Berlín
greindi frá þessu í gær. Sagði hann
tilraunir sínar og hans manna vera
„eitt meðal fyrstu skrefanna til lyfs
gegn eyðni-veirunni“.