Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.1987, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.1987, Blaðsíða 10
10 FIMMTUDAGUR 12. MARS 1987. Aukin spenna í breska Verkamannaflokknum Innan Verkamannaflokksins er krafist skýrari aftööu flokksleiðtogans, Neils Kinnock, gegn ýmsum baráttumálum þeirra er lengst standa til vinstri. Jón Omuir Halldóisson, DV, Londan; I kjölfar tveggja ósigra Verka- mannaflokkins í aukakosningum á síðustu dögum hefur spennan innan flokksins aukist. I aukakosningum í Greenwhich tapaði flokkurinn þing- sæti til kosningabandalags frjáls- lyndra og jafnaðarmanna og í aukakosningum til Evrópuþingsins í kjördæmi í Mið-Englandi tapaði flokkurinn tuttugu þúsund atkvæð- um en frjálslyndir bættu við sig nálega sömu tölu. Um leið hafa vikulegar skoðana- kannanir sýnt íhaldsflokkinn með meira fylgi en Verkamannaflokkinn um nokkurt skeið þrátt fyrir gífúr- legt atvinnuleysi í landinu. Flestar skoðanakannanir sýna fylgi íhalds- flokksins í kringum 37 prósent en fylgi Verkamannaflokksins um 34 prósent og kosningabandalags frjálslyndra og jafhaðarmanna um 26 prósent. Liklega kosið í sumar Vegna einmenningskjördæma- skipunarinnar í Bretlandi mundu 37 prósent atkvæða nægja íhalds- flokknum til hreins meirihluta í þinginu ef skiptingin milli hinna flokkanna yrði svipuð því sem þessar kannanir gefa til kynna. Vaxandi líkur eru því taldar á því að Margar- eth Thatcher forsætisráðherra efhi til kosninga í sumar þó að kjörtíma- bil hennar renni ekki út fyrr en á næsta ári. Innan Verkamannaflokksins eru vaxandi kröfur um ákveðnar að- gerðir flokksleiðtogans, Neil Kinnock, gegn þeim öflum í flokkn- um sem standa lengst til vinstri og stjórna mörgum borgarhverfum í London, Liverpool og fleiri stórborg- um. Nokkrir af leiðtogum vinstri manna hafa nýlega verið reknir úr Verkamannaflokknum en sam- kvæmt skoðnakönnunum telja kjósendur enn þá að áhrif Trotsky- ista og ýmissa öfgahópa séu hættu- lega mikil í flokknum. Ákvörðun flokksins um að eyðileggja á nokkr- um árum öll kjamorkuvopn Breta nýtur heldur ekki stuðnings nema minna en þriðjungs kjósenda en Bretar ráða yfir eigin kjamorku- vopnum sem ekki hafa verið talin með til þessa í samningaviðræðum stórveldanna. Hreinsanir taldar þarfar Nokkrir þingmanna flokksins hafa haldið því fram síðustu daga að flokkurinn geti engan veginn unnið næstu kosningar án vemlegra hreinsana í flokknum og skýrari af- stöðu flokksleiðtogans gegn ýmsum baráttumálum þeirra er lengst standa til vinstri. Um leið er það talið hafa spillt fyrir möguleikum flokksins til áhrifa á bresk stjómmál næstu árin að Kinnock hefur stað- fastlega neitað að ræða við hinn hluta stjórnarandstöðunnar, frjáls- lynda og jafhaðarmenn, en talsverð- ar líkur verða að teljast á því að enginn flokkur nái meirihluta í breska þinginu eftir næstu kosning- ar. Sem stendur em möguleikar Verkamannaflokksins í það minnsta litlir til þess en möguleikar íhalds- flokksins enn þá meiri. Þó Thatcher, sem setið hefur lengur í embætti en nokkur breskur forsætisráðherra á þessari öld, sé óvinsælli nú en oftast áður á ferli sínum. Umsjón: Ingibjörg Bára Sverrisdóttir og Guðmundur Pétursson Utlönd NATO-aðilar tvístíga um meðaldrægu flaugarnar Risaveldin sest að samningaborðinu í Genf til viðræðna um núll-tillöguna V-Evrópuríkin innan N-Atlants- hafsbandalagsins eru flest hlynnt samkomulaginu sem nú er í upp- siglingu í vopnatakmörkunarvið- ræðum Sovétmanna og Banda- ríkjamanna varðandi bann við meðaldrægum kjamaflaugum í Evrópu. Sum þeirra eru þó á báð- um áttum. Evrópumenn eiga raunar fárra annarra kosta völ en styðja hug- myndina um bann við meðaldrægu flaugunum og mundu jafnvel samt styðja hana þótt aðrir valkostir væru til. Hún felur í sér að fjar- lægðar verði sovésku SS-20 flaug- amar og bandarísku stýriflaug- amar og um leið bandarísku Pershing-2 flaugamar. Þetta em sem sé kjarnaflaugarnar sem bandamennimir innan NATO gengust inn á að koma sér upp að tillögu Reagans Bandaríkjaforseta árið 1981. Núll-tillagan varð raunhæf á Reykjavíkurfundinum Þessi hugmynd um að engar meðaldrægar eldflaugar væm hafðar í Evrópu hefur verið kölluð núll-tillagan og hefur áður skotið upp kollinum en þótti naumast raunhæfur samkomulagsmögu- leiki fyrr en í samningaviðræðum leiðtoganna á Reykjavíkurfundin- um í októbersíðasta. Á fundi innan NATO tveim mánuðum eftir við- ræður Reagans og Gorbatsjovs í húsinu í Höfða var núll-tillagan studd fullkomlega. Og núna þegar samningafulltrú- ar stórveldanna em komnir á fulla ferð í Genf að berja saman samning um núll-tillöguna heyrast hins Kjarnaflaugar á hreyfanlegum skotpöllum. vegar efasemdaraddir í ýmsum V- Evrópulöndum. Sumir spyrja hvort skynsamlegt sé að fjarlægja á einu bretti öll kjamavopn NATO úr Evrópu. Kremlverjar losuðu síðustu hindmnina fyrir samkomulag um meðaldrægu flaugamar þegar þeir féllu frá kröíunni um heildarsamn- ing sem hefði um leið krafist þess að Ban'daríkjastjóm félli frá geim- vamaáætluninni. Þegar samningsaðilar tóku upp viðræðumar í Genf núna í vikunni um meðaldrægu eldflaugamar í Evrópu kom líka til greina að þeir fækkuðu meðaldrægum eldflaug- um sínum utan Evrópu niður í hundrað kjamaoddabirgðir fyrir hvom. Þakka eldflauga- áætluninni nýjan áhuga Rússa Auk áhugans á þvi að halda góðri samstöðu innan NATO hafa bandalagsríki eins og V-Þýska- land, Bretland, Ítalía, Holland og Belgía pólitískan áhuga á því að þessi samningur komist í höfn. Þar hafa pólitískir landsfeður mætt töluverðri andspymu gegn eld- flaugaáætlun NATO þar sem kjamorkuváin hefur á síðustu árum vakið upp mótmælaaðgerðir gegn uppsetningu Pershing-eld- flauga og stýriflauga. Eftir að hafa fylgt þeirri áætlun í töluverðum mótbyr fjölmargra kjósenda geta þessir stjómmálafrömuðir nú snú- ið við blaðinu og um leið samt haldið því fram að það bafi ein- mitt verið eldflaugaáætlunin sem knúði Sovétstjómina að samn- ingaborðinu með núll-tillöguna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.