Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.1987, Side 13
FIMMTUDAGUR 12. MARS 1987.
13
Neytendur
Hvemig er þitt aksturslag?
Ert þú hæfurtil aðtakastá
vio vandamál dagsins?
Á örfáum árum hefur umferð hér
á landi aukist verulega. Nú er svo
komið að þeir sem leið eiga um
Reykjavík eftir hádegi flesta daga
verða að reikna sér allt að tvöfalt
lengri tíma til að komast milli staða
en það gerist að kvöldi til eða um
helgar. Það er kannski ekki undar-
legt að svo sé komið umferðarmálum
okkar þar sem um það bil 2 íslend-
ingar eru um hvem bíl.
Með aukinni umferð er nauðsyn-
legt að umferðin gangi greiðar fyrir
sig. Stór hluti ökumanna er orðinn
sér meðvitandi um þetta. Þó eru
nokkrir ennþá sem aka um götur
borgarinnar eins og þeir gerðu fyrir
40-50 árum. Þessir ökumenn aka
mun hægar en aðrir og gera það að
verkum að framúrakstur eykst vem-
lega. Þá em þeir ennþá að dóla á
vinstri akrein og gera það að verkum
að aðrir ökumenn verða að fara
hægra megin fram úr þeim. Vafamál
er hvort þessir ökumenn geta tekist
á við umferðina eins og hún er í dag
og þau vandamál sem af henni leiða.
Stöðugur akstur á vinstri akrein
ætti ekki að eiga sér stað nema
umferð sé mjög mikil. Þetta veit
þorri ökumanna en okkur þykir oft
erfitt að fara eftir því sem við vitum.
Við hugsum svo oft um ökumanninn
á undan okkur. Við bölvum honum
fyrir aksturslag hans sem okkur
þykir óviðunandi en gæti ekki líka
verið að ökumaðurinn fyrir aftan
okkur hugsaði á sama hátt til okkar?
Ert þú kannski einn þeirra sem
tefur fyrir í umferðinni í dag? hlæst
þegar þú sest undir stýri, í dag eða
á morgun, skaltu hafa þetta í huga
og kannaðu eigið aksturslag. Er það
til fyrirmyndar eða mætti ef til vill
bæta það? Ef okkur íslendingum á
að takast að bæta umferðarmenn-
ingu hér á landi verðum við að byrja
á okkur sjálfum og líta í eigin barm.
Hvemig væri að þú byrjaðir sm^tt
og létir morgundaginn, föstudag,
sem er annamesti dagurinn í um-
ferðinni, verða svolítið sérstakan á
þínum ökumannsferli. Aktu af stað
með góða skapið í veganesti og hugs-
aðu stöðugt um það hvernig þú getur
sýnt fordæmi í umferðinni. Notaðu
hægri akreinina sem mest þú getur
og ímyndaðu þér ekki að gatan sé
kappakstursbraut þar sem mestu
skiptir að komast fram fyrir næsta
bíl. Vinstri akreinin er ekki ætluð
nema sem framúrakstursgrein og til
að létta á umferð þegar hún er orðin
verulega mikil. Finnist þér þú aka
hægar en aðrir skaltu ávallt nota
hægri akrein nema þú þurfir að
beygja til vinstri. Þá skaltu fara yfir
á þá vinstri stuttu áður en þú tekur
vinstri beygjuna - ekki halda þig á
henni of lengi.
Með slíku hugarfari em auknar
líkur á að þú komist klakklaust í
gegnum umferðina og verðir öðrum
til eftirbreytni.
Hafðu það í huga að enginn annar
breytir aksturslagi þinu. Aðeins þú
getur það. Vert þú meðal þeirra öku-
manna sem taka virkan þátt í
baráttunni um betri umferðarmenn-
ingu okkar íslendinga og um leið
leggur þú þitt af mörkum til að auka
umferðaröryggið hér á landi. Slíkt
framlag gæti bjargað mannslífum.
jafnvel þínu eigin eða einhvers þér
nákomnum.
-EG
í umferdinni:
í umsjá Bindindisfélags ökumanna.
Ef allir leggja sitt af mörkum til að bæta umferðarmenningu gengur allur
akstur snurðulaust.
Bretar taka kertaugina fram yfir
Námsmenn liggja allra manna lengst „í bleyti“ í baðkerinu
Við böðum okkur fyrst og fremst til
þess að hreinsa óhreinindi af líkam-
anum, dauðar frumur og hættulegar
bakteríur sem hafa tekið sér bólfestu
á húðinni. Við baðið íjarlægjum við
einnig óskemmtilega lykt sem leggur
af líkamanum ef ekki er farið í bað
reglulega, svokallaða líkamslykt.
Bestu tækin til þess að nota við baðið
er vatn og sápa. Við notum líka vatn
og sápu til þess að hreinsa fötin okk-
ar, en nauðsynlegt er að skipta um
nærföt daglega. Líkamslyktin sest
einnig í nærfötin.
Mikilvægt er að gæta vel að húðinni
eftir daglegt bað með því að bera á
hana líkamskrem til þess að viðhalda
hæfilegu rakastigi húðarinnar. Sér-
lega mikilvægt er að bera krem á þá
staði sem eru daglega í þröngum föt-
um.
Et þau eru svona baðkerin sem námsmenn á Bretlandi hafa til umráða er ekki að undra þótt þeir liggi allra manna lengst
„i bleyti“.
sturtu
Laugar-dagurinn
Á Islandi hefur laugardagurinn ve-
rið ..baðdagur" alveg frá fomu fari
enda nafnið á deginum dregið af laug
eða sögninni að lauga sig. Til foma
böðuðu menn sig. í það minnsta höfð-
ingamir. Á hinum dimmu miðöldum
hafa Islendingar sennilega ekki verið
tíðir gestir i laugunum frekar heldur
en aðrir Norður-Evrópubúar.
Við höfum ekki heyrt neinar tölur í
sambandi við baðvenjur Islendinga
aðrar en að árlega koma þúsundir i
sundstaðina. Þannig fá menn sitt
„daglega bað". þótt ekki sé það í
einkabaðherberginu.
Heimild: The Bopdv Shop Book.
-A.BJ.
Samkvæmt upplýsingum um bað-
venjur í Bretlandi fara 60% allra
breskra kvenna daglega í bað. Ekki
nema 45% breskra karlmanna baða
sig daglega.
Húsmæður og námsmenn fara oftast
í bað eða að meðaltali þrisvar og hálfu
sinni í hverri viku. Námsmenn liggja
lengst allra í bleyti í baðkerinu eða í
32 mínútur að meðaltali. Táningar
liggja i bleyti í 29 mínútur, karlar al-
mennt í 26 mínútur og konur í 24
mínútur.
Miðvikudagurinn er vinsælasti bað-
dagurinn í Bretlandi. Er talið að þá
fari meira en helmingur þjóðarinnar í
bað.
Sturtan er ekki eins vinsæl í Bret-
landi og öðrum vestrænum löndum.
Bretar taka kerlaugina íramyfir
sturtuböð. Það er mjög athyglisvert
því sturtuböð spara bæði tíma og vatn.
Að auki er mun þrifalegra að baða sig
undir rennandi vatni heldur en að
liggja í óhreinu skólpinu af sjálfum
sér, þar sem sápuleifar og dauðar húð-
frumur fljóta á vatninu.
Það er hins vegar róandi fyrir taug-
amar að slappa af í kerlaug. Það
slakar á öllum vöðvum og húðin verð-
ur mjúk eftir baðið og tekur þá best
á móti gagnlegum áhrifum líkamsá-
burða.
Gunnar Ásgeirsson hf.
Suöurlandsbraut 16 Sími 91 35200
RAKATÆKI
IÚRVALI
Hugsið um heilsuna!
Of þurrt loft eróhollt.
— Það hefur áhrif á mótstöðu
líkamans gegn kvefi og ýmsum kvillum.
VERÐ FRA KR. 3.486.-
7