Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.1987, Page 16

Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.1987, Page 16
16 FIMMTUDAGUR 12. MARS 1987. Spumingin Á að afnema einokun á lyfjaversiun? Kristbjörg Steingrímsdóttir banka- starfsmaður: Já, tvímælalaust, lyf eru allt of dýr en með frjálsri sam- keppni ætti lyfjakostnaðurinn að lækka. Steinunn Árnadóttir skrifstofu- stúlka: Að sjálfsögðu af þeirri ein- földu ástæðu að lyf eru allt of dýr núna. Ég held að fólk geri sér ekki grein fyrir því hvað lyf eru dýr því sjúkrasamlagið greiðir lyfjakostnað- inn það mikið niður. Mér finnst að það eigi að fara gera fólki grein fyrir hver lyfjakostnaðurinn er í raun- inni. Guðbjörg Hafsteinsdóttir húsmóðir: Auðvitað, til að tryggja rétt neytand- ans þá er í alla staði æskilegra að láta markaðslögmálið ráða og hafa frjálsa samkeppni. Ein helsta ástæða þess að lyf eru svona dýr er náttúr- lega einokunin, mér finnst mjög óeðlilegt að nokkrh einstaklingar séu einir um hituna. Kolbrún Kristinsdóttir húsmóðir: Ég bara veit ekki, ég hef ekki kynnt mér þetta. Jóhannn Júlíusdóttir húsmóðir:Það stendur til bóta að afnema einokun- ina þó ekki væri nema til þess eins að lækka lyfjakostnað. Halldór Pálsson bankastarfsmaður: Ég veit nú ekki. Það er ekki hægt að láta hvem sem er flytja þetta inn. Lesendur Kynferðislegt offoeldi á heimilum Faðir skrifar: Eftir að hafa horft á umræðuþátt- inn á Stöð 2 er maður hálfgapandi og trúir vart sínum eigin augum né eyrum. Ég vil byrja á að þakka Stöðinni fyrir að opna umræðuna um þetta og vekja fólk til umhugsunar hvað þetta varðar. Við verðum að vera vakandi á verðinum og vinna for- vamarstarf til að fyrirbyggja vændi. Það sem stakk mig þó mest var viðtal við unga stúlku er hafði orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi á heimili sínu. Þetta er sú viðbjóðslegasta frá- sögn sem ég hef nokkum tíma heyrt, að þetta skuli vera til! Að nokkur mannsmynd skuli geta framið annað eins ofbeldi, og það á sínum eigin bömum, mig hryllir við hugsuninni. Ekki bætir úr skák er móðirin er meðsek og lætur sem ekkert hafi ískorist, er þetta virkilega til? Ég get ímyndað mér að það sé kannski hægt að gera hryllingsmynd eitt- hvað í þessum dúr þó ég efist um að hún gæti verið eins viðbjóðsleg, en að þetta skuli vera að gerast í raunvemleikanum. Stúlkan sagði að faðir sinn hefði eyðilagt fætuma á henni, þannig hún væri líkamlega bækluð að nokkm leyti og hún hafi tvisvar sinnum orðið ófrísk eftir pabba sinn en látið eyða fóstrinu í bæði skiptin. Hún sagðist hafa ákveðið að kæra hann þegar hún sá hann liggja á 8 ára systur sinni sem lá rotuð á gólf- inu (fyrir hans tilverknað). Hún vildi ekki að systir hennar yrði að þola það sama og hún hafði gert. Hafið þið heyrt annað eins? Rafmagns- stóllinn er allt of góður fyrir svona ógeðslegan m'ðing sem á að teljast faðir stúlkunnar. Þetta er meira en mannleg vonska að gera svona lag- að, kerfið verður að hjálpa fóm- arlömbunum, í orðsins fyllstu merkingu. Eftir þennan þátt var ótalmörgum spumingum ósvarað, réttarkerfið veitir fómarlömbum, er verða fyrir þessu, ekki nógu mikla vemd og þjóðfélagið virðist ekki gera ráð fyr- ir að þetta sé til (sem er svo sem engin furða) fyrst það hjálpar ekki fómarlömbunum meira en raun ber vitni. Þessum viðbjóðslega náunga á ekki að hleypa út á götuna aftur, hann á ekki að eiga rétt á að eyði- leggja líf fleiri einstaklinga. Þessa menn á að hlekkja og loka inn á hæli, þeir em best geymdir þar. RÚV: Hiyllingsmyndir góð tilbreyting Gurra hringdi: Ég vil þakka sjónvarpinu fyrir að sýna hrylhngsmyndina I helgreipum en þetta var afar góð tilbreyting og lífgaði upp á tilveruna. Það kemur sér mjög vel fyrir mig að hafa 2 bíómyndir á laugardögum þegar maður er heima og nýtur þess að vera með fiölskyldunni, svona oft- ast allavega. Ég legg til að fólki gefist Allir klessu- bflar eins 7878-0223 hringdi: í DV hinn 5. mars er grein sem fjallar um innflutta, klessta bíla. Þama gefúr þú, Skúli Guðmunds- son bifreiðaeftirlitsmaður í Hafii- arfirði, í skyn að starfemenn þínir séu ekki starfinu vaxnir. Ég hef rétt nokkra af þessum bílum og þeir bílar hafa alltaf fengið hvitan miða við skoðun, sem betur fer. Senniiega hafa þessir bílar ekki lent hjá þér til skoðunar, miðinn hefði sennilega orðið s vartur hefðir þú vitað að baarnir voru innfluttir. Ég hef ekki tölu á þeim bflum sem ég er búinn að rétta um ævina og finn engan mun á að rétta þá, hvort sem þeir eru klesstir innan- lands eða utan. Mikið fagnaðarefni Ragnheiður Jónsdóttir hringdi: Anægjulegasta frétt sem ég hef heyrt lengi er að Jóhannes Páll páfi, æðsti yfirmaður kaþólsku kirkjunnar, skuli ætla að aælqa Norðurlönd heim, þar á meðal Is- land. Það er mikill stórviðburður fyrir kaþólikka hér á landi að páfi skuli koma hingað 1989 og eflir vafalaust starf kaþólsku kirkjunn- ar hér á landi. Ég fæ vart lýst ánægju minni yfir þessu með orð- um. alltaf kostur á tveim bíómyndum á laugardögum og ég er sannfærð um að það myndi mælast vel fyrir meðal sjónvarpsáhorfenda. Vonast ég til að sjónvarpið sýni meira af hryllingsmyndum eftir Step- hén King, hvemig væri t.d. að sýna Shining, hafa þetta svolítið krassandi, ég gæti líka alveg sætt mig við Cat’s eye. Snóker 2905-4827 skrifar: Fyrst vil ég þakka Heimi Karlssyni og hans mönnum á Stöð 2 fyrir að sýna frá keppni í snóker 1. mars sl. Þetta var kærkomin sýning því nán- ast aldrei er sýnt frá snóker (eða ballskák) í sjónvarpi. Það var í nóv- ember á síðasta ári, að mig minnir, að Bjami Felixson sýndi frá HM í snóker og kann ég honum þakkir fyr- ir það. Eins og fram kom í fyrrgreindum íþróttaþætti á Stöð 2 þá hafa vinsæld- ir Snókers hér á landi aukist gífurlega og í þeim húsakynnum, þar sem hann er stundaður, em oft langir biðlistar eftir borðum. Á Bretlandseyjum er snókerinn orðinn vinsælasta sjón- varpsefiii íþróttanna og em þar í landi margir af bestu snókerspilurum heims. í næstkomandi aprílmánuði fer fram í Englandi heimsmeistarakeppnin og er henni sjónvarpað beint um allar Bretlandseyjar, auk margra annarra landa. Hvemig er það, er nokkur möguleiki á að sýna frá keppninni í beinni útsendingu eða a.m.k. síðasta dag úrslitaleiksins. Nú sýnir RÚV allt- af beint ensku knattspymuna á hverjum laugardegi. Hvemig væri nú íslenskir Jóna í Þingholtunum skrifar: Lesendabréf er birtist nú fyrir skömmu, ráðamenn sýnið blíðuhót!, vakti athygli mína nú á dögunum. Og vil ég sannarlega taka í sama streng, þetta vom virkilega orð í tíma töluð. Það er aðdáunarvert að Þao væri óskandi að sjónvarpið sýndi meira af hryllingsmyndum eftir Stephen King, það væri t.d. tilvalið að sýna Shining, hafa þetta svolítið krassandi. „Hvemig væri ef sjónvarpið eða stöðin tæki sig til og sýndi frá heimsmeistara- keppninni i snóker, ég efast ekki um að undirtektimar yrðu góðar.“ að hrista aðeins af sér slenið og vera með örlítið meiri tilbreytingu. Ég er viss um að það er farið að draga úr áhuga margra á ensku knattspymunni enda hefúr hún verið stærsti hluti íþróttaþáttanna frá upphafi. Það hlýt- ur að vera hægt að breyta til og sýna frá snókermótinu, hvort sem það yrði sjónvarpið eða stöðin. I lokin, ég er að tala fyrir hönd þús- unda manna og þá vitaskuld ekki bara snókerspilara. karlmenn forpokaðir horfa á innileik bandarísku forseta- hjónana, t.d. þegar frú Nancy fagnaði bónda sínum er hann kom heim af leiðtogafúndinum góða. Hjá okkur hér heima er alltaf sama forpokunin alla tíð. Ég hef t.d. aldrei séð íslenska ráðamenn taka utan um konumar sínar né senda þeim bros hvað þá hlýlegar augngotur. Ég tel að þessi umræða sé mjög tímabær og þörf ekki síst nú á tímum þegar fiölmiðlar em uppfullir af miður fal- legri og því síður hollri umræðu. En nóg um það.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.