Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.1987, Side 17

Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.1987, Side 17
FIMMTUDAGUR 12. MARS 1987. 17 I>V Lesendur Tootsie, ógleymanleg skemmtun Hörður Haraldsson hringdi: Kvikmyndin Tootsie er alveg ógley- manleg skemmtun og ætti að vera við hvers manns hæfi, enda allt í senn, hugljúf, fyndin og mannleg, í einu orði sagt fyrirtak. Leikurinn í myndinni er hreint aíbragð enda leikaramir ekki af lakara taginu. Þetta er mynd sem allir ættu að hafa gaman af og væri því óskandi að önnur hvor sjónvarp- stöðin tæki hana til sýningar. Það yrðu margir himinlifandi þá. Tootsie er mynd við allra hæfi og væri því óskandi að önnur hvor stöðin tæki myndina til sýningar. Fótbolti óþolandi Kristín hringdi: Það mætti halda að fótbolti eða handbolti væru einu íþróttagrein- amar sem til em, það er öllu púðrinu eytt í þær og virðist ekki skipta máli hvaða fjölmiðill á í hlut. Mér finnst þetta ansi hart þar sem vitað er að það em ekki nærri því allir sem hafa nokkum áhuga á þessari niður- drepandi og óþolandi íþrótt sem fótþoltinn er, handboltinn er þó heldur skárri að mínu mati. Það mætti halda að sjónvarps- menn væm með fótboltann á heilan- um, það kemst bara ekkert annað að. Mér finnst að það eigi að leggja meiri áherslu á t.d. fimleika, frjálsar íþróttir, sund eða glímu. Vonast ég til að sjónvarpið taki þetta til endurskoðunar og fækki sýningum á fótbolta og handbolta og sinni frjálsum íþróttum meira. „Mér finnst fótboltinn niðurdrepandi og alveg óþolandi iþrótt sem fjölmiðlar gefa allt of mikinn gaum, hvernig væri að sjónvarpið legði meiri áherslu á frjálsar íþróttir?“ Björgvin sá eini rétti B.O.B. klúbburinn skrifar: Við viljum endilega koma skoðun okkar á framfæri um það hver eigi að fara fyrir íslands hönd til Bmssel og taka þátt í Eurovision söngvakeppn- inni þetta árið. Til að koma í veg fyrir klúðrið, sem varð í fyrra, teljum við að eina lausn- in sé að senda hinn frábæra söngvara Björgvin Halldórsson til Brussel. Hann er sá eini sem kemur til greina að okkar áliti. Hann hefúr allt það sem þarf i svona átök, góða rödd, gott út- lit, sviðsframkomu og ómetanlega reynslu. Án þess að kasta rýrð á aðra söngvara þá er Björgvin sá eini sem á að fara og taka þátt í keppninni. „Afram Björgvin. Björgvin til Brussel fyrir hönd Islendinga i Eurovision söngva- keppnina." (Ó)Frumlegur Dagfarí Áshildur Jónsdóttir skrifar: Mér leiðist að standa í þrasi við einn af þeim fáu pennum í íslenskri blaða- mennsku sem hefur húmorinn í lagi. En ég held að Dagfari geti beitt kímni- gáfu sinni án þess 'að fara beinlínis með ósannindi en það virðist hann gera í hvert skipti sem hann skrifar um flokkinn minn, Flokk mannsins. í pistli sínum 5/3 1987 gefur hann lesendum í skyn að hann hafi lesið stefnuskrá flokksins og hún sé í raun eins og stefnuskrá hinna flokkanna. Þannig segir hann að Flokkur manns- ins sé hlynntur veru okkar í Atlants- hafsbandalaginu. Þetta er ósatt og Dagfari ætti að vita það því nóg höfum við skrifað um stefhu okkar í utanrík- ismálum í kjallargreinum DV. Hann ætti að vita að við erum hlynnt því sem kallast „friðlýsing Islands" en hún felst f því að Alþingi komi þvi til leiðar að fúlltrúar stórveldanna skrifi undir friðasáttmála sem tryggi hlut- leysi íslands. Meðan á leiðtogafundi Reagans og Gorbatsjovs stóð hér í Reykjavík fór af stað mikil undir- skriftaherferð þar sem skorað var á þessa leiðtoga að beita sér fyrir þess- ari „frumlegu" lausn í vamarmálum okkar. 70-80% af þeim sem voru beðn- ir að skrifa undir gerðu svo og sýnir það að stór hluti þjóðarinnar er orðinn leiður á gömlu slagorðunum, hvort sem þau koma frá vinstri eða hægri. Tillaga okkar í utanríkismálum er „frumleg" eins og stefnumál okkar í mörgum öðrum málum. Við erum einnig með mjög nákvæma kostnað- aráætlun um það hvemig við ætlum að framkvæma þau. Auðvitað er margt í okkar stefhu- skrá einnig að finna hjá fjórflokknum gamla. Munurinn á þeim og okkur er hins vegar sá að þeir hafa haft nægan tíma til að sanna það að þeir ætla sér ekki að standa við loforð sín. Ástæðan er sú að þeir em ekki fulltrúar al- mennings heldur þröngs hagsmuna- hóps sem græðir á því að viðhalda ástandinu eins og það er. Við í Flokki mannsins erum hins vegar ekki með þessa hagsmunaaðila að baki. Því er ekkert sem kemur í veg fyrir að við munum gera stefriumál okkar að raun- vemleika og ætti Dagfari að fagna því að til em einhverjir sem ætla sér að byggja hér upp réttlátt þjóðfélag fyrir alla. Dagfari (og aðrir) hljóta að vera famir að gera sér grein fyrir því að Flokkur mannsins er enginn smá- flokkur heldur er þetta virk hreyfing fólksins gegn flokkavaldinu. Fjöl- mennur landsfimdur flokksins í lok febrúar (jafnstór og landsfimdur Al- þýðuflokksins!) sýndi þetta greinilega. En til þess að Dagfari sannfærist nú um að hér sé eitthvað nýtt, ferskt og mjög kraftmikið afl á ferðinni þá býð ég honum hér með að koma á fund með stuðningsmönnum Péturs Guð- jónssonar í Áusturbæjarbíói laugar- daginn 28. mars. Eftir þann fund vonast ég til þess að hann haldi ótrauður áfram að gantast við okkur, en þá kannski á aðeins hærra plani en hingað til. SAUMANÁMSKEIÐ Ný námskeið að hefjast, kvöld-, morgun- og helgartímar. Upplýsingar og innritun í síma 21719. Ásgerður Ósk Júlíusdóttir klæðskeri HÁRGREIÐSLU- OG DANSSÝNING í EVRÓPLI í kvöld í kvöld mun eiga sér stað í EVRÓPU einstakur at- burður sem enginn ætti að missa af. Rakara- og hárgreiðslustofan HÁR KÚNST verður með framúr- skarandi hárgreiðslusýningu á úrvals módelum sem jafnframt sýna alveg frábæra dansa. Það verð- ur allt á útopnu og þeir sem ekki vilja missa af því allra nýjasta í hárgreiðslu- og dansheiminum koma að sjálfsögðu í EVRÓPU í kvöld. Föstudagur: Hljómsveitin Dúndur. Daddi, ívar og Stebbi þeyta skífunum. Super Channel og Sky Channel á risaskjánum. Laugardagur: Bandið pottþétta - Dúndur. Plötusnúðarnir Daddi, ívar og Stebbi. Risaskjárinn: Super Channel og Sky Channel. augljós

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.