Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.1987, Blaðsíða 5
ÞRIÐJUDAGUR 17. MARS 1987.
5
Stjómmál
Samþykktu ökuljós allt
árið og bflbettasekdr
- einu atkvæði munaði að gamla bílnúmerakeifið yrði lagt niður
Skyjda verður að aka með ljós allan
sólarhringinn allt árið. Sektað verður
fyrir að spenna ekki bílbeltin. Gamla
bílnúmerakerfið verður áfram.
Þetta samþykkti neðri deild Alþingis
meðal annars i atkvæðagreiðslu um
umferðarlögin í gærmorgun. Deildin
samþykkti að lögin skyldu taka gildi
1. mars árið 1988, eftir eitt ár.
Umferðarlagafrumvarpið á eftir að
fara í eina umræðu í efri deild áður
en það getur orðið að lögum.
Aðeins munaði einu atkvæði að nýtt
bílnúmerakerfi yrði tekið upp. Tillaga
allsherjamefndar neðri deildar um að
gamla kerfið yrði áfram var samþykkt
með 18 atkvæðum gegn 17. Einn þing-
maður sat hjá en fjórir voru fjarstadd-
ír.
Tillaga Ólafs Þ. Þórðarsonar og
Pábna Jónssonar um að ekki skyldi
refsa fyrir brot gegn ákvæðum um bíl-
belti var felld með 20 atkvæðum gegn
14. Menn verða því sektaðir fyrir að
spenna ekki beltin.
Á óvart kom að neðri deild skyldi
samþykkja, með 18 atkvæðum gegn
11, þá tillögu Páls Péturssonar að við
akstur bifreiðar skuli lögboðin ljós
vera tendruð allan sólarhringinn. Til-
laga allsherjamefhdar, um að ljósa-
skyldan yrði takmörkuð við tímabilið
frá 1. september til 30. apríl, kom því
ekki til atkvæða.
Breytingartillaga Pábna Jónssonar
og fleiri, um að þyngdarmörk vömbif-
reiða, sem stjóma megi án meiraprófs,
skyldu áfram vera 5.000 kg en ekki
lækka í 3.500 kg, var samþykkt með
18 atkvæðum gegn 7.
Tillaga Guðrúnar Helgadóttur, um
að ekki megi leggja bil á merktu stæði
fyrir bifreiðir fatlaðra, var samþykkt
með 23 atkvæðum gegn 7.
-KMU
Páll Pétursson, sem er fimmtugur i dag, fagnaði sigri á Alþingi i gær.
Tillögur hans um meiri ökuhraða, ökuljós allan sólarhringinn og gamla
bílnúmerakerfið náöu allar fram að ganga. DV-mynd GVA
Fjórtán lög sam-
þykkt á Alþingi í gær
Uppboðsmarkaður fyrir sjávarafla
var meðal fjórtán stjómarfrumvarpa
sem samþykkt vom sem lög frá Ál-
þingi frá því að þingfundir hófúst
klukkan 11 í gærmorgun þar til þeim
lauk laust fyrir klukkan eitt í nótt.
Tvö frumvörp af fjórum um stað-
greiðslukerfi skatta urðu að lögum,
um tekjustofna sveitarfélaga og um
staðgreiðslu opinberra gjalda. Eftir er
að samþykkja lög um tekjuskatt og
eignarskatt og um gildistöku stað-
greiðslunnar.
Ónnur nýsamþykkt lög em:
Jarðræktarlög, flugmálaáætlun, lög-
skráning sjómanna, Kennaraháskóli
íslands, þjóðarátak til byggingar þjóð-
arbókhlöðu, skipan gjaldeyris- og
viðskiptamála, lögreglumenn, happ-
drætti Dvalarheimilis aldraðra sjó-
manna, málefhi aldraðra, Byggingar-
sjóður aldraðs fólks og sjómannadag-
ur.
-KMU.
Framvarp«
Frumvarp til laga um orlof var
óvænt lagt fram á Álþingi í gær. Fé-
lagsmálanefhd neðri deildar flytur
frumvarpið. Formaður hennar, Friðrik
Sophusson, mælti fyrir því.
Orlofsfrumvarp þetta er þegar komið
á fleygiferð. Stefnt er að því að sam-
þykkja það sem lög áður en þingmenn
fleygiferð
fara hebn.
Gert er ráð fyrir gmndvallarbreyt-
ingu á útreikningi og greiðslufyrir-
komulagi launa í orlofi.
Frumvarpið er samið af nefnd sem
félagsmálaráðherra skipaði í mars
1983 til að endurskoða lög og reglur
um orlof. -KMU
Afhám prestskosninga
hlaut óvænta andstöðu
Sverrir Hermannsson menntamála-
ráðherra kom óvænt í veg fyrir að
frumvarp um að afnema prestskosn-
ingar yrði samþykkt sem lög frá
Alþingi í gærkvöldi. Fékk hann loka-
afgreiðslunni frestað „til þess að
ráðgast um hvort ekki mætti ná ein-
hverri bærilegri niðurstöðu".
Sverrir kvaðst gagnrýna vinnubrögð
dómsmálaráðherra í málinu.
„Það er reynt að laumast áfram með
þetta frumvarp rétt eins og það sé
venjulegt stjómarfrumvarp," sagði
menntamálaráðherra og lýsti and-
stöðu sinni við það.
Neðri deild Alþingis hafði fyrr um
daginn, við aðra umræðu, samþykkt
frumvarpið með 22 atkvæðum gegn
8. Frumvarpið hafði áður hlotið sam-
þykki efri deildar.
í stað þess að söfnuður velji sóknar-
prest með almennum kosningum gerir
frumvarpið ráð fyrir að sóknamefhd
kjósi prest.
Fjórðungur sóknarbama getur þó
með skriflegri ósk innan sjö daga frá
því að val á presti er tilkynnt krafist
almennra prestskosninga.
Líklegt er að upphlaup Sverris verði
til þess að tryggja það að breytingar-
tillaga Svavars Gestssonar og Péturs
Sigurðssonar, um að tiu prósent sókn-
arbama geti krafist prestskosninga,
verði samþykkt sem málamiðlun.
Þá hefur Karvel Pábnason flutt til-
lögu um að prestskosningar verði ekki
afhumdar nema fyrir liggi samþykki í
þjóðaratkvæðagreiðslu.
-KMU
Jarðgöng til Ólafsfjarðar
„Samkvæmt vegaáætlun verður
byrjað á jarðgöngum gegnum Ólafs-
fjarðarmúla árið 1988. Fjárveitinga-
nefnd lýsir yfir þeim vilja sínum að
aflað verði sérstaks framkvæmdafjár
til þessa verkefriis til þess að jarð-
gangagerð geti haldið áfram viðstöðu-
laust og með eðlilegum hraða að mati
Vegagerðar ríkisins."
Svo segir í yfirlýsingu sem fyárveit-
inganefnd hefur samþykkt. í vegaá-
ætlun er gert ráð fyrir að á næstu
fjórum árum verði varið 155 milljónum
króna til jarðganga um Ólalsfjarðarm-
úla, 10 milljónum króna í ár, 48
milljónum árið 1988,48 milljónum 1989
og 49 milljónum árið 1990.
„Ljóst er að aukið fjármagn muni
þurfa á öðru og þriðja framkvæmdaári
þessa verkefiiis. ef verkið á að geta
gengið eðlilega,“ segir fjárveitinga-
nefnd.
-KMU
MELAMINE
12 manna matar- og kaffistell
68 stk. sett. Verð kr. 5.590,- 2 litir: hvítt - drapp.
Býátótór
Gjafhvörur
Glæsibæ, sími 686440. Hamraborg 5, sími 641018.