Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.1987, Page 6
6
ÞRIÐJUDAGUR 17. MARS 1987.
Viðskipti
Tiyggvi Pálsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Landsbankans, í DV-viðtali:
Vaxtamunur bankanna
er ekki óeðlilega hár
- sparifjáreigendur þuifa að fara gædlega á verðbréfamarkaðnum
- Tilefni þess að spyija þig um
vaxtamál er i nýrri skýrslu Þjóð-
hagsstofnunar. Þar er sagt að
meðalraunvextir útlána í banka-
kerfinu hafi verið 8,5% hærri en
meðalraunvextir innlána á síðasta
ári. Út af þessu leggja venjulegir
menn að þetta sé það sem bankarn-
ir hafi fyrir sinn snúð og þykir það
furðulega mikið.
Þessir útreikningar eru ágiskun
Seðlabankans um meðalvexti inn-
og útlána og þann vaxtamun sem
þá kemur fram. Þessar ágiskanir,
eftir því sem ég best fæ séð, eru rang-
ar. Útreikningar sérfræðinga Seðla-
bankans byggjast á því að áætluð
er ársávöxtun hverrar tegundar útl-
ána og innlána. Ég held að það sé
aðallega innlánamegin, sem þeir
hafa stórlega vanmetið hversu sér-
kjörin eru orðin dýr fyrir bankana.
Eini raunhæfi mælikvarðinn á það
Peningamarkaður
INNLÁNSVEXTIR Innlán óverðtryggð (%) hæst
Sparisjóðsbækur óbund. 9,5-11 Lb
Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 10-15 Sb
6 mán. uppsögn 11-19 Vb
12 mán. uppsögn 13-20 Sp.vél.
18mán. uppsögn 19-20,5 Bb
Ávísanareikningar 4 10 Ab
Hlaupareikningar Innlán verðtryggð 4-7 Sp
Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 1.5-2 Ab.Bb, Lb.Úb, Vb
6 mán. uppsöqn Innlán með sérkjörum 2,5-4 10-22 Ab.Úb
Innlán gengistryggð
Bandaríkjadalur 5-6 Ab
Sterlingspund 9.5-10,5 Ab
Vestur-þýsk mörk 3-4 Ab
Danskarkrónur 9-10 Ab.Bb
ÚTLÁNSVEXTIR Útlán óverðtryggð (%) lægst
Almennir víxlar(forv.) 18,75-20 lb
Viðskiptavíxlar(forv.)(1) 21.75-22 eða kge
Almenn skuldabréf(2) 20-21,25 Ab.lb, Úb
Viðskiptaskuldabréf(1) kge Allir
. HlaupareikningarMirdr.) Utlán verðtryggð 20-21 Ib.Lb
Skuldabréf
Að 2.5árum 6-6,75 Lb
Til lengritima Útlán til framleiðslu 6,5-6.75 Ab.Bb, Lb.Sb. Úb.Vb
Isl. krónur 16,25 21 Ib
SDR 7,75-8,25 Lb.Úb
Bandaríkjadalir 7.5-8 Sb.Sp
Sterlingspund 12,25-13 Bb.Vb
Vestur-þýsk mörk 5,75-6,5 Bb.Lb. Úb.Vb
Húsnæðislán Lífeyrissjóðslán 3,5 5-6,5
Dráttarvextir 27
VÍSITÖLUR
Lánskjaravísitala feb. 1614 stig
Byggingavísitala 293stig
Húsaleiguvísitala HLUTABRÉF Hækkaði 7 5%1.jan.
Söluverð aö lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.:
Almennar tryggingar 113 kr.
Eimskip 300 kr.
Flugleiðir 450 kr.
Hampiðjan 140kr.
Iðnaðarbankinn 135kr.
Verslunarbankinn 125kr.
(1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja
aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi,
kge. Búnaðarbanki og sparisjóðir kaupa
þó viðskiptavíxla gegn 21 % ársvöxtum. (2)
Vaxtaálag á skuldabréf til uppgjörs vanskil-
alána er 2% bæði á verðtryggð og óverð-
tryggð lán, nema I Alþýðubanka og
Verslunarbanka.
Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn,
Bb= Búnaðarbankinn, lb = Iðnaðarbank-
inn, Lb = Landsbankinn, Sb = Samvinnu-
bankinn, Úb= Útvegsbankinn, Vb = Versl-
unarbankinn, Sp = Sparisjóðirnir.
Nánari upplýsingar um peningamarkaðinn
birtast í DV á fimmtudögum.
hver vaxtamunur er og hvort hann
hefur aukist eða minnkað er að at-
huga reikninga þessara stofhana
þegar árið er gert upp og taka þá
þann vaxtamun sem fram kemur í
krónum talið. Þá sjáum við fyrir lið-
ið starfsár að Landsbankinn hafði
4,7% vaxtamun en hafði 5,1% vaxta-
mun 1985. Vegna stærðar Lands-
bankans og fregna um afkomu
annarra banka má gera ráð fyrir að
vaxtamunur í heild hafi ekki þróast
mikið á annan veg en hjá okkur.
- Þú vísar sem sagt til raunverulega
fenginna og raunverulega greiddra
vaxta.
Já, en ekki til þess sem menn
halda að hvert einstakt reiknings-
form gefi af sér. Þar sem hver banki
er með sitt form á sérkjarareikning-
unum, háa vexti og ýmiss konar
vaxta- og vísitöluuppbætur, er stór
hætta á skekkju í áætlunum og ég
er viss um að þama hefur komið
fram mikið vanmat.
Óeðlilegur munur
- Er ekki óeðlilega mikill munur á
vöxtum á almennum sparisjóðsinn-
stæðum, sem sparifjáreigendur
hreinlega tapa mismunandi mikið
á, og sérkjarareikningunum sem
tryggja þeim jafnvel næstum eins
háa ávöxtun og fæst af spariskírtein-
um ríkissjóðs?
Þetta er mikill munur og meiri
heldur en eðlilegt er. Almenna spari-
sjóðsbókin hefur verið hækkuð
nokkuð en ekki nóg til þess að
minnka þennan mun. Það hefur ver-
ið lagt ofurkapp á að bæta ávöxtun
þeirra sérstöku innlánsforma, sem
bankar og sparisjóðir hafa notað til
þess að ná í sparifé, bæði nýtt spari-
fé og fé hver af öðrum. Við sjáum
það hjá okkur að á síðasta ári, varð-
andi okkar aðal samkeppnisinnláns-
form, sem er kjörbókin, að hún hefur
skilað spariflái-eigendum eins og
verðtryggður reikningur með 5,5%
vöxtum. Þetta er meira en verð-
tryggðu útlánin gáfu af sér, sem var
5,03%. Þama vorum við komnir með
sex milljarða króna með öfugum
vaxtamun.
- Þá hljóta aftur á móti að vera mjög
neikvæðir vextir fyrir viðskiptavin-
ina á almennu sparisjóðsbókunum.
Það er að vísu eins og er, en það
er að ganga yfir viss kúfur í verð-
hækkunum eftir kjarasamningana.
Ef við erum að tala um þrjá síðustu
mánuði mælast verðhækkanir 20%
yfir heilt ár. Ef við miðum aftur á
móti við 12 mánuði aftur í tímann
þá er þetta um 13%. Á almennu
bækumar em núna greiddir þetta
9,5 -11% vextir, svo að þama er
auðvitað vemlegt misræmi ef við
miðum við sérkjarareikningana.
Þessi verðhækkánakúfur er aftur
á móti að ganga niður og núna strax
með vorinu fer verðbólgan snarlega
niður. Þá er tilefhi til vaxtalækkana
og ég geri fyllilega ráð fyrir að sér-
kjörin og hin dýrari innlánaform
fari meira niður en vextir á almennu
sparisjóðsbókinni og að það gangi
saman með þessum formum aftur.
Sambærilegur vaxtamunur á
Norðurlöndum
- Nú, ef við tölum aftur um þennan
vaxtamun, sem er jú það sem banka-
kerfið lifir á. Jafnvel þótt hann sé
ekki nema 5% þá þykir mörgum það
líka vera hátt. Erlendis frá vitum við
að bankar fara allt niður í 1 -2%,
jafnvel 0,5% vaxtamun.
Á þessu eru margar skýringar.
Það fyrsta er nú að vaxtamunurinn
hjá bönkum hér er nokkuð sambæri-
legur og á hinum Norðurlöndunum,
svo dæmi séu tekin. Annað er að það
er ekki aðeins vaxtamunurinn sem
stendur undir rekstri bankanna. Þar
verður að meta samtímis þær tekjur
sem bankar taka með öðrum hætti
og eru margvíslegar. í Sviss, þar sem
vaxtamunur er einna lægstur, var
hann 1,02% af niðurstöðutölum
efnahags á árunum 1978 -1982 en
var 3,48% hér á árunum 1982-1985.
Aftur á móti fengu svissneskir bank-
ar 3,25% í öðrum tekjum en við ekki
nema 1,54%.
Einstakir bankar taka svo afskap-
lega misháan vaxtamun og kostnað
og það er auðvitað ólíku saman að
jaína viðskiptabönkum eins og hér
á landi, sem veita mikla almenna
þjónustu á öllum afgreiðslustöðum
sem eru þar að auki margir, og svo
aftur þessum stóru bönkum úti í
heimi sem afgreiða fé nánast í heild-
Tryggvi Pálsson, forstöðumaður fjármálasviðs Landsbankans.
DV-mynd KAE
Innlán jukust fimm milljörðum meira en útlán:
Innlánaslagurinn færði
ekki fúlgur milli banka
Slagur bánka og sparisjóða um inn-
lán sparifjáreigenda varð ekki til þess
að færa stórar fúlgur fjár á milli
bankastofnana á síðasta ári. Spamað-
ur í bönkum óx hins vegar mikið og
hækkuðu innlán fimm milljörðum
króna meira en útlán. Hlutdeild Út-
vegsbankans í innlánunum lækkaði
raunar um 560 milljónir og þar á móti
hækkaði hlutdeild Álþýðubankans um
340 milljónir króna.
Þetta urðu stærstu breytingamar á
innlánahlutföllum 1986. Hlutdeild
Landsbankans lækkaði um sem svarar
190 milljónum og Búnaðarbankans um
34 milljónir króna. Það vom eingöngu
ríkisbankamir sem reyndust með
lægra innlánahlutfall eftir árið. Iðnað-
arbankinn jók sinn hlut um 200
milljónir, Samvinnubankinn um 138
milljónir og Verslunarbankinn um 97
milljónir króna.
Sparisjóðimir héldu sínum hlut í
innlánunum, hvorki stærri né minni.
Innstæður í þeim voru 7.700 milljónir
króna um áramótin en þá vom inn-
stæður í bönkunum um 42.500 milljón-
ir. Langstærstur var Landsbankinn
með 16.800 milljóna innstæður. Af
þessum heildartölum má sjá að hlut-
fallslega hafa tilfærslur innan kerfis-
ins ekki verið stórvægilegar.
Útvegsbankinn hefur eflaust goldið
umræðunnar um Hafskip. Alþýðu-
bankinn lagði ofurkapp á aukningu
innlána og fómaði til þess í vaxtamun.
Samkvæmt upplýsingum í Hagtölum
Seðlabankans vom innstæður í sjö
bönkum um áramót 42.541 milljón
króna. Þetta fé skiptist þannig í upp-
hæðum og hlutfallslega:
Alþýðubanki
Búnaðarbanki
Iðnaðarbanki
Landsbanki
Samvinnubanki
Útvegsbanki
Verslunarbanki
1.662 3,9%
9.452 22,2%
3.990 9,4%
16.827 39,6%
3.628 8,5%
4.503 10,6%
2.479 5,8%
-HERB
Landsbankinn safnaði sjóðum
- hagnaðurinn 174 milljónir í fyira
Það varð 174 milljóna króna hagn-
aður af rekstri Landsbanka Islands í
fyrra eftir reiknaðar afekriftir, framlög
f sjóði og áætlaða skatta. Þetta er þó
minna en árið 1985 þegar bankinn
græddi 260 milljónir kióna.
Minnkandi hagnaður er rakinn til
þess að bankinn tók minni vaxtamun
og hækkaði ekki gjaldskrár til sam-
ræmis við kostnaðarhækkanir.
Lausafjárstaða bankans batnaði mik-
ið, aðallega vegna minni aukningar á
útlánum en innlánum.
Heildarútlán um áramót vom rúm-
lega 28 milljarðar króna, þar af yfir
10 milljarðar erlend endurlán. Heild-
arinnlán vom tæpir 17 milljarðar
króna. Landsbankinn er með um 40%
innlána allra bankanna en með um
helming allra útlána til atvinnulífeins.
Hlutdeild bankans í þessum útlánum
er þó mismunandi eftir greinum.
Þannig er hann með 66% sjávarút-
vegslána, 45% landbúnaðarlána, 51%
iðnaðarlána, 78% lána til olíuverslun-
ar og 31% til annarrar verslunar. Þá
er hann með 27% allra lána til ein-
staklinga. -HERB