Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.1987, Qupperneq 7
ÞRIÐJUDAGUR 17. MARS 1987.
7
Viðskipti
Aðrar tekjur
Vaxtamunur,
viðsk.b.
Vaxtamunur,
sparisj.
VAXTAMUNUR:
Vaxtatekjur-
vaxtagjöld
Rekstrarkostn.
Línuritiö sýnir samanburð á vaxtamun banka og sparisjóöa í ýmsum löndum, svo og kostnað, sem hlutföll
af niðurstöðutölum efnahags. Heimildir: Norska bankasambandið 1986, OECD: Costs and margins in banking
1980, Seðlabanki íslands: Viðskiptabankar og sparisjóðir 1982-1985. Tölur fyrir ísland gilda um það tímabil
en fyrir önnur lönd um tímabilið 1978-1982.
sölu, bæði í inn- og útlánum, og þá
með afar litlum kostnaði. Erlendis
fer vaxtamunurinn mikið eftir eðli
viðskiptanna og er lágur í viðskipt-
um við stórfyrirtæki en hár i við-
skiptum við smærri aðila og
einstaklinga.
Hægt að veita ódýrari
þjónustu
- Heldurðu því þá fram að kostnaður
íslenska bankakerfisins sé alls ekk-
ert of hár, miðað við aðstæður, og
að ekkert sé hægt að spara sem
munar um?
Ég bendi á það að í bankakerfinu,
eins og mörgu öðru, erum við að
reyna að vera með sambærilega
þjónustu hér á landi og aðrar þjóðir,
en smæðin hjá okkur skapar auðvit-
að vissa erfiðleika og hækkar
auðvitað kostnaðinn hlutfallslega.
En það er hins vegar hægt að veita
ýmsa þjónustu ódýrar en gert er
núna.
Það er mjög athyglisvert að áður
en losað var um á lánsfjármarkaðn-
um með lagabreytingum fyrir banka
og sparisjóði var samkeppnin fyrst
og fi*emst fólgin í því að ná innstæð-
um með því að byggja fleiri afgreiðsl-
ur og ná í fleiri útibú og helst að
hafa þessi útibú á öllum þéttbýlis-
svæðum. Síðan ekki þurfti lengur
að sækja um leyfi til Seðlabankans
vegna stofnunar útibúa en bankam-
ir aftur á móti verða að eiga lágmark
í eigin fé og eiga annars á hættu að
verða að sameinast öðrum eða vera
lagðir niður, þá hefur ekkert útibú
bæst við. Aftur á móti hafa bankam-
ir lagt í ýmsa aðra þjónustu og nýja
tækni, eins og hraðbanka og fleira
þess háttar.
Samkeppnin breyttist frá því að
reyna að ná í sparifé með því að
auka kostnað i íjölgun á afgreiðslum
í það að bjóða sparifjáreigendum
hærra verð fyrir þeirra fjármagn.
- Nú bar ég það saman, eftir skýrsl-
um Seðlabankans, að hlutfallslega
hafa orðið sáralitlar breytingar á
innstæðum í bankakerfinu. Þar er
sem sagt ekki að sjá að neinn banki
hafi náð áberandi fé af hinum í allri
þessari samkeppni og eina niður-
staðan sé ómæld fyrirhöfh við að
færa peninga á milli innlánsforma
innan hvers banka.
Þetta er rétt, en þetta hefur raun-
ar verið að gerast á lengri tíma.
Þegar losað var um á árinu 1984
varð alger hugarfarsbreyting. Þá
hljóp fólk virkilega á milli við hvert
nýtt útspil, nýjan sérkjarareikning,
hærri vexti. Eftir ákveðinn tíma ró-
aðist þetta og í staðinn fyrir að
fyrirtæki og einstaklingar hlypu á
milli banka vom gerðar kröfur um
það að þeirra viðskiptabanki byði
jafiivel og betur en aðrir. Og það er
alveg rétt að viðskiptavinimir hafa
í miklu minna mæli hreyft sig á milli
banka en á fyrstu dögum fijálsræðis-
ins.
En nú skulum við ekki segja að
þetta hafi engum árangri skilað. Það
er síður en svo. Á þessu árabili hefur
nefnilega sparifé í bönkum aukist
um tæpan helming að raunvirði.
Peningar sem áður fóm í neyslu og
höfðu þá meðal annars neikvæð
áhrif á viðskiptajöfnuðinn hafa í
stórauknum mæli komið til ávöxt-
unar í bönkunum og þetta tel ég
meiriháttar árangur. Ég vil jafnvel
taka svo djúpt í árinni að við séum
núna að nálgast jafnvægi í framboði
og eftirspum á fjármagni.
- Em einhver augljós merki um það?
Já, ég held að viðskiptavinir bank-
anna hafi þegar fundið fyrir því að
þar er að myndast vísir að sam-
keppni um þá sem lántakendur í
staðinn fyrir að þeir hafa í áratugi
þurft að ganga á eftir bankastjórum
með hvaða smámuni sem um var að
ræða. Við sjáum þetta einnig á verð-
bréfamarkaðnum þar sem ávöxtun-
arkrafan er lækkandi. Ríkissjóður
er að selja sín spariskírteini með
6,5% ávöxtun, útlánsvextir banka
em að færast upp fyrir það. Það .er
í sjálfú sér eðlilegt að spariskírtein-
in, sem em hin traustustu bréf, séu
á lægri vöxtum en útlán banka. Síð-
an kemur verðbréfamarkaðurinn
þar sem menn geta keypt bréf með
meiri áhættu en hærri ávöxtun, en
hún hefur núna undanfarið lækkað
jafht og þétt.
- Hvað er það eðlilega í þessu efni,
við hveiju er að búast á verðbréfa-
markaðnum?
Ef ríkissjóður býður áfram eign-
arskattsfijáls spariskírteini með
6,5% ávöxtun eins og hann gerir i
dag þá myndi ég ætla að bankabréf
gætu verið svona 1,5% fyrir ofan
stærstu fyrirtæki og traustustu aðrir
aðilar með svona 0,5 -1,0% þar fyrir
ofan og síðan stig af stigi eftir láns-
trausti. Þetta er það sem telja má
eðlilegt og ástandið er mjög að nálg-
ast þessa stöðu.
- Nú er varla mikill munur á áhættu
varðandi ríkisbréf og ríkisbanka-
bréf?
Nei, hún er nánast engin. En að
öðm leyti er mikill munur á áhættu
í þessum verðbréfaviðskiptum og
það er ömggt að þar á eftir að koma
skellur ef góðærinu linnir. Ég held
að menn verði að fara afskaplega
varlega, sérstaklega ef um er að
ræða bréf til langs tíma. Við höfum
reyndar nú þegar dæmi um áfóll sem
haia komið upp hjá verðbréfasjóð-
unum, sem höfðu þó ekki áhrif á
viðkomandi sjóð af því að verðbréfa-
fyrirtækið tók skaðann á sig. Slíkt
er ekki hægt í neinum vemlegum
mæli og það má ekki mikið út af
bera í þjóðarbúinu til þess að fyrir-
tæki og einstaklingar lendi í erfið-
leikum með greiðslur af skuldabréf-
um eins og öðrum skuldbindingum.
Ég vil undirstrika það að þama
er raunveruleg áhætta á ferðinni og
það er vissara að fara gætilega í öll-
um verðbréfaviðskiptum. -HERB
Vantar þig hurðir?
Stálhuröir: þykkt 50 m/m.
Einangrun: Polyurethane.
Litir: hvítt, brúnt, gult,
rautt, blátt, grænt.
Galvaniserað.
Sendurn menn til upp-
setningar um land allt.
Afgreiðslufrestur 6-8 vikur.
ASTRA
Austurströnd 8,
sími 612244
Ferðamiðstöðin:
Vömsýningar og
sumarleyfisferðir
Ferðamiðstöðin hefur gefið út vöm-
sýningaskrá þar sem getið er fjöl-
margra vörusýninga bæði í Evrópu
og Bandaríkjunum og segir í skránni
að þar sé hægt að finna allar helstu
vörusýningar og kaupstefiiur á áður-
nefndum svæðum. í skránni er getið
um hvaða vörur em kynntar á hverri
sýningu og mun Ferðamiðstöðin bjóða
upp á hópferðir á nokkrar sýninganna
en býðst til að skipuleggja sérstakar
ferðir á sýningamar fyrir einstaklinga.
Þær sýningar sem getið er um í
skránni em af fjölbreyttasta toga, allt
firá skósýningum, byggingariðnaðar-
sýningum og húsgagnasýningum, upp
í ilmvatns-, skartgripa- og vínfanga-
sýningar.
Þá hefúr Ferðamiðstöðin á boðstól-
um hinar hefðbundnu sumarleyfis-
ferðir og í bæklingi, þar sem ferðimar
em kynntar, em upplýsingar um þann
sumarleyfisstað sem ferðaskrifstofan
býður upp á skipulagðar ferðir til. Það
er Benidorm á Spáni sem um árabil
hefúr verið fjölsóttur ferðamannastað-
ur og í lýsingu á veðurfari í bæklingn-
um kemur það fram að þar em að
jafnaði 306 sólardagar á hveiju ári.
Segir í bæklingnum að þangað sé
flogið með beinu leiguflugi, þar séu
matsölustaðir fiölbreyttir og þar sé
einn stærsti næturklúbbur Spánar. Á
Benidorm geta farþegar valið á milli
ýmissa hótela í nokkrum verðflokkum
og ennfremur býðst farþegum sá
möguleiki að leigja sérstök smáhýsi á
meðan á dvölinni stendur. Þá býður
ferðaskrifstofan upp á fjölbreyttar
skoðunarferðir.
-ój
ZÁXDO 0(§
HUMANIC skór eru m.a. seldir í þessum verslunum:
Skósalan, Laugavegi 1
Skóval, Óðinsgötu 7
M.H. Lyngdal, Akureyri
Staðarfell, Akranesi
Skóverslun Kópavogs
Skóbúðin Keflavík
Kf. Árnesinga, Selfossi
Umboðs- og heildverslun
ANDRÉS GUÐNASON HF.
BOLHOLTI4 - SÍMI686388