Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.1987, Síða 8
8
ÞRIÐJUDAGUR 17. MARS 1987.
Útlönd
DV
Það er að vísu ætlast til þess að kjósandi fari einn inn i kjörklefa til þess
að kjósa en það er ekki vist að þessi ungi maður hafi gert sér grein fyrir
því. Að visu er það móðir hans sem er að krossa við kjörseðilinn en það
er ekki útilokað að þessi kjósandi framtíðarinnar í Finnlandi reyni áróður
á kjörstað því að meðal annars var kosið um töluvert hagsmunamál hans.
Eitt af kosningamálunum voru mæðralaun.
Símamynd Reufer
Bandaríski sjónvarpsmaðurinn Barbara Walters ásamt milljónamæringnum
Adnan Khashoggi i desember í fyrra er hún átti viðtal við hann. Walters kom
leynilegum skilaboðum frá íranska vopnasalanum Manucher Ghorbanifar
áleiðis til Hvíta hússins. Símamynd Reuter
Fréttamaður
bréfberi íransks
vopnakaupmanns
Ólafur Amaraan, DV, New Yorlc
Barbara Walters, fréttamaður ABC
sjónvarpsstöðvarinnar, hefur viður-
kennt að hafa komið bréfum frá
íranska vopnakaupmanninum
Manucher Ghorbanifar áleiðis til
Hvíta hússins í desember og janúar
síðastliðnum. Walters átti sjónvarps-
viðtal við Ghorbanifar og milljóna-
mæringinn Khashoggi í desember.
I bréfunum koma fram upplýsingar
um vopnasölumálið til írans og mis-
gjörðir Olivers North ofursta í þeim
efnum. Raunar er ekkert nýtt sem
kemur fram í þessum bréfum sem látin
voru Towemefhdinni í té á sínum
tíma.
ABC sjónvarpsstöðin birti í gær
fréttatilkynningu þar sem sagt var að
háttemi sem þetta hjá fréttamannin-
um bryti í bága við starfsreglur
stöðvarinnar. Stöðin hefur þá reglu
að samstarf fréttamanna við stjóm-
völd sé illa liðið nema þegar um
mannslíf er að ræða. Walters mun
hafa talið að svo væri í þessu tilviki
og hafði þá í huga líf bandarísku gísl-
anna í Líbanon.
Hægriflokkarnir
sigruðu í finnsku
kosningunum
íhaldsmenn voru tvímælalausir sig-
urvegarar þingkosninganna í Finnl-
andi um helgina þar sem vinstriflokk-
amir töpuðu mestu fylgi en
jafnaðarmenn, stærsti flokkurinn,
flokkur Sorsa forsætisráðherra, héldu
að mestu sínu fylgi lítið breyttu.
„Þeir geta ekki haldið okkur utan
ríkisstjómar eftir þetta," sagði Ukka
Suominen, leiðtogi íhaldsflokksins, í
gærkvöldi eftir að ljóst varð að flokk-
ur hans hafði bætt við sig níu þingsæt-
um og verður núna með 53 þingmenn.
Þegar talin höfðu verið 99% at-
kvæða blasti við að jafnaðarmenn
Kalevi Sorsa forsætisráðherra mundu
tapa 2,5% fylgi og þar með einu þing-
sæti.
Kommúnistaflokkamir töpuðu ekki
eins miklu fylgi og búist hafði verið
við og skoðanakannanir fyrir kosn-
ingar höfðu gefið til kynna. Evrópu-
kommúnistar héldu sínum sautján
þingmönnum en stalínistar töpuðu sex
af tíu þingsætum sínum.
Fylgisávinningur umhverfisvemd-
arsinna i Grænu hreyfingunni varð
miklu minni en búist hafði verið við
en þeir tvöfölduðu þó þingmannatölu
sína, úr tveim í fjóra, en hafði verið
spáð allt upp í átta þingsætum.
Miðflokkurinn (með 37 þingsæti áð-
ur) og kosningabandalag hans, frjáls-
lyndra, Kristilega flokksins og Sænska
þjóðarflokksins bæta við sig átta þing-
sætum að minnsta kosti og gætu þá
haft samtals 56 þingsæti.
Kjörsókn var til muna minni en í
síðustu þingkosningum 1983 (81%) því
að hún náði að þessu sinni ekki 75%.
Hið nýja þing kemur saman í byijun
apríl og mun í upphafi einkennast af
sambræðingi flokkanna til stjómar-
myndunar. Sorsa hefur lýst því yfir
að jafhaðarmenn muni ekki frábitnir
því að sitja í næstu ríkisstjóm sem
mynduð verði en það var haldið að
hann mundi stýra flokknum yfir í
stjómarandstöðu ef jafnaðarmenn
töpuðu fylgi í kosningunum. Hann og
Suominen og Paavo Vaeyrynen, leið-
togi Miðflokksins, hafa allir lýst því
yfir að þeir munu reiðubúnir til að
mynda ýmsar gerðir af samsteypu-
stjórnum. íhaldsflokkur Suominen
hefur verið í stjómarandstöðu í 21 ár.
Lídl framleiðni hjá
danska sjónvarpinu
Haukur U Hauksscn, DV, Kaupmarinahö&i:
Fjárlaganefrid danska þingsins
krafðist þess nýverið að fa afhenta
skýrslu um franúeiðni danska sjón-
varpsins. f október höfðu nefiidax-
meðlimir verið á ferð f sjónvarpa-
húsinu og þá fengið að vita að
framleiðsla danska sjónvarpsins
ykist í sífellu og voru sýnd falleg
Íínurit því til stuðnings.
Átti ástandið að vera svo gott að
ýmsir nefndarmeðlimir vildu fá sam-
anburð við önnur lönd. Var unnin
akýrsla um málið sem ekki var lögð
fyrir fjárlaganefndina íýir en hennar
hafði verið krafiat.
Er töluverður munur á tölum þeim
sem fiárlaganefhdin fékk í október
og hinum nýju tölum. Samanburð
ber að taka með fyrirvara en stað-
reynd er að hver dagskrárgerðar-
maður hjá danska sjónvarpinu
framleiddi árið 1985126 mínútur efn-
is. Hjá danska sjónvarpinu eru 700
dagskrárgerðarmenn en 4.093 hjá
BBC, 976 hjá sænska sjónvarpinu
og 847 hjá ZDF í Vestur-Þýskalandi.
Hjá eftirtöldum sjónvarpsstöðvum
er framfeiðni hvera dagskrárgerðar-
manns þannig: Hjá veatur-þýsku
stöðinni ZDF eru 170 mínútur á
hvem dagskrárgerðarmann, hjá
BBC 82 mfnútur, hjá sænaka sjón-
varpinu 136 mínútur og hjá TF í
Frakklandi 1.330 mínútur. Tölumar
em unnar úr upplýsingum evrópska
útvarpssambandsins.
Vopnafundur
í Thailandi var i gær haldin sýning á hundruðum sprengjuvarpa ásamt öðrum vopnum sem lögreglan þar hefur lagt hald
á. Talið er að vopnin, sem eru meira en einnar milljónar dollara virði, hafi veriö ætluð skæruliðum i Burma.
Símamynd Reuter