Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.1987, Qupperneq 9
ÞRIÐJUDAGUR 17. MARS 1987.
9
Utlönd
Sinatra fær
ekki að syngja
í Svíþjóð
Bandaríska söngvaranum Frank
Sinatra verður líklega bannað að
halda tónleika í Sviþjóð sem ráð-
gerðir voru þann 9. júní í Gauta-
borg. Er það vegna þess að Sinatra
syngur oft í Sim City í Bopbuthats-
wana í Suður-Afríku en sjálfetæði
þess heftur ekki verið viðurkennt
af Sameinuðu þjóðunum.
í síöustu viku lýstu Svíar yfir
viðskiptabanni gegn Suður-Afríku
og fær Sinatra ekki að syngja í
Sviþjóð nema að hann hætti að
skemmta í Suður-Afríku. Umboðs-
maður Sinatra hefur lýst þvi yfir
að hann muni ekki hætta tónleika-
haldi þar.
Dönsk síð-
degisbloö
koma út á
sunnudögum
Haukur L Haukssœi, DV, KaupmhöÉn:
Dönsku síðdegisblöðin BT og
Extrabladet hafa ákveðið að hefja
útgáfu blaðanna á sunnudögum.
Fyrsti útgáfúdagurinn er sá sami
fyrir bæði blöðin, það er 14. júní
næstkomandi Reiknar BT með 215
þúsunda eintaka upplagi á sunnu-
dögum en bæði blöðin setja traust
sitt á þær sex hundruð þúsund
manneskjur sem vanalega lesa
engin blöð á sunnudögum.
Er talað um að sunnudagsfriður-
inn sé hér með úti en Aktuelt, blað
jaftiaðarmanna, hefur í byggju að
umbylta sunnudagsblaði sínu eftir
tilkomu nýrra ritstjóra. Mun
Aktuelt væntanlega eiga í vök að
verjast í slagnum um lesenduma
en það þykir þó undir hinum nýju
ritstjórum komið.
Smiðir sjást hér á þessari mynd
vinna við breytingar á dómhöllinni
í Lyons til undirbúnings réttarhöld-
unum yfir Klaus Barbie, en það er
ráðgert að þau eigi að hefjast 11.
mai. Klaus Barbie, sem var yfirmað-
ur Gestapo í Lyons á hemámsárun-
um og fékk þá uppnefnið „böðullinn
í Lyons“, enda talinn bera ábyrgð á
drápum ýmissa frammámanna í and-
spyrnuhreyfmgu Frakka og brott-
flutningi íjölda gyðinga, er enduðu
lífið í útrýmingarbúðum nasista, hef-
ur setið í fangelsi í Frakklandi í rúmt
ár og beðið eftir því að réttarhöld
verði í máli hans. Hann fannst í Suð-
ur-Ameríku, þar sem hann hafði farið
huldu höfði eins og fleiri stríðs-
glæpamenn nasista frá því í stríðs-
lok.
Treholt á skólabekk
Pál Vilhjálmssan, DV, Osló:
Ame Treholt, sem dæmdur er fyrir
njósnir, er orðinn nemandi við háskól-
ann í Bergen. Úr fangaklefa sínum
ætlar Treholt að leggja stund á stjóm-
málafræði. Hann hyggst skrifa magist-
erritgerð um samskipti Grikklands og
Bandaríkjanna á árunum 1947-1967.
Treholt hætti námi snemma á síð-
asta áratug er hann var fulltrúi í
norska utanríkisráðuneytinu. Háskól-
inn i Bergen hefur þegar tilnefrit
prófessor sem leiðbeinanda Treholts.
Vinningstölurnar 14. mars 1987.
Heildarvinningsupphæð: 5.107.472,'
1. Vinningur var kr. 2.562.462,- og skiptist hann á milli 6 vinnings-
hafa, kr. 427.077,- á mann.
2. Vinningur var kr. 765.750,- og skiptist hann á 375 vinningshafa,
kr. 2.042,- á mann.
3. Vinningur var kr. 1.779.260,- og skiptist á 9940 vinningshafa, sem
Upplýsingasími: 685111.
Fyrirliggjandi í birgðastöð
SVARTAR OG
GALVANISERAÐAR
PÍPUR
Samkv.:Din 2440
oQO°ooo o o C ^O O
Sverleikar: svart, 3/8 - 5“
galv., 3/8 - 4“
Lengdir: 6 metrar
SINDRAi rM .STÁLHF
Borgartúni 31 sími 27222
/ S
HOLLENSKI
BLÓMAÁBURÐURINN
ALLTAF