Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.1987, Qupperneq 10
10
ÞRIÐJUDAGUR 17. MARS 1987.
Utlönd
Andy Taylor, hér með hljómsveitinni Duran Duran, hefur slegist í hóp með boðberum varnaðarorðanna gegn fíkniefnunum.
Poppstjörnur í trú-
boði gegn eíturlyfjum
Jimi Hendrix, Janis Joplin og svo
Keith Moon í hljómsveitinni Who
urðu öll fómardýr eiturlyfja. Sömu-
leiðis áttu eiturlyfin sinn þátt í
andláti Brian Jones í hljómsveitinni
Rolling Stones. - En rokkstjömum-
ar í dag em lagstar í trúboð gegn
eiturlyfjum og keppast við að flytja
aðdáendum sínum, aðallega táning-
um, varúðarerindið gegn fíkniefna-
hættunni.
Rokkþættir sjónvarps notaðir
gegn fíkniefnum
„Eg var í fíkniefnum. - En þú?“
spyr Lou Reed og hvessir augun af
skjánum á sjónvarpsaðdáandann í
útsendingu MTV en það er sjón-
varpsstöð sem sendir út rokk- og
poppvídeó 24 stundir sólarhringsins.
- Hljómsveit Reeds, Velvet Under-
ground, var framarlega í fíkniefna-
byltingu skemmtiiðnaðar sjöunda
áratugarins. Reed er ein þessara
rokkstjama sem í dag vitna opin-
berlega um fíkniefnamisnotkun sína
og boða nú ungmennum nýja trú. I
vídeóþáttum koma þeir að viðvörun-
um sínum gegn fíkniefhahættunni.
Spegilmyndin var skelfileg
Belinda Carlisle, sem áður söng
með Go-Go en gerir það núna gott
sem sóló-söngkona, er í hópi þessarar
nýju kynslóðar popplistamanna, sem
láta fíkniefriavandamálið til sín
taka. - „Ég var vöm að nota fíkni-
efhi en einn morguninn leit ég í
spegil og það sem ég sá var skelfi-
legt,“ segir Carlisle í sjónvarpsaug-
lýsingu.
„Þú færð engu áorkað ef þú ert í
fíkniefnunum," segir söngkonan
Aimee Marrn (í grúppunni Till Tues-
day) í framlagi hennar til baráttunn-
ar gegn eiturlyfjunum. Hennar
vídeó-þáttur heitir: „Lífið getur vel
verið skemmtilegt þegar þú ert á
snúrunni.“ (Svo að brugðið sé fyrir
sér orðalagi Reykjavíkurriddara
götunnar þegar þeir útsetja á sitt
ylhýra mál enska orðalagið að vera
„straight".)
Viljum ekki deyja ung
Breska hljómsveitin „Genesis" gaf'
sér líka stund til þess að blanda sér
í þennan kór, og Andy Taylor, sem
áður var í hljómsveitinni Duran
Duran, lagði fram vídeóþátt sem ber
titilinn „Látið mig ekki deyja ung-
an!“- og þarf ekki að skoða lengi í
þessu samhengi hér til að átta sig á
því hver lífshættan eigi að vera.
Meðal annarra boðbera mætti
nefna hljómsveitina Bon Jovi, sem
er á Topp tíu-listanum, þungarokks-
hljómsveitina Cinderella, Michael
Des Barres (sem áður var í Power
Station), skoska söngvarann Sheena
Easton, Steve Jones (fyrrum í hljóm-
sveitinni Sex Pistols) og Gene
Simmons og Paul Stanley í hljóm-
sveitinni KISS.
Sterkir tónar notaðir
Og það er enginn véfréttarblær á
boðskapnum. Það er farið beint af
augum eins og rokkurum er tamt
þegar þeir flytja tónlist sína. Fíkni-
efni geta beinlínis drepið þig og í það
allra minnsta lagt líf þitt í rúst.
Talsmenn úr skemmtiiðnaðinum,
poppinu og rokkinu segja að þetta
sé ein allsheijarvakning meðal tón-
listarfólks, vídeó-framleiðenda,
plötusnúða og annarra úr bransan-
um. Herferðinni var hrundið af stað
af hljómsveit sem kallar sig „Rock
Agains Drugs“ (RAD eða Rokk gegn
fíkniefnum), og nýtur hún fjárstuðn-
ings Pepsi-Cola og dómsmálayfir-
valda Kalifomíu.
Sjónvarpsstöðvar gefa út-
sendingar
Fleiri hafa lagt til þessarar kross-
ferðar. MTV-sjónvarpsstöðin, sem
áður var minnst á, og miðar útsend-
ingar sínar aðallega við aldurs-
hópana 12 til 34 ára, gaf útsending-
artíma fyrir vídeó-þætti með þessum
boðskap. Hefði sá auglýsingatími í
sjónvarpi kostað þrjár milljónir doll-
ara ef keyptur hefði verið fullu verði.
Listamennimir og þáttagerðarmenn
aðrir gáfu alla vinnu sína í vídeó-
þættina.
„Árum saman hafa ýmsir rokk-
listamenn látið frá sér heyra, bæði
opinberlega og í einkaviðræðum,
gegn fíkniefhum. Og þeir hafa jafh-
vel laumað boðskapnum inn í
sönginn," segir Danny Goldberg,
forseti Gold Mountain Records-fyr-
irtækisins, en hann stofriaði RAD
með Des Barres. Goldberg þessi var
meðal þeirra sem leiddir vom í fyrra
fram til vitnis gegn misnotkun fíkni-
efha í sérstakri herferð yfirvalda
gegn útbreiddri notkun fíkniefna í
röðum listamanna.
Hlusta frekar á átrúnaðargoð-
in
„RAD-krossferðin hefur laðað til
liðs við málstaðinn fjölda hljómlist-
armanna sem bæði hafa áhyggjur
af eyðileggjandi áhrifum fíkniefh-
anna á listgreinina og em eins
knúnir af þjóðarstolti vegna hlut-
deildar rokksins í bandarísku
menningarlífi," segir Goldberg.
Dómsmálaráðherra Kalifomíu,
John Van de Kamp, sem stýrði her-
ferð yfirvalda þar í fyrra, segir að
framlag rokkara í þessari herferð sé
feikilega mikilvægt vegna áhrifa
þeirra á unga fólkið sem gefi góðan
gaum að því er átrúnaðargoð þeirra
hafa að segja, á meðan það mundi
fremur skella skolleyrum við vam-
aðarorðum sem kæmu úr annarri
átt. Væntir hann sér góðs af því að
kynngikraftur rokksins beinist nú
gegn fíkniefnunum.
Fjölmiðlar og áhugafélög
komin í krossferðina
Landssamtök auglýsingastofa í
Bandaríkjunum hafa einnig gengið
til liðs við þessa baráttu. Sömuleiðis
fjöldi fyrirtækja sem starfa við fjöl-
miðlun. Sjónvarpsstöðvar hafa gefið
útsendingar, útvarpsstöðvar birta
ókeypis auglýsingar og eins prentað-
ir fjölmiðlar. Em þessi framlög metin
til ekki minna en 1,5 milljarða doll-
ara. Áróðrinum gegn fíkniefnunum
er beint til unglinga, ungmenna, for-
eldra, kennara og auðvitað fíkni-
efhanotenda.