Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.1987, Qupperneq 23
ÞRIÐJUDAGUR 17. MARS 1987.
23
Fréttir
Nýjung á verkstæði Kennedy-bræðra:
Fullkomin tölva sem
stillir hjól bíla
Jón G. Haulcssan, DV, Akuxeyri:
Kennedy-bræður á Akureyri hafa
sett upp á bílaverkstæði sínu við
Draupnisgötu fullkomna tölvu sem
stillir hjól bíla. Þetta er fyrsta og full-
komnasta tölvuhjólastillingartæki á
íslandi og jaínast á við það besta sem
gerist erlendis. Stillingin er öllum bí-
leigendum opin. Þeir bræður segjast
geta þjónað öllu Norðurlandi með
tækinu.
„Bíleigendur eru þegar famir að
streyma hingað og hefur tækið reynst
mjög vel á þeim stutta tíma sem við
höfum haft það,“ sagði Wilhelm
Ágústsson, einn bræðranna, við DV.
Wilhelm sagði að með tölvunni væri
hægt að stilla-öll íjögur hjól bifreið-
anna í einu mjög nákvæmlega. Tækið
sýndi skekkjuhalla hjólanna og stillti
þau eins og þau ættu að vera.
Þegar hjólin eru stillt er jafnframt
gengið úr skugga um að stýrisendar
og demparar séu í lagi, rétt dekkja-
stærð og loftþyngd sé í dekkjunum.
„Svo nákvæm stilling sparar því mjög
slit hjólbarðanna."
„Erlendis er skylda að fara með alla
bíla sem lent hafa í árekstri í svona
tölvuhjólastillingu og ég veit að von
bráðar verður kveðið svo á í lögum
hérlendis líka,“ sagði Wilhelm Ágústs-
son, Kennedy-bróðir, við DV.
Wilhelm Agustsson viö tölvuna góðu, sem notuð er við að stilia hjól bifreiða.
DV-mynd JGH
dv Smáauglýsiiigar - Sími 27022 Þverholti 11
■ Húsaviðgerðir
G.Þ. húsaviðgerðir sf. Tökum að okkur
glerísetningar, háþrýstiþvott, sílan-
böðum ásamt alhliða sprunguviðgerð-
um. Fljót og góð þjónusta. Uppl. í
símum 75224, 45539 og 79575.
Litla dvergsmiðjan. Háþrýstiþvottur,
múrun, sprunguviðgerðir, blikkkant-
ar og rennur, lekavandamál, málum
úti og inni. Meistarar. Tilboð sam-
dægurs. Uppl. í símum 21228 og 11715.
Kreditkortaþjónusta. Sparaðu þér spor-
in! Þú hringir inn smáauglýsingu, við
birtum hana og greiðslan verður færð
inn á kortið þitt! Síminn er 27022.
■ Tilsölu
Frábært tæki! Vasasjónvarp frá Sincla-
ir er frábært tæki á góðu verði: gengur
fyrir rafhlöðum eða rafmagni og þú
hefur það með þér hvert sem er. Send-
um í póstkröfu, kreditkortaþjónusta.
Versl. Grensásvegi 50, s. 83350.
íþróttagrindur, tvær stærðir, sendum í
póstkröfu um land allt. Húsgagna-
vinnustofa Guðmundar Ó. Eggerts-
sonar, Heiðargerði 76, sími 91-35653.
■ Verslun
VERUM VARKAR
FORÐUMSTEYONI
Rómeó & Júiia býður pörum, hjónafólki
og einstaklingum upp á geysilegt úrv-
al af hjálpartækjum ástarlífsins í yfir
100 mismunandi útgáfum við allra
hæfi. Því er óþarfi að láta tilbreyting-
arleysið, andlega vanlíðan og dagleg-
an gráma spilla fyrir þér tilverunni.
Einnig bjóðum við annað sem gleður
augað, glæsilegt úrval af æðislega
sexý nær- og náttfatnaði fyrir dömur
og herra. Komdu á staðinn, hringdu
eða skrifaðu.' Ómerkt póstkröfu- og
kreditkortaþjónusta. Opið alla daga
nema sunnudaga frá 10-18. Rómeó &
Júlía, Brautarholti 4, 2. hæð, símar
14448 - 29559, pósthólf 1779,101 Rvík.
Vanish-undrasápan. Ótrúlegt en satt.
Tekur burt óhreinindi og bletti sem
hvers kyns þvottaefni og sápur eða
blettaeyðar ráða ekki við. Fáein
dæmi: Olíur, blóð-, gras-, fitu-, lím-,
gosdrykkja-, kaffi-, vín-, te-, eggja-
bletti, snyrtivörubletti, bírópenna-,
tússpennablek og fjölmargt fleira.
Nothæft alls staðar, t.d. á fatnað, gólf-
teppi, málaða veggi, gler, bólstruð
húsgögn, bílinn, utan sem innan, o.fl.
Úrvals handsápa, algerlega óskaðleg
hörundinu. Notið einungis kalt eða
volgt vatn. Nú einnig í fljótandi formi.
Fæst í flestum matvöruverslunum um
land allt. Heildsölubirgðir. Logaland,
heildverslun, sími 1-28-04.
Littlewoods pöntunarlistinn hefur aldrei
verið betri en nú. Pantið í síma
656585. Krisco, pósthólf 212, Garðabæ.
■ Bátar
Skipasala Hraunhamars. Til sölu
nokkrir bátar, sömu gerðar og myndin
sýnir, einnig ýmsar gerðir annarra
báta. Kvöld- og helgarsími 51119.
Skipasala Hraunhamars, Reykjarvík-
urvegi 72, Hafnarfirði, sími 54511.
■ BOar til sölu
Suzuki Fox '85 til sölu, ekinn aðeins
25.000, ath. skipti á nýlegum smábíl.
Uppl. í vs. 27027 eða hs. 656109 Helgi.
i: »«>.,
Farkostirnir voru margir og giæsilegir eins og sjá má.
DV-myndir Finnur
Vélsleðamenn
a mota i
Mývatnssveit
Fmnur Baldursscin, DV, Mývatnssveit
Nýlega héldu Björgunarsveitin
Stefán og íþróttafélagið Eilífur árlegt
mót vélsleðamanna í Mývatnssveit,
„Mývatn ’87“. Á fimmtudag voru
fyrstu gestimir komnir í sveitina svo
að á föstudag gafst tækifæri til að fara
með töluverðan hóp fólks í sleðaferð
um nágrennið í mjög fallegu veðri.
Á laugardag fór svo fram hin eigin-
lega vélsleðakeppni. En hún var fyrst
haldin árið 1979. Á þetta mót komu
um 80 manns af Suðurlandi, þar af um
20 sem óku sleðum sínum yfir hálend-
ið. Auk þeirra kom héðan af norðan-
verðu landinu fjöldi manns. Fyrir
hádegi var keppt í !4 mílu spymu í
§órum stærðarflokkum sleða.
Eftir hádegi var svo keppt í alhliða
þrautabraut þar sem þurfti að leysa
hinar ýmsu þrautir, t.d. stökk af palli,
hemlunarþraut og svigþrautir. Keppt
var í þremur stærðarflokkum sleða.
Keppendur vom 48 alls, þar af í A fl.
27, í B fl. 9 og í C fl. 12.
Að kvöldi laugardagsins fór svo fram
verðlaunaafhending í Hótel Reynihlíð.
Við það tækifæri færði Guðmundur
Gíslason hjá Bifreiðum og landbúnað-
arvélum Björgunarsveitinni Stefáni í
Mývatnssveit að gjöf vélsleða af dýr-
ustu gerð. Þá færði Hótel Reynihlíð
björgunarsveitinni að gjöf Loran C
staðsetningartæki á vélsleðann.
Að verðlaunaafhendingu lokinni var
stiginn dans fram eftir nóttu. Á sunnu-
dag fór hluti vélsleðamanna í
skemmtiferð á sleðum norður á Þeista-
reykjabungu og Hrútafjöll og víðar
undir leiðsögn heimamanna.
Þegar líða tók á daginn héldu ferða-
langar hver til síns heima og vom
þeir sem fóm vfir hálendið á vélsleðum
terjaðir í snjó við Heilagsdal á jeppum
og dráttarvélum.
Er það samdóma álit mótshaldara
og gesta að helgin hafi verið hin
ánægjulegasta.
Fjölmenni sótti mót vélsleðamanna sem fór fram i Mývatnssveit á dögunum.
Skoðanakönnun Félagsvísindastofnunar:
Stefán er ekki inni
Jón G. Haukssan, DV, Akureyri:
Stefán Valgeirsson er ekki inni,
samkvæmt skoðanakönnun, sem
Félagsvísindastofnun Háskólans
vann fyrir Dag á Akureyri og birt
var í morgun. 346 manns svömðu í
könnuninni.
Samkvæmt könnuninni fær D-listi
25,3% og tvo menn kjöma. B-listi fær
20,6% og tvo menn. Valgerður
Sverrisdóttir er því inni. G-listi fær
18,2% og einn mann. A-listi fær
16,9% og einn mann kjörinn.
J-listi Stefáns Valgeirssonar fær
8,1% og samkvæmt því nær Stefán
ekki kjöri. Hann þarf að fá rúmlega
10% atkvæða til þess að komast inn.
Baráttan stendur því milli hans og
Valgerðar Sverrisdóttur, B-lista.
Minni flokkamir fá mjög lítið
fylgi. Kvennalisti fær 4,7%, Þjóðar-
flokkur 3,4%, Flokkur mannsins
2,4% og BJ 0,3%. Enginn þessara
flokka fær mann kjörinn.