Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.1987, Qupperneq 26
26
ÞRIÐJUDAGUR 17. MARS 1987.
Andlát
Ragnar Veturliðason lést í Borg-
arspítalanum að kvöldi hins 14. mars
sl.
Jakob Gíslason fyrrverandi orku-
málastjóri lést 9. mars sl. Hann
fæddist 10. mars 1902 á Húsavík.
Foreldrar hans voru Gísli Ólafur
Pétursson og Aðalbjörg Jakobsdótt-
ir. Að loknu stúdentsprófi 1921 hélt
hann til Kaupmannahafnar og lauk
prófi í rafmagnsverkfræði við Dan-
marks Tekniske Hojskole árið 1929.
Jakob var skipaður fyrsti rafmagns-
eftirlitsstjóri ríkisins árið 1933. Arið
1946 var hann skipaður raforku-
málastjóri, því starfi gegndi hann til
ársins 1967 og starfi orkumálastjóra
gegndi hann til ársins 1972. Jakob
var tvíkvæntur. Fyrri kona hans var
dönsk, Hedvig Emanuella. Eignuð-
ust þau tvo syni. Hedvig lést árið
1939. Eftirlifandi eiginkona Jakobs
er Sigríður Ásmundsdóttir. Þau
eignuðust þrjú börn. Útför Jakobs
verður gerð frá Dómkirkjunni í dag
kl. 13.30.
Einar Erlendsson frá Vík í Mýrdal
andaðist í Borgarspítalanum 13.
mars.
Frímann Frímannsson andaðist
14. mars sl. á Elliheimilinu Grund.
Einar B. Gíslason, fyrrum bóndi á
Fífustöðum, andaðist á Hrafnistu 14.
mars sl.
Einar Hjörleifsson, Melabraut 5,
Seltjarnarnesi, er látinn.
Guðný Fredriksen, 26. A Dashew
Dr., Suffern NY10901, andaðist laug-
ardaginn 14. mars.
Katrin Kristjánsdóttir, Barrholti
10, Mosfellssveit, andaðist í Borg-
arspítalanum að kvöldi laugardags-
ins 14. mars.
Óskar Kristinn Óskarsson frá
Firði, Efstahrauni 20, Grindavík,
andaðist í sjúkrahúsi Keflavíkur
sunnudaginn 15. mars.
Sigurveig Steingrímsdóttir lést 8.
mars sl. Hún fæddist 26. september
árið 1906. Foreldrar hennar voru
hjónin Ólafía Hallgrímsdóttir og
Steingrímur Torfason. Sigurveig
giftist Jóhannesi Gunnarssyni,
kaupmanni í Hafnarfirði, en hann
lést árið 1951. þeim hjónum varð
fimm barna auðið. Eftir lát manns
síns rak Sigurveig fyrirtæki hans um
nokkurt árabil og fór síðan út í rekst-
ur eigin fyrirtækis. Útför Sigurveig-
ar verður gerð frá Haíharfjarðar-
kirkju í dag kl. 15.
Guðrún Hallsteinsdóttir lést 7.
mars sl. Hún fæddist 3. desember
1891. Um tvítugt giftist hún Tómasi
Ingimagnssyni en missti hann eftir
tæpra tuttugu ára búskap. Þau hjón-
in eignuðust þrjú börn. Útför
Guðrúnar verður gerð frá Hallgríms-
kirkju í dag kl. 13.30.
Ragnhildur Jónsdóttir, Faxastíg
8, Vestmannaeyjum, lést í sjúkrahúsi
Vestmannaeyja laugardaginn 14.
mars.
Elvar Þór Hafsteinsson, Ægissíðu
92, verður jarðsunginn frá Dómkirkj-
unni miðvikudaginn 18. mars kl.
13.30.
Magnús Ágústsson, fyrrverandi
héraðslæknir, lést í Borgarspítalan-
um sl. laugardag. Hann var fæddur
11. febrúar 1901 í Birtingaholti, son-
ur hjónanna Ágústs Helgasonar og
Móeiðar Skúladóttur. Magnús var
starfandi héraðslæknir í Borgar-
fjarðarhéraði í 18 ár og síðan í
Hveragerðishéraði í yfir 30 ár. Sl. 2
ár var hann búsettur í Reykjavík
ásamt eftirlifandi eiginkonu sinni,
Magneu Jóhannesdóttur. Þau eign-
uðust þrjú böm, Guðrúnu, Jóhannes
og Skúla.
Jóhannes Jóhannesson, Lokastíg
22, lést 6. mars í Hátúni 10B. Jarðar-
förin hefur farið fram.
ÞAKKARÁVARP
Viljum þakka öllum þeim sem glöddu okkur með
heimsóknum og skeytum á gullbrúðkaupsdegi okkar
þann 14. mars síðastliðinn.
Sigurþór Sæmundsson,
Ásta Laufey Gunnarsdóttir.
LOKAÐ
verður eftir hádegi í dag, þriðjudaginn 17. mars, hjá
Rafmagnseftirliti ríkisins, Síðumúla 13, vegna jarðar-
farar dr. Jakobs Gíslasonar, fyrrverandi orkumálastjóra.
Rafmagnseftirlit ríkisins.
í gærkvöldi_______________________ dv
Helga Hjöwar, skólastjóri Leiklistarskólans:
, Augu fuglanna, áhrifamikil mynd“
ur yfirleitt í fjölmiðlum. Ég á þar
ekki við æsifréttir heldur fréttir eins
og um aukningu bókaútlána. Eftir
fréttir Stöðvar 2 horfði ég á ríkis-
sjónvarpið það sem eftir var kvölds.
Mér finnst vera til fyrirmyndar hjá
þeim að vera með fastan fréttaritara
á Norðurlöndum. Mér hefur reynst
erfitt að skynja að, að baki Eurovisi-
on keppninni byggi löngun til að
hrifa nokkra sál með tveimur undan-
tekningum þó. Þátturinn um
sambúð og sambúðarslit var
skemmtileg samvinna laganema og
leiklistarfólks til að upplýsa áhorf-
endur. Augu fuglanna var áhrifa-
mikil mynd sem ekki gleymist í bráð.
Maður er hálflamaður að vera vitni
að þessari angist og kvöl, mannfyrir-
litningu og kvalalosta. Svona mynd
minnir okkur á kosti þess að búa í
lýðræðisþjóðfélagi og skyldur okkar
gagnvart þeim sem eru ofsóttir
vegna skoðana sinna. Deginum lauk
svo með dapurlegum fréttum af
samningamálum kennara og þó,
kannski birtist í tilboði til Verslun-
arskólakennara leið út úr ógöngun-
um.
Fundir
Kvenféiagið Seltjörn
heldur fund þriðjudaginn 17. mars kl.
20.30. Guðný Guðmundsdóttir frá Grænu
línunni talar um lífræna húðrækt.
Tilkyrmingar
ET-dagur
Skýrslutæknifélag Islands boðar til hálfs
dags ráðstefnu um ET (einmennings-
tölvuj-notkun að Hótel Loftleiðum, Krist-
alsal, fimmtudaginn 19. mars nk.
Ráðstefnan hefst kl. 13.15 og gert er ráð
fyrir að henni ljúki kl. 17.30. Ráðstefnan
er ætluð þeim sem vilja k.ynna sér það sem
er að gerast í notkun einmenningstölva.
Fjallað verður um þrjú meginnotkunar-
svið. Meðan á fyrirlestrinum stendur fer
fram sýnikennsla í hliðarsal þar sem not-
aður verður nýr búnaður sem gerir kleift
að sýna skjámyndir á tjaldi. I lok hvers
erindis er gert ráð fyrir umræðum og fyrir-
spumum. Dagskrá er þannig gerð að
meðan á fyrirlestrum um eitt svið stendur
fer fram sýnikennsla á hinum tveimur.
Þannig geta þátttakendur valið saman
fyrirlestra og sýnikennslu á þeim sviðum
sem mestan áhuga vekja. Skráning í síma
82500 hjá Kolbrúnu Þórhallsdóttur.
Krakkar í Árbænum
safna áheitum til
styrktar íþróttahússbyggingu
Nú eru rúm 10 ár síðan fyrst var farið að
tala um byggingu íþróttamannvirkja í
Árbænum. Ennþá hefur ekkert verið gert
og ákvað því íþróttaklúbburinn „Vanda
sig“ að vekja athygli á málinu föstudaginn
27. mars. Ætlar klúbburinn sem skipaður
er 14 unglingum á aldrinum 13-15 ára, að
fara upp á Ákranes, ná í fyrsta sements-
pokann og hlaupa með hann til Reykjavík-
ur. Stefnt er að því að aihenda Davíð
Oddssyni borgarstjóra pokann fyrir utan
félagsmiðstöðina Ársel laugardaginn 28.
mars kl. 14. Hafa þá krakkamir verið á
hlaupum frá kl. 18 á föstudag eða í 20 klst.
1 tilefni hlaupsins ætla krakkamir að
ganga í hús í Árbænum nú um helgina og
næstu daga með undirskriftarlista og
safna áheitum. Ibúar Árbæjar, takið vel á
móti krökkunum og styðjið þá í þessu
þarfa framtaki þeirra.
Aukasýningar á Rómeó
og Júlíu
Leiknefnd Menntaskólans í Reykjavík
mun sýna þrjár aukasýningar á Rómeó og
Júlíu eftir Shakespeare. Sýningar hefjast
miðvikudaginn 18. mars í Félagsstofnun
stúdenta. Miðapantanir og nánari upplýs-
ingar í síma 17017.
Sýningu Sigurðar í Gallerí
Svart á Hvítu framlengd.
Vegna mikillar aðsóknar á sýningu Sig-
urðar Guðmundssonar, myndlistarmannns
frá Hollandi, verður sýningin framlengd
til miðvikudagsins 18. þ.m. Sigurður sýnir
einnig höggmyndir í Norræna húsinu.
Jazz og blús á Borginni
Miðvikudaginn 18. mars kl. 21 heldur
Jazzvakning jazz- og blúskvöld á Hótel
Borg. Meðal þeirra sem fram koma eru:
Blúshundar sem koma fram í fyrsta sinn
en það er Bubbi Mortens sem er for-
sprakki þeirra, hið sígilda Jazz-tríó
Guðmundar og hljómsveitin Súld sem sló
í gegn á síðustu tónleikum Jazzvakningar
á Borginni.
Sjálfsbjörg í Reykjavík
og nágrenni
Nk. föstudag, 20. þ.m., koma félagar úr
Ámessýlu í heimsókn. Þeir félagar sem
hafa hug á að taka þátt í borðhaldi þurfa
að tilkynna sig til skrifstofu félagsins sem
fyrst.
Trúnaðarbréf afhent
Hinn 11. mars 1987 afhenti Páll Ásgeir
Tryggvason sendiherra Dr. Kurt Wald-
heim, forseta Austurríkis, trúnaðarbréf
sitt sem sendiherra Islands í Austurríki.
Tóiúeikar
Kornungur þýskur
píanóleikari með
Sinfóníuhljómsveitinni
Á tólftu áskriftartónleikum Sinfóníu-
hljómsveitar Islands í vetur, sem haldnir
verða í Háskólabíói á fimmtudagskvöld
19. mars, koma tveir ungir, en afar efnileg-
ir tónlistarmenn við sögu. Einleik með
hljómsveitinni leikur Andreas Bach, kom-
ungur þýskur píanóleikari, sem hefur
getið sér afar gott orð að undanfömu og
stjómandi verður Bretinn Barry Words-
worth sem talinn er í hópi efnilegustu
ungu hljómsveitarstjóra sem nú starfa. Á
efnisskrá sveitarinnar á fimmtudagskvöld
verða þijú verk: Rómeó og Júlía, forleikur
eftir Tsjaíkofskí, Píanókonsert nr. 1 í C-
dúr, op. 15 eftir Ludwig van Beethoven
og loks Tilbrigði um eigið stef, fyrir hljóm-
sveit, Gátutilbrigðin, eftir enska tónskáld-
ið Edward Elgar. Á tónleikunum átti
upphaflega að frumflytja píanókonsert eft-
ir Áskel Másson og átti Ástralíumaðurinn
Roger Woodward að leika einleikshlut-
verkið. Þessum frumflutningi varð að
fresta vegna anna píanóleikarans í heima-
landi sínu. Konsertinn verður á efnisskrá
tónleika 15. október á hausti komanda.
Vinningur í almanakshapp-
drætti Þroskahjálpar
Nýlega var afhentur einn vinninganna í
almanakshappdrætti Landssamtakanna
Þroskahjálpar, bíll af gerðinni Toyota
Corolla. Þau heppnu em hjónin Sesselja
Tryggvadóttir og Sigurður Baldursson,
sem búa í Vesturhlíð í Skagafirði. Þau
standa næst bílnum á myndinni. Að baki
þeirra er Pétur Pétursson, starfsmaður
Toyotaumboðsins, og til hægri Svanfríður
Larsen úr stjórn Þroskahjálpar og Eggert
Jóhannesson, formaður samtakanna, sem
afhentu vinninginn.
Úthlutun úrtónlistarsjóði
Armanns Reynissonar
Úthlutað verður úr Tónlistarsjóði Ár-
manns Reynissonar í fjórða sinn í byrjun
júní nk. Úthlutunarfé sjóðsins nemur kr.
175.000,- og er óskað eftir umsóknum aðila
sem hafa tónlist að aðalstarfi og hafa hug
á að semja eða flytja tónverk, innanlands
eða utan. Stjórn Tónlistarsjóðsins skipa:
Þuríður Pálsdóttir, Anna Snorradóttir,
Mist Þorkelsdóttir, Halldór Hansen og
Ármann Reynisson. Þeir sem hyggjast
sækja um úthlutun úr sjóðnum eru beðnir
um að senda skriflegar umsóknir, þar sem
gerð er grein fyrir fyrirhuguðum verkefn-
um, fyrir 1. maí nk. til Tónlistarsjóðs
Ármanns Reynissonar, Laugavegi 97,
Reykjavík.
Afmæli
80 ára er í dag, 17. mars, frú Þórunn
Pálsdóttir. Hún og eiginmaður
hennar, Þorgeir G. Guðmundsson
trésmíðameistari, eru nú til heimilis
í Seljahlíð, dvalarheimili aldraðra
að Hjallaseli 55 hér í Reykjavík.
Ætla þau að taka þar á móti gestum
milli kl. 17 og 20 í kvöld.
Ég vil njóta kyrrðar morgunsins
í friði, en aldrei þessu vant hlustaði
ég á rás 1 og var þeirrar ánægju
aðnjótandi að heyra Ólaf H. Torfa-
son lýsa frumsýningu Leikfélags
Akureyrar á Kabarett af slíkri hrifn-
ingu að mann langaði strax að fljúga
norður.
Annars hlusta ég mest á rás 1 á
sögur og ljóðalestur, útvarpsleikrit,
dagskrár ýmiss konar auk allra
hinna mörgu alþýðlegu fræðsluþátta
svo sem vísindaþáttinn, Torgið,
Sinnu og fleira af slíku tagi. Land-
póstinn reyni ég líka að hlusta á og
leiðara landsmálablaða. Það gefur
þéttbýlisbúa svolitla hugmynd um líf
og vandamál fólks í dreifbýli. í
kvöldfréttunum hlustaði ég mest eft-
ir stöðu í samningamálum kennara
og kom þar ekkert nýtt fram. Yfir-
leitt er ég mjög ánægð með fréttimar
á rás 1 og reyni að missa ekki af
þeim og mikið firrnst mér gaman að
heyra í fréttariturum okkar um allan
heim. Ég horfði á fréttimar á Stöð
2. Það er kostur við þeirra fréttir að
þeir leitast við að segja frá því sem
gerist í kringum okkur og ekki kem-
Helga Hjörvar.