Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.1987, Side 32
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta-
skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 1.500
krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greið-
ast 4.500 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt.
Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022
Frjálst, ohaö dagblaö
ÞRIÐJUDAGUR 17. MARS 1987.
Atkvæðið
sem vantaði
var ekki
boðað
Aðeins vantaði eitt atkvæði gegn
gamla bílnúmerakerfinu á fundi neðri
deildar Alþingis klukkan 11 í gær-
morgun til að allir íslenskir bílar
fengju nýtt númer.
„Eg fékk aldrei fundarboð. Ég vissi
ekki af þessum fundi,“ sagði Guð-
mundur Bjamason, þingmaður
Framsóknarflokksins, en hann hugð-
ist styðja nýja bílnúmerakerfið.
Þrír aðrir þingmenn, sem ekki voru
viðstaddir atkvæðagreiðsluna í gær-
morgun, eru ekki taldir andstæðingar
nýja kerfisins.
Þingmenn efri deildar eru ekki ýkja
hrifnir af því að halda í gamla kerfið.
Virðist líklegt að sameinað þing verði
að skera úr um ágreininginn.
-KMU
- sjá bls. 5
Fannfergi í Eyjum:
Björgunar-
sveitir til
aðstoðar
Ómar Garöaisaan, DV, Vestrnannaeyium;
Vestmannaeyingum brá í brún í
morgun, þegar þeir risu úr rekkju, því
mikill snjór hafði fallið í nótt. Tal-
svert fjúk fylgdi snjókomunni, þar sem
austan strekkingur var.
Karl Jónsson, varðstjóri í lögregl-
unni, sagði í samtali við fréttaritara
DV í morgun að nær allar götur bæjar-
ins væru ófærar. Þá var Hamarsskóli,
sem er bamaskóli, lokaður.
Hjálparsveit skáta og Björgunarfé-
lag Vestmannaeyja, sem hafa yfir að
ráða kraftmiklum bílum, vom í morg-
un fengnar til að aðstoða fólk við að
komast til vinnu sinnar. Þá vom
snjómðningstæki að fara af stað um
áttaleytið í morgun til að ryðja götur.
^26000
LOKI
Af hverju málflutningur
eftir kosningar?
Slitnaði upp úr samningaviðræðum HIK og
Kennarar hækkuðu
kröfúr sínar í gær
segja tilboð ríkisins of lágt fyrir 2ja ára samnlng
í gærkveldi slitnaði upp úr samn-
ingaviðræðum kennara og ftdltrúa
fjármálaráðuneytisins. Nýr samn-
ingafundur heftir ekki verið boðaður
og sagði Guðlaugur Þorvaldsson
ríkissáttasemjari að það yrði ekki
gert í dag. Hann sagðist vera í sam-
bandi við deiluaðila og myndi hann
boða fúnd um leið og menn teldu það
hafa einhverja þýðingu. Svo væri
ekki á þessari stundu.
„Ástíéðan fyrir því að upp úr slitn-
aði var sú að þegar við komum til
samningafúndar síðdegis í gær komu
kennarar fram raeð nýjar og hærri
kröfúr en við höfðum verið að ræða
nóttina áður. Fyrst héldura við að
um mistök væri að rseða en i Ijós
kom að svo var ekki. Þar með var
Ijóst að ekki var gmndvöllur til frek-
ari viðræðna," sagði Indriði H.
Þorláksson, skrifstofústjóri fjár-
málaráðuneytisins, í samtali við DV
í raorgun.
„Sannleikurinn er sá að fjármála-
ráðuneytið hefúr ekkert breytt fyrsta
tilboði sínu. Við höfúm eiginlega
bara verið á hringferð innan þess.
Og þetta tilboð ríkisins er alltof lágt
fyrir 2ja ára samning, en rikið setur
það sem skilyrði að samið verði til
2ja ára. Ef íjármálaráðimeytið ætlar
að standa fast á þeim samningstíma
verður það að hækka tilboð sitt
verulega frá því sem nú er,“ sagði
Kristján Thorlacius, formaður kenn-
ara, í morgun.
Indriði H. Þorláksson sagði að
þegar svona sprenging yrði og upp
úr slitnaði gæti verið erfitt að finna
þráðinn að nýju. En fúlltrúar fjár-
málaráðuneytisins væm tilbúnir að
hefja samningaviðræður að nýju á
þeim grundveUi sem menn hefðu
verið að ræða á undanfama daga.
Kristján Thorlacius aagði málið nú
alfarið í höndum sáttasemjara og
það væri hann sem myndi boða til
næstafúndar.
-S.dór
Það var fönguleg fylking sem Ijósmyndari DV mætti í Lönguhlíðinni þegar hann var á ferð um bæinn. Þar var
á ferðinni fjölskylda sem hafði fengið sér göngutúr til að anda að sér hreinu lofti. Að sjálfsögðu var tækifær-
ið notað til að viðra heimilishundinn. Og eins og sjá má hjálpast allir að eins og vera ber í stórri fjölskyldu.
Heimilisfaðirinn ekur tviburakerrunni og annar litli farþeginn teymir hundinn. Til hreinnar fyrirmyndar, ekki satt?
DV-mynd GVA
Menntamálaráðherra:
„Geri ekkert
ekki handtak
'l
„Ég geri ekkert í þessu máli, ekki
handtak, það er í annarra höndum,"
sagði Sverrir Hermannsson mennta-
málaráðherra í morgun um strandið í
launadeilu háskólamenntaðra kenn-
ara og ríkisins. „Það kemur ekki til
nokkurra mála að hugleiða lög, hvað
þá meira,“ sagði ráðherrann.
„Þetta er gamli siðurinn, sem ég
þekki frá því að ég var í verkalýðs-
baráttunni. Það vill ýmislegt festast í
farinu á fyrstu dögum verkfalls. Menn
eru upptekriir af áflogunum. Við verð-
um að beita þolinmæði. Ætli verkfallið
standi nema þessa viku, við verðum
bara að sjá til.“
„Já, ég sagði unglingunum á dögun-
um að þeir skyldu búa sig undir að
taka sín próf í vor. Það stendur. En
hvemig við förum að því er annað
mál. Það er ekki komið að því úrlausn-
arefrii. Skaðinn er skeður, verkfall er
skollið á. Ég er hins vegar alveg viss
um að menn sameinast um hagsmuni
unglinganna þegar rimman er um garð
gengin," sagði Sverrir Hermannsson.
-HERB
Veðrið á morgun:
Kalt um
allt land
Norðanátt og kalt um allt land.
Éljagangur um landið norðanvert
en bjartviðri syðra. Frost á bilinu
4-12 stig.
Hæstiréttur:
Útvarpsmálin
flutt í apríl
Málflutningur fyrir Hæstarétti í svo-
kölluðum „útvarpsmálum" verður
haldinn 27. og 29. apríl. Fyrri daginn
verður réttað í málum frjálsu útvarps-
stöðvanna þriggja og seinni daginn í
máli forráðamanna starfsmannafélaga
Ríkisútvarpsins og sjónvarpsins á
þeim tíma er BSRB-verkfallið var 1984.
Sem kunnugt er af fréttum voru forr-
áðamenn fijálsu útvarpsstöðvanna
sakfelldir í héraði fyrir ólöglegan út-
varpsrekstur og dæmdir til greiðslu
fésekta en ríkisstarfsmennirnir voru
sýknaðir af því að hafa efnt til ólög-
legra aðgerða.
Málin, sem flutt verða í Hæstarétti,
eru gegn Fréttaútvarpinu, Frjálsa út-
varpinu og útvarpi því er starfrækt
var á ísafirði á þeim tíma sem BSRB
verkfallið stóð yfir í október 1984.
-FRI
t
f
f
f
f
i
f
f
f
f
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
á