Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.1987, Qupperneq 4
50
LAUGARDAGUR 28. MARS 1987.
ÚTBOÐ
Efnisvinnsla á Suðurlandi 1987
f Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í ofan- greint verk. Magn 49.000 rúmmetrar.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins á Selfossi og i Reykjavík (aðalgjaldkera) frá og með 30. mars nk.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14.00 þann 13. apríl 1987.
Vegamálastjóri
Alex
Meyja með
ÚTBOÐ
Súgandafjörður 1987
Vegagerð rikisins óskar eftir tilboðum í ofan-
greint verk. Lengd vegarkafla 2,4 km, fylling
1.500 m3, neðra burðarlag 4.600 m3.
Verkinu skal lokið 10. júli 1987.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins
á ísafirði og í Reykjavík (aðalgjaldkera) frá og
með 30. mars nk.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl.
14.00 þann 13. apríl 1987.
Vegamálastjóri
Úthlutun úr Sáttmálasjóði
Umsóknir um utanfararstyrki og verkefnastyrki úr Sátt-
málasjóði Háskóla íslands, stílaðar til háskólaráðs,
skulu hafa borist skrifstofu rektors í síóasta lagi 30.
apríl 1987.
Tilgangi sjóðsins er lýst í 2. gr. skipulagsskrár frá 29.
júní 1919 sem birt er í Árbók Háskóla íslands
1918-1919, bls. 52.
Umsóknareyðublöð og nánari úthlutunarreglur, sam-
þykktar af háskólaráði, liggja frammi í skrifstofu
Háskóla íslands hjá ritara rektors.
rm
Atvinna
Laus er til umsóknar staða hafnarvarðar hjá Ólafs-
fjarðarhöfn.
Um er að ræða framtíðarstarf og starfsaðastaða er
mjög góð. Æskilegt er að umsækjandi hafi skipstjórn-
arréttindi eða starfsreynslu í sjómennsku.
Nánari upplýsingar gefa form. hafnarnefndar, Óskar
Þór Sigurbjörnsson, í síma 62134, og bæjarstjóri, í
síma 62214.
Frestur til að skila inn umsóknum á bæjarskrifstofuna
í Ólafsfirði rennur út 31 /3 1987.
VIKAN
F YRIRTÆKI -
ATVINNUREKENDUR!
VIKAN
er ekki sérrit, heldur fjölbreytt, víðlesið
heimilisrit, og býður hagstæðasta aug-
lýsingaverð albra íslenskra tímarita.
Kuldinn er með rakara móti daginn sem leiðin liggur til
hins franska hárgreiðslumeistara Alexandre í París. Meistar-
ann þarf vart að kynna. Hann er óumdeilanlega konungur
hártískunnar og hefur haldið þeim titli lengi. Og það er betra
að vera tímanlega því Alexandre er mjög nákvæmur og ákaf-
lega upptekinn maður- vinnualki að eigin sögn og annarra.
Parísarbúar þramma áfram með uppbretta kraga, hleypa í
herðamar og óþreyjan eftir sumrinu lýsir úr hverju skrefi.
Enda er þetta eldsnemma morguns og fæstir borgarbúar
fæddir morgunhanar af guðs náð. Alexandre byrjar hins veg-
ar daginn snemma og er kominn á fulla ferð þennan morgun.
„Það er vegna þess að ég vil hafa
nóg að gera og er að auki haldinn
fullkomnunaráráttu. Enda er ég
meyja með tunglið í ljóni, það er að
segja hálft Ijón og hálf meyja. Sú
staðreynd gerir það að verkum að
helst allir skapaðir hlutir í kringum
mig þurfa að vera óaðfínnanlegir.
Ég vinn eins og hestur, verð helst
líka að vera sjálfur í miðpunkti allra
aðgerða og hætti aldrei við verk fyrr
en ég er fullkomlega ánægður með
árangurinn.
Spákonan las í stjörnurnar
Upphaflega ætlaði ég alls ekki að
verða hárgreiðslumaður en langaði
óskaplega til að læra tískuteiknun.
Komast á toppinn eins og til dæmis
Yves Saint Laurent er í dag. Þegar
ég var sextán ára las spákona það í
stjörnunum að óþekkt eiginkona
konungs myndi gera mig frægan.
Hún sagðist sjá gull og konunglegar
virðingar „ ... en framhaldið er þitt
eigið verk og þú færð ekkert að vita
meira - nema kannski það að þú átt
eftir að eiga tvö böm“. Síðar átti frú
Simpson, sem varð eiginkona tilvon-
andi Bretakonungs, eftir að ger-
breyta lífi mínu.“
Hátignin valdi lærling
Hann hóf störf hjá hárgreiðslustofu
í heimaborginni St. Tropez hjá hin-
um fræga Antoine þar sem viðskipta-
vinirnir voru sveipaðir dýrindis
refaskinnum og bám gull á hverjum
fingri. Einn daginn sveif þar inn
glæsileg frú sem benti á þennan
fimmtán ára lærling með fasi þess
sem ekki er vanur mótbárum.
„Yfirmaður stofunnar kom til mín
og sagði:,, Alexandre, hennar hátign,
Clementine af Belgíu, vill fá að sjá
þif“
Ég var látinn greiða henni og fékk
hundrað franka í þjórfé. Næsta dag
kom svo bílstjóri hennar hátignar í
Rolls Royce með stóra súkkulaði-
öskju. Frúin kom þarna svo til
daglega og alltaf fékk ég það hlut-
verk að greiða henni svo allir á
stofunni öfunduðu mig. Þetta var
prinsessan, ættingi Napóleons kon-
ungs, sem þarna var enn á lífi. Og
hún mætti ekki aðeins sjálf heldur
sendi allar vinkonur sínar líka.“
Hjónaband og stríðsrekstur
Síðan kom stríðið og þá vildi hann
kvænast. Fannst það öruggara á
þessum ófriðartímum. Alexandre bað
fóður sinn leyfis en hann neitaði: „Þú
ert svo mikið bam ennþá.“
„Móðir mín grét hins vegar og
sagði mér að gera það sem ég vildi.
„Hann deyr í stríðinu og ég vil eign-
ast barnabörn," sagði hún milli
gráthviðanna.
Ég fór í stríðið og kvæntist líka og
móðir mín fékk ósk sína uppfyllta í
dóttur minni, Daniéle, sem er líffræð-
ingur."
Einn fjölskylduvinurinn var lækn-
ir og gerði Alexandre að aðstoðar-
manni sínum - eins konar
Meðan viðtalið stendur yfir er meistari Alexandre ekki í rónni viö skrifborðið heldur hendist um herbergið. Og hann
er eins og aðrir Frakkar að því leyti að hann notar hendurnar til jafns við talfærin til tjáningar.
Texti og DV-myndii