Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.1987, Side 13
LAUGARDAGUR 28. MARS 1987.
59
Mér finnst mjög gaman að þessu
en það má enginn halda að ég vilji
vera einhver atvinnumanneskja í
þessu. Jú, auðvitað fæ ég svolítið út
úr þessu sjálf en yfirleitt tek ég bara
föt fyrir.
Ég dreif bæði konuna hans Ragn-
ars Margeirssonar og eiginkonu
Eddie Krencevic (leikmaður hjá
Anderlecht) með mér og þann 25.
mars sýndum við í fyrsta skipti sam-
an. Ingunn hefur náttúrlega sýnt
heima á Islandi og eiginkona Eddie
var módel í Ástralíu þannig að þær
eru engir viðvaningar.
Ég myndi ráðleggja stúlku, sem
væri að fara út með eiginmanni eða
unnusta, að læra málið, það er núm-
er eitt, og síðan að koma sér sjálf
áfram á sínum eigin vegum.
Það þýðir ekkert að gera ráð fyrir
að atvinnumaðurinn hafi tíma til að
finna eitthvað fyrir okkur. Það þýðir
heldur ekkert að sitja og bíða eftir
honum allan daginn og ætlast til
þess að hann haldi uppi einhverjum
skemmtiatriðum á kvöldin þegar
hann kemur loks dauðþreyttur heim.
Ólöf og Arnór eiga son á níunda
ári sem heitir Egill Smári. „Uppeldi
sonarins hefur gengið vel,“ segir Ól-
öf. „Málið kom af sjálfu sér en hann
byrjaði kannski aðeins seinna að
tala. Við tölum alltaf við hann á ís-
lensku og íslenskan og flæmskan
komu strax. Hann talar líka góða
ensku og er að byrja að læra frönsku
í skólanum.
Auðvitað er erfitt íyrir hann að
halda íslenskunni alveg þar sem
hann er í erlendum skóla. Hann var
þriggja ára þegar hann fór í leik-
skóla og svo fór hann í skyldunám
sex ára. En hann les dálítið í íslensk-
um bókum; það vefst helst fyrir
honum að skrifa íslenskuna.
Uppeldið gekk vel en hann er ekki
alinn upp eftir einhveijum sérstök-
um bókum. Við leggjum áherslu á
að hann komi vel fram við foreldra
sína og sé kurteis. Það er mikið lagt
upp úr því hér í Belgíu, ekki síst að
DV-mynd Eirikur Jónsson
Amóri bréf upp á Anderlecht. Ég
þurfti að fara í viðtal og var þá rit-
ari sendiherrans hér í Belgíu við-
staddur þar eð hún átti að komast
að því hvort ég kynni ennþá íslensku
eftir þessi átta ár sem ég hef búið í
Belgíu," segir Ólöf og hlær og bætir
við: „Svo var ég strax ráðin í þetta
og hlakka mikið til.“
Arnór Guðjohnsen og Olöf Einarsdóttir, nýgift og alsæl, með soninn Egil Smára á milli sín.
börn séu kurteis og beri virðingu
fyrir ömmum og öfum og eldra fólki
yfirleitt. Egill Smári er líka mjög
sjálfstæður og við höfum reynt að
ala hann þannig upp,“ segir Ólöf
ákveðin.
Túlkur í söngvakeppninni
Hvað skyldi svo vera framundan
hjá Ólöfu?
„Næsta verkefni hjá mér er að sjá
um íslendingana sem koma hingað
vegna söngvakeppni evrópskra sjón-
varpsstöðva. Undirbúningurinn hér'
hefst 28. mars en íslendingamir
koma 3. maí. Ég mun verða með þeim
alla þessa sjö daga sem þau verða
hérna. í fyrsta lagi er ég fararstjóri
og í öðru lagi túlkur. Það er mikið
um blaðamannafundi og kokkteilboð
og svo boð í íslenska sendiráðinu.
Kvenfólkinu þarf ég að koma í hár-
greiðslu og snyrtingu fyrir keppnina
svo það er heilmikið að snúast í
kringum þetta. Ég þarf alltaf að vera
reiðubúin til að vera þeim innan
handar með hvaðeina," segir Ólöf.
„RTBS-sjónvarpsstöðin, sem sér
um keppnina, réð mig í þetta og sendi
AD SPARNAÐUR ÞINN STANDI Á TRAUSTUM GRUNNI
I sparnaöi er ekkert mikilvægara en örugg og
traust undirstaða. Mikil hagnaðarvon getur á
svipstundu orðið að engu sé öryggið ekki
tryggt. Spariskírteini ríkissjóðs eru ótvírætt
öruggasta og traustasta fjárfesting sem þér
býðst, því að baki þeim stendur öll þjóðin.
Auk þess tryggja spariskírteini ríkissjóðs þér
háa raunávöxtun til margra ára, fullar verð-
bætur og þú getur selt skírteinin þegar þér
hentar.Þú átt ekki kostátraustarifjárfestingu.
RIKISSJOÐUR ISIANDS