Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.1987, Síða 15
LAUGARDAGUR 28. MARS 1987.
61
Blaðið mun standa i fylkingarbrjosti i baráttunni gegn kláminu, segir Alice
Schwarzer, ritstjóri þýska kvennablaðsins Emma.
Þýska húsmóðirin
tilheyrir fortíðinni
- segir feministinn Alice Schwarzer
Þýska tímaritið Emma hélt nýlega
upp á tiu ára afmæli sitt. Emma er
feminískt blað og það stærsta í Evr-
ópu sem kennir sig við þá stefnu.
Tímaritið kemur út einu sinni í mán-
uði í áttatíu þúsund eintökum og
stendur fjárhagslega á traustum
grunni.
Alice Schwarzer, útgefandi, rit-
stjóri og eini eigandi Emmu, hefur
því fulla ástæðu til að gleðjast á þess-
um tímamótum blaðsins. En Alice
segist hafa ástæðu til að fagna fleiru
en traustri stöðu Emmu. „Þýska
húsmóðirin er dáin,“ segir hún, sigri
hrósandi. „Hin dæmigerða þýska
húsmóðir sem glöð fórnaði sjálfri sér
og hugsaði um það eitt að skúra,
skrúbba og bóna, elda og baka, hugsa
um börn og gera eiginmanninum til
hæfis heyrir fortíðinni til.“
Og skoðanakannanir sýna það
svart á hvítu að þýskar konur eru í
uppreisnarhug, en kvennabarátta
hefur hingað til átt erfitt uppdráttar
í hinu fastheldna þýska samfélagi.
Vinnan númereitt
„Margar þýskar konur standa að
vísu ennþá í eldhúsinu, en þær eru
ekki lengur ánægðar með það og láta
það óspart í ljós,“ segir Alice og held-
ur áfram, „og það er kvennahreyf-
ingunni og skrifum Emmu að þakka
að við höfum náð svo langt.
Meira að segja þær íhaldsömustu
úr hópi ungra kvenna eru farnar að
krefjast þess að karlmennirnir axli
sinn hluta ábyrgðarinnar á heimili
og börnum. Og þessar konur langar
einnig til að mennta sig og nýta þá
menntun í starfi. Þar með eru íhalds-
konur í dag farnar að tala um það
sem aðeins róttækustu feministar
töluðu um fyrir tíu árum.
Það hefur átt sér stað hljóðlát bylt-
ing meðal kvenna í sambandslýð-
veldinu. í dag eru einni milljón fleiri
konur virkir þátttakendur í atvinnu-
lifinu, en var um 1970 þegar nýja
kvennahreyfingin kom til sögunnar.
Þessar konur hafa þyrpst út á vinnu-
markaðinn þrátt fyrir atvinnuleysi
og kreppu. Hversu margar hefðu þær
ekki getað orðið ef efnahagsástandið
hefði verið betra?
Ég óttaðist að margar ungar konur
myndu flýja kreppuna og leita skjóls
í tálsýnum fjölskyldulífsins. En
raunin varð önnur. í dag er vinnan
efst á forgangslista allra kvenna, en
fjölskyldan í öðru sæti,“ fullyrðir
Alice.
Klámiö blómstrar
En ritstjóri Emmu sér líka slæm
teikn á lofti fyrir konur og réttinda-
baráttu þeirra. Klámiðnaðurinn
blómstrar sem aldrei fyrr. „Áður
sáust klámmyndir eingöngu í sérrit-
um ætluðum körlum, nú eru myndir
af nöktu kvenfólki farnar að birtast
í alls kyns blöðum ætluðum almenn-
ingi. Og það er ekki bara kvenlíkam-
inn sem slíkur sem er gerður að
markaðsvöru, heldur er farið að sýna
myndir af bundnum og hlekkjuðum
konum, sem er misþyrmt. Bylgja sad-
isma tröllríður nú öllu. Og þegar það
rifjast upp fyrir manni að annarri
hverri konu er einhvem tímann
nauðgað og þriðja hver verður fyrir
sifjaspellum, er ekkert undarlegt að
konum ofbjóði.
Þetta er sálfræðilegur hemaður
sem miðar að því að grafa undan
nýfengnu sjálfstæði kvenna. Þetta
er nýi karlmaðurinn að svara fyrir
sig. Klámiðnaðurinn þenst út og al-
mennir miðlar eru orðnir hallari
undir klám en áður. Sumir halda því
fram að þetta sé spurning um frelsi,
en það er ekkert frelsi að fá að niður-
lægja aðrar manneskjur. Emma mun
skipa sér í fremstu sveit og beijast
gegn þessari þróun af öllum mætti,“
segir Alice.
Róttækt kvennablað
Alice segir Emmu vera feminískt
tímarit og tilheyra róttækasta armi
hinnar nýju kvennahreyfingar.
„Við höfnum öllu tali um sérstakt
eðli kvenna og um leið að til sé eitt-
hvert séreðli gyðinga, svertingja eða
öreiga. Kjarninn í kenningum af því
tagi er hugmyndin um meðfædda
kvenlega eiginleika og meðfædda
karlmennsku. Okkar von er sú að
einhvern tímann verði öllum mann-
eskjum - körlum og konum - gert
kleift að vera þær sjálfar, án þess að
samfélagið sé að troða upp á þær
einhverjum hlutverkum." Alice
Schwarzer segir stærsta sigur Emmu
vera fólginn í því að hafa lifað af
óbuguð. Það er ekki síst því að þakka
að við blaðið starfa atvinnumenn í
blaðamennsku. „Við lærðum þetta
fag í hörðum heimi karlaveldisins.
Og okkur hefur tekist að búa til blað
sem höfðar til breiðs hóps lesenda.
Emma er í orðsins bestu merkingu
almenningstímarit. Þess vegna er
heldur ekki svo létt að bola því út
af markaðnum.
En það er reyndar kraftaverk að
Emma skuli hafa komist af. Við á
blaðinu - þá sérstaklega ég - höfum
verið skotspónn sannkallaðra
nornaveiða. Það hefur ekki farið
fram nein málefnaleg umfjöllun um
efni blaðsins, heldur hefur umræðan
íyrst og fremst verið níð um mig sem
persónu.
Ménn hafa sett samasem merki á
milli mín og blaðsins, þrátt fyrir að
hér starfi margar aðrar konur. Því
hafa menn ráðist á mig fyrir það sem
þeim hefur mislíkað í blaðinu," segir
Alice Schwarzer, útgefandi og eig-
andi tímaritsins Emma.
-snarað/VAJ
W
LAUGARDAGS-
KYNNING
AUSTAST
v/STÓRHÖFÐA
Kynning á hinum þekktu
Revigrés
vegg- og tréflísum.
Kynningarafsláttur.
VESTAST
v/HRINGBRAUT
Kynning á Hörpu-
málningarvörum.
Kynningarafsláttur.
Sérfræðingar á staðnum
OPIÐ
KL. 8-18
VIRKA DAGA,
KL. 10-16
LAUGARDAGA.
2 góöar
byggingárvöruverslan ir,
austast óg vestast i borginni.
Stórhöföa, sími 671100
Hringbraut, sími 28600.
VILTU S/ETTAST
VIÐ VIGTINA?
AUK hf. 9.169/SlA