Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.1987, Síða 20
66 LAUGARDAGUR 28. MARS 1987.
Sérstæð sakamál i> v
Óforbetranlegur
Hann hafði nýlega verið látinn
laus til reynslu en kom svo við sögu
morðmóls á jólunum í franska bæn-
um Colmar. Hann var þó ekki sá eini
sem tengdist málinu á athyglisverð-
an hátt. Það gerði líka níu ára
gamall drengur sem fann morðvop-
nið, hníf, í brunni langt frá staðnum
þar sem ódæðið hafði verið framið.
Langaði í hníf í jólagjöf
Peter Schmidt vissi nákvæmlega
hvað hann langaði til að fá í jóla-
gjöf. Hann vildi fá veiðihníf en hann
átti ekki peninga fyrir honum og
vissi að hann þyrfti ekki að búast
við því að jólasveinninn kæmi með
hann til Colmar til þess að færa hon-
um hann.
Peter var aðeins níu ára og munað-
arlaus en hann var svo lífsreyndur
að hann vissi hvar hann myndi
sennilega geta fengið þá peninga sem
hann þyrfti til að geta uppfyllt ósk
sína um að eignast hnífinn.
Það var aðfangadagur þegar Peter
lagði einn af stað í langa gönguferð
til fjallabæjarins Riquewihr en hann
í snjónum en ákvað svo að hverfa
úr miðbænum og halda inn í fáfarið
íbúðarhverfi. Þar kom hann svo auga
á bensínstöð. Hann fylgdist með
henni. Svo tók viðskiptavinurinn
upp veskið og borgaði fyrir sig er
tankurinn hafði verið fylltur. Horst
umqvéi
Nú er líf í tuskunum og
við erum í hátíðarskapi
þessa dagana, því við
erum að taka upp nýju vor- og sumar-
línuna í álnavöru. Dustið nú
rykið af saumavélunum
eða lítið við hjá Pfaff hf. _
eða Gunnari Ásgeirssyni hf.
og nýtið ykkur tilboð þeirra.
Húsmæður
góðar, hafið
þið hugleitt,
að þið
getið saumað ykkur
þrjár flíkur fyrir eina
tilbúna?
Q Hvað með börnin og bónd-
ann? Og.allar hátíðirnar
framundan?
Öll getum við orðið okkar eiginjískuhönn-
uðir. Sníöapakkarnir okkar
eru svo aðgengilegir og holl-
ensku blöðin full af nýjungum(
Nú er í tísku aðTianna og
sauma fötin sín sjálfur.
í tilefni af
því bjóðum
við undirritaðar ykkur
hjartanlega velkomnar
í sértilboðin okkar
um land allt. Hlökkum
til að sjá ykkur.
Kveðja,
Sdmadagdr23r51.mrs
Vefta, Reykjavik
Inga, Kópavogi
Nýja línan, Akranesi
Thelma, Seltjamarnesi
Hjá Sigríöi, Reykjavfk
Horn, Kópavogi
Frístund, Hafnarfiröi
Nafnlausa búöin, Reykjavík og Hafnarfiröi
Dðmu- og herrabúðin, Reykjavík
Útsölustaðir:
Zikk-zakk, Garöabæ
Álnabúöin, Mosfellssveit
Nanó, Kópavogi
Metra, Reykjavík
Álnabær, Keflavík
Hannyrðaverslunin Iris, Selfossi
Teko, Reykjavík
Enoss, Akureyri
Palóma, Grindavík
Egill Jacobsen, Reykjavík
Amaro, Akureyri
Skemman, Akureyri
Virka, Reykjavik
Rún, Grindavík
Klemma, Húsavík
Pálína, Akureyri
Baðstofan, Isafirði
Vogue, Reykjavík og Hafnarfirði
Bjólfsbær, Seyðisfirði
Mósart, Vestmannaeyjum
Femina, Keflavík
Þóra, ólafsvík
Hólmkjör, Stykkishólmi
Efnaval, Vestmannaeyjum
Pöntunarfélag Eskfiröinga, Eskifiröi
er hátt uppi í Vogesafjöllum, um átta
kílómetra frá Colmar. Það snjóaði.
Örvæntingarfullur
Þennan aðfangadag var á ferð i
Colmar maður sem vildi komast yfir
peninga hvað sem það kostaði. Hann
var félaus og orðinn örvæntingar-
fullur.
Þetta var Horst Grindle, tuttugu
og fimm ára gamall, en fyrr um dag-
inn hafði hann verið látinn laus úr
fangelsi til reynslu. Hann hafði verið
dæmdur fyrir vopnað rán og hafði
afplánað helming refsivistarinnar er
hann fékk frelsið á ný. Hann var nú
svangur og vissi ekki hvar hann ætti
að komast yfir peninga fyrir næstu
máltíð. Að vísu var hann með nokkra
franka í vasanum en þeir myndu
aðeins duga fyrir einni pylsu og
brauðsneið.
Komiö aö lokunartíma
Það var komið að lokunartíma
verslana í Colmar. Síðustu við-
skiptavinimir voru að halda heim á
leið með innkaupapokana sína. Allir
verslunargluggarnir voru fagurlega
skreyttir og í öllum veitingahúsum
og krám, sem Horst Grindle gekk
fram hjá, sat glatt fólk og beið þess
að jólahátíðin gengi í garð.
Horst þoldi ekki að sjá þetta glaða
og áhyggjulausa fólk. Hann gekk um
var nú kominn svo nærri að hann
sá að afgreiðslumaðurinn lagði pen-
ingana í peningakassann á borðinu
hjá honum. Augnabliki síðar var við-
skiptavinurinn á bak og burt.
Lausnin fundin
Horst Grindle þóttist nú vera búinn
að eygja lausnina á vanda sínum.
Það gat ekki hjá því farið að mikið
bensín hefði verið selt fyrir jólin; já,
það hlutu að vera haugar af seðlum
í peningakassanum á borðinu. Hann
þyrfti aðeins að komast yfir þá og
þá þyrfti hann engu að kvíða á næs-
tunni.
Hann læddist nú nær bensínstöð-
inni og loks var hann kominn svo
nærri að hann sá að á borðinu við
hliðina á peningakassanum lá veiði-
hnífur. Mátti helst ætla að af-
greiðslumaðurinn hefði hann þar til
þess að geta gripið til hans sér til
vamar ef einhver ætlaði að reyna
að ræna frá honum peningum.
Kassinn nær tómur
Horst leit í kringum sig í stutta
stund en hljóp síðan inn um dymar
á bensínstöðinni, greip veiðihnífinn
og ógnaði afgreiðslumanninum, Carl
Fisher, með honum. Skipaði hann
honum að opna peningakassann og
afhenda sér allt fé sem í hann hefði
komið um daginn.