Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.1987, Síða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.1987, Síða 15
MÁNUDAGUR 6. APRÍL 1987. 15 Eru þeir sem guma mest af góðærinu að glutra því niður? Áður en „borgar,astyrjöld“ sjálf- stæðismanna yfirskyggði allt annað - í umræðum um'stjómmál bar mikið á því í málflutningi forystumanna Sjálfstæðisflokksins, og reyndar einnig Framsóknarflokks, að þeir gumuðu af góðærinu og teldu sig vera á réttri leið. Sprengiíramboð Alberts Guðmundssonar hefur að minns.ta kosti um sinn gjörbreytt umræðunum og beint athyglinni að öðru. En málefni mega ekki drukkna í málæði um valdabaráttu sjálfstæð- ismanna, sem nú bjóða fram í tvennu lagi. Lítum nánar á góðærið, sem ríkis- stjómin gumar af. Er allt í stakasta lagi í efnahagsmálunum um þessar mundir? Skilar ríkisstjómin af sér góðu búi? Því miður er myndin ekki jafnbjört og stjómarflokkamir vilja vera láta. Eins og allir vita áraði vel í fyrra. Gott árferði og hófsamlegir kjara- samningar færðu þjóðarbúskapinn vemlega í átt til jafhvægis. Eigi ein- hver einn, innlendur aðili heiður skilinn fyrir árangurinn í fyrra, þá er það verkalýðshreyfingin en ekki ríkisstjómin; hún skal þó njóta sannmælis fyrir að hafa greitt fyrir samningum í fyrra. Á fyrstu mánuð- um þessa árs sjást þess hins vegar greinileg merki að þessi farsæla þró- un sé á enda. Góðærið engin nýlunda Góðæri er engin nýlunda í íslensk- um þjóðarbúskap. Á undanfomum áratugum hafa metafli og batnandi viðskiptakjör oft fylgst að. Iðulega hefur síðan komið bakslag. Góðær- inu hefur gjaman fylgt mikil þensla, sem stjómvöld hafa oft orðið til að magna. Fyrir vikið hefúr bakslagið orðið erfiðara viðfangs en þurft hefði KjaUaiiim Jón Sigurðsson hagfræðingur að vera. Afleiðing þessa hefur verið landlæg verðbólga og óhófleg skuldasöfhun erlendis. Vonir stóðu til þess í fyrra, að tekist hefði að ijúfa þennan vítahring. Þær vonir dofiia nú óðum. Hættumerki Hættumerkin er meðal annars þessi: Halli á fjárlögum fyrir árið 1987 er nærri 3 milljarðar króna þrátt fyrir góðærið. Líklegt virð- ist, að hallinn á ríkissjóði verði meiri en stefnt er að í fjárlögum. Á bak við þennan halla býr án efa meira misvægi í ríkisfjármál- um, af þeirri einfoldu ástæðu, að í góðæri em tekjur ríkissjóðs af veltusköttum meiri en í meðal- ári. Tölur ríkisbókhalds fyrstu tvo mánuði þessa árs sýna miklu meiri halla en á sama tíma í fyrra. Utlán bankanna vaxa nú mun örar en innlán. Fyrstu tvo mánuði ársins jukust útlán um 4 14 milljarð króna en innlán um rúmlega 214 milljarð. Af aukn- ingu útlána er 114 milljarður króna vegna kaupa bankanna á víxlum af ríkissjóði. En jafnvel að þessum kaupum frátöldum em umskiptin í þensluátt mikil frá því í fyrra, því þá jukust útl- án um rösklega 1 milljarð króna en innlán um 214 milljarð fyrstu tvo mánuði ársins. Lausatök ríkisstjómarinnar á rík- isíjármálum og peningamálum bera því vitni, að kosningar em í nánd. Ríkisstjómin hefur að undanfómu tekið ýmsar útgjaldaákvarðanir, sem munu auka hallann. Hér má nefiia auknar niðurgreiðslur á búvörum og framlög til framkvæmda utan fjárlaga; að ekki sé minnst á allt að 800 milljón króna framlag til þess að endurreisa Útvegsbankann. Þá hefur ríkisstjómin nýlega skuld- bundið ríkissjóð til að ábyrgjast sölu á landbúnaðarafurðum næstu fjögur árin í aðalatriðum á gmndvelli nú- verandi framleiðslumagns, sem í senn felur í sér, að offramleiðsla á búvöm er fest í sessi og miklar greiðslukvaðir fyrir ríkissjóð. Þá er nú ljóst, að launahækkanir opin- berra starfsmanna á árinu verða mun meiri en gert er ráð fyrir í fjár- lögum. Opinberir starfsmenn em vissulega verðir launa sinna, en lag- færing á launum þeirra gæti reynst sýnd veiði en ekki gefin, ef ekki er aflað ríkistekna eða dregið úr öðrum útgjöldum til þess að greiða hana. Fjármagna atkvæöakaup Hallinn á ríkissjóði stefhir nú án efa hærra en íjárlögin sýna. Til að fjármagna atkvæðakaup sín selur ríkisstjómin nú almenningi og fyrir- tækjum skuldabréf og bönkunum víxla í miklum mæli, sem þrýstir vöxtunum upp á við. Á sama tíma og ríkissjóður er rekinn með halla er losað um útlánahömlur á bönkun- um. Stjóm peningamála vegur því ekki á móti þensluáhrifum hallans á ríkissjóði. Halli á ríkissjóði, sem er fjármagnaður beint eða óbeint með seðlaprentun eða erlendum lántök- um, magnar hættu á verðbólgu og viðskiptahalla gagnvart útlöndum. Þegar má sjá merki þess, að þróunin stefiii í þessa átt: Verðbólgan er þvi miður ekki um 10-13% á ári um þessar mundir eins og ráðherrar halda fram. Upp á síðkastið hafa verð- breytingar reyndar svarað til 15-20% verðbólgu á ári sam- kvæmt upplýsingum Hagstof- unnar. Verðbólga hér á landi er því enn miklu meiri en í helstu viðskiptalöndum íslendinga, þannig að grundvöllur stöðug- leika í gengismálum virðist vera að bresta. Fari svo er hætt við því að verðbólguhringiða mynd- ist. Viðskiptahalli gagnvart útl- öndum er að myndast á ný, þótt spáð sé meiri útflutningi en nokkru sinni fyrr. Tölur um vöruskiptin við útlönd sýna 114 milljarðs króna halla fyrstu tvo mánuði ársins samanborið við um 14 milljarðs afgang á sama tíma i fyrra. Að einhverju leyti kann áhrifa farmannaverkfalls að gæta í útflutningstölum, en innflutningur hefur aukist mik- ið. í síðustu þjóðhagsspá var spáð 1 milljarðs króna viðskipta- halla á þessu ári. Hann verður mun meiri, ef svo fer fram sem horfir. Skuldasöfnun fslendinga erlendis heldur því áfram. Skortir verulega á hjá ríkis- stjórninni Allt ber þetta að sama brunni. Það er ekki nóg að tala um jafhvægis- stjóm í efhahagsmálum. Það þarf að framkvæma hana líka. í því efni skortir nú vemlega á hjá ríkisstjóm- inni. Af þeim sökum er hætta á þvi. að jafnvægi í þjóða^búskapnum, sem er forsenda þess að unnt sé að koma fram varanlegum umbótum í efna- hags- og atvinnumálum, sé að fara forgörðum. Það á því að vera fyrsta verkefni nýrrar ríkisstjómar að koma á betra jafnvægi í ríkisbúskapnum. Jón Sigurðsson Höfundur er hagfræðingur. Hann er efsti maður á framboðslista Alþýðu- flokksins í Reykjavik við þingkosn- ingarnar 25. apríl. „Halli á fjárlögum fyrir árið 1987 er nærri 3 milljarðar króna þrátt fyrir góðærið. Líklegt virðist, að hallinn á ríkissjóði verði meiri en stefnt er að í fjárlögum.“ Umönnun og aðstoð heima eða stofnanavistun Lokatillaga mín á Alþingi hefur eðlilega ekki fengið neina umfjöllun enda ekki einu sinni mælt fyrir henni. Hún varðar mál sem ég hefi oft hreyft á Alþingi og vissa mín er sú að þar er um hvort tveggja að ræða velferðarmál hið mesta og hag- kvæmismál fyrir samfélagið um leið. Og eitt er víst: Vaxandi þörf kallar á ákveðin andsvör samfélagsins, .tryggingakerfis okkar þó alveg sér- staklega og raunar löngu tímabært að taka hér vel á málum, jafiit af raunsæi sem réttsýni, en með mann- lega reisn og hamingju að leiðarljósi. Annars er tillagan og greinargerð hennar svofeild og skýrir sig að mestu sjálf: „Alþingi ályktar að skora á ríkis- stjómina að endurskoða þau ákvæði almannatryggingalaga sérstaklega sem lúta að greiðslum vegna umönn- unar aldraðra, svo og heimilisupp- bótar til þeirra öldruðu er vilja sem lengst búa að sínu. Hið sama verði athugað varðandi samsvarandi greiðslur tryggingabóta til fatlaðra. Greinargerð Tillaga þessi er flutt nú á lokadög- um þessa þings til að ítreka þær skoðanir flutningsmanns sem hann hefur æði oft reifað með ýmsum hætti bæði á þingi og í bloðum. Hér er nauðsyn biýn á endurskoðun og athugun þess sér í lagi hvemig bein- línis megi spara til framtíðar litið með því að stórhækka heimilisupp- bót til aldraðra og fatlaðra sem vilja búa að sínu, svo og umönnunar- KjáUariim Helgi Seljan alþingismaður fyrir Alþýðubandalagið greiðslur til þeirra sem vilja annast aldraða og fatlaða heima. Hér er líka um mjög vemlegan þátt í mannlegri hamingju og heill samfélagsins að ræða. Við eigum að hverfa í eins ríkum mæli og unnt er frá vistunarstefhunni, sem er dýr lausn og um margt óheppileg, og beina því íjármagni, sem annars færi í dýrar byggingar og dýran rekstur, í heillavænlegri farvegi, fyrir þá öldmðu sér í lagi og fatlaða einnig, til hamingjuauka fyrir fleiri. Þó að þessar greiðslur verði stórauknar mundi um ótvíræðan beinan spamað verða að ræða í heildina tekið. Mál- ið þarf að kanna með heildaryfirsýn að leiðarljósi og samanburði á stofii- anastefhu og stórauknum greiðslum til heimilanna, heimila aldraðra og heimila þeirra sem vilja hlynna að þeim öldmðu heima fyrir svo lengi sem unnt er. Þetta á einnig við um fatlaða þó að lög um þá komi þar að nokkru til móts við aðstandend- ur. Þennan þátt á einnig að taka út úr heildarendurskoðun almanna- tryggingalöggjafarinnar sem hlýtur að koma inn á svo marga ólíka þætti þótt ekki sé dregið úr nauðsyn um- bóta á mörgum fleiri sviðum trygg- ingamála. Flutningsmaður telur rétt í lok þingsetu sinnar að vekja hér athygli á þessu máli enn einu sinni og það með svo beinum hætti sem tillaga þessi gerir ráð fyrir.“ Þörf hjúkrunarrýmis er ærin fer vaxandi g veit raunar ekki hvort miklu er við að bæta því talnaleikir af ýmsu tagi týna fljótt gildi sínu og gleymast. En auðvitað koma bein- harðar peningaupphæðir inn i allt þetta dæmi. Upphæðir vegna umönnunar og heimilisuppbótar eru í dag svo hverfandi miðað við við- bótarkostnað vegna stofnanavistar að ég hygg að þreföldun slíkra greiðslna mundi hvergi nærri nálg- ast virkileikann á flestum stofhun- um a.m.k. Nú má enginn misskilja mig á þann veg að ég sé svo bláeygur að ég haldi að hér sé um allsherjarlausn að ræða. Þörf hjúkrunarrýmis er ærin og fer vaxandi. Framfarir læknavísinda eiga þar eðlilega sinn ríkulega þátt, jafhvel svo að stund- um spyr maður sig inni á slíkri hjúkrunardeild: Hveijum til góðs? En auðvitað á ekki svo að hugsa um mörk lífs og dauða þó það sé í raun hræðilegt að sjá „dáið“ fólk á lífi svo árum skipti. En meginmálið er það að leita þarf allra leiða til þess að fólki sé gert kleift fyírhagslega og félagslega að búa sem allra lengst að sínu eða hjá sínum. Það gerist einfaldlega ekki nema með verulegu átaki. áherslubreytingu í greiðslum trygg- ingakerfis, viðhorfsbreytingu um leið, markvissari heildaryfirsýn og ákveðinni stjómun fjármagns í þá farvegi þar sem það bæði nýtist þjóð- félagi og fólki sem allra best. Skuld okkar við aldraða er ærin Því samfélagið á að vera til fýrir fólkið og færa því allt það sem unnt er til að auka velfamað þess og innri ánægju án alls bmðls eða tilgangs- lausrar sóunar. Um eitt eigum við og hljótum að vera sammála: Skuld okkar við aldr- aða er ærin og við eigum að finna farsælustu lausnina að því marki að reyna að skuldjafha þar sem allra best. Hið sama gildir um fatlaða. Þessi tillögugerð og framkvæmd í kjölfarið yrði utan efa góður áfangi að því markmiði. Því sjálfsagða rétt- lætismarkmiði. Því er þessu hreyft og ég vænti þess að aðrir taki upp merkið og skili þessu sem fyrst heilu í höfn. Þá verða samhjálparsjónarmiðin að verða auðhyggjunni yfirsterkari, en þar er líka komið að mesta máli komandi kosninga. Þær munu þvi trúlega skera úr um það hversu giftusamlega tekst til um farsæla framkvæmd. Helgi Seljan „Upphæðir vegna ummönnunar og heim- ilsuppbótar eru í dag svo hverfandi miðað við viðbótarkostnað vegna stofnanavist- ar að ég hygg að þreföldun slíkra greiðslna mundi hvergi nærri nálgast virkileikann á flestum stofnunum a.m.k.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.