Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.1987, Síða 18
18
MÁNUDAGUR 6. APRÍL 1987.
Spumingin
Hvað finnst þér að fæð-
ingarorlofið eigi að vera
langt?
Helgi Þórðarson verkamaður: Það
er ágætt eins og það er og mætti alls
ekki vera styttra en 3 mánuðir. Karl-
peningurinn hefur ekkert með
fæðingarorlofið að gera því konurn-
ar eiga að vera heima og sjá um
heimilið og börnin.
Jóhanna Lárusdóttir sölumaður:
Mér finnst alveg sjálfsagt að hafa
það 6 mánuði enda veitir ekkert af.
Mér finnst að faðirinn eigi líka að
hafa rétt til þess að taka sér fæðing-
arorlof án þess að það dragist frá
f»A:„„o^.fofi móðurinnar.
Ólöf Sigurðardóttir, starfar í þvotta-
húsi: Ja, allt að 4 til 6 mánuðir, það
tekur sinn tima að jafna sig. Annars
hlýtur nauðsyn á fæðingarorlofi að
fara mikið eftir því hvernig fólkið
vinnur og heimilisaðstæðum öllum.
Hallur Gunnarsson sjómaður: Hálft
ár ætti að vera alveg ágætur tími
fyrir foreldra til að aðlagast þessum
breyttu aðstæðum.
t
Arnar Axelsson fangavörður: Mér
finnst þetta alveg sæmilegt eins og
þetta er daginn í dag, þ.e. þrír mán-
Jóna Hilmarsdóttir afgreiðslustúlka:
Minnst 6 mánuðir og að feðurnir eigi
allavega að fá mánuð án þess að það
dragist frá orlofi móðurinnar.
Lesendur
Sigtúnshópurinn:
„Eilrfur vítahringur^
Fyrrverandi húseigandi skrifar:
Mig langaði að koma á framfæri
áskorun til stjómmálaflokkanna að
undanskildum Alþýðuflokki þar sem
ég hef áreiðanlegar heimildir fyrir
að hann sé eini flokkurinn er hafi
lagt þingsályktun fram þess efnis að
hjálpa svokölluðum Sigtúnshópi úr
ógöngum þeim sem margir eru að
sligast undan. Hópnum sem lenti í
misgengi launa og vaxta út af hús-
næðiskaupum á árunum 1980 til
1983.
Á Sigtúnshópurinn bara að falla
undir gleymda kynslóð sem ekkert á
að gera fýrir? Á að strika okkur
endanlega út, við erum ekki til, þar
sem þeir eru búnir að leggja hundruð
heimila í rúst. Þar á ég meðal ann-
ars við sjálfsvíg út af óendanlegum
skuldahala er enginn réð við. Svo
ekki sé talað um alla þá örvinglun
er fylgdi í kjölfarið. Allstaðar lokað-
ar eru dyr og engin hjálp úr
ógöngunum.
Ef ráðamenn þjóðarinnar eru svo
vitlausir að halda að þetta sé bóla
sem eigi eftir að hjaðna þá er mikill
misskilningur á ferðinni sem skal
hér með leiðréttur. Við erum ekki
hætt að beijast fyrir rétti okkar, við
höfum ekki neinu að tapa lengur,
það er allt farið fjandans til. Þetta
er eilífur vítahringur sem ókleift
virðist að komast út úr vegna þess
að ráðamenn sofa á verðinum og
láta sig þetta engu varða.
Því spyr ég ykkur, ráðamenn góð-
ir! Skipta atkvæði okkar í komandi
kosningum ykkur ekki lengur máli?
Farið nú að geraeitthvað af vitifyr-
ir þetta fólk áður en það verður um
seinan.
Kennarar
„á næturvinnufaxta í verkfaiiinu!“
D.K. hringdi:
Mér fannst athyglisvert að heyra
Kristján Thorlacius gefa þá yfírlýs-
ingu í útvarpi að kennarar muni
kenna lengur en upphaflega stóð til
vegna verkfallsins og þá líklega á
næturvinnukaupi.
Rúv:
„Eftthvað sem vit er í“
Gerður Helgadóttir hringdi: Ég er sjálf menntskælingur úr MS
Ég vil þakka sjónvarpinu fyrir að og vil óska þeim til hamingju með
gefa okkur kost á að sjá spurainga- ffábæra frammistöðu, þið eigið ekki
keppni framhaldskólanna. Þetta eru langt í toppinn með þessu ffamhaldi.
í senn mjög skemmtilegir og fræð- Að lokum vil ég hvetja sjónvarpið
andi þættir er allflestir ættu að hafa til að hafa meira af svona spuminga-
gaman af. þáttum, þetta er eitthvað sem vit er í.
Mér finnst þá hægt að líta þannig á
dæmið að þeir hafi verið á nætur-
vinnutaxta í verkfallinu því hvað eru
þeir að gera annað en að vinna upp
þá tíma sem nemendur misstu meðan
þeir voru verkfallinu.
Ikea: M I
Hreinlætisaðstaða fyrir ungböm
Páll Kristjánsson, verslunarstjóri
Ikea, hringdi:
Mig langaði að gera athugasemd
við grein í lesendasíðunni, Illa búið
að bamafólki, en greinin fjallar um
hreinlætisaðstöðu fyrir fólk með
smáböm. Ég vil taka það fram að í
greininni kemur fram að í Reykjavík
sé hvergi slík aðstaða fyrir fólk með
ungböm. Það er rangt því við hér í
Ikea erum búin að hafa slíka þjón-
ustu frá því við fluttum í nýja
húsnæðið.
Við erum með sérstakt baðher-
bergi sem er einmitt ætlað sem
hreinlætisaðstaða fyrir fólk með
ungböm og þar er allt tiltækt við
höndina sem þarf í þeim efhum,
meira að segja bleiur sem fólk getur
fengið sér að kostnaðarlausu.
Laukurvið eyrnabólgu
Margrét hringdi:
Það er því miður mjög algengt að
ungaböm fái í eyrun og við það verða
þau mjög óróleg og óvær. Það er
eflaust hægt að fá aragrúa af lyfjum
við eymabólgu en ég er ein af þeim
sem er meinilla við lyf og hef enga
ofurtrú á þeim. Þess vegna var ég
mjög fegin er mér var sagt að laukur
leysti vandann. Ótrúlegt en satt, stað-
reyndin er sú að eymabólgan nánast
hvarf og það var minna um grátur og
gnístran tanna.
Það á að saxa laukinn smátt eða
setja hann í hvítlaukspressu og fá
vökvann í bómull sem síðan er sett
bak við eyrun á baminu. Gott er að
setja síðan þunna húfu á bamið svo
hún haldi bómullinni á sínum stað.
Helst að hafa þetta yfir nóttina.
Þetta er gamalt húsráð sem ég vona
að geti komið öðrum að notum eins
og mér. Nauðsynlegt er að setja lauk-
inn bak við eyrum strax og bamið
byijar að kvarta.
Gleðin er mikil hjá yngstu áhorfendunum er teiknimyndir birtast á skjánum
en þeir eru ekki sparir á þær á Stöð 2.
Stöð 2:
„Mikið gert
fyrir krakkana"
Elín Helgadóttir hringdi:
Ég vil þakka stöðinni fyrir að
sinna yngstu kynslóðinni vel, mér
finnst það mjög mikill kostur við stöð-
ina hvað hún gerir mikið fyrir
krakkana.
Krakkamir mínir sitja alveg límdir
við kassann og hafa mjög gaman af
öllum þessum teiknimyndum, atburð-
arásin er mjög hröð og litadýrðin
mikil.
Ég er mjög ánægð með stöðina og
finnst hún vera með eitthvað við allra
hæfi og úrvalið og fjölbreytni í
myndavali er mikil. En það sem mér
finnst aðalplúsinn er hve mikið er
gert fyrir bömin.
Leðurjakki tekinn
í misgripum
Laukurinn leynir á sér, er talinn gott ráð við eyrrs
Vala hringdi: komandi, er tekið hefur rangan
Leðuijakki var tekinn í mis- jakka, er vinsamlegast beðinn að
gripum á veitingastaðnum A. hringja í síma 52009.
Hansen laugardaginn 21. mars. Við-
„Ekki er öll vitleysan eins“
Elias Davíðsson skrifar:
1 útvarpsfréttum þann 25 mars
sl. var greint frá því að Bandaríkja-
stjóm hefði skorað á Sovétríkin að
heimila þarlendum gyðingum, sem
þess óska, að flytja úr landi.
Maður hefði nú skilið og tekið
fyllilega undir ef Bandaríkjastjóm
hefði krafist af Sovétstjóminni að
hún heimilaði öllum þegnum sínum
(án tillits til trúarflokks eða þjóðem-
is) að flytja úr landi enda sjálfsögð
mannréttindi. En svo er ekki. Gyð-
ingar í Sovétríkjunum ættu að njóta
sérréttinda í þeim efrium. Hvers
vegna?
Furðulegast í öllu þessu er að til
þess að framkvæma þessa áskorun
þyrftu sovésk yfirvöld að skera úr
hver er gyðingur og hver ekki og
yrði að grípa til svipaðra aðferða og
nasistar notuðu til að flokka fólk.
Já, það er margt skiýtið í kýrhausn-
um hjá þeim vestra og ekki öll
vitleysan eins.