Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.1987, Síða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.1987, Síða 36
52 MÁNUDAGUR 6. APRÍL 1987. Stjómmál Segi af mér flokksfomwnnsku nái ég ekkl kjöri tl Alþingis - sagði Jón Baldvin Hannibalsson á beinni línu DV Jón Baldvin Hannibalsson, for- maður Alþýðuflokksins, lýsti því yfir á beinni línu DV að hann myndi segja af sér formennsku í fiokknum næði hann ekki kjöri ,til Alþingis Flokksformaðurinn sagði enn- fremur að hann myndi ekki sitja í ríkisstjórn með Albert Guðmunds- syni sem forsætisráðherra. Símalínur blaðsins voru rauðgló- andi meðan Jón Baldvin sat fyrir svörum á föstudagskvöld. Yfir 40 lesendur náðu að koma að spumingu og birtist hér stór hluti þeirra. Spurt var meðal annars um Al- bert, siðgæði, skattamál, húsnæðis- mál, lífeyrismál, lánamál námsmanna, byggðastefhu, land- búnað, kvótakerfi, stjómarmyndun, bindindismál, kjamorkuvopn og kjaramál. Við beinu línuna unnu blaða- mennimir Axel Ammendrup, Eyjólf- ur Sveinsson, Guðrím Kristjáns- dóttir, Herbert Guðmundsson, Kristján Már Unnarsson, Ólafur Jóhannsson og Sigurdór Sigurdórs- son, svo og Gunnar V. Andrésson ljósmyndari. -KMU Leitar Albert til vinstri? Sigurlaugur Guðjónsson, Reykjavík: Ef taka má mark á nýlegum skoð- anakönnunum benda þær til þess að Alþýðuflokkur, Kvennalisti, Fram- sóknarflokkur og Alþýðubandalag vrðu allir að sameinast til að mynda vinstri stjóm. Hvemig litist þér á það og hvaða mynstur telur þú líklegast? - Ég held að það geti enginn stjóm- ' málamaður í þessari stöðu sagt neitt sem er sérstaklega marktækt. Það liggur ljóst fyrir að eftir því sem flokk- unum fjölgar meira þeim mun erfiðari verður stjómarmyndun að loknum kosningum. En það er þó hægt að ráða eitthvað í líkumar. Éf eitthvað er að marka t.d. yfiriýsingar Sverris Hermannsson- ar menntamálaráðherra, sem er alls ekki víst, þá er heiftin, úlfúðin og hatrið þvílíkt milli Sjálfstæðisflokks og Borgaraflokksins að útilokuð er . samstjóm þeirra tveggja, góðborgara og Borgaraflokksins. Ég minnist þess hins vegar að Al- bert Guðmundsson gerðist á sfnum tíma guðfaðir ríkisstjómarinnar 1980-1983 með viðeigandi tengslum við t.d. forystumenn Alþýðubanda- lagsins. Er þar af leiðandi ekki nokkuð líklegt ef Sjálfstæðisflokkurinn hafnar Albert að hann leiti aftur á gömul mið og reyni að endurtaka ringulreiðarrík- isstjómina frá 1980 með Alþýðubanda- lagi, Framsókn og Kvennalista? Þetta er auðvitað ekkert annað en það að ég er að hugsa upphátt en miða út frá fenginni reynslu. Lánasjóður námsmanna Guðmundur Gunnarsson, Sandgerði: Hver er stefna Alþýðuflokksins í lánamálum námsmanna en í grein í blaði Alþýðubandalagsins, G 87, var sagt að þér fyndust námsmenn upp til hópa svindlarar, braskarar og þeir ættu bara að lifa á bókum. Á þetta við rök að styðjast? - Þetta er það sem við má búast úr þessari átt. Um stefhu okkar í málefn- um lánasjóðsins hef ég þetta að segja: Stefnan tekur mið af þremur mark- miðum. Lánasjóðurinn er til þess að skapa jafhrétti til náms án tillits til efnahags, að hvetja menn til náms og í þriðja lagi að tiyggja fjárhagsstöðu lánasjóðsins og binda enda á hringlið sem námsmenn hafa þurft að búa við að undanfömu. Við leggjum áherslu á að lánin séu verðtryggð og segjum að þau eigi að bera lægstu félagslega vexti, 1%. Og af einni milljón em það 10.000 krónur. Við viljum afnema það ákvæði að námsmenn, sem afla tekna á sunmum, fái við það skertan lánsrétt og þegar við bætast tillögur okkar um að námsmenn haldi námsfrádrætti í staðgreiðslukerfi skatta og tillögur okkar um kaupleiguíbúðir fyrir ungar fjölskyldur sem em að byija á vinnu- markaðinum þá fullyrði ég að stefna okkar í málefhum ungs fólks og náms- manna sérstaklega er einhver sú skynsamlegasta og hagkvæmasta sem nokkur flokkur hefur boðað. Fullorðins- fræðsla Alexander Schelbat, Reykjavík: Er ekki hægt að senda útlendinga sem hingað flytjast í skóla til að læra tungumálið? - Þegar ég var skólameistari vestur á fjörðum var þar margt fólk i fiskvinnu frá ýmsum þjóðlöndum og eitt af mín- um fyrstu verkum var að efha til námskeiða í íslensku fyrir þetta fólk og það gekk ágætlega. Fólk þarf að eiga aðgang að kvöldnámskeiðum og fullorðinsfræðslu. Engin tillaga frá Kawel Guðmundur Einarsson, Reykjavík: Karvel Pálmason, sem gengið hefur í gegnum hjartaaðgerð og sest síðan inn á þing með 75% örorku, hefur aldrei komið með neina tillögu um neitt nema gagnvart sjálfum sér enda þótt margir, sem hafa gengið í gegnum þetta, hafi ekki fengið starf við sitt hæfi. Er Alþýðuflokkurinn bara fyrir sjálfan sig en ekki fyrir almenning? - Það er misskilningur. Karvel hefur ekki fiutt neina tillögu um þetta og það eru kjósendur sem ákveða að Karvel situr á þingi. Þetta er ekki löggjafaratriði heldur um það hvemig hægt er að tryggja í framkvæmd það að fólk, sem hefur skerta starfsorku, fái starf við sitt hæfi. Þetta er skipu- lagsatriði og framkvæmdaatriði fyrst og fremst. Segði umsvifa- laust af mér Sveiiui Hallsson, Reykjavik: Hvað muntu gera ef Alþýðuflokkur- inn fær ekki nema t.d. átta þingmenn í næstu kosningum? - Viðbrögð min yrðu afdráttarlaust þau að ég myndi taka það sem van- traust og segja af mér formennsku ef þessar kosningar fæm þannig, eins og skoðanakannanir í svipinn benda til, að ég félli í kosningunum. Ég mun ekki leiða Alþýðuflokkinn sem fallkandidat utan þings heldur láta öðrum eftir að gera betur en ég get. Rukkurum fjölgar á upplausnartímum Helgi Hauksson, Súðavik, spyr: Hefur þú áhyggjur af þeim miklu peningum sem lögfræðingar hirða i innheimtulaun og oft á vegum bank- anna og þvi að þeir ákveða þessi innheimtulaun sjálfir? - Já, það er umhugsunarefni að til séu stéttir manna sem hafa sjálfdæmi um verð á sinni þjónustu. Lögfræðingar em ekki einsdæmi. Það er ekki gott á meðan flestir verða að una því að þurfa að hafa samningsaðila. Það er gömul saga að á upplausnartímum fjölgar lögfræðingum, einkum þeim sem mkka. Það verður að ráðast að rótum vandans. Þeir sem hafa orðið verstu fómarlömb þess sem gerst hefur í efnahagsmálum, misgengis lána og launa og okurvaxtanna, vom að sjálf- sögðu húsbyggjendur á ámnum 1980 til 1985. Við erum eini flokkurinn sem hefur flutt tillögu um að leysa vanda þessa fólks. Ekki með því að lengja lán eða auka lán heldur með því að skil- greina þann hluta af greiðslubyrði þessa fólks sem er umfram launaþróun og slá því föstu í fyrsta lagi að þama megi koma til endurgreiðsla á helm- ingnum af þessu og í annan stað lenging og skuldbreyting á öðrum skammtímalánum. Þetta er sá hópur sem sker sig úr og hefur orðið fómar- lamb ófyrirséðrar óstjómar. Ellilrfeyrir ekki undir lágmarkslaunum Hörður Haraldsson, Reykjavík, spyr: Hvað hyggst Alþýðuflokkurinn gera í málefhum fatlaðra, ellilífeyrisþega og öryrkja ef hann á sæti í næstu ríkis- stjóm? - Það er stefnumið flokksins varðandi ellilífeyrisþega að það verði örugglega tryggt að ellilífeyrisþegar fái bætur eða greiðslur sem undir engum kring- umstæðum séu lægri en lágmarkslaun í landinu. Varðandi málefhi fatlaðra minni ég á að framkvæmdasjóður ör- yrkja, sem er undanfari framkvæmda- sjóðs fatlaðra, var stofnaður að frumkvæði Jóhönnu Sigurðardóttur og í tíð núverandi ríkisstjómar hafa framlög í þennan sjóð verið skert um eitthvað á áttunda hundrað milljónir króna. Við segjum í okkar stefnuyfir- lýsingu að það verði eitt af forgangs- verkefhunum að standa vörð um þennan sjóð og tiyggja það að fatlaðir og öryrkjar fái lífeyri sem ekki verði lægri en lágmarkslaun. Hvað kom til að við fengum ekki meiri hækkun í janúarsamningunum í vetur? - Það skalt þú spyrja þá Steingrím og Þorstein um, þeir ráða þessu. Enginn ágreiningur um kjamorku- vopnalaust svæði Gunnar B. Guðmundsson Selfossi spyr: Er það rétt Jón Baldvin að þú sért á móti kjamorkuvopnalausum Norð- urlöndum? Ég er það ekki, enda liggur stefha Alþýðuflokksins fyrir í þessu máli, skýr og afdráttarlaus. Norðurlöndin em og eiga að vera áfram kjamorku- vopnalaus, en yfirlýsing um þessa stöðu þeirra þarf að vera liður í víð- tækara samkomulagi um stærra kjamorkvopnalaustsvæði þ.e.a.s þetta þarf að ná til hafsvæðisins sem er okkar lífæð og þetta þarf að ná til landsvæða þar sem kjamorkuvopn em. Þetta er í samræmi við ályktun alþingis þannig að að ég hlýt að álykta að um þetta sé enginn ágreiningur meðal stjómmálaflokka á Alþingi Is- lendinga. Kaupleiguíbúðir Gunnar Bjarnason, Reykjgvik spyr: Hvemig ætlið þið að koma kerfi um kaupleiguíbúðir á? Kaupleigukerfið byggist á því að frumkvæðisaðilinn um bygginguna sé sveitarfélög eða félagasamtök. Fjár- mögnunin fer þannig fram að 80% lán kemur úr Byggingasjóði ríkisins eða Byggingasjóði verkamanna. 20% framlagið í upphafi kemur annaðhvort frá sveitarfélaginu eða er útborgun þeirra einstaklinga sem félagahópinn mynda. Þessi lán em til 40 ára og em ýmist með 3,5% eða 1% vöxtum. Síðan gerist tvennt. Ef þú leigir í kaupleigu- íbúð miðast leigan við það að þú greiðir til baka með vöxtum 80% lán- ið að viðbættum kostnaði við viðhald húsnæðisins. Þetta er í reynd útreikn- að miðað við meðalíbúðir og á núverandi verði hófleg og viðráðanleg mánaðarleg greiðsla. Hvað varðar 20% framlagið er það að segja að ef viðkomandi breytir leigusamningi í kaupsamning þá bætist sú greiðsla við en samt sem áður em þessar mánaðar- greiðslur viðráðanlegar, þær em á bilinu frá 8.000 til 12.000 krónur. Ef um hreina leigu er að ræða þá er það okkar hugmynd að ríkisvaldið tryggi í gegnum jöfnunarsjóð sveitarfélaga að sveitarfélögin fái lán fyrir þessu vaxtalaust. Umhverfís- málaráduneyti Þorsteinn Þorsteinsson á Akureyri spyr: Hvert er þitt álit á því að komið verði á umhverfismálaráðuneyti? - Á okkar stefnuskrá er fækkun ráðu- neyta en ekki fjölgun, en að því er umhverfismálin varðar segjum við í okkar stefnuskrá: Alþýðuflokkurinn vill samræma stjóm umhverfismála innan stjómarráðsins, draga úr meng- un og losun úrgangs í hafið, stefrit verði að fullri aðild íslands að samn- ingum og umræðum um takmörkun á losun geislavirkra efha. Við höfum viljað fá eitt atvinnumálaráðuneyti sem samræmdi aðgerðir sjávarútvegs, landbúnaðar og iðnaðar og við viljum líka samræma utanríkis- og viðskipta- ráðuneytið. Okkar mat er það að þessar stofhanir em að sumu leyti til skaða svona skiptar, sérstaklega hvað varðar nýja atvinnustefhu. Bindindisstefna Guðjón Eggertsson spyr: Hefur Alþýðuflokkurinn gengið frá stefnuyfirlýsingu í bindindismálum? - Nei, ekki get ég nú sagt það, en Alþýðuflokkurinn hefur mótað það sem við getum kallað fjölskyldustefnu og þar er meðal annars að þessum málefhum vikið með þessum orðum: Við viljum nýta skólakerfið betur til kennslu í heilsuvemdarmálum, slysa- vömum og í vörnum gegn ávana- og fíkniefnum. Undir þetta fellur að sjálf- sögðu ofheysla áfengis. Aðrir miðlar verði einnig nýttir til að efla forvarn- arstarf. Ég vil leggja sérstaka áherslu á stuðning við félagasamtök sem vinna mikið og þarft verk við að bjarga fólki frá ofheyslu áfengis og vímuefnum. Lágu launin Sigrún Þorsteinsdóttir, Reykjavík, spyr: Hvemig á að fara að því að hækka lágu launin? - Þú spyrð mig sem stjómmálamann. Þetta mál er tvíþætt. í fyrsta lagi hlýt- ur það að koma til kasta verkalýðs- hreyfingarinnar. Hún á að semja við samningaborð um það að tryggja sín- um umbjóðendum réttmætan hlut í þjóðartekjum og aukningu þeirra. Það sem ég sem stjómmálamaður get gert og minn flokkur, það er að ég get reynt að tryggja það að skattalöggjöfin sé réttlát, það sé ekki verið að skatt- leggja tekjur sem em innan við Albert forsætisráðherra? Guðrún Kristjánsdóttir: Gætir þú hugsað þér að sitja í rík- isstjóm með Albert Guðmundsson sem forsætisráðherra? - Nei. Hvers vegna ekki? - Ég held að þetta nei þarfnist ekki frekari skýringa. Em fleiri sem þú útilokará þennan hátt sem forsætisráðherra í ríkis- stjóm með þér? - Nei. En gætir þú hugsað þér að starfa með Albert í ríkisstjóm yfirleitt? - Ástæðumar fyrir því að ég vil ekki starfa með Albert í ríkisstjóm, þar sem hann væri forsætisráðherra, em augljósar að óbreyttu. Meðan Albert er í stöðu grunaðs manns um skattamisferli þá mun ég ekki stuðla að því að hann verði forsætisráð- herra. En gætirðu hugsað þér hann sem ráðherra í öðm ráðherraembætti í ríkisstjóm sem þú sætir í? - Það sem ég er að vísa til em að- stæður sem em tímabundnar. Þær em ekki fordæming á persónu sem slíka, bara vísan til staðreynda og þetta svar gildir þá að öðm jöfhu meðan þetta ástand varir. Einn Irfeynssjóð fyrir alla landsmenn Hörður Gunnaisson, Reykjavík, spyr: Éitt af stefhumálum ykkar er einn lífeyrissjóður fyrir alla landsmenn og jiví spyr ég - Hvers vegna? - Astæðumar fyrir þessu em marg- ar, meðal annars þessar: Við erum með á milli 90 og 100 lífeyrissjóði. Sumir þeirra em þannig að rekstrar- kostnaður þeirra á ári hverju er hærri en nemur árlegum lífeyris- greiðslum. Þeir em mjög misjafnlega veikir eða sterkir og sumir munu fyrirsjáanlega ekki geta staðið við sínar skuldbindingar. Ef við lítum á þetta út frá sjónarmiði fólksins þá er ástandið svona: Það em á milli 30 og 40 þúsund manns sem njóta engra lífeyrisréttinda. Það em yfir 7.600 manns sem em með sjöföld líf- eyrisréttindi. Með öðmm orðum, þetta er skipulagslaus óskapnaður. Tillögur okkar em þessar Hættum að semja um þetta skýrslur, hættum að þusa eða kvarta yfir þessu, gerum eitthvað í þessu. Tillagan er því þessi: Einn sameiginlegan lífeyris- sjóð fyrir aUa landsmenn. Samræmd lífeyrisréttindi þar af leiðandi. I ann- an stað, að því er varðar yfirráð yfir fjármagninu og ákvörðunarrétt yfir ávöxtun þess, þá segjum við, það á að vera deildarskipt eftir landshlut- um.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.