Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1987, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1987, Page 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚNÍ 1987. Fréttir Hvrtasunnumót sjóstangaveiðimanna: Heildaraflinn 21 tonn Jón Ingi Steindórsson, sigurvegari mótsins, með hluta verðlaunanna. Sólveig Erlendsdóttir, Akureyri, afla- hæsta konan. Ómar Garðarssan, DV, Vestmannaeyjum; Hið árlega hvítasunnumót Sjó- stangaveiðifélags Vestmannaeyja fór fram um helgina í blíðskapar- veðri. Þetta er fjölmennasta mót af þessari tegund sem haldið hefur ve- rið á landinu til þessa. Voru þátttak- endur um 120 alls staðar af landinu. Samanlagður afli keppenda var 21 tonn sem er nýtt met en þess má geta að 20 báta af öllum stærðum og gerðum þurfti til að koma kepp- endum á sjóinn. Keppnin stóð yfir í tvo daga bæði laugardag og sunnudag og var farið út klukkan sex á morgnana og kom- ið að landi kl. 14.00. Keppnin er bæði einstaklings- og sveitakeppni. Verðlaun voru mjög myndarleg og þeim skipt niður. Verðlaun eru veitt fyrir mestan heildarafla, stærstu fiskana og svo framvegis. Einnig fá skipstjórar þess báts, sem er með mestan afla á stöng, sérstök verð- laun. Mótinu lauk með heljarmikiu sam- kvæmi á sunnudagskvöldið þar sem úrslit voru tilkynnt og verðlaun af- hent. Þess má geta að hvítasunnumót sjóstangaveiðifélagsins er mikill við- burður hér í bæjarlífinu og að venju safnast margmenni á bryggjuna þeg- ar bátamir koma að landi. Á sunnudeginum var Léttsveit Lúðra- sveitar Vestmannaeyja mætt á staðinn og lék undir stjóm Hjálmars Guðnasson. Helstu úrslit í keppninni urðu þau að aflahæsti karlmaðurinn var Jón Ingi Steindórsson frá Vestmannaeyj- um með 522 kíló. Aflahæsta konan var Sólveig Erlendsdóttir frá Akur- eyri með 397,9 kíló. Aflahæsti báturinn var Gæfan með 457,3 kíló á stöng. Aflahæsta sveit karla, en í hverri sveit em fjónr, var sveit Jóns Inga Steindórssonar frá Vestmanna- eyjum með samtals 1246 kíló. Aflahæsta sveit kvenna var sveit Sigrúnar Harðardóttur frá Akureyri með 960,9 kfló. Stærsta fisk mótsins dró Einar Steingrímsson, en það var langa sem var 21 kíló. Flesta fiska fékk Jón Ingi Steindórsson, 458. Flestar tegundir, og þær vom átta, hlaut Friðleifur Stefánsson. Ólafur Antonsson með minnsta fisk- inn? Hannes Tómasson, aldursforseti mótsins. Keflavíkurgangan eins og hún leit út þegar gengið var hjá Kópavogi. Þar skein sólin eins og viðast annars staðar. DV-mynd GVA Keflavíkurgangan á laugardaginn: Um þrjú hundruð gengu alla leið - um 2000 manns á útifundi á Lækjartorgi Tíunda Keflavíkurgangan var farin á laugardag í góðu veðri og var þar að venju gengin 50 kílómetra leið, frá aðalhliði herstöðvarinnar að Lækjar- torgi. Á bilinu 200 til 300 manns gengu meginhluta leiðarinnar en þegar að Lækjartorgi var komið höfðu safnast þar fyrir 2000 manns á baráttufúnd sem þar var haldinn. Að sögn Ingibjargar Haraldsdóttur, formanns Samtaka herstöðvaand- stæðinga, ríkti góð stemmning alla leiðina og mikill hugur í mönnum. Sagði hún gönguna hafa heppnast vel í alla staði, ekki síst vegna þess að nú væri ein mesta ferðamannahelgi ársins. Sem kunnugt er verður fundur utan- ríkisráðherra Atlantshafsbandalags- ríkjanna haldinn í Reykjavík í vikunni og sagði Ingibjörg gönguna hafa mót- ast mjög mikið af honum. -GKr Öndum slátrað í fuglasláturhúsi ísfugls: „Sláturhúsið sótt- hreinsað á milli“ „Það er séð til þess að öndunum sé slátrað á heilum dögum eða síðari hluta dags og sláturhúsið er sótt- hreinsað á milli,“ sagði Halldór Runólfsson hjá Hollustuvemd ríkisins þegar hann var spurður að því hvort rétt væri að fúglasláturhús ísfugls slátraði bæði öndum og kjúklingum á sama stað. Samkvæmt upplýsingum DV er ekki talið æskilegt að hænsum og andfugl- um sé slátrað í sama sláturhúsi vegna smithættu en meiri hætta er talin á að andfuglar beri með sér salmonellu- bakteríuna en hænsnfuglar. Halldór sagði að sláturhús ísfugls væri sótthreinsað á milii þess að slátr- að væri þar kjúklingum og öndum og benti allt til þess að þessi háttur væri í lagi. „Það vill fylgja sundfuglum meiri sýkingarhætta en slátrunin er ekki það mikil að ástæða sé til þess að setja upp sérstakt sláturhús til þess,“ sagði Halldór. -ój í dag mælir Dagfari gengur á hólm Dagfari hefur verið að lesa það í blöðunum að lögfræðingur Hannes- ar Hólmsteins Gissurarsonar hafi fyrir hönd Hannesar kært einhverja dómnefnd í Háskólanum. Þannig mun vera að lektorsstaða við félags- vísindadeild er laus til umsóknar og Hannes hefur ásamt einhverjum öðr- um ónafngreindum mönnum sótt um þessa stöðu. Til að útkljá og meta hver sé hæfastur af umsækjendunum hefúr verið skipuð dómnefnd þriggja manna og það er þessa dómnefhd sem Hannes er að kæra. Þetta gerðu bankastjóramir í Út- vegsbankanum líka. Þeir kærðu Hallvarð ríkissaksóknara fyrir að hafa kært sig en ekki bankaráðið. Hallvarður hafði ekki kært banka- ráðið af því bróðir hans situr í ráðinu. Þetta líkaði bankastjórunum illa því þeir vildu að Hallvarður kærði bróður sinn. Hæstiréttur sam- þykkti þessa kröfu bankastjóranna og ógilti kæruna á bankastjórana vegna þess að Hallvarður hafði ekki kært bróður sinn í leiðinni. Nú er það hins vegar ekki svo í máli Hannesar Hólmsteins að hann vilji dómnefndina í burtu vegna þess að bræður dómnefndarmanna eiga í hlut. Hann heldur því hins vegar fram að einn dómnefúdarmannanna Hannes sé vinur eins umsækjendanna en ekki vinur sinn. Þetta er auðvitað alveg rétt hjá Hannesi. Maður sem ekki er vinur Hannesar en vinur annarra getur ekki verið hlutlaus í dómnefhd sem á að gera upp á milli vinarins og Hannesar. Ennfremur heldur Hannes því fram að í dómnefndinni sitji menn sem þekki vel til hans og hafi skrifað um hann krítík í blöðin. Þetta er alger frágangssök að mati Hannesar og er ekki annað hægt en taka und- ir það sjónarmið. Það liggur í augum uppi að það kemur Hannesi Hólm- steini ákaflega illa ef einhverjir menn, sem til hans þekkja, eiga að fara að dæma um það hvort hann sé hæfur. Þessir menn hafa unnið sér það til óhelgi að hafa aðrar skoð- anir á skoðunum Hannesar en Hannes sjálfúr. Slíkt gengur auðvit- að ekki nú á tímum og það er lágmarkskrafa umsækjenda á borð við Hannes Hólmstein að dómnefiid- ir séu skipaðar mönnum sem honum eru sammála. Gallinn er hins vegar sá að ef há- skólaráð fellst á frávísun Hannesar þarf væntanlega að skipa aðra dóm- nefiid sem í væru ýmist vinir Hannesar eða menn honum sam- mála í skoðunum. Það getur orðið leitun á slíkum mönnum, að minnsta kosti hér á landi. Þetta veit Hannes og hefur því lagt til að skipaðir verði útlendingar í dómnefndina. Nú er það að vísu svo að Hannes hefur dvalið mikið erlendis og nokkur hætta er á því að einhverjir útlend- ingar þekki til hans, þó ekki væri nema af afspum. Þess vegna er nauðsynlegt að vanda mjög val á þessum erlendu mönnum og ganga kirfilega úr skugga um að enginn þeirra hafi nokkum tíma heyrt eða séð til Hannesar. I því felast hans möguleikar. Hannes hefur sjálfúr bent á að þeir sem til hans þekkja og hafa kynnt sér fræðigreinar hans séu ófærir um að meta getu hans til lektorsstöðunnar. Engum blandast hugur um að Háskólinn þarf að vera vel setinn af lærðum mönnum og fróðum í þeim greinum sem þar em kenndar. Hannes er tvímælalaust í hópi þeirra. Hann má ekki gjalda þess þótt hann eigi enga vini í landinu, Hann má heldur ekki gjalda þess þótt einhverjir af kollegum hans hafi kynnt sér verk Hannesar og lík- að þau illa. Ef vel er að gáð hljóta að vera til einn eða tveir menn hér á landi sem eru sammála Hannesi og þar með hlutgengir í dómnefnd- ina. Dagfari stendur með Hannesi í þessari hólmgöngu. Hann hefur haft dug til þess að skora þá menn á hólm sem hafa leyft sér þá frekju að vera vinir annarra en ekki vinir hans. Hann vill lyðja dóm sem er honum fyrirfram ósammála og hefur leyft sér að hafa skoðanir. I dóm- nefndum Háskólans eiga ekki að sitja menn sem hafa skoðanir. Sérs- taklega ef það em skoðanir sem em á móti Hannesi. Hannes er besti dómarinn um sitt eigið ágæti. Menn eiga ekki að vera að deila við dómarann. Vonandi ger- ir háskólaráð sér grein fyrir alvör- unni í þessu máli. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.