Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1987, Síða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1987, Síða 11
ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚNÍ 1987. 11 Utlönd Novska stjórnin felld næstu daga? Bjöig Eva Ertendsdóttir, DV, Osló: Stjórn norska Verkamannaflokksins, undir forystu Gro Harlem Brundtland, verður felld næstu daga ef Karl I. Hagen vill. Framfaraflokkur hans, þó lítill sé, er í þeirri aðstöðu að geta ráðið meirihluta á stórþinginu. Borgaralegum flokkamir þrír, Hægri flokkurinn, Miðjuflokkurinn og Kristilegi þjóðarflokkurinn, urðu sammála í gærkvöldi um að lýsa van- trausti á norsku ríkisstjómina. Vantraustsyfirlýsingin verður gefin út í beinu sambandi við bændaupp- gjörið og samkvæmt tillögu borgara- legu flokkanna á að veita meiri fjármuni til bændanna heldur en stjóm Verkamannaflokksins vill gera. Karl I. Hagen og Framfaraflokkur- inn lofa engu um að styðja þessa vantraustsyfirlýsingu. Flokkurinn er hægra megin við hægri og ekki hans eðli að styðja auknar fjárveitingar rík- isins til eins eða neins. Þó getur honum fundist til mikils að vinna að fella núverandi vinstri stjóm. I samningum milli borgaralegu flokkanna á síðustu dögum hefur kom- ið í ljós ýmiss konar pólitískur ágrein- ingur og nýrri hægri stjóm í Noregi er ekki spáð neinu góðu. En Rolf Presthus, forsætisráðherraefni Hægri flokksins, hefur lengi verið að bíða eftir þessu tækifæri og er bjartsýnn á nýja norska ríkisstjóm. Thatcher orðin sigur- viss á Brettandseyjum Jón Ormur HaMóissan, DV, Landon: Eftir þær skoðanakannanir, sem birtar vom nú um helgina og í gær á Bretlandi, virðist fátt geta komið í veg fyrir sigur íhaldsflokksins í þingkosn- ingunum á fimmtudaginn. Sú fylgis- aukning Verkamannaflokksins, sem mældist í skoðanakönnunum í síðustu viku, virðist hafa stöðvast og flokk- amir em nú svipað settir og verið hefur lengst af þessari þriggja vikna kosningabaráttu. Mikill fjöldi kann- ana síðustu þrjá daga sýna flestar sömu niðurstöðu, það er íhaldsflokk- inn með um 43 prósent atkvæða, Verkamannaflokkinn með um 34 pró- sent og Kosningabandalagið með um 21 prósent. Ef þetta verða niðurstöð- umar á fimmtudaginn mun Margareth Thatcher vinna þriðja kjörtímabilið sem forsætisráðherra og fá áttatíu og fimm sæta meirihluta í neðri málstofu þingsins en meirihluti hennar á fráfar- andi þingi var um hundrað og fimmtíu þingsæti. Thatcher þykist nú viss um mikinn sigur íhaldsflokksins á fimmtudaginn en hún situr nú leiðtogafund sjö helstu iðnríkja Vesturlanda i Feneyjum. Hún gefur sér raunar lítinn tíma til fundar- setu og hefur móðgað alla helstu ráðamenn Ítalíu síðustu daga með því annars vegar að stoppa aðeins einn dag á fundinum og hins vegar að neita að hitta forsætisráðherra Italiu í Lon- don í síðustu viku en þar lét hún aðstoðarmann sinn um að hitta ráð- herrann því hún kvaðst upptekin þann dag sjálf. Thatcher hefur einungis fund með Ronald Reagan, forseta Bandaríkj- anna, í Feneyjum en hittir ekki aðra leiðtoga að máli. í tvennu lagi En þó að íhaldsflokkurinn sé þannig að verða nokkuð öruggur um sigur á fimmtudaginn virðist jafhljóst að flokkurinn muni ekki komast nálægt því að hafa meirihluta kjósenda á bak við sig. Á Englandi virðist flokkurinn njóta stuðnings um 45 prósent kjó- senda en í Skotlandi er íhaldsflokkn- um spáð aðeins nítján prósentum atkvæða og ekki öllu meira í Wales. Á Norður-frlandi býður flokkurinn ekki fram fremur en aðrir helstu flokk- ar Bretlands. Fylgi íhaldsflokksins er þess utan mjög bundið við Suður- og Mið-Eng- land og er ólíklegt að flokkurinn nái mörgum þingsætum fyrir norðan mitt landið en í Skotlandi er íhaldsmönnum spáð aðeins sex þingsætum af sjötíu og fimm. Þessi skipting bresku þjóðar- innar milli norðurs og suðurs, sem endurspeglast í miklu meira atvinnu- leysi og miklu lægri launum í norðr- inu, hefur orðið eitt af helstu kosningamálum Verkamannaflokks- ins sem talar um sundraða kjósendur í áróðri sínum. Meirihluti kjósenda býr hins vegar í Suður-Englandi og eru til að mynda einungis sex milljón- ir manna á kjörskrá samanlagt í Skotlandi og Wales en þijátíu og sjö milljónir atkvæðisbærra manna búa á Englandi. Mikiðíhúfi Mikil harka verður í kosningabarát- tunni þessa síðustu þrjá daga og sást það ef til vill betur en áður nú fyrir helgina hvað fjármálamenn telja í húfi í þessum kosningum þegar hrun varð á verðbréfamarkaðinum í Lon- don vegna orðróms um skoðanakönn- un sem sýna átti fylgisaukningu Verkamannaflokksins. A fáeinum klukkustundum, uns orðrómur þessi var kveðinn niður, lækkuðu hlutabréf í kauphöllinni í London um meira en Qögur hundruð milljarða íslenskra króna eða eins og þjóðartekjur ís- lensku þjóðarinnar í þrjú ár eða svo. Þetta hrun var þó að líkindum bamaleikur einn hjá því sem yrði ef hið ólíklega gerðist að Margareth Thatcher næði ekki að sigra í þessum kosningum. Clear Shield er byltingarkennt efni sem notað er á gler, bæði nýtt gler og gamalt og raunar má nota það á alla hluti sem hafa glerjað yfirborð. Það er mjög mikilvægt að verja gler í nýbyggingum, því vatn sem rennur úr nýrri steypu getur valdið miklum skaða. Enn verri eru þær skemmdir sem málning, múrblettir og lím valda eða rispurnar sem koma í glerið þegar reynt er með afli að skafa þennan óþverra af glerinu. Nú er stefnt að þvi að setja Clear Shield-vörn á gler strax i verksmiðju, þvi með Clear Shield-huð má minnka glerskemmdir um meira en helming. Gamalt gler mun einnig njóta góðs af Clear Shields, tæknilega er hægt að hreinsa allt gler sem ekki er beinlínis skemmt. Eftir hreinsun á gömlu gleri er það varið með Clear Shield. Ásýnd þess verður sem nýtt gler og hreinsun þess verður bæði mun auðveldari og gleriö helst mun lengur hreint og heilt. Ástæðan liggur í gerð Clear Shieids, en það er vatnsfælið efni og hrindir þvi frá sér t.d. saltögnum. Þess vegna auglýsum við Clear Shield sem efni er breytir venjulegu gleri i viöhaldslitið gler. Ólsal hf Dugguvogi 7 Sími 33444 Margareth Thatcher, forsætisráðherra og leiðtogi íhaldstlokksins, er nú orðin viss um sigur í kosningunum sem fram tara þar í landi á fimmtudag. _ Clmamunrl Sólarströnd við Svartahaf FERÐAVAL býður nú ferðir til Svarta hafsins sem er á sömu breiddargráðu og vinsælustu baðstrendur Miðjarðarhafsins. Sjórinn við strendur Slunchev Bryag (sólarströndina) er ómengaður og strendurnar tandurhrein- ar. Boðið er upp á tveggja eða þriggja vikna ferðir og er flogið á laugardögum til Lux- emborgar en þaðan til Varna sem er ein stærsta og elsta borgin við Svarta hafið. Síðan er ekið til íbúðarhúsanna í Elenite hverfinu sem er nýjasti hluti sumarleyfis- borgarinnar Sólarströnd. Hálft fæði er innifalið í verðinu, en hægt er að fá fullt fæði fyrir ca. kr. 1.300,- í tvær vikur og kr. 2.000,- í þrjár vikur. Fólki er ráðlagt að kaupa fullt fæði vegna hins hagstæða verðs. Gestir okkar geta borðað á hvaða veitingahúsi sem er á svæðinu en þar eru yfir fjörutíu veitingastaðir með hið fjöl- breyttasta fæðuval, allt frá alþjóðlegum mat til sérrétta heimamanna og ljúffengra fiskrétta. 17 daga aukaferð 4. júlí kr. 30.610.- á mann miðað við tvo í stúdíó-ibúð, með hálfu fæði. 50% afsláttur fyrir börn 2-12 ára í aukarúmi. 25% afsláttur fyrir börn 12-14 ára í aukarúmi. Börn 0-2 ára borga 10% af fullorðinsgjaldi. 21 dags tilboðsferð 23. júní kr. 31.610.- með V2 fæði Leitið upplýsinga og fáið bækling 2 vikur kr. 29.360.- 3. vikur kr. 34.610,- Brottfarir: 14. júlí, 21. júlí, 4. ágúst, 11. ágúst, 25. ágúst, 1. september. LINDARGATA 14, FERDA&WALhf SÍMAR 12534 OG 14480

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.