Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1987, Page 14

Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1987, Page 14
14 Spumingin Hvernig líst þér á nýju út- varpsstöðina, Stjörnuna? Geirþrúður Kristjánsdóttir: Mér líst vel á hana þótt ég hafi reyndar ekki heyrt í henni ennþá. Óska henni góðrar framtíðar. Sigurður Þorsteinsson: Hún er alveg eins og hinar að mínu mati - það er svipuð músík og svona spjall. Það vantar alla klassík. Bjarni Þórarinsson: Ég hef nú bara eiginlega ekkert hlustað á hana. Finnst hún allt í lagi og samkeppnin er góð. En það er of mikið af léttri poppmúsík á stöðvunum, vantar rokk í þyngri kantinum. Erla Helgadóttir: Hef nú ekkert hlustað á hana - finnst alveg sjálf- sagt að setja hana upp. Þessar stöðvar eru allar mjög góðar. að hlusta á hana - er búin að fá mig fullsadda af öllum þessum stöðvum. Vafalaust er hún ágœt - að minnsta kosti ekkert verri en hinar. Siguijón Ingólfsson: Þið hittið vel á - ég er einmitt með hana á núna. Mér sýnist að það standi ágætir menn að baki henni og því getur hún verið gott innlegg í samkeppnina. ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚNl 1987. Lesendur dv Farsímar: Heimsmet í vitJeysu „íslendingar eru að mínu áliti i meira lagi tækjaóðir og farsíminn er nýj- asta vitieysan, “ segir Konráð Friðfinnsson. Konráð Friðfinnsson skrifar: Þegnar Islands eru að mínu áliti í meira lagi tækjaóðir. I því sambandi mætti nefha myndbandafarsóttina sem flæddi yfir landið og þjóðina af þvílíku offorsi að elstu menn muna ekki annað eins og breiddi úr sér eins og arfi í kartöflugarði. Enginn er í dag talinn maður með mönnum sem ekki brúkar í það minnsta eitt slíkt apparat. Síðan birtust á verslunarvellinum snjósleð- amir. Þar fór í sama, m.ö.o. flóð. Ófært yrði að gleyma fjórhjólunum sem nú spóla og spæna upp viðkvæma foldina, að sögn fróðra. I þeirri deildinni er reyndar ekki orðið háflæði enn sem komið er. Nóg um það. Farsíminn er hlutur sem mig langaði að fjalla um í örfáum orðum. Þar hefur Frónbúinn sett eitt vitleysis eyðsluheimsmetið til viðbótar öllum hinum. Með tilkomu farsímans getur fólk talað við sina elskulegu maka nánast hvar sem er og sagt þeim hve óskaplega mikill munur sé nú að hafa undir höndum gangandi síma. Og aka svo á meðan á hálfu gasi yfir á rauðu ljósi, án þess svo mikið sem veita því athygli. Öku- maðurinn er límdur við tæknitröllið og ástina heima. Eigendur að öllum áðurgreindum tækjum voru vitaskuld löngu búnir að sannfæra sjálfa sig og aðra, áður en í kaupin var ráðist, um að þetta og ekkert annað væri ak- kúrat það sem hann og hinn hafi alltaf skort til þess að geta höndlað hamingj- una og þama er hún komin, guði sé lof. Burtséð frá því að flest af títt- nefhdu drasli rykfellur fallega inn í bílskúr, eða gijótberst úti á plani eftir aðeins nokkurra vikna notkun, í langflestum tilvikum, nema ef vera skyldi vídeótækin. Ekki er allt búið enn. Fyrir fáeinum árum fylltust gijót- hóhnveijar af gífulegri löngun til að hreyfa sig og losna við aukakílóin. Reiðhjólin voru talin sérstaklega heppileg til þess, sem er hárrétt. Heilt syndaflóð af hjólhestum var flutt með forgangshraði hingað. Það sumar varð vart þverfótað fyrir hinu nýja (gamla) heilsubótartæki. Mikil deila spannst um þessa reiðskjóta, minnir mig. Göt- ur borgarinnar voru víst ekki tilbúnar undir þessa skyndilegu aukningu á trimm-reiðskjótum. En betur fór en á horfðist og má segja að málið hafi leyst af sjálfu sér, því sumarið eftir sáust hjólin varla. Áhuginn búinn og blikk- beljan tekin á ný við sínu gamla hlutverki að flytja menn frá einum stað til annars. Já, Islendingar láta fátt standa í vegi fyrir sér ef eyða þarf aurum. Skrítin Þanki skrifar: Fyrir allmörgum vikum birtist í Mogganum smágrein frá einhverjum blaðamanni þeirra í Helsinki - og hefur greinarstúfurinn vafist fyrir mér síðan. Nú er svo komið að ekki verður lengur við unað, þessu verður að koma á framfæri. Tilefni greinarinnar voru tillögur um málefni laganefhdar á þingi Norðurlandaráðs i Finnlandi. Fyrir tágu tillögur um samstarf í barátt- unni gegn eiturlyfjum - þess efnis að eiturlyj asj úklingar yrðu settir í meðferð í stað fangelsis. Þáma flutti fyrrum dómsmálaráð- herra okkar - Friðjón Þórðarson - ræðu og sagði þar að álit nefndar- innar væri að hjálpa eiturlyfjasjúkl- ingum til þess að losna við ávanann og því væri æskilegt að þeir sem hefðu verið dæmdir ættu þess kost að fera í meðferð í stað þess að sitja í fangelsi meðan þeir afþlána dóm sinn. En svo kom rúsínan í pylsuend- anum - Friðjón kvaðst þó árétta að meðferð í stað fangelsisvistar bæri að líta á sem refsingu! Nú er spumingin - hefur maðurinn ekkert fylgst með því sem gerst hefur í meðferðarmálum hér á íslandi? Það hafa þó aðrar þjóðir gert og koma refsing nú í hópum til þess að kynna sér íslenskar meðferðarstofhanir sem ná ótrúlegum árangri. Meðferð er þar aldrei talin til refsinga heldur er lit- ið á hjálp við vímuefnaneytendur sem venjulega læknisaðstoð og bráð- nauðsynlega sem slíka. Það hefur hingað til ekki talist til refsinga að ganga til tannlæknis eða leita ráða við krabbameini - svo eitthvað sé nefnt - og því hjómar þetta furðu- lega í eyrum þeirra sem til þekkja. Vilji Friðjón Þórðarson undantekn- ingarlaust refsa eiturleyfj aneytend- um og alkóhólistum fyrir afbrot framin í tengslun við fiknina verður hann að leita annarra leiða. Hins vegar er athyglisvert við- horfið sem þama kemur fram gagnvart sjúkdómnum og tilraunum til þess að ráða bót á vandanum. Þegar opinberir fulltrúar heilbrigðis- og dómskerfis em svo fáfróðir í þess- um efrium er skiljanleg tregða sjúklinganna sjálfra við að leita læknis þegar í óefiii er komið. Og umhugsunarefhi hversu margir krabbameinssjúklingar fæm í geislameðferð ef litið væri á geislana og áhrif þeirra sem refsingu en ekki læknisaðgerð. Takk, Sólveig! Stóra fjölskyldan úr Garðabæ segir: „Ég vildi koma þakklæti á framfæri frá okkur í fjölskyldunni til starfsfólks Leifsstöðvarinnar og sérstaklega Sól- veigar Þorsteinsdóttur sem þar er við afgreiðslu Kaupmannahafharflugsins. Þannig var að ég kom þama á þriðjudaginn síðasta og kom Sólveig einstaklega vel fram, var vingjamleg og elskuleg - liðleg í alla staði. Það er mjög sjaldgæft að rekast á svona fólk. Við vorum þama þijú að skila bróð- ur mínum í flugið og það var mikið að gera á staðnum. Sólveig var róleg og alltaf brosandi þannig að það létti okkur biðina og líka öðrum farþegum í röðinni. Kærar þakkir, Sólveig! „Það er mjög sjaldgæft að rekast á svona fólk eins og til dæmis Sólveigu Þorsteinsdóttur í nýju Leifsstöðinni." Þjónustan og tónlistin eru til fyrirmyndar i Casablanca og Þórir Guðlaugs- son segist mæta - jafnvel þótt heilsan bili. Jafnvel veikur í Casablanca Þórir Guðlaugsson hringdi: „Ég vil hæla staðnum Casablanea fyrir góða músík og þjónustu, sér- staklega em dyraverðimir kurteisir. Það vom til dæmis læti síðastliðinn föstudag en þá komu strax tveir dyra- verðir og vom fljótir að losa sig við vandræðin. Þeir hafa góða framkomu og em áberandi kurteisir. Músíkin er stórfín - ein sú besta í bænum - ef ekki sú besta. Þjónamir em kurteisir og afgreiðslan mjög góð. Yfir heildina er þetta besti staðurinn í bænum og hann er með bestu músíkina. Sjálfur fer ég þama hvert einasta laugardags- kvöld og mörg föstudagskvöld líka. Kem þama ömgglega áffarn - þótt ég væri veikur." Viðey - sólskinseyja við sundin blá Jón Maríasson hringdi: „Það kemur fram í DV nú fyrir nokkrum dögum að Hafsteinn Sveins- son telji sig fyrstan til þess að vera með Viðeyjarferðir. Þetta er ekki rétt því sumarið 1959 var ég með Viðeyjar- ferðir ásamt Kristjáni R. Runólfssyni. Yfirleitt fórum við oft á dag í góðu veðri og vorum með sölutjald úti í eyjunni. Þar seldum við pylsur, sæl- gæti, kaffi og kökur og þess háttar - enda báðir starfandi þjónar á þeim tíma. Til þess geta gert þetta settum við upp smábryggju beint undan Viðeyjar- stofu og stiga til þess að fólk kæmist upp - þannig að þetta var talsvert fyr- irtæki. Þá átti eyjuna hann Stefán í Verð- anda og við leigðum af honum. Heilmikla vinnu varð að leggja í ferð- imar - kirkjan var til dæmis full af hesta- og kindaskít og við hreinsuðum hana alla út til þess að fólk gæti haft það huggulegt inni. Ferðirnar byrjuðu í júní og vom fram í ágúst. Þegar ég ætlaði svo að fá áffamhaldandi leyfi og talaði við þáverandi borgarstjóra var einhver hundur í yfirvöldum þann- ig að við gáfiimst upp. Viðey er einn dásamlegasti blettur- inn sem er hérna við nefið á okkur og að austanverðu er ströndin ágæt til þess að nota sem baðstað - aðeins ef hún væri hreinsuð og rökuð. Þetta er hrein paradís, fuglalíf mikið og mér er óskiljanlegt hversu lítið Reykvíkingar virða þennan stað. Frið- sældin, fuglalífið og gróðurinn er einstakt og ég hef gengið með þann mikla draum í maganum að gera Við- ey að útivistarsvæði Reykvíkinga frá ’49 og er kominn með hálfgerðan magaverk af ósköpunum. Sólskinseyj- an við sundin blá hét eitt sinn grein í Best um þessi mál - grein um Viðey - og em það svo sannarlega orð að sönnu.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.