Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1987, Side 16

Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1987, Side 16
16 Frjálst.óháð dagblaö Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JONSSON Fréttastjóri: JONAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11, SlMI 27022 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: HILMIR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 550 kr. Verð i lausasölu virka daga 55 kr. - Helgarblað 65 kr. Keflavíkurgangan Um helgina lagði hópur fólks á sig að ganga frá Keflavík til Reykjavíkur undir kjörorðunum: ísland úr Nato, herinn burt. Til þessarar göngu er efnt vegna væntanlegs fundar utanríkisráðherra Atlantshafs- bandalagsins hér á landi í vikunni. Þannig á að koma á framfæri þeirri skoðun að íslendingar séu mótfallnir þátttöku okkar í Atlantshafsbandalaginu. Enginn getur bannað þessu fólki að fara í spássért- úr. Enginn efast heldur um einlægni svokallaðra herstöðvarandstæðinga og friðarvilja þeirra frekar en annarra. Satt að segja hafa íslendingar löngum verið umburðarlyndir og jafnvel skeytingarlausir gagnvart athöfnum og yfirlýsingum andstæðinga Nató og varnar- liðsins og langt er síðan abbast hefur verið upp á göngufólk eins og stundum þekktist hér á árum áður. Enda má fullyrða að sá hiti og æsingur, sem ríkti um afstöðuna til varnarliðsins, sé að mestu horfinn og gild- ir það um báðar fylkingar. Sannleikurinn er nefnilega sá að Keflavíkurgangan hefur á sér þann blæ að hún sé frekar skemmtiganga, einhvers konar formleg en bitlaus mótmæli sem sett eru fram til málamynda. Þátttakendur eru miklum mun færri en í fyrstu og þeir sem á annað borð leggja gönguna á sig hafa ekki talið nokkrum manni trú um að sannfær- ing eða baráttuhugur fylgdi máli. Eftir því sem árin hafa liðið og nýjar kynslóðir kom- ist á kosningaaldur hafa æ færri aðhyllst andstöðu gegn Atlantshafsbandalaginu. Þess sjást og merki í almenn- um þingkosningum og sá eini flokkur, sem lýsir því skýrt og skorinort yfir að hann vilji að ísland gangi úr Nato, galt beinlínis afhroð í kosningunum í vor. Nú, þegar Alþýðubandalagsmenn leita skýringa á ósigri sín- um þurfa þeir ekki að leita langt yfir skammt. Flokkur, sem hefur það á stefnuskrá sinni að íslendingar taki upp þá utanríkisstefnu að segja sig úr lögum við vest- ræn og lýðfrjáls ríki, á ekki og mun ekki eiga upp á pallborðið meðal kjósenda. Það blasir við öllum. Yfirgnæfandi þorri íslendinga fylgir Atlantshafs- bandalaginu að málum og vill að öryggi og varnir landsins séu tryggðar með samstarfi við önnur lýðræðis- ríki. Menn hafa og sannfærst um það, bæði hér á landi og annars staðar á Vesturlöndum, að Atlantshafsbanda- lagið er ekki ógnun við heimsfriðinn heldur þvert á móti. Landráðabrigslin, níðsöngurinn um þá stjórn- málamenn sem mótuðu núverandi utanríkisstefnu, hefur fyrir löngu reynst dauður og ómerkur. Áróðurinn um hlutleysið, platan um heimsvaldastefnu Bandaríkj- anna og ósannindin um vígamóð Natoríkjanna hefur í tímans rás fallið um sjálft sig og eftir stendur aumkvun- arverður málstaður lítils minnihlutahóps sem ekki vill viðurkenna staðreyndir. Auðvitað vill enginn íslendingur að hér sitji erlent varnarlið um aldur og ævi. Þjóðin verður að halda vöku sinni í þeim efnum, og hún má aldrei sætta sig við ævarandi setu erlendra manna undir herstjórn utan frá. Sá tími mun koma að íslendingar verða sjálfum sér nógir í vörnum og öryggi. En hann er ekki kominn ennþá og það er bæði rangt og heimskulegt að gefa frið- arvilja sínum útrás með því að beina spjótum sínum að því bandalagi, því varnarsamstarfi sem hefur mest og best stuðlað að friði á okkar tímum. Keflavíkurgangan er tímaskekkja. í mesta lagi veik- burða tilraun nokkurra þvermóðskufullra einstaklinga sem vilja ríghalda í steinrunna og máttlausa pólitík. Enda bar hún þess merki. Ellert B. Schram ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚNÍ 1987. „Nú er eftir að sjá hvort viðmælendur Jóns Baldvins glæpast á að spila út einhverju sem orðið gæti þeim að fótaketli líkt og Kvennalistanum ...“ Sérkennilegur póker Þær stjórnarmyndunarviðræður, sem fram hafa farið að undanförnu, eru um margt sérstakar. Þar hefur flest snúið að ytra borðinu en lítið farið fyrir innihaldi. Frásagnir fjöl- miðla ráða hér miklu því að þær eru í sama dúr og af íþróttakeppni eða sandkassaleik. „Viltu vera með mér?“ spyrja börnin. Stjómmála- mennimir, sem em þátttakendur í leiknum, taka mið af þessu og kom- ast upp með það gagnvart almenn- ingi. Hér veldur miklu áhugaleysi fjölmiðlanna, vanþekking þeirra sem þar starfa á efnahagsmálum og fleiri gildum þáttum, sem væntanleg ríkis- stjórn verður að takast á við. Þeir spyrja ekki um tillögur eða hvemig óskalistamir eiga að ganga unn. Sex vikur í þykjustuleik Þegar þetta er skrifað em sex vik- ur liðnar frá kosningum og tveir formenn hafa skilað umboði til for- seta eftir tilraunir til stjómarmynd- unar. Menn skyldu ætla að þar hafi verið tekist á um efnahagslegar stærðir, hvemig rétta skuli af hall- ann á ríkissjóði, draga úr viðskipta- hallanum og afla fjármuna til félagslegra aðgerða. Ekkert slíkt hefur komið fram, og fjölmiðlamir hafa varla spurt um tillögur þar að lútandi. Skáldleg tilsvör nægja: Þetta var næstum gengið upp. „Við hefðum getað vakað lengur og verið ögn betri hvert við annað“! Stjómarmyndunartilraun Þor- steins Pálssonar með Alþýðuflokki og Kvennalista er dæmigerð um hvað hægt er að setja á svið. Hún komst aldrei út fyrir almennar lýs- ingar á markmiðum, frómar óskir í samtölum yfir borð og nokkur orð á blaði frá hveijum aðila. Formaður Sjálfstæðisflokksins og enn fjármálaráðherra, sami maður og fór með umboðið og leiddi viðræð- umar, lagði þar ekki fram neina útfærða tillögu um hvemig stoppa ætti upp í götin hjá ríkissjóði, hvorki um tekjuöflun né niðurskurð. Fjöl- miðlar gengu heldur ekki eftir svörum um þau efhi. Alþýðuflokkurinn þóttist hafa leikið mikið hlutverk í þessum við- ræðum. „Þrátt fyrir einlægan vilja og ítrekaðar tilraunir okkar að minnsta kosti, tókst ekki að ná sam- komulagi um fyrstu aðgerðir. . .,“ sagði Jón Baldvin í viðtali við Morg- unblaðið eftir að upp var staðið. Ef marka má þau „drög að málefna- grundvelli", sem sami maður afhenti Alþýðubandalaginu nokkrum dög- um síðar til skoðunar í 24 tíma, var lítið kjöt á þeim beinum. Kvennalistinn, sem allt strandaði á að mati gagnaðilanna, slapp enn betur. Megintillaga þeirra var um að „lögbinda lágmarkslaun. . .til að tryggja það að allt fólk í landinu hefði tekjur sem dygðu til fram- færslu", eins og Kristín Halldórs- dóttir orðaði það við Morgunblaðið. Engar tillögur hafa verið opinber- KjaUariim Hjörleifur Guttormsson þingmaður fyrir Alþýðubandalagið lega kynntar um það hvemig Kvennalistinn teldi að afla ætti tekna í því skyni né heldur til félags- legra aðgerða, sem vom á óskalista hans. „Allir sammála um mark- mið“? Eftir tveggja vikna könnunarvið- ræður og formlegar stjómarmynd- unarviðræður Þorsteins Pálssonar í Rúgbrauðsgerðinni gat ritstjóri Morgunblaðsins dregið niðurstöð- umar saman þannig: „Þegar sjálf- stæðismenn, kvennalistakonur og alþýðuflokksmenn skildu, lá annars vegar fyrir að allir vom sammála um að bæta hag hinna lægst laun- uðu og hins vegar að deilt var um leiðir að markmiðinu." - Meira að segja talsmenn Kvennalistans gáfu íhaldinu siðferðisvottorð um góðan ásetning: „Viljinn var fyrir hendi“! Vegna ágreinings um leiðir í launamálum, þar sem allir sögðust vera með góðan ásetning, reyndi aldrei á önnm- atriði. Menn geta t.d. velt því fyrir sér hversu þægilegt það hefði verið fyrir Kvennalistann að fá óskir sínar um lögbindingu lág- markslauna uppfylltar, þó ekki væri nema að hluta til, og standa síðan frammi fyrir sameiginlegri afstöðu sjálfstæðis- og alþýðuflokksmanna um „vamir og öryggi". Á því sviði hafði Morgunblaðið talað skýrt tveimur dögum fyrir viðræðuslit: „Ef fulltrúar Kvennalistans setja þessi mál fyrir sig, eftir að formlegar við- ræður eru komnar á skrið, er ekki unnt að jafna því við annað en hryggbrot." Á þetta reyndi aldrei, og líklega þakka Kvennalistakonur sínum sæla fyrir að hafa sloppið frá borði út á „lögbindingarkröfu" sína. Verðbólga ekki á blaði hjá krötum Allt á sinn tíma og það sannast einnig í úlraunum til stjómarmynd- unar. í stjómarkreppunni eftir kosningamar í desember 1980 var verðbólga eitt helsta viðfangsefhi flokka og fjölmiðla. Allar tillögur vom sendar í gegnumlýsingu hjá Þjóðhagsstofnun sem gaf þeim ein- kunn út frá verðbólguforsendum. í tilraun Þorsteins í Rúgbrauðsgerð- inni um daginn gættu bæði sjálf- stæðismenn og kratar þess vandlega að sýna engar tölur á blaði, sem unnt væri að leggja undir hin gömlu verðbólguforrit úr tíð Jóns Sigurðs- sonar á Þjóðhagsstofnun. Kvenna- listinn uggði hins vegar ekki að sér og hugmyndir hans vom snarlega sendar yfir í Þjóðhagsstofhun. Eftir að þeim hafði verið rennt í gegnum tölvumar þar kom út einkunnin 90% verðbólga í árslok. Dömumar höfðu gengið í gildruna og Þorsteini var óhætt að standa upp frá pókemum. Um sama leyti vom þeir Jón Bald- vin og Jón Sigurðsson búnir að skrifa saman „drög að málefnasamn- ingi“ til brúks fyrir hinn fyrmefnda þegar stóra stundin rynni upp og hann fengi umboðið frá forseta lýð- veldisins. Einnig þar var þess vandlega gætt að á blaði sæjust eng- ar tölur sem hægt væri að leggja undir verðbólgukvarðann. Svo ger- samlega var þetta „trúnaðarmál“ Alþýðuflokksins gerilsneytt að hið hættulega hugtak verðbólga kom þar hvergi fyrir á 9 vélrituðum síð- um. Nú er eftir að sjá hvort viðmæl- endur Jóns Baldvins glæpast á að spila út einhveiju sem orðið gæti þeim að fótakefli líkt og Kvennalist- anum, þessa daga sem þjóðin fær að virða fyrir sér eina manninn sem til þess er borinn að verða forsætisráð- herra íslands. Hjörleifur Guttormsson „Menn geta t.d. velt því fyrir sér hversu þægilegt það hefði verið fyrir Kvennalist- ann að fá óskir sínar um lögbindingu lágmarkslauna uppfylltar, þó ekki væri nema að hluta til, og standa síðan frammi fyrir sameiginlegri afstöðu Sjálfstæðis- og Alþýðuflokksmanna um „vamir og ör- yggi“-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.