Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1987, Page 26
38
ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚNÍ 1987.
VANTAR í EFTIRTALIN HVERFI
Lindargata
Frakkastígur 1-9
Klapparstígur 1-30
****************************
Bergstaðastræti
Hallveigarstígur
Spítalastígur
AFGREIÐSLA
Þverholti 11 - Sími 27022
Nauðungaruppboð
3. og síðasta á fasteigninni Deildartúni 4, rishæð, þingl. eigandi Markús
Kristjánsson, fer fram á eigninni sjálfri föstudaginn 12. júní 1987 kl. 11.30.
Uppboðsbeiðendur eru Landsbanki íslands, Akraneskaupstaður, Veðdeild
Landsbanka íslands og Jón Sveinsson hdl.
__________________________Bæjarfógetinn á Akranesi.
Nauðungaruppboð
3. og síðasta á fasteigninni Garðabraut 45,1. hæð nr. 6, þingl. eigandi Björg-
vin Eyþórsson, fer fram á eigninni sjálfri föstudaginn 12. júni 1987 kl. 13.15.
Uppboðsþeiðendur eru Ásgeir Thoroddsen hdl„ Jón G. Briem hdl„ Lands-
banki íslands, Brunabótafélag íslands og Guðjón Ármann Jónsson hdl.
Bæjarfógetinn á Akranesi.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 131., 133. og 135. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1986 á
eigninni Suðurvangi 2, 2. hæð t.v„ Hafnarfirði, þingl. eign Söllu Sigurðardótt-
ur, fer fram eftir kröfu Ólafs Gústafssonar hri. á skrifstofu embættisins að
Strandgötu 31, Hafnarfirði, fimmtudaginn 11. júní 1987 kl. 13.45.
______________________Bæjarfógetinn i Hafnarfirði.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 105., 109. og 111. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1986 á
eigninni Marargrund 2, Garðakaupstað, tal. eigandi Vilhjálmur Ólafsson, fer
fram eftir kröfu Jóhanns H. Nielssonar hrl„ Landsbanka Islands og Guðjóns
Steingrímssonar hrl. á skrifstofu embættisins að Strandgötu 31, Hafnarfirði,
fimmtudaginn 11. júní 1987 kl. 14.15.
_______________________Bæjarfógetinn i Garðakaupstað.
Nauðungaruppboð
annað og síðara á eigninni Breiðvangi 28, 2. hæð B, Hafnarfirði, þingl. eign
Sigfúsar Eirikssonar fer fram á skrifstofu embættisins að Strandgötu 31,
Hafnarfirði, fimmtudaginn 11. júní 1987 kl. 13.30.
Bæjarfógetinn I Hafnarfirði.
Nauðungaruppboð
annað og síðara á eigninni Álfaskeiði 70, 2. hæð t.v„ Hafnarfiröi, þingl. eign
Erlings Gissurarsonar, fer fram á skrifstofu embættisins að Strandgötu 31,
Hafnarfirði, föstudaginn 12. júní 1987 kl. 13.00.
________________________Bæjarfógetinn í Hafnarfirði.
13 v SandJcorn
Hólmfriður Karlsdóttir
Hófí giftir sig
Giftingu Hófíar hefur verið
veitt athygli hér á Akureyri
sem annars staðar. Menn eru
á einu máli um að eigin-
maðurinn hljóti að kallast
herra alheimur.
Vaglaskógur
Það var víst eitthvert fjör í
Vaglaskógi um helgina. Ekki
voru allir skógræktarmenn
hrifnir af því að leyfa ungling-
unum að djamma í skóginum.
Þeir óttuðust að Vaglaskógur
yrði varla-skógur á eftir.
jnnbrot í
Íspan
Um síðustu helgi var brotist
inn glerverksmiðjuna íspan á
Akureyri. Lögreglan fann
skúrkinn sofandi innandyra,
ofurölvi. Hann hafði ekki
kastað neinum steini út úr
glerhúsinu, hvað þá flösku.
Rust á Rauða
torginu
Rust flugkappi, sem lenti á
Rauða torginu í Rússíá, er
sagður maður fámáll. Hann
sagði lítið þegar hann var í
Reykjavík á dögunum. Maður
skyldi ætla að KGB hafi feng-
ið kappann til að tala. Rust
er að minnsta kosti kominn
niðurájörðina.
Siggi ring
Skemmtilegt viðtal er við
Sigurð Ringstad, bankastjóra
Iðnaðarbankans á Akureyri, í
nýjasta tölublaði Sportveiði-
blaðsins. Sigurður er glæsileg-
ur á velli og mikill laxveiði-
maður. Mynd er af Sigurði og
vænum laxi í blaðinu. Sagt er
að Sigurður hafi komið með
myndina í bankann og spurt
starfsfólkið hvor væri fallegri,
hann eða laxinn. „Bíddu nú
aðeins, við skulum sjá,“ ku
starfsfólkið hafa svarað, með
á nótunum.
Fjórir og hálf-
ur
Jón Baldvin Hannibalsson
fann upp nýtt fyrirbæri sem
heitir fiórir og hálfur Fram-
sóknarflokkur. Akureyringar
velta því nú fyrir sér hver
þessi framsóknarmaður sé sem
er alltaf hálfur.
Skriðufrá
jöklunum
Það er mikið stuð á Skrið-
jöklunum þessa dagana,
komnir á nýjan Benzkálf og
stóra platan að koma út um
miðjan mánuðinn. Sagan segir
að þegar þeir sóttu Benzinn
til Þýskalands og fóru heim
með Norrænu frá Danmörku
hafi jöklamir þénað lítillega.
Þeir ku hafa keypt áfengi hjá
Dönum og selt Færeyingum -
á uppsprengdu verð og lifað
góðu lífi af. Neggvamir skriðu
hins vegar frá jöklunum.
Að þjóna látn-
um
Sex ára sonur Stefáns
Gunnlaugssonar, eiganda
Bautans, var orðheppinn á
dögunum við eldri systur sína.
Systirin hefur unnið í Bautan-
um undanfarin sumur en
ákvað að vinna í kirkjugarð-
inum í sumar. Bróðirinn
spurði þá systur sina hvort
ekki væri miklu minna að
hafa upp úr því að þjóna látn-
um en lifandi.
Sieben bitte
Nokkrar fyllibyttur vom á
leik Austur-Þjóðverja og Is-
lendinga á dögunum. Þegar
staðan var orðin sex núil sagði
einhver þeirra sieben, sieben
bitte og fékk sér að sjálfsögðu
sopa með, vinurinn.
Lukkuleg
lögga
Fyrsti kvenlögregluþjónn-
inn er að taka til starfa á
Akureyri þessa dagana og
ræddi Dagur við hana. I við-
talinu segir stúlkan um stutt
undirbúningsnámskeið sem
hún tók þátt í: „Það var líka
frábær andi á þessu nám-
skeiði. Við vorum þrettán og
þó ég væri eini kvenmaðurinn
þá voru strákarnir ekkert
hræddir við að taka á mér á
æfingum."
Það má líklega búast við
fæðingarorlofi í löggunni eftir
níu mánuði.
FlýjatilA-
Þýskalands
Sex núll tapinu fyrir Aust-
ur-Þjóðveijum hefur verið iíkt
við 14-2 tapinu á móti Dönum
um árið. Þá töluðu allir Is-
lendingar dönsku á vellinum
eftir leikinn. Nú ku sieben,
sieben bytturnar hafa rætt um
að gerast pólitískir flóttamenn
og flýja til Austur-Þýska-
lands.
Stefán ráð-
herra
Rætt er um að Stefán Val-
geirsson verði dómsmálaráð-
herra í hugsanlegri minni-
hlutastjórn sjalla, framara og
Stefáns. Þar með verða aftök-
ur endurvaktar á íslandi.
Fálkar í Þing-
eyjarsýslu
Ólafur Karl Nielsen hefur
talið fálka i Þingeyjarsýslu
undanfarið. Hann segir í Degi
að fálkum fari fiölgandi, nú
sé vitað um 40-60 fálkahjón.
Það eru á milli 80 og 120 ef
fyllstu siðsemi er gætt. Ein-
hver sagði að samkvæmt
þessu væri fiórði hver Þingey-
ingur fálki en hinir væru
vindhanar.
Stefán Valgeirsson
Umsjón:
Jón G. Hauksson
BLAÐAUKI
ALLA LAUGARDAGA
BILAMARKAÐUR DV
er nú á fuUri ferð
Nauðungaruppboð
annað og síðara á eigninni Smáraflöt 12, Garðakaupstað, þingl. eign Guð-
jóns Þorleifssonar, fer fram á skrifstofu embættisins að Strandgötu 31,
Hafnarfirði, föstudaginn 12. júní 1987 kl. 13.30.
______________________Bæjarfógetinn í Garðakaupstað.
Nú getur þú spáð í spilin og valið þér bíl í ró og næði.
Blaðauki með fjölda auglýsinga frá bílasölum og bílaum-
boðum ásamt bílasmáauglýsingum D V býður þér ótrúlegt
úrval bíla.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var i 51., 55. og 57. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1984 á eign-
inni Hólalandi, lóð úr jörðinni Lykkju, Kjalarneshreppi, þingl. eign Magnúsar
Kjartanssonar, fer fram eftir kröfu Arnar Höskuldssonar hdl. og Þórðar Þórðar-
sonar hdl. á skrifstofu embættisins að Strandgötu 31, Hafnarfirði, föstudaginn
12. júní 1987 kl. 14.30.
_________________________Sýslumaðurinn í Kjósarsýslu.
Nauðungaruppboð
þriðja og síðasta á eigninni Smáratúni 6, Bessastaðahreppi, þingl. eign Sigur-
hans Hlynssonar, fer fram á eigninni sjálfri föstudaginn 12. júní 1987 kl. 16.00.
____________________Sýslumaðurinn i Kjósarsýslu.
Auglýsendur athugið!
Auglýsingar í bílakálf þurfa að berast í síðasta lagi fyrir kl. 17.00
fimmtudaga.
Smáauglýsingar í helgarblaó þurfa að berast fyrir kl. 17 föstudaga.
Síminn er 27022.