Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1987, Page 32

Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1987, Page 32
ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚNÍ 1987. Svidsljós Ólyginn sagði... Mickey Rooney er hamingjusamur þessa 'dag- ana enda átta kílóum léttari eftir stuttan megrunarkúr. „Einfalt mál," segir Rooney þegar hann er spurður hvernig hann hafi skipulagt kúrinn, „ég ét eins og vitlaus maður fyrir hádegi en snarhætti því um tvöleytið á daginn, eftir það fer ekki meira en eitt epli inn fyrir mínar varir það sem eftir er dags." Merki- legur megrunarkúr þetta! Michael Jackson á í erfiðleikum með gæludýrin sín sem flest eru af skrautlegri toganum. Fyrir nokkru varð hann sér úti um sex metra langa kyrkislöngu. Reyndist hún illa uppalin með afbrigðum og ill- viðráðanleg í umgengni, sér- staklega hvað varðar slæma borðsiði, svo að Michael varð að losa sig við gripinn hið fyrsta en fékk sér aðra sams konar slöngu í staðinn. Sú reyndist ekki skárri og fór allt á sama veg og hjá hinni fyrri. Það var ekki fyrr en með þriðju kyrkislöng- unni sem Michael fann sér hentugan leikfélaga.. .og borð- félaga. Eddie Murphy - grínistinn góðkunni - á erfitt með að koma brosinu fram á varirnará Priscillu Presley, ekkju Elvis Presley. Ástæðan er sú að nýlega er hann byrjaður að slá sér upp með Lísu Maríu, dóttur Priscillu og rokkkóngsins. Priscilla er ekki par hrifin af þessu uppátæki þeirra skötu- hjúa, enda umhyggjusöm móöir í meira lagi. Þótt Eddie ætti að vera fær um að framfæra Lísu Maríu hefur Priscilla einna mestar áhyggjur af þeim slæma félagsskap sem saklaust barnið kynni að leiðast út i í þessu sambandi og áhugi Eddies á villtu næturlífinu í Hollívúdd er Priscillu einnig mikill þyrnir í augum. Loks má bæta því við að Lísa María er á nítjánda ári. Stjarna er fædd Enn ein útvarpsstöðin er komin á laggirnar - Stjarnan sem útvarpar á FM hundrað og tveimur komma tveimur slóst í hóp allra hinna síðastliðinn fimmtudag. Starfsmenn buðu fjölmiðlum að koma og virða fyrir sér húsnæði og starfslið daginn fyrir útsendingar og var þá greinilegt að hlutirnir voru að renna í sínar framtíðarskorður. Kjallarinn í blikksmiðju Breiðfjöíðs hefur tekið miklum stakkaskiptum og rúmar nú Stjörnumenn með sóma - húsnæðið er skemmtílega hannað og aðstaða eins og best verður á kosið. Og Stjörnumenn horfa glöðum augum til komandi daga og ára - hvergi bangnir við samkeppnina. Hallur Leopoldsson markaðsstjóri tók á móti gestum frammi fyrir dyrum Stjörnunnar. Við hlið hans stóð þjónn með kokkteilinn tilbúinn. Hljóðstofa Stjörnunnar er glæsileg og aðbúnaður fyrir starfsmenn eins og best verður á kosið. Gunnlaugur Helgason við stjórnborðið en að baki má meðal annarra þekkja framkvæmdastjórann Hafstein Vilhelmsson, Ólaf Laufdal og Jón Björgvinsson. Starfsmenn fréttadeildarinnar sérstæðu sem einungis ætlar að flytja hinseg- infréttir - Jón Ársæll Magnússon og Gunnar Gunnarsson. Margra vikna svefnlausar nætur og trylltir vinnudagar að baki en kapparn- ir Þorgeir Ástvaldsson og Jón Axel Ólafsson eru greinilega ennþá með lífsmarki. Rit- hönd Derr- icks Sá vinsæli Derrick gat ekki kvartað yfir við- tökunum hjá hinu meinta veika kyni á íslandi. Hann var sem kunnugt er í heimsókn hérlendis fyrir skömmu og þar flykktust að honum blómarósir landsins á öll- um aldri. Á meðfylgjandi DV-mynd sést kappinn árita myndir af sjálfum sér, vinum . og vanda- mönnum Germaníu til ævarandi eignar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.