Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.1987, Blaðsíða 2
2
LAUGARDAGUR 13. JÚNÍ 1987.
Stjómmál
Kratar og Framsókn
gegn SjáHstæðisflokki
Aðalviðræðunefnd flokkanna. Verður þetta næsta ríkisstjórn? DV-mynd GVA
Tveir fundir, sem alþýðuflokks-
mennimir Jón Baldvin Hannibals-
son og Jón Sigurðsson áttu með
framsóknarmönnunum Halldóri Ás-
grímssyni og Guðmundi Bjamasyni
í Alþingishúsinu fyrir tíu dögum,
miðvikudaginnU: júní, daginn eftir
að Jón Baldvin fékk umboð forseta
til stjómarmyndunar, virðast hafa
skipt sköpum um hvemig mál áttu
eftir að þróast.
Þegar eftir að þingflokkur Fram-
sóknarflokksins hafði þennan
miðvikudag samþykkt að ganga til
viðræðna við Alþýðuflokk og Sjálf-
stæðisflokk settust þeir niður,
Jónamir, með Halldóri og Guð-
mundi. Fyrst ræddust þeir við í hálfa
aðra klukkustund, milli klukkan 15
og 16.30, en hófu svo annan fund
klukkan 17.
Daginn áður hafði formaður Al-
þýðuflokksins á einfaldan hátt eytt
stærsta ágreiningsmáli flokkanna
með yfirlýsingu um að búvömsamn-
ingurinn frá þvi í mars væri pólitísk
staðreynd sem nyti íylgis meirihluta
Alþingis.
Sögulegar sættir Alþýðu-
flokks og Framsóknarflokks
Þegar fjórmenningarnir stóðu upp
um kvöldmatarleytið var orðið að
óformlegu samkomulagi að Alþýðu-
flokkur og Framsóknarflokkur yrðu
samstíga gegn Sjálfstæðisflokki í
mikilvægasta málinu; hverjir ættu
að borga fjárhagshalla ríkissjóðs og
hversu mikið. Með öðrum orðum:
hvemig haga skyldi skattheimtu.
Samkomulag Alþýðuflokks og
Framsóknarflokks em merk tíðindi.
Stutt er síðan stóryrtar yfirlýsingar
gengu á milli flokkanna. Nú segja
menn að hnífur komist ekki á milli
þeirra. Talað er um sögulegar sættir
eftir 30 ára stríð.
Jónamir skýrðu framsóknar-
mönnunum frá því umræddan
miðvikudag að viðræður Alþýðu-
flokks, Sjálfstæðisflokks og Kvenna-
lista hefðu ekki strandað á
lágmarkslaunakröfu Kvennalistans
heldur því að Sjálfstæðisflokkurinn
var ekki tilbúinn að fara í þær að-
gerðir sem Alþýðuflokkurinn taldi
nauðsynlegar sem fyrstu aðgerðir til
að ná jafnvægi í ríkisbúskapnum og
draga úr þenslu.
Krafa um neyðaraögerðir
Með kröfu um fyrstu aðgerðir, sem
er í raun aðeins fínt orðalag um
neyðaraðgerðir, var Alþýðuflokkur-
inn að lýsa því yfir að viðskilnaður
ríkisstjómarinnar væri það slæmur
að ekkert annað en róttækar aðgerð-
ir þyrfti strax.
Framsóknarflokkurinn tók undir
kröfu Alþýðuflokksins um nauðsyn
fyrstu aðgerða enda voru þær í góðu
samræmi við stefnu framsóknar-
manna. Með því voru framsóknar-
menn einnig að koma ábyi-gðinni á
Sjálfstæðisflokkinn og Þorstein
Pálsson, sem stýrði fjármálaráðu-
neytinu, á því hvemig komið var:
bullandi halli og verðbólgan á hraðri
uppleið.
Sjálfstæðismenn hafa allt fram á
síðustu daga staðið gegn hvers kon-
ar „fyrstu aðgerðum" sem kalla á
frekari skattheimtu. Hafa þeir viljað
gera lítið úr rekstrarhalla ríkissjóðs.
Eftir að umræðan hefur að undan-
fömu meira og minna snúist um
„fyrstu aðgerðir" til að bjarga ríkis-
sjóði og stöðva ört vaxandi verð-
bólgu mátti í gær sjá merki þess að
sjálfstæðismenn ætluðu að svara
áróðrinum. Birt er frétt í Morgun-
blaðinu um að rekstrarhallinn sé
minni en áætlað var.
Ágreiningsmálin
Fyrir viðræður flokkanna lá ljóst
fyrir hvaða önnur mál yrðu ágrein-
ingsefni á milli flokkanna. Auk
krafna í skattamálum gerði Alþýðu-
flokkurinn kröfur í húsnæðismálum
og lífeyrismálum sem ljóst var að
erfitt yrði fyrir hina flokkana að
samþykkja.
friinra hefur farið fyrir „erfiðum'*
kröfum hinna flokkanna. Framsókn-
armenn hafa lagt áherslu á að koma
umhverfismálum undir eina stjóm.
Sjálfstæðismenn vilja selja fleiri rík-
isfyrirtæki og auka enn frelsi í
viðskiptalífi.
Fréttaljós
Kristján Már Unnarsson
Eftir að hafa gleypt búvömsamn-
inginn höfðu alþýðuflokksmenn orð
um að þeir hefðu ekki sagt sitt síð-
asta í landbúnaðarmálum. Var á
þeim að skilja að þeir myndu reyna
að knýja fram ýmsar breytingar á
landbúnaðarkerfinu. Ekki er þó að
sjá að þeir hafi sett neitt það fram
sem raski ró framsóknarmanna.
í lífeyrissjóðsmálum krafðist Al-
þýðuflokkurinn eins lífeyrissjóðs
fyrir alla landsmenn. Fljótlega
breyttist sú krafa í samræmd lífeyris-
rétnndi fyrir alla landsmenn. Hafa
flokkamir þrír nú náð samkomulagi
um að gera tillögur svokallaðrar 17
manna nefhdar að stjómarfrumvarpi
væntanlegrar ríkisstjómar, þó með
einhveijum smávægilegum breyt-
ingum.
Kauploir’iíbúðir eina
haldreipið
Alþýðuflokksmenn eiga þvi aðeins
eitt eftir, vilji þeir setja mark sitt á
ríkisstjóm þessara þriggja flokka.
Það em kaupleiguíbúðimar.
Skiljanlegt er það sjónarmið innan
þingflokks þeirra að ótækt sé að fara
í þessa ríkisstjórn sem þriðja hjól
undir vagni nema að fá sæmilega
viðunandi skref tekið í þessu máli.
Framsóknarmenn virðast reiðu-
búnir að veita kaupleiguíbúðum
möguleika á að komast í gang en
án þess að viðbótarfjármagni verði
veitt til húsnæðiskerfisins. En þeir
vilja líka Búseta um leið. Sjálfstæð-
ismenn em lítt hrifnir.
Það var mat eins þingmanns
Framsóknarflokksins í fyrradag að
viðræðumar gætu spmngið á kaup-
leiguíbúðunum.
í umhverfismálum virðist vera
samkomulag um að yfirstjóm þeirra
verði undir einu ráðuneyti.
Skipting ráðuneyta
Formlegar viðræður um ráðherra-
stóla hófust fyrst í fyrradag. Fyrstu
drögin bámst frá formönnunum til
umræðu í þingflokkum. Þau vom
að forsætisráðuneytið, utanríkis-
ráðuneytið og fjármálaráðuneytið
myndu skiptast á milli flokkanna.
Sjálfstæðisflokkurinn gerir stífa
kröfu um forsætisráðuneytið. Næst-
besti kostur Steingríms er utanríkis-
ráðuneytið. Alþýðuflokkurinn telur
sig hafa hæfasta manninn í fjármála-
ráðuneytið.
Deilur innan Sjálfstæðisflokksins
hafa hins vegar sett strik í reikning-
inn og veikt mjög stöðu Þorsteins
Pálssonar.
Sjálfstæðisflokkurinn vill að ráð-
herrar skiptist í hlutföllunum 4-3-3
og ráðuneytin í hlutföllunum 54-3.
Alþýðuflokkur og Framsóknar-
flokkur vilja að ráðherraskiptingin
verði 3-3-3 og ráðuneytaskiptingin
444.
Drög, sem líklega urðu til hjá
óbreyttum þingmönnum í Fram-
sóknarflokki og Alþýðuflokki,
gengu á milli manna fyrr í þessari
viku. Samkvæmt þeim var gert ráð
fyrir þessari skiptingu:
Sjálfstæðisflokkur fengi forsætis-,
dóms- og kirkjumála, iðnaðar- og
samgönguráðuneyti.
Framsóknarflokkur fengi utanrík-
is-, viðskipta-, sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðuneyti.
Alþýðuflokkur fengi fjármála-,
menntamála-, félagsmála- og heil-
brigðis- og tryggingaráðuneyti.
Við bollaleggingar um ráðherra
hafa menn frristast til að horfa á
aðalviðræðun fnd flokkanna.
Hverjir verða ráðherrar?
Frá Alþýðuflokki eru Jón Baldvin,
Jón Sigurðsson og Jóhanna Sigurð-
ardóttir, allt Reykjavíkurþingmenn,
sem veldur höfuðverk þar á bæ.
Kjartan Jóhannsson er talinn fyrst-
ur ef farið verður út fyrir þennan
hóp.
Steingrímur Hermannsson og
Halldór Ásgrímsson eru óumdeildir
sem ráðherrar áfram. Þriðji maður
þeirra í viðræðunum er Guðmundur
Bjarnason sem sterklega kom til
greina sem ráðherra fyrir fjórum
árum. Erfitt verður þó fyrir þing-
flokk Framsóknar að ganga fram hjá
Jóni Helgasyni ef skipa þarf í land-
búnaðarráðuneytið.
■Þorsteins Pálssonar bíður hins
vegar afar erfitt verkefiii að velja
ráðherra úr þingliði Sjálfstæðis-
flokksins. Með honum í viðræðu-
nefndinni eru Friðrik Sophusson og
Ólafur G. Einarsson. En fjölmargir
aðrir telja sig eiga tilkall til ráð-
herradóms. Auk ráðherranna
Matthíasar Á. Mathiesen, Matthías-
ar Bjamasonar, Ragnhildar Helga-
dóttur og Sverris Hermannssonar
bíða Birgir ísleifur Gunnarsson,
Halldór Blöndal og Pálmi Jónsson
og trúlega fleiri.
-KMU
Átökin í SjáHstæðisflokknum:
Gagnrýnin veikir stóðu Þorsteins
Mikill titringur greip um sig í
Sjálfstæðisflokknum í gær eftir að
gagnrýni þeirra Sverris Hermanns-
sonar og Matthíasar Bjamasonar á
Þorstein Pálsson kom fram.
Ljóst er að staða Þorsteins hefur
veikst mjög við það að tveir ráð-
herrar og áhrifamenn í flokknum
ganga fram fyrir skjöldu á þennan
hátt og beina að honum þetta bein-
skeyttri gagnrýni. Fleiri þingmenn
hafa komið fram með athugasemdir
við ffamgöngu Þorsteins eftir að
yfirlýsingar Sverris og Matthíasar
birtust og er ljóst að það mun kosta
Þorstein nokkurt átak að ná tökum
á flokknum á ný.
Þá er einnig ljóst að þetta umrót
í flokknum nú gerir aðstöðu Þor-
steins í stjómarmyndunarviðræðun-
um mun erfiðari. Hann mun verða
að fara varlegar í sakimar við að
semja um einhver þau atriði sem
valdið geta óánægju hjá þingliði
flokksins.
„Þessi uppákoma bindur Þorstein
í báða skó, hann hefur ekki stöðu
til að keyra eitt né neitt í gegnum
þingflokkinn á næstunni," sagði
einn af þingmönnum Sjálfstæðis-
flokksins í samtali við DV í gær-
kvöldi.
Nú leggur Þorsteinn því allt kapp
á að ná tökum á þingliði sínu á ný.
Hann ræddi meðal annars við Sverri
Hermannsson í gær og hann ræddi
einnig ítarlega við Matthías Bjama-
son.
„Já, ég hef rætt við Þorstein og
Ólaf G. í dag og málin hafa skýrst.
Nú munum við taka höndum sam-
an,“ sagði Sverrir Hermannsson í
samtali við DV í gærkvöldi. Greini-
legt var á öllu að talað haföi verið
um fyrir Sverri því hann dró í land
í flestum atriðum. „Þorsteinn mun
nú taka á stjómarmynduninni af
krafti og ég er sannfærður um það
að þingflokkurinn fylkir sér á bak
við hann.“ Þá er Sverrir búinn að
skipta enn einu sinni um skoðun um
það hvort hann gefur kost á sér til
ráðherraembættis og hefur nú
ákveðið að gefa kost á sér.
-ES