Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.1987, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.1987, Blaðsíða 6
6 LAUGARDAGUR 13. JÚNÍ 1987. Utlönd Sigri Thatcher víða fagnað Sigri íhaldsmanna, undir forystu Margaret Thatcher forsætisráðherra, í þingkosningunum á Bretlandi á fimmtudag hefur víða verið fagnað af aðdáendum hennar og samheijum í hinum ýmsu löndum heims. Thatcher hélt eitt hundrað sæta meirihluta í neðri málstofu breska þingsins og hefur því traust tök á stjómvöl breska ríkisins næstu árin. Alls hlaut flokkur hennar 375 þing- sæti sem er fimmtán sætum minna en hann hafði fyrir kosningar. Verka- mannaflokkurinn fékk 229 sæti eða 21 sæti meira en í síðustu kosningum. Kosningabandalag frjálslyndra og sós- íaldemókrata varð hins vegar fyrir miklu áfalli í kosningunum og hefur aðeins 22 þingsæti. Thatcher bárust ámaðaróskir frá utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna og helstu bandalagsríkjum Breta þegar í gærmorgun. Þá hringdi Ronald Reagan Banda- ríkjaforseti í hana frá Vestur-Berlín, þar sem hann var í heimsókn, og ósk- aði henni til hamingju með þennan mikla sigur. Utanríkisráðherrar ríkja Atlants- hafsbandalagsins, sem sátu fund í Reykjavík í gær, lýstu yfir ánægju sinni með sigur Thatcher, enda mun stefna Verkamannaflokksins, helsta keppinautar íhaldsmanna á Bretlandi, í vamarmálum þykja óvænleg meðal NATO-ráðherra. Þá fógnuðu stjómvöld í Suður-Afr- íku sigri Thatcher og sögðu að það hefði orðið erfiður kostur að eiga við Bretland undir stjóm Verkamanna- flokksins, með eða án þátttöku kosn- ingabandalags frjálslyndra og sósíaldemókrata. Hefur S-Afríku- mönnum efalaust verið í huga sú staðreynd að í röðum stjómarand- stöðuþingmanna era nú þrír þeldökk- ir, tveir karlmenn og ein kona, og hefði mátt búast við harðri afstöðu þeirra gegn kynþáttaaðskilnaðar- stefnu stjómvalda í S-Afn'ku. Loks má geta þess að stjómmála- menn í Argentínu fóra vægt í sakimar og fögnuðu ekki opinberlega endur- kjöri Thatcher sem á sínum tíma sendi breska herinn á þá út af Falklandseyj- um. Hins vegar tók að minnsta kosti einn argentískur stjómmálamaður í þann streng í gær að nú gæti Thatc- her líklega gengið til samninga um Falklandseyjar við Argentínumenn þegar kosningabaráttan er að baki. Margir þættir þeirrar deilu munu enn óútkljáðir. Margaret Thatcher veifar hér til stuðningsmanna ásamt eiginmanni sínum, Dennis, fyrir utan opinberan bústað forsæt- isráðherra Bretlands, Downing stræti númer tiu. simamynd Reuter Hvatti til niður- rifs Berlínarmúrs Reagan forseti virðir fyrir sér Berlínarmúrinn frá Brandenborgarhliðinu. Hann horfir gegnum plötu úr skotheldu gleri sem komið var fyrir þar tii að verja forsetann hugsanlegum árásum. simamynd Reuter Ronald Reagan Bandaríkjaforseti hvatti í gær austantjaldsríki til þess að rífa Berlínarmúrinn til granna en forsetinn var þá í opinberri heimsókn í Vestur-Berlín í tilefhi af sjö hundrað og fimmtíu ára afinæli borgarinnar. Til mikilla óeirða kom fyrir heim- sókn forsetans og tóku um tuttugu þúsund manns þátt í mótmælum gegn Bandaríkjunum. Meðan á heimsókn forsetans stóð héldu liðlega þúsund menn úr óeirðasveitum lögreglunnar um átta hundrað af áköfustu mótmæl- VIÐ SENDUM ÍSLENSKUM SJÓMÖNNUM ÁRNAÐARÓSKIR í TILEFNI DAGSINS EIMSKIP * endunum innilokuðum í miðborg V-Berlínar, nálægt rústum kirkju sem ekki hefur verið gert við eftir heims- styrjöldina síðari. Era kirkjurústimar varðveittar sem minnismerki um styij- öldina. Nokkur ungmenni, sem vora meðal mótmælenda, slösuðust þegar lögregla réðst gegn þeim með kylfum. Ungling- amir fleygðu gijóti og flöskum að lögreglunni og þegar átti að sleppa þeim úr haldi settust tugir þeirra á götuna og varð að bera þá á brott. I heimsókninni skoðaði Reagan for- seti meðal annars Berlínarmúrinn úr Þúsundir í kröfúgöngu í Póllandi Þúsundir pólskra ungmenna lögðu af stað í kröfúgöngu um götur borgar- innar Gdansk í gær eftir að hafa hlýtt á messu Jóhannesar Páls II. páfa þar. Hófu ungmennin gönguna þrátt fyrir að páfi hefði beðið fólk að sýna still- ingu. Vitni segja að ungmennin hafi hróp- að slagorð með Einingu, sem era bönnuð samtök, og leiðtoga þeirra, Lech Walesa. Þá munu þau einnig hafa haldið á spjöldum með yfirlýsing- um um stuðning við friðarhreyfingu sem einnig er bönnuð í Póllandi. í fyrstu fréttum frá Gdansk sagði að lögreglan hefði engin afskipti af göngufólkinu þótt mikill skari örygg- isvarða væri á svæðinu. Tugþúsundir manna úr hópi þeim sem hlýddi á messu páfa fylgdist með göngunni og hlýddi á göngufólkið hrópa „það er ekkert frelsi án Eining- ar“. Mun minni kröfuganga, sem farin var við heimsókn páfa til borgarinnar Krakow fyrr í vikunni, var harðlega fordæmd af leiðtogum kommúnista- flokks Póllands. Sögðu fiokksleið- togamir að truflanir af þessu tagi gætu stórlega skaðað kirkju landsins. Páfi hvatti þá sem hlýddu á messu hans, sem vora nær milljón manna, til þess að sýna stillingu og minnti þá á að marka ekki dýrð dagsins með slíku. nokkurri fjaríægð. Ekki þótti öryggi hans tryggara en svo að hann varð að standa bak við plötu úr skotheldu gleri á meðan. Peningamarkaður INNLÁNSVEXTIR Innlán óverðtryggð (%) hæst Sparisjóösbækur óbund. 10-12 Ib.lb Sparireikningar 3ja mán. uppsögn 11-15 Sb 6 mán. uppsögn 12-20 Ib 12 mán. uppsögn 14-25,5 Sp.vól. 18 mán. uppsögn 22 24.5 Bb Ávísanareikningar 4-10 Ab Hlaupareikningar Innlán verðtryggð 4-7 Sp Sparireikningar 3ja mán. uppsögn 1,5-2 Ab.Bb, Lb.Sb, Úb.Vb 6 mán. uppsögn Innlán með sérkjörum 2,5-4 10-22 Ab.Úb Innlán gengistryggð Bandaríkjadalur 5,5-6,5 Ib Sterlingspund 7,5-10 Vb Vestur-þýsk mörk 2,5-3.5 Ab.Vb Danskarkrónur 9-9,5 Ab.Sb, Sp.Úb ÚTLÁNSVEXTIR Útlár óverðtryggð (%) lægst Almennir vixlar(forv.) 21-24 Bb.Úb Viðskiptavíxlar(forv.)(1) 24-26 eöa kge Almennskuldabréf 21.5-25 Úb Viðskiptaskuldabréf(1) kge Allir . Hlaupareikningaríyfirdr.) Útlán verðtryggð 21,5-25 Úb Skuldabréf Aö 2.5árum Til lenari tíma Útlán til rramleiðslu 6,5-7,5 6,75-7.5 Lb Úb Isl. krónur 18,5-24 Ab SDR 7.75-8 Bb.Lb. Úb Bandaríkjadalir Sterlingspund Vestur-þýsk mörk 8-9 10.25- 11.5 5.25- 5.75 3,5 Sb Lb Bb.Lb Húsnæðislán Lífeyrissjóðslán 5-6,75 Dráttarvextir 33,6 VÍSITÖLUR Lánskjaravisitala júní 1687 stig Byggingavísitala 305 stig Húsaleiguvísitala Hækka0i3%1.april HLUTABRÉF Söluverð að lokinni jöfnun Almennar tryggingar 110 kr. Eimskip 248 kr. Flugleiðir 170kr. Hampiðjan 114 kr. Iðnaöarbankinn 134 kr. Verslunarbankinn 116 kr. Úgerðarf. Akure. hf. 150 kr. Skagstrendingur hf. 350 kr. . (1) Við kaup á viðskiptavíxlum og skiptaskuldabréfum, útgefnum af j aðila, er miðað við sérstakt kaupg kge. Búnaðarbanki kaupir viðskipt; gegn 24% ársvöxtum, Samv.banki 25 nokkrir sparisj. 26%. Skammstafanir: Ab = Alþýðuban Bb = Búnaðarbankinn, lb=lðnaðart inn, Lb=Landsbankinn, Sb = Samvi bankinn, Úb = Otvegsbankinn, Vb = \ unarbankinn, Sp = Sparisjóðirnir. Nánari upplýsingar um peningamarki birtast i DV á fimmtudögum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.