Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.1987, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.1987, Blaðsíða 14
14 LAUGARDAGUR 13. JÚNl 1987. Sigrún Geirsdóttir, fulltrúi Alþýðubandalagsins: Sveitarstjómarmálin, eiginmaðurmn og §51skyldan Sigrún Geirsdóttir er fulltrúi Al- þýðubandalagsins. Hún er 43 ára gömul, lærð fóstra en vinnur í prent- smiðjunni Nesprent sem hún og eiginmaður hennar, Guðmundur Haraldsson, reka. Þau eiga fjögur börn, Harald (22 ára), tvíburana Bergrósu og Berglindi (20 ára) og Gerði (16 ára). Sigrún er gömul handboltakempa, lék með Val á unglingsárunum en síðan með Þrótti. Sigrún hefur starf- að mikið með kvenfélaginu Nönnu og einnig verið í stjórn Foreldrafé- lags Grunnskólans í Neskaupstað. -Hvað dró þig út i stjórnmálin? „Ég hef starfað í ýmsum nefndum á vegum bæjarins fyrir Alþýðu- bandalagið og hef áhuga á bæjarmál- um. Fyrir síðustu bæjarstjórnar- kosningar var ég beðin um að taka þátt í próíkjöri í Alþýðubandalaginu og eftir mikla umhugsun sló ég til. Það þýðir ekki að standa alltaf hjá og benda á aðrar konur, en það erum við konurnar alltof gjarnar á að gera. 1 framhaldi af prófkjörinu tók ég svo sæti á lista flokksins." -Hefurðu nægan tíma til að sinna stjórnmálum og heimilishaldi? „Eins og hjá mörgum endist sólar- hringurinn ekki alltaf, hann mætti vera lengri. Þrjú elstu börnin voru að heiman í vetur vegna skólagöngu svo að heimilishaldið var í minna lagi. Annars tekur öll fjölskyldan þátt í þeim verkum." -Hvað um áhugamál? „Núna eru það sveitarstjórnarmál, eiginmaðurinn og fjölskyldan sem taka mestan tímann. Svo starfa ég töluvert í kvenfélaginu. Þá hef ég gaman af því að fara á skíði og einn- ig af því að föndra en hef haft lítinn tíma fyrir það að undanförnu." -Hvernig líst þér á að konur skuli vera komnar með meirihluta í bæjar- stjórn og hvað um samstarf við konurnar í framtíðinni? „Þessi staða er komin upp vegna mjög óvenjulegra aðstæðna í Sjálf- stæðisflokknum en það er ánægju- legt að það skuli vera einmitt hér á Neskaupstað sem konur verða fyrst- ar til að vera í meirihluta í bæjar- stjórn. Að sjálfsögðu vænti ég mér alls góðs af starfi kvennanna í bæjar- stjórn. En það ár, sem ég er búin að vera bæjarfulltrúi, hefur samstarfið með mínum samherjum i Alþýðu- bandalaginu verið gott og á ég ekki von á öðru en að það verði svo áfram.“ *■*■******. * Sigrún Geirsdóttir að störfum í prentsmiðjunni Nesprent Konuríki í Neskaupstað? JT / I #■! 1 . t Konur 1 meirinluta 1 bæj ar- stjóm í fyrsta sinn á íslandi Þegar Eggert Brekkan læknir sagði sig úr bæjarstjórn Neskaup- staðar og Elínborg Eyþórsdóttir kom inn í hans stað skapaðist sú staða í fyrsta sinn á íslandi að kon- ur komust í meirihluta í bæjar- stjóm. Forsaga þessa máls er sú að bæj- arstjóm barst tillaga frá bæjarráði um að Neskaupstaður sækti um að stofhuð yrði H 2 heilsugæslustöð með tveimur læknum, hjúkruna- rfræðingi og aðstöðu fyrir tann- lækni en bærinn hefur verið tannlæknislaus um alllangan tíma. Eggert Brekkan, yfirlæknir Fjórðungssjúkrahússins á Nes- kaupstað og bæjarfulltrúi Sjálf- stæðisflokksins, bar þá fram frestunartillögu og lagði til að kostnaðaráætlun bæjarins yrði skoðuð vegna þessarar tillögu. Frestunartillagan var felld með atkvæðum Alþýðubandalags- manna en aðrir sátu hjá. Vegna þessa máls hætti Eggert setu í bæjarstjóm og Elínborg tók við. Þar með voru konur orðnar i meirihluta fastafulltrúa í bæjar- stjóm, eða fimm á móti fjórum körlum. Kvenfuiltrúarnir í bæjarstjórn Neskaupstaðar voru sammála um að það væri mjög ánægjulegt að þessi staða í bæjarmálum skyldi fyrst koma upp í Neskaupstað og benti þetta til mikillar sóknar kvenna á sviði stjórnmála ekki síð- ur en á öðrum sviðum. Konurnar í bæjarstjóm Nes- kaupstaðar voru teknar tali og þær meðal annars spurðar um bæjar- málapólitíkina, áhugamálin og hvemig stjórnmálaafskipti sam- rýmdust heimilisstörfumun. Elínborg Eyþórsdóttir, fulltrúi Sjálfstæðisflokksins: Konur hafa betri innsýn í mörg mál Elínborg Eyþórsdóttir er fulltrúi Sjálfstæðisflokksins. Hún er 44 ára gömul skrifstofumær. Elínborg er gift Sigfúsi Ó. Guðmundssyni og reka þau hjónin skrifstofu með umboðum fyrir meðal annarra Flugleiðir og Eimskip. Þau hjón eiga tvö börn, Guðmund (25 ára) og Þóreyju (21 árs). Þá eiga þau tvö barnabörn. Elínborg hefur í mörg ár starfað í skólanefnd fyrir Sjálfstæðisflokkinn og var í stjórn Slysavarnafélagsins. Þá er hún í stjórn Rauða kross deild- arinnar og eftir að hún tók sæti í bæjarstjórn hafa bæst við ýmis nefndarstörf. -Hvað kom þér til að hefja af- skipti af stjórnmálum? „Ástæðan er einfaldlega sú að ég álít það siðferðilega skyldu einstakl- ings að láta sig skipta mál bæjarfé- lagsins sem hann býr í. Reyna að bæta umhverfið og mannlega þætti eins og frekast er kostur fyrir næstu kynslóð." -Fer ekki óhemjutími í allt þetta félagsmálastúss? „Eg hef nóg að gera. Bæjarmálin hafa ekki tekið mikinn tíma fram að þessu. Þetta kemur því sem óvænt viðbót við önnur störf.“ -Hvað um áhugamál? Áhugamálin eru mörg en yfirleitt er tíminn af skornum skammti. Ég hef gaman af að dunda í garðinum og ég renni fyrir silung og lax þegar ég get. Annars er bridge mjög ofar- lega á blaði hjá mér en við Elma höfum spilað saman bridge í mörg ár. Síðast en ekki síst er ég svo ham- ingjusöm að eiga tvö yndisleg barnabörn sem ég vildi svo sannar- lega hafa meiri tíma til að sinna. Svo vantar alltaf fleiri stundir til að eyða með fjölskyldu og vinum.“ -Hvernig líst þér á stöðuna í bæj- armálum og væntanlega samvinnu kvenna í bæjarstjórn? „Mér finnst ánægjulegt að í Nes- kaupstað skuli konur fyrstar á íslandi skipa meirihluta í bæjar- stjórn og ég tel gott að konur fái að spreyta sig á bæjarmálum. Ég held að konur hafi betri innsýn í ýmis mál sem upp geta komið og bæjar- stjórn hefur í sínu valdi að láta ná fram að ganga. Vonandi verður gott samstarf milli allra bæjarfulltrúa, bæjarfélaginu til heilla.“ Myndir og texti: Þorgerður Malmquist Elínborg Eyþórsdóttir að störfum á umboðsskrifstofu Flugleiða og Eimskips.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.