Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.1987, Blaðsíða 19
LAUGARDAGUR 13. JÚNÍ 1987.
19
V
Þeim leist vel á sig í nýju flugstöðinni, Helgu og Jóhanni
„Sannarlega fallegt“
„Þetta er sannarlega fallegt, sérstaklega
blómin," sagði Helga Jónasdóttir og maður
hennar, Jóhann Indriðason, var nokkuð
sammála. Hann sagðist hafa komið þarna
áður og fundist svolítið pakkað. „Þetta fer
eftir umferð, núna er þetta afslappað og ró-
legt. Annars tala menn um að þetta sé of
lítil bygging, það hafi vantað framtíðarsýn
inn í umræðuna," sagði Jóhann. „Að öðru
leyti er þetta persónulegra en maður sér
erlendis og fríhöfnin afskaplega hugguleg.“
Þau hjónin voru á leið í frí, fyrst til Kaup-
mannahafnar en þaðan ætluðu þau til
Austurríkis.
„Mætti vera stærri“
„Mér fmnst flugstöðin líta ljómandi vel
út. Þó hélt ég að hún væri miklu stærri,"
sagði Ásta Eyjóifsdóttir. Lárus Bergsson,
maður hennar, sagði að sér kæmi þetta ekk-
ert á óvart. „Maður var búinn að sjá þetta
á myndum. Mér þykir móttökusalurinn samt
ekki nógu skemmtilegur. Hann hefði átt að
vera miklu stærri. Mér finnst hann eiginlega
vera minni en sá sem var í gömlu flugstöð-
inni,“ sagði hann. Lárus og Asta voru á leið
til London í viðskiptaerindum.
Lárus Bergsson og Asta Eyjólfsdóttir voru á leið til London. Þeim fannst að flugstöðin
mætti vera stærri.
Vigdis Schram og Kristín Guð-
mundsdóttir.
„Hrifin afLeifi“
„Mér fmnst þetta aiveg frá-
bært, sérstaklega listaverkið
hans Leifs Breiðfjörð. Ég hef allt-
af verið svo hrifin af Leifi sem
listamanni og keypti af honum
verk löngu áður en hann varð
frasgur," sagði Kristín Guð-
mundsdóttir. Hún sagðist vera að
fara í menningarferöaiag til
Grikklands þar sem Sigurður A.
Magnússon myndi leiða hópinn
og kynna sögufræga staði, sér-
staklega á eynni Krít. Vigdís
Schram var með henni og sagðist
hún einnig vera mjög hrifin af
nýju flugstöðinni. „Það er helst
að verslanirnar í fríhöfninni séu
of litlar," sagði hún.
„Bara ágætt“
„Mér líst bara alveg ágætlega
á þetta, annars var ég ekki búin
að gera mér neina hugmynd um
hvernig þetta liti út,“ sagði Signý
Gísladóttir sem, ásamt Evu Dögg,
fjögurra ára dóttur sinni, var að
fara til Kaupmannahafnar. Þar
ætluðu þær að vera í mánuð í
heimsókn hjá skyldfólki. Signý
sagðist hafa verið spennt að sjá
nýju flugstöðina og það ylli sér
nokkrum vonbrigðum hversu lítil
fríhöfnin væri.
Signý Gísladóttir og Eva Dögg.
Sverrir Norðfjörð, Alena Anderlav og Sverrir 11 ára. Fjölskyldan var
ákaflega skrautlega klædd.
„Þetta er gjörbylting“
„Þetta er vissulega mikil bylting frá því sem var,“ sagði Sverrir Norð-
^örð sem var á ferð með fjölskyldu sinni. „Við hjónin erum bæði
arkitektar þannig að við horfum kannski á flugstöðina með öðrum
augum en margir aðrir. Annars er þetta gjörbylting, þótt hún sé ekki
stór. Annars virðist flugstöðin vera hlýleg og heimilisleg og það sér
maður ekki í öðrum löndum. Afgreiðsluborðin eru kannski svolítið
kubbsieg en það er. smáatriði," sagði Sverrir. Eiginkona hans. Alena
Anderlav, sem er tékknesk, tók að mestu undir skoðanir hans og sagð-
ist vera ánægð með flugstöðina. „Það mættu vera fleiri sjónvarpsskerm-
ar þar sem maður gæti fylgst með flugi.“ sagði hún. Báðum fannst þeim
móttökusalurinn vera of lítill. Fjölskyldan var á leið til Lúxemborgar
þar sem þau ætluðu að fá sér bílaleigubíl, svokallað flug og bíll, og átti
að halda til Þýskalands, Sviss, Frakklands, Mónakó og enda á Kor-
síku. „Þetta verður bæði sumarleyfi og vinna því við ætlum að kynna
okkur byggingarlist þessara landa."
„Stórkostleg“
„Okkur líst mjög vel á nýju
flugstöðina, fmnst hún alveg
stórkostleg," sögðu þau Ragnar
Kristinsson og Guðlaug Sigurð-
ardóttir sem voru á leið til
Benidorm með tvö börn sín, árs-
gamalt og tveggja ára. „Við
vorum mjög ánægð með fríhöfn-
ina, versluðum talsvert þar og
fannst ódýrt. Þetta er nokkurn
veginn eins og maður hafði búist
við eftir þeim myndum að dæma
sem maður hafði séð,“ sagði
Ragnar. Voru þau ekkert kvíðin
að fara með tvö lítil börn á sólar-
strönd? „Nei, alls ekki.“
ana tvo, Viktor, 2ja ára, og
Kristin, ársgamlan, á leið til
Benidorm.
„Við erum mjög ánægð,“ sögðu þau Jakob Gunnarsson, Þurý Árnadóttir og Árni, 12 ára.
Þetta er flott“
er allt annar heirnur," sagði hann. „Ég er
mjög sáttur við flugstöðina miðað við þá
gömlu. Mér finnst þetta allt vera mjög ein-
falt og þægilegt í sniðum og stöðin alveg
mátulega stór.“ Þau voru á leið til Frakk-
lands ásamt syninum Árna sem er tólf ára.
„Við verðum með bíl og ætlurn að ferðast
um landið í mánuð.“
„Mér líst vel á mig hér. Þetta er mikil fram-
för frá því sem áður var,“ sagði Þurý
Árnadóttir. „Hún er kannski ekki eins stór
og ég átti von á en flott. Fríhöfnin er mjög
góð og það eina sem mér finnst að er inn-
gangurinn sem mér finnst ekki nógu vel
merktur," sagði Þurý. Eiginmaður hennar,
Jakob Gunnarsson, var sama sinnis. „Þetta
„Ætti að vera stærri“
Axel Jónsson og Guðlaugur Þorbjörnsson
voru að fara til London að kaupa skip sem
nota á til að flytja út ferskfisk. „Mér líst
mjög vel á flugstöðina,“ sagði Axel. „Ég
hélt samt að hún væri miklu stærri. Sérstak-
lega finnst mér að aðkoman, þar sem maður
er bókaður inn, mætti vera stærri. Ég gæti
ímyndað mér að þar gæti orðið troðningur
ef margar vélar fara á svipuðum tíma. Guð-
laugur tók í sama streng og sagðist hafa
búist við henni stærri. „Annars líst mér vel
á þetta í fljótu bragði. Þetta er fallegt and-
lit út á við.“