Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.1987, Page 3
LAUGARDAGUR 13. JÚNÍ 1987.
3
Atvinnumál
Rífandi tekjur
í grásleppunni
- einstök vertíð á Breiðafirði
Grásleppusjómenn við Breiðaíjörð
hafa sjaldan haft eins rífandi tekjur
og nú. Það þykir vist ekkert sérstakt
hjá þeim að hafa 20 þúsund krónur
eftir daginn.
„Það er góðæri í grásleppunni. Sam-
an fer gott verð, góð veiði og gott
veður,“ sagði Kristján Gunnlaugsson,
grásleppusjómaður frá Stykkishólmi,
er blaðamaður DV fór með honum og
bróður hans, Þresti, í veiðitúr á dögun-
um á tveggja tonna trillu, Val SH-169.
Þeir Kristján og Þröstur eru synir
Gunnlaugs Kristjánssonar sem manna
lengst hefúr stundað grásleppuna frá
Stykkishólmi. Gunnlaugur kveðst
aldrei hafa fengið eins mikinn afla og
nú.
Nýbyggð kavíarverksmiðja í Stykk-
ishólmi í eigu Bjargar hf. auðveldar
grásleppusjómönnum lífið. Hún kaup-
ir grásleppuhrognin ósöltuð og
Sjávarútvegsráðuneytið:
Lítiö um
kvótasvik
- mörg fyrirtæki skoðuð
í vor hófu menn frá sjávarútvegs-
ráðuneytinu að bera saman aflaskýrsl-
ur og útflutningsskýrslur hjá mörgum
fiskvinnslufyrirtækjum víðs vegar um
landið og komu þá fljótlega í ljós
nokkrar misfellur hvað kvótasvik
varðar. Var þá ákveðið að skoða bók-
hald þessara fyrirtækja betur.
Að sögn Áma Kolbeinssonar ráðu-
neytisstjóra hefúr verið skoðað hjá
fyrirtækjum allt umhverfis landið og
mjög lítið af kvótasvikum komið í ljós,
ef til vill minna en búist hafði verið
við eftir sögusögnum að dæma.
Ámi sagði að hér væri ekki um neina
skyndiskoðun að ræða, svona eftirliti
yrði haldið uppi reglulega meðan
kvótakerfið er við lýði og einnig yrði
öðrum aðferðum beitt við eftirlitið.
Árni sagði það fagnaðarefni hve al-
mennt menn virða og fylgja kvótakerf-
inu. -S.dór
óverkuð fyrir 24 þúsund krónur tunn-
una og nánast staðgreiðir. Áður þurftu
sjómennimir sjálfir að salta og verka
hrognin og bíða jafnvel í hálft ár eftir
greiðslu.
„Eg vann í smíði í Reykjavík í vet-
ur, á trésmíðaverkstæði. Ég var að fá
10 þúsund krónur útborgaðar eftir vik-
una. Ég er búinn að hafa það í dag frá
hádegi," sagði Kristján Gunnlaugsson
þegar blaðamaður DV hafði fylgst með
þeim bræðrum moka upp grásleppunni
í fjórar klukkustundir.
Grásleppuveiði þykir notaleg vinna.
Vertíðin stendur yfir þá þrjá mánuði
sem sól er hæst á lofti. Innan um ey-
jamar á Breiðafirði hlýtur þetta að
vera draumastarf.
„Aðalóþægindin við þetta eru hvað
við sólbrennum,“ sagði Þröstur Gunn-
laugsson.
-KMU
Kristján ristir kvið grásleppunnar og hrognin renna
gefur af sér um 140 krónur.
tunnuna. Þröstur bróðir hans rær með honum. Hver grásleppa
DV-mynd Krlstján Már Unnarsson