Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.1987, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.1987, Side 4
4 LAUGARDAGUR 13. JÚNÍ 1987. Fréttir George Shultz, utanrikisráðherra Bandaríkjanna, á fundi með frétta- mönnum í Háskólabiói í gær. DV-mynd JAK Shultz ánægður eftir fundinn George Shultz, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, virtist ánægður að afloknum fundi utanríkisráðherra • NATO-ríkja á Hótel Sögu í gærmorg- un. Á fundi með fréttamönnum, sem ráðherrann hélt skömmu fyrir hádegi í gær, lýsti hann yfir ánægju sinni með fundinn, sagði hann hafa verið gagnlegan og árangursríkan. Shultz sagði að Bandaríkjamönnum væri styrkur að því að hafa samþykkt þá, sem utanríkisráðherramir gerðu með sér á fundinum, í farteskinu þegar gengið verður til endumýjaðra við- ræðna við Sovétmenn. Aðspurður um það hvort hann teldi að Pershing-flaugar V-Þjóðverja myndu hindra samkomulag um eyð- ingu meðaldrægra kjamavopna í Evrópu sagði ráðherrann að í viðræð- um Bandaríkjamanna og Sovétmanna væri einvörðungu rætt um vopn sem annaðhvort þeirra ríkja ætti eitt og sér. Pershing-flaugamar væm sam- eign Þýskalands og Bandaríkjanna og því ekki til umræðu þar. Shultz sagði að málefni Persaflóa hefði borið á góma á fundi ráðherr- anna og hefði hann lært mikið af þeim umræðum, meðal annars það að Bret- ar hefðu á þessu ári veitt um hundrað skipum flotafylgd um flóann. Sagði ráðherrann gott til þess að vita að Bandaríkjamenn væm ekki einir um að íhuga slíkar framkvæmdir. Þá var ráðherrann spurður hvort ekki skyti skökku við að Bandaríkja- menn fæm fram á aðstoð ríkja við Persaflóa á sama tíma og þeir neituðu að selja þeim vopn. Ráðherrann kvað þá hluti vera slitna úr réttu samhengi og ekki hægt að tengja tvö ólík mál saman á þann veg. Matthías ánægður „ísland hefur lýst því yfir að hér verði ekki kjamorkuvopn og við höf- um stutt þá stefhu að fækkun kjam- orkuvopna verði í samræmi við það jafhvægi sem menn vilja ná í vömum Atlantshafsbandalagsins og Varsjár- bandalagsins," sagði Matthías Á. Mathiesen utanríkisráðherra á blaða- mannafundi eftir ráðherrafundinn í gær. Matthías lýsti ánægju sinni með fundinn og sagði íslensku ríkisstjóm- inar sfyðja eindregið þá yfirlýsingu sem ráðherramir hefðu sent frá sér. Hann lagði áherslu á að náðst hefði meiri árangur en búist hefði verið við þar sem áhersla væri lögð á að náð væri samningum um eyðingu allra langdrægra eldflauga. Utanríkisráðherra sagði að ekki væri á dagskrá að kjamorkuvopn yrðu sett í kafbáta á norðurslóðum. íslend- ingar sfyddu alsherjarútrýmingu á kjamorkuvopnum en ekki það að víg- búnaðarkapphlaupið færðist á önnur svæði. -JFJ Könnun Margir telja lögfræðinga og end- álíka og aðrar stéttir en 8,3% töldu endur fengu 46,7% jákvæða en hún sanngjöm, 0,7% frekar ódýr en urskoðendur óheiðarlegri en al- þá heiðarlegri. Prestar höfðu, eins 11,3% neikvæða. Tannlæknar engum hún vera mjög ódýr. mennt gerist. I könnun, sem og leiðir af fyrstu tölunum, vinning- reyndust umdeildastir m(ið 29,3% Þegar spurt var hvort fólk heföi Félagsvísindastofriun Háskólans inn í þessum samanburði. 67% töldu neikvæða en 44,6% jákvæða. notið lögfræðiþjónustu reyndust gerði fyrir nýtt fyrirtæki, Irígfræði- þá álíka heiðarlega og aðrar stéttir Þá var kannað álit á verðlagningu 63,5% aldrei hafa notað sér hana. þjónustuna hf., töldu 12,8% af 1085 en 31,2% töldu þá heiðarlegri. lögræðinga og tannlækna. Af þeim 13,7% höfðu notað hana einu sinni manns, sem svöruðu, lögfræðinga Þegar spurt var um almennt við- sem tóku afstöðu fannst 40,4% þjón- á síðustu þrem árum, 3,7% tvisvar óheiðarlegri en aðrar stéttir og 13% horf til nokkurra stétta fengu fast- usta lögræðinga mjög dýr og 48,3% en sárafáir oflar á þeim tíma. Sam- af 1060 höfðu sama álit á endurskoð- eignasalar heldur betur á baukinn frekar dýr. Þá eru ekki raargir eftír kvæmt þessari könnun virðast um endum. 1,7% af 1113 töldu presta í því39,9% höfðu neikvætt viðhorftil með aðrar skoðanir, 10,8% fannst 35% þjóðarinnar halda íslensku lög- sama hópi. þeirra á móti 18,4% sem höfðu já- þjónustan sanngjöm og 0,5% ódýr. fræðistéttinni við efrúð. En stéttimarfengu ekki bara þessa kvætt viðhorí 24,4% vora neikvæð Tannlæknaþjónustan þykir þó jafti- -HERB einkunn. 83,1% töldu lögfræðinga í garð lögfræðinga en 35,2% jákvæð. vel enn dýrari. Af þeim sem tóku álíka heiðarlega og aðra og 4% heið- 6,7% voru neikvæð gagnvart dómur- afetöðu fannst 55% sú þjónusta mjög arlegri. 78,7% mátu endunskoðendur um og 46,2% jákvæð. Endurskoð- dýr og 32,4% frekar dýr, 11,7% þótti Carrington lávarður og aðstoðarmenn hans á blaðamannafundinum i Háskólabíói þar sem niðurstaða ráðherrafundarins var skýrð. DV-mynd JAK „Fundurinn var árangursríkur og full eining var um tvöfalda núlllausn Bandaríkjamanna," sagði Carring- ton lávarður, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, um niður- stöðu ráðherrafundarins. í yfirlýsingu sem utanríkisráðherr- arnir samþykktu í lok fundarins er fjallað um það tækifæri sem virðist vera til afvopnunar. Jafnhliða er vik- ið að ójafnvægi sem ríkir í hefð- bundnum vopnabúnaði, efnavopnum og vígvallarkjarnavopnum og því verði að eyða. Lýst er yfir stuðningi við hina tvöföldu núlllausn, sem er útrýming skammdrægra og meðal- drægra eldflauga í Evrópu, en samhliða verði teknar upp viðræður við Sovétmenn um helmingsfækkun langdrægra eldflauga, eyðingu efna- vopna og jafnvægi í hefðbundnum herafla í Evrópu. I yfirlýsingu utanríkisráðherranna er sagt að lykillinn að varanlegum friði og jafnvægi í Evrópu sé ekki einungis afvopnun heldur verði einn- ig að virða mannréttindi. Minnst er 750 ára afmælis Berlínar og ítrekaðar skuldbindingar banda- lagsins við borgina. Einnig er minnst á 40 ára afmæli Marshall-aðstoðar- innar og hryðjuverk af öllu tagi fordæmd og hvatt til alþjóðlegrar samstöðu gegn hryðjuverkamönn- um. Enn eitt skrefið í átt til af- vopnunar Carrington sagði að nú hefði verið stigið enn eitt skrefið í átt til af- vopnunar og nú tækju við viðræður Sovétmanna og Bandaríkjamanna, flaugar Breta og Frakka yrðu undan- skildar. Hann sagði að Bandaríkja- menn myndu hafa náið samráð við bandamenn sína á meðan á viðræð- um stendur. Þegar Carrington var spurður hvort Atlantshafsbandalagið væri tilbúið að fórna samkomulagi fyrir þær 72 eldflaugar af eldri gerð, sem á að halda eftir í Þýskalandi, sagði hann að svo gæti farið. Hins vegar hefðu þær flaugar aldrei verið taldar með í afvopnunarviðræðum og yrðu það ekki. -JFJ George Shultz, utanríkisráðherra Bandarikjanna, varð að nota báðar hendur til að heilsa þegar hann kom til fund- ar við Matthías Á. Mathiesen utanrikisráðherra og Halldór Ásgrimsson sjávarútvegsráðherra á Hótel Sögu í gaer. íslensku ráöherrarnir raeddu þá sérstaklega hvalveiðimál við þann bandaríska og gerðu honum grein fyrir afstpðu íslensku stjórnarinnar til tillagna Bandarikjamanna í þeim efnum. Ljósmynd Gunnar Vigfússon Ræddu hvalinn við Shultz Matthías Á. Mathiesen utanríkis- ráðherra og Halldór Ásgrímsson sjávarútvegsráðherra ræddu við Ge- orge Shultz utanríkisráðherra um hvalamál og umsókn Flugleiða um íjölgun ferða á flugleiðinni til Or- lando. Bandaríkj amenn ætla að leggja fram tillögu á þingi Alþjóða hvalveiðiráðs- ins sem íslendingar eru ósammála og telja að eigi að ná breiðari samstöðu um. Tillagan gengur út á það að fela vísindanefnd ráðsins til að fjalla nánar um vísindaáætlanir sem settar eru fram. „Við höfum í sjálfú sér ekkert á móti því en síðan er ætlunin að niður- staða vísindanefhdarinnar gangi til afgreiðslu í ráðinu og þar geti farið fram atkvæðagreiðsla um niðurstöðu vísindanefndarinnar. Það er ekki mjög líklegt að allir vísindamenn verði sam- mála og við teljum það mjög óskyn- samlegt að greiða atkvæði um slíka niðurstöðu." JFJ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.