Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.1987, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.1987, Blaðsíða 5
LAUGARDAGUR 13. JÚNÍ 1987. 5 LIS Sljónunál MURRAY MURRAY-garðsláttuvélarnar aftur fáanlegar á íslandi með Briggs & Stratton-mótor. Takmarkaður fjöldi véla á þessu frábæra verði. Tökum frá vélar í síma 689699. HVELLUR Kænuvogi 36. Reykjavík, Útsölu- og þjónustuaðilar: Hvellur, Kænuvogi 36, sími 689699. Framtækni, Skemmuvegi 34 N, sími 641055. Vélin, Kænuvogi, sími 685128. Sölufélag garðyrkjumanna, Skógarhlíð 6, Rvík. Húsasmiðjan, Reykjavík. Gos, Artúnshöfða. Lækjarkot, Hafnarfirði. Stapafelí, Keflavík. Málningarþjónustan, Akranesi. G.Á. Böðvarsson, Selfossi. Kaupf. Árnesinga, Selfossi. Raforka, Akureyri. K.E.A., Akureyri. Bílaleiga Húsavíkur. Brimnes, Vestmannaeyjum. Rörverk, ísafirði. Jón Fr. Einarsson, Bolungarvík og einnig kaupfélög víða um land. 2ja ára ábyrgð Árni Johnsen Valdimar Indriðason Gunnar G. Schram Davíð Aðalsteinsson Bjöm Dagbjartsson Guðmundur Einarsson Fallnir þingmenn síðustu kosninga: Þrír em enn atvinnulausir Þrír þeirra sex fyrrum þingmanna sem ekki náðu kjöri í síðustu alþingis- kosningum ganga nú um atvinnulaus- ir en þrír hafa hafið störf að nýju, annars staðar. Tveir þeirra hafa horfið til þeirra starfa sem þeir gegndu áður en þeir hófu þingmennsku en einn hefur haslað sér völl á nýjum vett- vangi. „Það liggur ekkert fyrir um það hvað ég fer að gera, það er í athug- un,“ sagði Ámi Johnsen sem var þriðji maður á framboðslista Sjálfstæðis- flokksins á Suðurlandi við síðustu alþingiskosningar en náði ekki kjöri. Árni sagðist þrátt fyrir þetta ekki vera hættur í pólitík en vildi að öðm leyti ekki gefa upp hvort hann hefði eitt- hvert starf í sigtinu og þá hvaða. „Ég er ekki farinn að gera neitt enn- þá,“ sagði Valdimar Indriðason sem var annar maður á lista Sjálfstæðis- flokksins í Vesturlandskjördæmi. „Ég tek það rólega, það er ekkert annað að gera.“ Valdimar var framkvæmdastjóri á Akranesi áður en hann var kjörinn á þing. „Ég er aftur tekinn við prófessors- starfi við Háskólann en ég var í fríi að mestu á meðan ég sat á þingi,“ sagði Gunnar G. Schram, prófessor í lögum við Háskóla Islands og fyrrum þingmaður Sjálfstæðisflokksins á Reykjanesi. Gunnar skipaði fimmta sæti flokksins í kosningunum en náði ekki kjöri. Gunnar sagðist hafa kennt lítið eitt við skólann á meðan hann sat á þingi en frá og með næsta hausti mun hann kenna laganemum stjómskipunarrétt og þjóðarrétt. „Ég hvarf að mínu ættaróðali, Am- bjargarlæk í Þverárhlíð," sagði Davíð Aðalsteinsson, fyrrum þingmaður Framsóknarflokksins en hann skipaði annað sætið á framboðslista flokksins við síðustu kosningar. „Ég hef verið að vinna í flögum að undanfórnu og búið mig undir að bjarga þjóðinni frá matarskorti en það er hugsjónarstarf," sagði Davíð. „Ég er ekki hættur i pólitík en þetta er góð hvíld. Það er gott að vera hér og hlusta á grasið gróa,“ sagði Davíð. „Ég er ekkert farinn að gera ennþá, ég er atvinnulau.s," sagði Bjöm Dag- bjartsson, fyrrum þingmaður Sjálf- stæðisflokksins í Norðurlandskjör- dæmt eystra. „Ég sagði upp minni stöðu, því mér þykir óeðlilegt að menn haldi öðrum hæfum mönnum í stað- gengilshlutverki árum saman. Ég er að leita mér að vinnu og það má segja að eitthvað sé í sigtinu en það er ekki tímabært að segja hvað það er,“ sagði Bjöm. Þá hefur Guðmundur Einarsson sem var kjörinn á þing árið 1983 fyrir Bandalag jafnaðarmanna en gekk síð- an í Alþýðuflokkinn, tekið við starfi framkvæmdastjóra Alþýðuflokksins. Guðmundur bauð sig fram fyrir Al- þýðuflokkinn í Austurlandskjördæmi í síðustu kosningum en ekki náði A-1- þýðuflokkurinn inn manni þar frekar en fyrri daginn. -ój PREDOMA HJÓLHÝSIFYRIR AT.T.A BÍLA Á LÆGRA VERÐI EN TJALDVAGN ÁN FORTJALDS SÝNING LAUGARDAG OG SUNNUDAG KL. 13-17 N-126 d med fortjaldi Kr. 188.000,- • Tveggja hellna eldavél • Svefnpláss fyrir 3-4 • Rafmagnsvatnsdæla og vaskur • Vatnstankur • Gluggatjöld • 3 inniljós og rafkerfi • Fíber- glass yfirbygging • Galvaniseruð grind • Stór (Miðað við gengi dollars 10. 04. '87) N-126 n með fortjaldi Kr. 229.000,- dekk • Sjálfvirkar bremsur í beisli • Hand- bremsa, nefhjól • Flexitoraíjöðrun • Léttbyggð og henta aftan í alla bíla • Þyngd frá 400 kg • Góðir skápar. Vélaborq Bútækni hf. Sími 686655/686680 _______Bíldshöfða 8 (við hliöina á Bifreiðaeftirlitinu). Mikið úrval af fatnaði á herra, dömur og börn á óvenjulágu verði. Opið laugardag kl. 10-16. Smiðjuvegi 2B, Kópavogi, á horni Skemmuvegar. Símar 79866 - 79494.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.